Vestfirska fréttablaðið - 13.09.1978, Qupperneq 15
15
O
— Fjórðungsþing ályktar
um samgöngumál
Austur-Barðastrandarsýslu um
Þorskafjarðarheiði er svo bág-
borið, að vart er um sumarveg
að ræða. Brýnt sé þvf að ákveða
vegastæði og tengingu Djúp-
vegar við aðalvegakerfi lands-
ins, og skapa jafnrétti f sam-
göngum milli landshluta.
Þá má nefna, að í aðal vega-
kerfinu á Vestfjörðum eru víða
kaflar, jafnvel á láglendi, sem
eru illir yfirferðar, hættulegir og
teppast fljótt í snjóum, sem
brýna nauðsyn ber til að lag-
færa, eins og t.d. f Austur-
Barðastrandarsýslu.
Samgöngur á sjó
Ljóst er, að samgöngur við
núverandi aðstæður að vetrar-
lagi eru á þann veg, að einvörð-
ungu verður að treysta á vöru-
flutninga á sjó yfir háveturinn til
hafna á Vestfjörðum.
Fjórðungsþing fagnar þeirri
viðleitni forstjóra Skipaútgerðar
rfkisins að endurskoða og end-
urskipuleggja ferðir skipaút-
gerðarinnar með það í huga að
auka tíðni ferða og fá fram hag-
kvæmni í rekstri fyrirtækisins,
þess verði þó gætt við enn frek-
ari endurskoðun, að þjónusta
við hin smærri byggðarlög
skerðist ekki frá því sem áður
var.
Samgöngur í lofti
Fjórðungsþingið telur að
flugsamgöngur hafi gjörbreytt
búsetuaðstöðu á Vestfjörðum,
og leggur áherslu á, að flug-
samgöngur verði efldar svo
sem kostur er og þeim félögum,
sem þjónustuna annast sé
tryggður starfsgrundvöllur.
Jafnframt því að meta mikils
flugsamgöngur milli Vestfjarða
og annarra landshluta, telur
þingið nauðsynlegt að efla flug-
samgöngur milli byggðarlaga á
Vestfjörðum, svo viðskipta-,
þjónustu- og menningartengsl
haldist og eflist milli byggðar-
laganna, jafnt vetur sem sumar.
Þá er bent á, að grundvöllur-
inn að samstarfi sveitarfélaga í
heibrigðismálum byggist á því,
að starfrækt sé neyðar- og
sjúkraflugþjónusta á Vestfjörð-
um. Vill þingið leggja áherslu á,
að minni flugvellir fái eðlilegt
eftirlit og viðhald, þannig að
þeir geti gegnt hlutverki sfnu
sem sjúkra- og þjónustuflug-
brautir (vellir) (á þessu sumri
hafa þeir ekki verið valtaðir).
Þingið vekur athygli á, að á-
stand sem jafnan skapast þegar
ekki er hægt, vegna annmarka
ísafjarðarflugvallar að halda
uppi eðlilegum flugsamgöng-
um, krefst þess að tekin verði
ákvörðun um byggingu vara-
flugvallar fyrir ísafjarðarflugvöll
sem fyrst.
Bökunarfélag
ísfirðinga
óskar eftir að ráða
1. Afgreiðslustúlku í bakarí.
2. Aðstoðarmann hjá bakara.
Upplýsingar veittar hjá skrifstofu K.í.
Starf
húsvarðar
við Gagnfræðaskólann á l'safirði
er laust til umsóknar.
Upplýsingar gefur skólastjóri,
en umsóknir sendist til formanns
skólanefndar Jóns Páls Halldórssonar,
eða undirritaðs, fyrir 20. þ.m.
Bæjarstjóri.
;FasteignÍK|
TIL SÖLU
Engjavegur 25, neðri hæð,
82 ferm. 3 herb. íbúð í tví-
býlishúsi. (búðin er snyrti-
leg og í góðustandi. Laus
til afnota um áramót eða
jafnvel fyrr eftir samkomu-
lagi.
Þjóðólfsvegur 16,
Bolungarvík, lítil einstak-
lingsíbúð á jarðhæð í góðu
standi. Laus til afnota fljót-
lega.
Mánagata 2b, (áður Ljós-
myndastofa ísafjarðar) 56
ferm. húsnæði á hentugum
stað í bænum. Hentugttil
verslunar eða smáiðnaðar.
Stekkjargata 4, lítið ein-
býlishús á tveimur hæðum,
3 herb. og eldhús.
Laust til afnota með
skömmum fyrirvara.
8 tonna vélbátur, byggður
1954, í góðu standi með
88,5 ha. Listervél frá
1974. Meðfylgjandi er tal-
stöð, dýptarmælir, 3 raf-
magnsrúllur ásamt raf-
geymum og línuspili. Laus
til afnota strax.
Á söluskrá vantar allar
gerðirfasteigna.
Tryggvi
Guðmundsson,
LÖGFRÆÐINGUR
Hafnarstræti 1, sími 3940
og 3702 ísafirði
Eldri borg-
arar í
Eyjaferð
Laugardaginn 19. ágúst
s.l. fór hópur eldri borgara
í skoðunarferð til Vest-
mannaeyja. Skoðuðu þeir
m.a. sædýrasafn, elliheim-
ili og byggðasafn. Einnig
var farið í rútuferð um
Heimaey, enþannig
kynntu ferðalangar sér af-
leiðingar gossins 1973 und-
ir leiðsögn PálsHelgasonar.
í hópnum voru 46 ísfirð-
ingar, 60 ára og eldri, á-
samt 4 fararstjórum. Þar
sem flugi frá Eyjum seink-
aði þ. 19. vegna veðurs,
varð hópurinn að gista um
nóttina í Reykjavík, í stað
þess að fara samdægurs til
ísafjarðar, eins og áætlað
hafði verið. Reyndar hafa
dyntóttir veðurguðirnir
þrisvar sinnum komið í
veg fyrir að slík ferð væri
farin, en í fjórðu tilraun
urðu þeir að lúta í lægra
haldi, þótt með naumind-
um væri.
Bæjarsjóður studdi öld-
ungana til fararinnar, en
félagsmálaráð hafði veg og
vanda með henni. Formað-
ur félagsmálaráðs, Gunnar
Steinþórsson, sem jafn-
framt var einn af farar-
stjórum, tjáði blaðinu, að
þrátt fyrir að áætlun hafi
ekki staðist út í ystu æsar,
hafi fólk verið mjög ánægt
að ferðalokum.
ss.
Skyldi eitthvert þeirra hafa verið með í Eyjaferðinni?