Vestfirska fréttablaðið - 13.09.1978, Blaðsíða 14
14
Aðalfundur Kaupmannafélags Vestfjarða:
„Ekki farið að gildandi
iögum um verðlagsmál”
„Aöalfundur Kaup-
mannafélags Vest-
fjarða, haldinn í Sjó-
mannastofunni í Bol-
ungarvík 2. september
1978, mótmælir harö-
lega þeim álangingar-
reglum sem beint hef-
ur verið á þessar vörur
(átt er viö m.a. mjólk
og kjötvörur. V.fr.) til
tjóns bæöi fyrir versl-
unina og neytendur.
Vantar stórlega á aö
álagning þeirra standi
undir beinum kostnaði
viö aö dreifa þeim í
smásölu.
Þaö er skoöun fund-
arins aö hér sé ekki
farið aö gildandi lög-
um um verðlagsmál,
sem gera ráö fyrir aö
álagninguna megi
ekki ákvaröa lægri en
svo, aö hún standi
undir eðlilegum
rekstri."
Þessi orð eru úr fundar-
samþykkt aðalfundar
Kaupmannafélagsins.
f ræðu sem Benedikt
Bjarnason, formaður
Kaupmannafélags Vest-
fjarða flutti við setningu
fundarins, sagði hann
meðal annars: „Verslun-
inni er sem sé ætlað af
stjórnvöldum að greiða
stóra fjármuni úr eigin;
vasa, til að hljóta þá náð
að fá að versla með þessar
vörur“.
Margt fleira var til um-
fjöllunar á fundinum, m.a.
vöruflutningar á sjó, til
Vestfjarðahafna. Lýstu
kaupmenn ánægju sinni
með hversu ástand hefði
batnað í þeim efnum við
fjölgun ferða Skipaútgerð-
ar ríkisins á hafnirnar.
Fundurinn skoraði á for-
ráðamenn ríkissjóðs að
greiða versluninni kostnað
þann, sem hlýst af inn-
heimtu söluskatts. Á aðal-
fundinum var rætt um
hina nýju verðlagslöggjöf
og skorað á stjórnvöld að
láta hana taka gildi nú
þegar.
Meðal fundarmanna
kom fram, að mikil ánægja
ríkir með þau breyttu við-
horf, sem skapast hafa á
Vestfjörðum við tilkomu
vestfirskra heildverslana.
Stjórn félagsins skipa
þeir Benedikt Bjarnason,
formaður, Heiðar Sigurðs-
son, varaformaður, Gunn-
laugur Jónasson ritari.
Meðstjórnendur eru þau
Margrét Guðbjartsdóttir
og Guðjón Guðjónsson. í
varastjórn eru Gunnar
Proppé og Ólafur Magnús-
son.
Halldóra er sæt og
saklaus eins og sólin,
en þú ættir að hitta
hana eftir sólarlag!
★
Fötin mín voru fóðruð
með hrosshári. Þegar
önnur ermin rifnaði af,
þá skutu þeir jakkann.
★
Það er engin ástæða til
þess að móðga menn
með því að segja að
þeir séu þverhausar,
þegar það nægir að
segja að þeir séu
svolítið ákveðnir.
★
Til þess að koma í veg
fyrir aukakílóin, er
ágætt að staðsetja
baðvigtina fyrir framan
ísskápinn.
★
Velgengni í fjármálum
er stórkostleg. Maður
hittir svo marga
áhugasama ættingja.
Kristjana Ósk Samúelsdóttir og Sigríður Jakobsdóttir héldu hlutaveltu um daginn í
kjailaranum hjá Sigríði. Ágóðann af hlutaveltunni gáfu þær Leikskólanum til þess að kaupa
leikföng fyrir börnin. Kristjana á bróður á Leikskólanum, en bróðir Sigríðar er nýlega hættur
þar. Þær eru hér á myndinni með fóstrum og Leikskólabörnum.
Daginn sem Fréttablaðið bar að garði var allt liðið af Leikskólanum að fara í berjamó með
fóstrunum. Búið var að panta hópferðabíl og leggja átti af stað strax eftir hádegi með allar
fjórar deildir skólans. Fóstrurnar voru búnar að útskýra fyrir börnunum hvernig ber væru
notuð til matargerðar og sýna þeim muninn á lyngi og berjategundum.
haustverkin
Balar, byttur, fötur
margar geröir
Kútar
Sigti — Hnífar — Bretti
Skæri — Brýni
Sleifar — Mælimál — Skálar
Athugið að verkin vinnast betur
og auðveldar með réttum áhöldum
Úrvalið er ávallt í Neista