Vestfirska fréttablaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 6
G Vegna linkindar fyrrv. menntamála-
ráðherra og sleifarlags í ráðuneyti
Pólgata 10 þaðan flutti Jón nú á dögunum.
að vera upp á náð vina og
kunningja kominn, þegar
kemur að matmálstím-
um.... Framkoma ráðu-
neytis við konu mína, fyrr-
verandi settan skólameist-
ara og kennara við skólann
í sjö ár, er samt sýnu verst.
Vegna óvissu um húsnæð-
ismál sá hún sér ekki fært
að gera ráð fyrir áfram-
haldandi starfi við skól-
ann. Að sjálfsögðu hefur
verið ráðið í það starf.
Kona mín er því ekki að-
eins á götunni með 3 börn
á skólaskyldualdri heldur
líka atvinnulaus fyrirvara-
laust. Sök sér væri, ef þetta
mál snerti aðeins mína
persónu.
Ég vænti þess, að ráðu-
neyti yðar geri sér ljósa þá
erfiðleika, svo að ég noti
orðalag úr bréfi ráðuneyt-
isins, sem eru á því, að ég
haldi áfram í þjónustu þess
eftir slíka meðferð á fjöl-
skyldu minni.... Ég leyfi
mér því hér með að árétta
erindi mitt dags. 30. 08. s.l.
þess efnis, að þér veitið
mér náðarsamlegast lausn
frá embætti í þjónustu
ráðuneytis yðar, frá og
með 1. september 1978,
sbr. skilyrta uppsögn mína
í bréfi dags. 30. 03. 1978.
Þrátt fyrir þá lítilsvirð-
ingu, sem ráðuneyti yðar
hefur í verki sýnt starfi
okkar hjóna við uppbygg-
ingu Menntaskólans á fsa-
firði s.l. 8 ár, er okkur
mikið í mun, að sú lítils-
virðing bitni ekki á óskyld-
um aðilum, sem væntan-
lega hafa ekki til saka unn-
ið, þ.e. nemendum skólans.
Okkur er einnig Ijóst, að
þér, hr. ráðherra, sem eruð
nýr í starfi, berið enga á-
byrgð á orðum og gerðum
ráðuneytis yðar í þessu
máli. Þess vegna býð ég
yður að freista þess að
halda áfram í starfi til 1.
okt. n.k. þannig að yður
gefist ráðrúm til að aug-
lýsa eftir og ráða eftir-
mann minn.“
í samtali við blaðið þ. 5.
september s.l. sagði Jón
Baldvin, að í byggingaá-
ætlun skólans frá 1970 er
bygging skólameistaraset-
urs og 3ja kennaraíbúða. I
henni væri fólgin viss
skuldbinding um að sjá
skólameistara fyrir hús-
næði þar til byggingu
Eiginmaðurinn slyngi
segir konunni allt, sem
hann reiknar með að
hún frétti hvort sem er
★
Jafnvel gióðarauga
hefur sínar björtu hliðar.
★
Það sem maður getur
síst fyrirgefið öðrum eru
manns eigin gallar.
★
Flestir óska langlífis,
frelsis og hamingju, án
þess að þurfa nokkuð
fyrir því að hafa.
★
Þegar meðalmaðurinn
lítur á þá menn, sem
aðrar konur hafa giftst,
þá finnst honum hans
eigin kona hafa verið
heppin.
★
Eitt helsta vandamálið í
fjölskyldulífinu er það,
að börnin hætta að vera
börn, en foreldrarnir
hætta aldrei að vera
foreldrar.
þeirra bústaða væri lokið.
Jón sagði að þetta einstaka
mál snerti ekki þá húsnæð-
ismálastefnu, sem ríkjandi
væri varðandi opinbera
embættismenn, og fyrir-
greiðslu þar að lútandi.
„Þessi fyrirgreiðslustefna
er í höndum ráðuneytis og
mótuð af því, þótt svipuð
fyrirgreiðsla sé víðtækari
og nái til óopinberra fyrir-
tækja, t.d. hér í bæ. Ef
menn hefðu gengið að því
fyrirfram, að hver og einn
utanbæjarmaður sem
hingað kæmi, ætti að út-
vega sér og sínum húsnæði,
þá hefði mál af þessu tagi
aldrei komist í hámæli.
Reynsla okkar er hins veg-
ar sú, að þá hefði þessi
menntastofnun aldrei risið
upp vegna fjölda aðkomu-
kennara. Ráðuneytið hefur
í reynd falið mér að útvega
húsnæði, þótt slíkt sé ekki
tekið fram í erindisbréfi,
því það hefur samþykkt þá
leigusamninga sem ég hef
gert fyrir skólann.“
Að lokum sagðist Jón
Baldvin vera á móti ævi-
ráðningu embættismanna.
I skólastarfi t.d. þyrftu að
vera hæfílegar manna-
breytingar, til að endur-
nýjun í kennslu o.fl. gæti
átt sér stað. Því væri ráð-
legra að hafa embættisbú-
staði við skólann þannig að
vandamál eins og hér um
ræðir þyrfti ekki að koma
upp.
ss.
Leika á
gítar í
ísafjarðar-
kirkju
Þeir Símon ívarsson og
Carl Hángi efna til tón-
leika í Isafjarðarkirkju
annan föstudag. Munu
þeir leika gítartónlist eftir
ýmsa þekkta höfunda,
bæði einleiks- og tvíleiks-
verk.
Efnisskrá þeirra félag-
anna er mjög fjölbreytt, og
á meðal þess sem þeir leika
eru verk eftir Pasquini,
Bach, Villa Lobos, Alben-
iz, Ravel og Granados.
Tónleikarnir eru haldnir
á vegum Tónlistarfélags
ísafjarðar. Aðgöngumiðar
verða seldir við inngang-
inn, hóflegu verði.
Að sögn Sigríðar J.
Ragnar á nú gítarleikur æ
meiri vinsældum að fagna,
bæði hér á landi og erlend-
is, og meðal kennslugreina
í Tónlistarskólanum á ísa-
firði í vetur verður gítar-
kennsla.
Húsnæði óskast
Okkur vantar íbúð á leigu til lengri
tíma.
KAUPFÉLAG ÍSFIRÐINGA
^ ----------------------------------------'
Notum góða veðrið
Málum úti
• Hraunmálning og Kópal Dyrotex á
húsið
• Þol á þakið.
•Bondex á viðinn.
• Kópal Dyrotex innahúss í
þúsundum tónalita.
• Gólfdúkar og veggstrigi í úrvali.
• Allt til málunar.
• Látið fagmenn vinna verkið.
fnniillinu
Hafnarstræti 8 - Sími 3221
IBUÐ EÐA HUS
ÓSKAST TIL LEIGU.
Há leiga í boði,
fyrirframgreiðsla.
Vinsamlegast hafið
samband við mig sem fyrst.
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON
aðalbókari
c/o Bæjarfógetaskrifstofan
ísafirði, sími 3733.
LllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIU
STURTUKLEFAR
TOPPLYKLASETT
VEGGPLÖTUR
Allt á gamla genginu
Gólfteppin nýkomin
í úrvali
TIMBUBVEBSUJNIN
fS«FTBm=— BJOBK
SÍMAR 3063 og 3293 — PÓSTHÓLF 66
Ikiiiiiiiiiimmmiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiii
J