Vestfirska fréttablaðið - 22.11.1978, Blaðsíða 1
Afgreiðslan á ísafjarðarflugvelli, Sími 3400
Afgreiðslan Aðalstræti 24, sími 3410
FLUGFÉLAG
ÍSLAIMDS
LOFTLEWm
Nú er feiknarlegt úrval
af nýjum tískufatnaði!
Dömur:
Herrar:
KJÓLAR—KÁPUR—JAKKAR—
PEYSUR—VESTI—BLÚSSUR
FRAKKAR—JAKKAR— STAKKAR
PEYSUR—BUXUR—SKYRTUR
Nýjar sendingar vikulega!
Verslunin
:
Isafiröi sími 3507
Hótel ísafjörður:
Gistirými fokhelt á næsta ári
Fyrsta og önnur hæð tilbúnar 1980
Framkvæmdir á lóð Hótel
Isafjörður hf. hófust sumarið
1976. I haust var svo hafin
bygging fyrsta áfanga hótel-
byggingar, og verður lokið
uppsteypu fyrstu hæðar fyrir
áramót. Gistrými hótelsins
verður fokhelt á næsta ári, en
hótelresktur verður væntan-
lega hafinn á árinu 1980 og
þá með ellefu gsitiherbergj-
um á annarri hæð hótelbygg-
ingarinnar, og líklega með
resktri sumarhótels í Heima-
vist Menntaskólans á ísafirði.
Þetta kom fram í spjalli V.f.
við Ólaf Halldórsson, for-
mann stjórnar Hótels Isa-
fjörður hf. nú um helgina.
- ■; V: gi
STOFNAÐ I OKTÓBER 1973
Hótel ísafjörður var stofnað í október
1973, að undangenginni undirbúnings-
vinnu félaga J.C. ísafjörður, en þeir höfðu
haft hótel sem verkefni byggðaþróun-
arnefndar klúbbsins.
I stofnsamningi félagsins segir að tilgangur
þess sé að byggja og eiga hótel á Isafirði.
Hlutafé var þá ákveðið 10 millj. króna.
Framkvæmdir vegna hótelbyggingar hóf-
ust sumarið 1976, eftir að nokkrar tafir
höfðu orðið vegna þess að erfitt reyndist að
leysa lóðamál fyrir bygginguna. Hafði þá
hlutafé félagsins aukist í 23,5 millj. en þar
af fóru 11,1 m.kr. í kostnað við rýmingu og
fyllingu lóðar og gatnagerðargjald vegna
byggingarinnar.
Framhald á 2. síðu
Ný byggingaráætlun —
Ný fjármögnunaráætlun
— 72 gistirúm, vistlegur salur og setustofa
Á byggingaráætlun Hótel
Isafjörður hf. fyrir árið 1979 er
áformað að steypa upp allar
fimm hæðir hótelsins og gera
bygginguna fokhelda. Stefnt
er að því á árinu 1980 að taka
í notkun tvær neðstu hæðir
hótelsins. Allt gistirými verð-
ur væntanlega tekið í notkun
1982. Fjármagn til byggingar-
innar mun koma að sextíu
hundruðustu frá fjárfestingar-
lánasjóðum og öðrum aðilum
utan Vestfjarða, ef tekst að
safna 37 m. kr. hlutafé nú hjá
almenningi og fyrirtækjum á
Isafirði og nágrenni.
FUNDARSALUR OG VEIT-
INGABUÐRÚMA100 MANNS
A neðstu hæðinni verður
gestamóttaka, eldhús, veit-
ingabúð, fundarsalur,
skrifstofa, geymslur og
fleira. Á annarri hæð verða
ellefu gistiherbergi. Fund-
arsalur og veitingabúð eru
samliggjandi og má gera
að einum sal, sem nær þá
eftir byggingunni endi-
langri. Rúmar hann þá
um 100 manns í sæti. Gæti
slíkur salur hentað prýði-
lega fyrir fundi og sam-
kvæmi. Reiknað er með að
allt gistirými hótelsins
verði fullbyggt og tekið í
notkun 1982. Þá verða 36
gistiherbergi, eins og
tveggja manna á annarri
til fimmtu hæð. Á fimmtu
hæð verður einnig rúmgóð
og vistleg setustofa.
REIKNAÐ MEÐ RESKTRI
SUMARHÓTELS
Eftir viðræður við for-
ráðamenn Ferðaskrifstofu
ríkisins, er reiknað með að
Hótel Isafjörður taki við
rekstri sumarhótels í
Olafur B. Halldórsson
formaður
stjórnar félagsins
Heimavist M.I. Einnig
hefur verið um það rætt,
að hluti gistirýmis Hótel
ísafjörður gæti nýst yfir
vetrarmánuðina, sem
heimavist fyrir nemendur
verknámsskólanna á ísa-
firði.
Helstu hluthafar í félag-
inu eru Bæjarsjóður Isa-
fjarðar, Flugleiðir hf.,
Hraðfrystihúsið Norður-
tangi hf. og íshúsfélag Is-
firðinga hf. Eiga þessir að-
ilar samtals 34 m. kr. í
hlutafé. Önnur fyrirtæki á
Isafirði og um 90 einstak-
lingar eiga um 8 m. kr.
hlutafé.
ÆTLAÐ AO 60% FJÁR-
MAGNS KOMI FRÁ AÐILUM
UTAN VESTFJARÐA
Til gistihússbyggingar-
innar er ætlað að frá fjár-
festingarlánasjóðum og
öðrum aðilum utan Vest-
fjarða komi um 60% fjár-
magns, miðað við fokheld-
an þann byggingarhluta,
sem nú er unnið að. Lán-
veitingar frá Ferðamála-
sjóði og Byggðasjóði eru
Framhald á 2. síðu
!••••••••••••••••••••••••••