Vestfirska fréttablaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 1
Afgreiðslan á ísafjarðarflugvelli, Sími 3400
Afgreiðslan Aðalstræti 24, sími 3410
FLUGFÉLAG
/SLAJVDS
LOFTLEIDIR
"1
BARNAFOT
Fyrir 4 til 6 ára
BUXUR - PEYSUR - BOLIR
0 Verslunin ísafiröi sími 3507
LANDHELGISBROT:
1,4 millj. kr. sekt fyrlr ólöglegar togveiðar-
45 daga fangelsi fyrir
hrefnuveiðar
Síðast liðinn föstudag
kom varðskipið Ægir að
Stíganda RE 307, þar sem
hann var við ólöglegar tog-
veiðar á friðuðu svæði, 44
sjómílur n-austur af Horni.
Stígandi var færður til
hafnar á Isafirði, þar sem
mál skipstjórans var tekið
fyrir á mánudaginn var.
Þorvarður K. Þorsteins-
son, bæjarfógeti á ísafirði,
dæmdi í málinu og féll
dómur þannig, að skip-
stjóranum var gert að
greiða kr. 1.4 millj. til
Landhelgissjóðs íslands, og
afli og veiðarfæri skipsins
voru gerð upptæk. Afli var
lítill og veiðarfæri slitin.
Meðdómendur voru þeir
Símon Helgason og Einar
Jóhannesson.
Þegar trygging hefur
verið sett fyrir sekt og afla,
getur skipið, sem er rúm
200 tonn að stærð, haldið
til veiða á nýjan leik. ss
Skipstjórlnn á norska hrefnu-
veiðibátnum Andefjord var
dæmdur i' 50 þús. króna sekt og
45 daga fangelsi fyrir ólöglegar hrefnuvelðar.
LJósm. Ingólfur Krtstmundsson.
Vill enginn
verða
æskulýðs-
fulltrúi?
Þrátt fyrir að starf æsku-
lýðsfulltrúa hafi tvisvar
verið auglýst laust til um-
sóknar, hefur enginn sótt
um innan tilskilins tíma.
Að sögn Bolla Kjartans-
sonar, bæjarstjóra, var
gert ráð fyrir þessu starfi á
fjárhagsáætlun fyrir þetta
ár og má þvf búast við að
starfið verði auglýst aftur.
Felst það í því að hafa
umsjón með iþróttamann-
virkjum á staðnum og að
vera n.k. framkvæmdarað-
ili fyrir íþróttahreyfinguna.
ss
Sigurður Jónsson
tekur viðstjórn
Kaupfélags ísfirðinga
SLÖKKVILIÐ ÍSAFJARÐAR var kvatt á vettvang að Aðalstræti 22, sl.
föstudag. Varð mikill reykur af þvf að kveikt hafði verið á eldavél í einni
íbúð hússins, en hún síðan yfirgefin.Skemmdir urðu litlar sem engar.
Kaupfélag ísfirðinga hefur
fengið til starfa nýjan kaupfé-
lagsstjóra. Hann heitir Sig-
urður Jónsson, og er hingað
kominn beint frá Kenya, þar
sem hann vann að athugun-
um á markaði og verslun
heimamanna.
Sigurður er fæddur 12.
mars 1946 í Keflavík.
Hann lauk prófi frá Sam-
Slgurður Jónsson
kaupfélagsstjóri.
vinnuskólanum árið 1967,
en hefur síðan sótt fjölda
námskeiða í stjórnun og
rekstri verslana. Árin 1969
og 1970 var hann skrif-
stofustjóri hjá Kaupfélagi
Skaftfellinga í Vík í Mýr-
dal og frá 1971 til 1975
starfaði hann hjá skipu-
lagsdeild sambandsins.
Árið 1975 fluttist Sig-
urður til Tanzaníu og
kynnti þar innfæddum
stjórnun á samvinnufyrir-
tækjum, en það starf var
liður í aðstoð Norðurlanda
við þróunarlöndin. I júní
1977 fór hann svo til
Kenya og var þar í eitt ár.
Sigurður tók formlega
við starfi kaupfélagsstjóra
15. júlí s.l. Er hann var
inntur eftir stöðu Kaupfé-
lagsins í framtíðinni, þá
sagðist hann engu kvíða,
því möguleikar smásölu-
verslunar væru hér miklir.
Kona Sigurðar er Anna
Skúladóttir. Þau hjón eiga
5 ára gamla dóttur, Eirný
Ósk.
ss
I þessari viku hefjast fram-
kvæmdir við viðbyggingu
slökkvistöðvarinnar á Isafirði.
Verkið var boðið út og bauð
einn aðili íþað, Kubbur hf.
Tilboð Kubbs var kr.
19.286.920., en kostnaðará-
ætlun verkkaupa var kr.
15.353.590. Voru teknar upp
viðræður um málið milli
Kubbs hf. og Tæknideildar
bæjarins, og lækkaði Kubbur
þá tilboð sitt um rúma eina
milljón kr. eða í kr.
17.980.200. Lagði bæjarráð til
að því tilboði yrði tekið og var
það samþykkJ á síðasta bæj-
arstjórnarfundi.
ss
mmm