Vestfirska fréttablaðið - 13.09.1978, Side 7
Aðalfundur Vestfirskra
náttúruverndarsamtaka
Frá Krossnesi í Árneshreppi.
Aðalfundur Vestfirskra
náttúruverndarsamtaka
var haldinn dagana 2. og
3. sept. að Laugarhóli í
Bjarnarfirði.
Fundarstörf voru fyrri
daginn. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa fluttu á-
vörp og erindi á fundinum
þeir Haukur Hafstað,
frkvstj. Landverndar, Vil-
hjálmur Lúðviksson,
stjórnarformaður Þörunga-
vinnslunnar á Reykhólum,
en hann var fulltrúi Nátt-
úruverndarráðs og Leifur
A. Símonarson, jarðfræð-
ingur, sem var aðalræðu-
maður fundarins. Fjallaði
erindi Leifs um Jarðfræði
Hornstranda og Jökulfjarða.
Erindi hans var hið fróð-
legasta og gaf tilefni til
mikilla umræðna og fyrir-
spurna.
Á sunnudag, 3 sept. var
ekið norður Strandasýslu, í
Norðurfjörð og Ingólfsfjörð
Ferðalangur nutu þar leið-
sagnar Leifs A. Simonar-
sonar og Torfa Guðbrands-
sonar, skólastjóra á Finn-
bogastöðum í Árneshreppi.
Fræddi Leifur menn um
jarðfræðileg fyrirbæri á
leiðinni svo og jarðsögu
svæðisins, en TorFi lýsti
sögu og mannlífi þessara
nyrstu byggða Stranda-
sýslu.
Athygli vakti hin mikla
uppbygging í búskapahátt-
um Árneshreppinga og
stakk hún mjög í stúf við
rústir gömlu síldarverk-
smiðjanna, sem minna á
áhrifamikinn þátt í at-
vinnusögu þessa héraðs.
5.
Aðalfundur V.N. 1978 skorar
á bæjar- og sveitarstjórnir á
Vestfjörðum að skapa aðstöðu
til losunar á olíu sorpi og öðr-
um úrgangi úr skipum í höfnum
landsins í samráði við siglinga-
málastofnun ríkisins.
Fundurinn leggur til að Sigl-
ingamálastofnun rfkisins láti
gera veggspjald í skip og báta
þar sem minnt er á hversu al-
varlegar afleiðingar losun úr-
gangsefna í sjó getur haft í för
með sér.
Þá heitir fundurinn á sjó-
menn að taka höndum saman
um bætta aðstöðu varðandi
meðferð sorps og annarra úr-
gangsefna úr skipum.
— ★ —
Ályktun
aðalfundar
1.
Aðalfundur V.N. 1978 hvetur
sveitarfélög á Vestfjörðum til
þess að beita sér fyrir stofnun
Náttúrufræðistofu Vestfjarða,
sem síðar, er fram liðu stundir,
yrði, ásamt öðrum söfnum á
Vestfjörðum, hluti af Safna-
stofnun Vestfjarða.
Verkefni stofnunnar verði
m.a. að annast fræðslu og
heimildasöfnun um náttúru
fjórðungsins og að koma upp í
því sambandi sýningarsafni
náttúrugripa og að standa að
farsýningum.
Einnig verði að því stefnt að
stofan geti annast náttúrurann-
sóknir og unniðað náttúruvernd
og skyldum verkefnum m.a. í
þágu opinberra aðila. Við það
ætti að miða að stofan komi að
notum fyrir skóla á svæðinu og
verði því einnig leitað samvinnu
við forráðamenn þeirra um að
koma henni á fót.
2. ~ * ~
Aðalfundur V.N. 1978 beinir
þeirri eindregnu áskorun til
Náttúruverndarráðs að það auki
að miklum mun fræðslustarf-
semi sína og færi hana inn í
skóla landsins. Telur fundurinn
heppilegt að senda fulltrúa til
sem flestra skóla til að kynna
náttúruverndarsjónarmið og
umgengisvandamál og vekja á-
huga æskufólks á verndun ó-
spilltrar náttúru.
Staldrað við í Ingólfsfirði.
— ★ —
3.
Aðalfundur V.N. 1978 telur
nauðsynlegt að Veiðistjóri láti
veiða villimink í eyðibyggðum
jafnt sem setnum byggðum og
ráði sjálfur til þess menn. Talið
er að vfða í eyðibyggðum Vest-
fjarða alist upp mergð minka í
byggðum sem setnum byggð-
um.
— ★ —
4.
Aðalfundur V.N. 1978 vekur
athygli á þeirri hættu sem skap-
ast af gáleysislegri meðferð
skotvopna í byggðum sem ó-
byggðum landsins.
6.
Aðalfundur N.V. skorar á Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins
að hraða gróðurkortagerð á
Vestfjörðum og rannsaka beit-
arþol í fjórðungnum, bæði á
afrétt og í byggðum.
Stjórn Vestfirskra náttúru-
verndarsamtaka skipa nú:
Lára G. Oddsdóttir, formaður
Ásgeir Sigurðsson,
Oddur Pétursson, Sigríður J.
Ragnar,
Sigrún Guðmundsdóttir.
Gamli og nýi tíminn á Djúpuvik.
friði fyrir veiðimönnum og leiti
síðan inn á byggð svæði.
Minkur veldur auðvitað sama
tjóni á fuglalífi landsins í eyði-
Fundurinn skorar á sýslu-
menn fjórðungsins, að fram-
fylgja lögum um meðferð skot-
vopna og bendir á að óheimilt
er að skjóta á veiðibráð úr hrað-
bátum.
Þá hvetur fundurinn almenn-
ing til að gera yfirvöldum aðvart
ef vitnast um misnotkun skot-
vopna.
VANTAR BARNFÓSTRU
Fyrir tveggja ára dreng
hálfan eða allan daginn
helst á Fjarðarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 4241
eftir kl. 19:00 á kvöldin