Vestfirska fréttablaðið - 16.08.1978, Qupperneq 6
6
i
Daði Hinriksson
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útfor
Haraldar Kristjánssonar
stöðvarstjóra fsafirði
Pétur Haraldsson Geirlaug Jónsdóttir
Ásta Dóra Egilsdóttir Jón Jónsson
Egill Kristjánsson Guðrún Guðjónsdóttir
Kristján Kristjánsson Elsa Sigurðardóttir
TIL SÖLU
T oyota
Mk II.
árgerð 1972
Upplýsingar
í sím 3625
VEIÐIMENN
Veiðileyfi í
Laxá og Bæjará
í Reykhólasveit
eru seld að
Bæ.Reykhólasveit
Símstöð,
Plastáhöld
Leikföng
Gjafavara
Balar - Allar stærðir
Taukörfur-Þrjár gerðir
Mjög mikið úrval af
nýjum leikföngum
Fjölbreytt gjafavara
Vinnuver,
ísafirði, sími 3520
HANDFÆRASJÓMENN
Nýtt frá Noregi:
Vorum að taka upp nýja gerð af
SJÁLFLÝSANDI handfærakrókum nr. 11.
Einnig nýkomið beint frá Noregi
handfærasökkurnar gamalkunnu
nr. 8 og 9 með og án hliðarlykkju.
GAMLA KRÓNAN OG GÖMLU VERÐIN
ENN f FULLU GILDI.
íþróttavallarhúsið
í sjálfboðavinnu?
Upp hefur komið sú
hugmynd meðal knatt-
spyrnumanna á ísafirði, að
reisa hús undir búningsað-
stöðu við Torfnesvöll í
sjálfboðavinnu. Teikning-
ar af þessu húsi eru til, en
þær gerði Bjarni Jensson
tæknifræðingur.
f fundargerð stjórnar í-
þróttavallar frá 27. júlí,
kemur fram að þar sem
teikningar og útboðsgögn
liggi nú fyrir, muni verða
óskað eftir því að auglýst
verði útboð á fyrsta á-
fanga strax. Fáist viðun-
ancfi tilboð ekki, vill stjórn-
in láta kanna aðra mögu-
leika, svo sem ráðningu
byggingarmeistara og
smiða, auk sjálfboðaliða.
Guðbjörn Chariesson,
formaður stjórnar íþrótta-
vallar, sagði í samtali við
blaðið, að stjórnin hefði
mætt á fund með bæjar-
ráði 31. júlí 's.l'. og óskað
eftir því að önnur vinnu-
brögð yrðu höfð í þessu
máli, þ.e. að verkið yrði
unnið samkvæmt íþrótta-
anda í sjálfboðavinnu, en
ekki í anda ,,kerfisins“. Þó
hefði verið fallist á það að
lokum að fylgja þeirri
reglu, að bjóða verkið út.
Sagði Guðbjörn að með
sjálfboðavinnu væri hægt
að nýta mun betur það
fjármagn sem fyrir hendi
er.
Guðmundur Ingólfsson,
en hann á sæti í bæjarráði,
sagði að áður en fram-
kvæmdir við vallarsvæðið
hæfust, þyrfti að mæla fyr-
ir stofnbraut sem á að
koma fyrir innan svæðið.
„Þó má búast við að verk-
ið, eða hluti þess, verði
boðið út innan skamms.
Hvað sjálfboðavinnu varð-
ar, er allt óskipulagt enn-
þá. Það þarf t.d. að finna
út hvar slík vinna getur
komið inn í smíðina,“
sagði Guðmundur.
ss