Vestfirska fréttablaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 1
4. tbl. 6. árg.
28. febrúar 1980
vestfirska
FRETTABLAÐIS
Farþega- og vöruafgreiðsla á ísafiarðarflugvelli: Símar 3000 - 3400 -
3410. Söluskrifstofa í Hafnarstræti: Símar 3457 - 3557.
TÖKUM UPP í ÞESSARI VIKU:
Boli og buxur
Smiösbuxur
Nýjar ullarbuxur
Barnaullarbuxur
og fermingarfötin eru alltaf aö koma
Verslunin
ísafirði sími 3103
Sex vestfirskir sjómenn farast
— Mannskaðaveður gekk yfir á mánudag
Nú eru mennirnir sex, sem
saknað hefur verið síðan fár-
viðri gekk yfir vestanvert landið
s.l. mánudag taldir af. Fjórir
þeirra eru frá ísafirði. Það eru
þeir Ólafur Össurarson,
Fjarðarstræti 57, fæddur 5. jan-
úar 1932, kvæntur og þriggja
barna faðir og Valdimar Öss-
barna faðir og Hjálmar Einars-
son, Dalbraut 26, fæddur 3.
nóvember 1943, kvæntur. Hann
átti 4 börn og stjúpbarn.
Mikil leit hefur staðið yfir að
rækjubátunum þremur undan-
farna daga og hafa milli 30 og 40
skip tekið þátt í leitinni, ásamt
flugvélum og leitarflokkum af
M.b. Eiríkur Finnsson
Náðu skipverjar að rétta hann af
með því að setja á fulla ferð og
gátu þannig keyrt hann upp.
Sjómenn telja að vindhraði hafi
komist upp í I4 — 16 vindstig
þegar verst var veðrið.
í þessu aftaka veðri valt mjólk-
urbíll á fjallveginum yfir Hálfdán
og einn maður beið bana.Gestur
Gíslason, áður bóndi í Trostans-
firði. Gestur var á áttræðisaldri og
lætur eftir sig fósturdóttur og dótt-
urdóttur, sem búið hafa hjá hon-
um á Bíldudal. Bílstjóri mjólkur-
bílsins slapp ómeiddur.
Björgunarsveitarmenn, sem fóru
á slysstaðinn sögðu að veðrið á
fjallinu hefði verið það alversta,
sem þeir myndu eftir.
M.b. Gullfaxi
V'
Þau sigruðu
urarson, bróðir hans, til heimil-
is að Sundstræti 30. Hann var
kvæntur og faðir fjögurra barna.
Þeir fórust með m/b Gullfaxa.
Með m.b. Eiríki Finnssyni fórust
þeir Haukur Böðvarsson, Tún-
götu 20, fæddur 18. október
1949, ókvæntur og Daníel Jó-
hannsson, Grundargötu 2,
fæddur 12. ágúst 1955, kvæntur
og tveggja barna faðir.
Með m.b. Vísi frá Bíldudal
fórust þeir Pétur Valgarð Jó-
hannsson, Dalbraut 18, fæddur
17. ágúst 1935, kvæntur, fimm
landi. Björgunarsveitir hafa leitað
í Djúpinu, í Jökulfjörðum og á
Arnarfirði. Einnig hefur verið
gengið á fjörur.
Brak fannst úr Gullfaxa við
Sandeyri, en björgunarbátur úr Ei-
ríki Finnssyni fannst nærri Ytra -
Skarði. Á Arnarfirði hefur fundist
brak allt frá Auðkúlu að Gljúfurá.
Rækjukassa hefur einnig rekið á
þessum slóðum.
M.b. Halldór Sigurðsson var
mjög hætt kominn í veðrinu á
mánudaginn, er hann lagðist á
hliðina í einni stormhviðunni og
sjór komst í stýrishús bátsins.
Byggja 41 íbiíð
— Leigu og söluíbúðir
Framkvæmdanefnd leigu-
íbúða á ísafirði hyggst á þessu
ári og hinu næsta byggja 41
íbúð sem leigu- og söluíbúðir á
ísafirði. Guðmundur H. Ingólfs-
son, formaður framkvæmda-
nefndarinnar hafði eftirfarandi
um málið að segja í viðtali við
Vestfirska fréttablaðið:
Árið 1973, þegar lögin um 1000
leiguíbuðir sveitarfélaga voru sett,
þá fór fram könnun meðal sveitar-
félaga í landinu um hugsanlega
þátttöku þeirra í byggingu slíkra
íbúða. Könnunin leiddi í ljós. að
sveitarfélögin álitu þörfina all-
miklu meiri, þar sem 1452 um-
sóknir bárust um þessar 1000 í-
búðir.
Vestfirðingar fengu í sinn hlut í
fyrstu áætlun 211 íbúðir. Þar af
voru ísafirði ætlaðar 64. Fram-
kvæmdanefndin hefur þegar lokið
við, eða hafið, byggingu 23ja í-
búða og eru því eftir 41 íbúð af af
hinni upphaflegu áaftlun.
Teljið þið að markaður sé fyrir
svo margar íbúðir, byggðar
samkvæmt leiguíbúðalögunum
hér á ísafirði?
Já, það ætlum við. Sú könnun
sem við höfum nú auglýst mun þó
gefa endanlegt svar við þeirri
spurningu. Samkvæmt áætlun,
sem nefndin hefur þegar sam-
þykkt, þá er hér um að ræða 16
íbúðir í tveggja hæða fjölbýlishús-
um og 25 íbúðir í einnar og
tveggja hæða raðhúsum.
Við sækjum um að byggja 15
íbúðir í Holtahverfi, 7 íbúðir á
Seljalandssvæði eða öðru hlið-
stæðu og 19 íbúðir í Hnífsdal.
Framhald á bls. 2
Það er óhætt að bregða fyrir sig málfari fþróttafréttamanna dagblaðanna og segja að
landsliðsmennirnir Árni Þór Árnason og Ásdís Alfreðsdóttir hafi unnið „verðskuldaðan sigur”
á Þorramótinu 16. og 17. febrúar s.l. Sjá frásögn á bls. 3.