Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 1
3. tbl. 6. árg.
vestfirska
15. febrúar 1980
FRETTABLASIÐ
Farþega- og voruafgreiðsla á ísafjarðarflugvelli
Símar: 3000 - 3400 - 3411
FLUGLEIÐIR
U
-----------:------------------------rn
Nýjar vörur daglega
HERRAFÖT Mílanó - Punk
FERMINGARFÖTIN Fyrstu settin
HERRAJAKKAR!HERRABUXUR
KULDAJAKKARÁ ALLA FJÖLSKYLDUNA
Verslunin
ísafirði sími 3103
Flytja tillögu
um flug -
samgöngur
Landsbyggðarþingmenn taka á olíumisréttinu:
14,8 yiknavínna
fyrir húshitun
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, ásamt þremur öðrum landsbyggðar-
þingmönnum flytur tillögu um að draga úr hinum gífurlega mun sem er
á kostnaði við olíukyndingu og húshitun frá hitaveitum.
HÆTTA Á BYGGÐARÖSKUN
( viðtali blaðsins við Kristján
Jóhannesson, sveitarstjóra á
Flateyri, kemur m.a. fram að
Karvel Pálmason flutti nýlega
tillögu á Alþingi íslendinga um
úrbætur í flugsamgöngum við
Vestfirði. Við höfðum samband
við Karvel Pálmason og inntum
hann nánar eftir þessari tillögu.
—Þetta er fyrst og fremst þings-
ályktunartillaga um athugun, úr-
bætur og almenna úttekt á flug-
samgöngum við Vestfjarðakjálk-
ann. sagði Karvel. Hér er um að
ræða tillögu, sem ég hef flutt tví-
vegis áður. í fyrra sinnið var hún
svæfð í nefnd. Þegar hún svo kom
úr nefnd vorið 1978, lagði nefndin
til að tillögunni yrði vísað frá með
rökstuddri dagskrá. Að þessri frá-
vísun stoðu meðal annars tveir
Vestfjarðaþingmenn.
—Stendur þú einn að þessum
tillöguflutningi núna?
—Nei, það geri ég ekki. Ég fékk
sem meðflutningsmenn þá Matth-
ías Bjarnason og Sigurgeir Bóas-
son, sem situr nú á Alþingi fyrir
Ólaf Þórðarson. í tillögunni er í
fyrsta lagi gert ráð fyrir, að athug-
að sé með varaflugvöll fyrir Isa-
fjarðarflugvöll. I tillögunni er
minnst á Holt í Önunandarfirði og
Bolungarvík í því sambandi. I
öðru lagi er gert ráð fyrir því, að
úttekt verði gerð á því hvort ekki
sé unnt að bæta aðstöðu á Isa-
fjarðarflugvelli með hliðsjó af lýs-
ingu vallarins, svo að flugvélum
verði gert kleift að lenda þar utan
birtutíma. Þetta á einnig við um
flugvöllinn á Patreksfirði og jafn-
framt á að bæta og laga öryggisút-
búnað á flugvellinum á Þingeyri.
—Er stuðningur við þessa til-
lögu á þingi?
—Ég skal ekkert um það segja.
Ég er að minnsta kosti að vona að
augu manna hafi opnast fyrir því,
að það er full þörf og nauðsyn á
því að kanna þessi mál rækilega
og ennfremur að gengið verði úr
skugga um hvort ekki er hægt með
nútíma tækni að bæta þessar sam-
göngur við Vestfirði, sem er langs-
amlega verst setti landshlutinn
hvað flugsamgöngur snertir.
—Hvenær má búast við að til-
lagan fái afgreiðslu?
—Ég þori ekkert að segja um
það, en ég vona að það verði sem
fyrst.
