Vestfirska fréttablaðið - 16.08.1978, Síða 8
Ritvélar — Reiknivélar
1
OMIC reiknivélar m/strimli kr. 55.600
OMIC reiknivélar m/strimli og glugga kr. 64.800
RICOMAC borðreiknivél m/glugga kr. 20.600
ABC 2002 skólaritvél kr. 33.700
ABC 3002 skólaritvél m/dálkum kr. 40.200
OLYMPIA ferðaritvél kr. 36.700
Væntanlegar f næsta mánuði:
KOVAC rafmagnsritvél i tösku verðnálægt kr. 110.000
BÓKAVERSLUN JÓNASAR TÓMASSONAP
Sími3123
Isafjarðarumboö
Arni Sigurðsson
Férðamiöstöðin hf.
Staða fiskiðnaðarins
ræddá ísafirði
( dag miðvikudag, munu
frystihúsaeigendur á Vest-
fjörðum halda fund á ísafirði
um stöðu fiskiðnaðarins, að
sögn Jóns Páls Halldórsson-
ar, framkvæmdastjóra Norð-
urtangans hf. Verður rætt um
dagblaðanna nýlega, um
að hluti úr afla togara frá
Norðurlandi hefði farið
beint í gúanó í síðustu
aflahrotu, m.a. vegna lé-
legrar ísunar, var Jón Páll
sem borist hefur á land hjá
okkur.“
Jóni var ekki kunnugt
um að neinn afli togara á
Vestfjörðum hefði farið
beint í mjölvinnslu og í
stöðuna eins og hún verður 1.
september, verði ekkert að
gert, en eins og margoft hefur
komið fram f fjölmiðlum að
undanförnu, má þá búast við
auknum hallarekstri vegna
launahækkana.
Vegna fréttar í einu
Guðbjartur tS -16
inntur eftir því hvort slíkt
hefði átt sér stað hér.
„Alla vega ekki hjá okk-
ur. Hér hefur ekki eitt kíló-
gramm skemmst og við
höfum því fengið eðlilegt
verðmæti úr þeim afla,
Ljósm. Kristinn Benediktsson.
sama streng tók starfsmað-
ur Mjölvinnslunnar hf.
Hnífsdal. Þangað hafði
eingöngu borist vana-
legurúrgangur.
ss.
©
POLLINN HF
Isafirði
Sími3792
1
Rafeindaklukkur
með vekjara
HANNAÐAR OG SMÍÐAÐAR Á ÍSLANDI
KAUPIÐ ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLU
STYRKIÐ fSLENSKAN RAFEINDAIÐNAÐ
Nýtt raforku-
reikningakerfi
Nú er verið að undirbúa
breytingar á raforkureikn-
ingakertinu á svæði Orkubús
Vestfjarða. Felast þessar
breytingar annarsivegar í auk-
inní véfvæðingu og hins veg-
ar í áætlaðri orkusölu með
álestrum á milli.
Þetta kom fram í máli
Sveinbjarnar Óskarssonar,
deildarstjóra fjarmáladeildar
Orkubúsins, á fundi stjórnar
Orkubús með fréttamönnum
þ. 21. júlf s.l.
Með vélvæðingunni er
m.a. stefnt að auknu ör-
yggi í útskrift raforkureikn-
inga og betra innheimtu-
eftirliti. Á fundinum kom
einnig fram, að raforku-
notkun hefur verið áætluð
á ísafírði í tilraunaskyni.
Lesið var af öllum mælum
um s.l. áramót. Síðan var
áætlað um mánaðarmótin
febrúar/mars og aftur um
mánaðarmótin apríl/maí.
Þá var lesið af öllum mæl-
um um mánaðarmótin
júní/júlí. Slíkar áætlanir
eiga að spara mannafla og
reikningar eiga að geta
borist gjaldendum með
jafnara millibili.
Vegna þessara tilrauna
kunna rafmagnsreikningar
nokkurra notenda að hafa
verið mun hærri eða lægri
í júní/júlí en áður, vegna
þess að áætlað hefur verið
of lágt eða of hátt í fyrri
skiptin. Er verið að kanna
árangur þessara tilrauna,
og í framhaldi af því verða
ákveðnar frekari áætlanir.
ss
Byggðar 11 íbúðir á
Hnífsdalssvæðinu
Bæjarstjórn ísafjarðar
hefur samþykkt að heimila
byagingu tvegqja hæða
fjöTbýlishúss á horni Dal-
brautar og fsafjarðarvegar.
Verða þar 8 íbúðir. Verið er
að undirbúa útboðsgögn,
og er stefnt að því að fram-
kvæmdir hefjist fyrir vetur-
inn.
I samtali við blaðið
sagði Bolli Kjartansson,
bæjarstjóri, að einnig væri
áformað að byggja tveggja
hæða raðhús á horni
Garðarvegs og Heiðar-
brautar. Verða þar 3 fbúð-
ir, þannig að í allt munu 11
íbúðir væntanlega verða i
smfðum f ár á vegum fram-
kvæmdanefndar leiguf-
búða. Nefndin sá um bygg-
ingu 12 íbúða í Fjarðar-
stræti 6, en hún hefur
heimild til að byggja 64
íbúðir í allt á ísafirði.
ss
Fjarðarstræti 6