Sl. laugardag og sunnudag
var haldið á (safirði námskeið í
snjóflóðavörnum og björgun úr
snjóflóðum. Það voru tveir karl-
menn og kona frá Raunvísinda-
deild Háskólans, Flugbjörgun-
Eins og kunnugt er var ný-
lega lagt fram á Alþingi frum-
varp til laga um niðurgreiðslu
olíu til upphitunar húsa í land-
inu. Að þessu frumvarpi standa
þingmenn úr öllum flokkum,
þeir Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, Tómas Árnason, Stef-
án Jónsson og Eiður Guðna-
son. Við gerð frumvarpsins var
m.a. stuðst við mjög ítarlega
könnun, sem Fjórðungssam-
band Vestfirðinga gerði á upp-
hitunarkostnaði íbúðarhúsnæð-
is á ísafirði með gasolíu, sam-
anborið við tilsvarandi orku-
magn á verðlagi í heiti vatni hjá
hitaveitu Reykjavíkur, og raf-
orku hjá Orkubúi Vestfjarða og
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Þótt athuganir Fjórðungssam-
bandsins byggi á rauntölum
varðandi upphitunarkostnaði
hér á (safirði, hafa þessar upp-
lýsingar, að mati flutnings-
manna frumvarpsins, fullt gildi
um ástand mála um allt land hjá
arsveitinni í Reykjavík og Al-
mannavörnum ríkisins, sem
komu og leiðbeindu ísfirðing-
um í þessu. Laugardaginn var
bóklegt námskeið í Gagnfræða-
skólanum, enn á sunnudaginn
þeim, sem búa við olíukyndingu
íbúðarhúsnæðis, þar sem olíu-
verð er alls staðar það sama.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
alþingismaður.
var farið upp á Seljalandsdal og
þar var æft og kennt verklega.
Myndina tók Hrafn Snorrason á
verklega námskeiðinu á Selja-
landsdal.
I greinargerð með frumvarpinu
segir, að jöfnun upphitunarkostn-
aðar á landinu sé ekki einungis
sanngirnismál, heldur einnig hags-
munamál allrar þjóðarinnar. Er á
það bent, að stórfeld byggðarösk-
un blasi við og brottflutningur
fólks frá olíuhitunarsvæðunum, ef
ekki verði spyrnt við fæti í þessum
málum. Meginatriði frumvarpsins
er, að kostnaður olíukyndingu
húsnæðis verði á hverjum tíma
sem næst því sem upphitunar-
kostnaður er hjá nýjustu hitaveit-
unum, sem hafa jarðvarma að
orkugjafa. f greinargerðinni segir
orðrétt: „Kostnaður olíukyndingar
(samkv. frumvarpinu) er ákveðinn
eftir viðmiðunarreglu, sem felur í
sér sjálfvirkar breytingar á olíu-
niðurgreiðslunni eftir breytingum
á verði olíu og gjaldskrám hita-
veitna. Þetta þýðir nú, að kostnað-
ur þeirra, sem búa við olíukynd-
ingu, lækki sem næst um helm-
ing frá því sem nú er, miðað við
óbreytt verð á olíu og óbreyttar
gjaldskrár hitaveitna."
ATHUGUN V.F.
Áður en fjallað verður um
frumvarpið nánar, skal vikið að
athugun Fjórðungssambands
Vestfirðinga, en skýrsla um hana
var gefin út í síðasta mánuði. Þar
kemur fram m.a., að inn í saman-
burðinn er eingöngu tekinn orku-
kostnaðurinn en í öllum tilfellum
sleppt mælaleigu, viðhaldi og fjár-
magnskostnaði, og einnig raforku-
kostn. fyrir kynditæki og vatns-
dælu, þar sem hitað er upp með
olíu. „Ljóst er,“ segir í skýrslunni,
„að þessi tilgreindu útgjöld eru
mun hærri þar sem notuð er olía
heldur en aðrir orkugjafar."
Þá er ennfremur bent á. að taka
þyrfti inn í samanburðinn, ef meta
ætti til fulls aðstöðumun þeirra.
sem búa við mismunandi orku-
verð, ekki einungis þann kostnað,
sem áður var nefndur. heldur
einnig að bæta við tekjuskatti og
útsvari af þeim tekjum. sem nauð-
synlegt er að afla aukalega til að
geta greitt mismuninn á upphitun-
arkostnaðinum, og þannig staðið
fjárhagslega jafnt að vígi og sá,
sem greiðir lægri kostnaðinn.
15 VIKNA LAUN FYRIR OLÍU
f athugunum V.F. kemur fram,
að verkamaður í fiskvinnu á fsa-
firði þurfti að greiða 8 vikna dag-
vinnulaun (miðað við 40 stunda
vinnuviku) fyrir gasolíu til upphit-
unar á fjölskylduíbúð (4.I2 með-
limir) miðað við kaupgjald og gas-
Framhald á 2. síðu.