Vestfirska fréttablaðið - 14.05.1980, Síða 1
FRETTABLADIS
Farþega- og vöruafgreiðsla á Isafjarðarflugvelli: Símar 3000 - 3400 -
3410. Söluskrifstofa í Hafnarstræti: Símar 3457 - 3557.
FLUGLEIDIR
Nú er sumarið komið!
Bjóðum nú
mikið af
sportfatnaði:
Bómullargalla,
mittisblússur,
blússur, boli,
buxur, skyrtur
og fleira og fleira.
Verslunin
ísafirði sími 3103
A fjárlögum:
1967 m. kr. til fram-
kvæmda á Vestfjörðum
825 m. kr. hærri fjárhæð en á árinu 1979. Mestu munar um hækkuð
framlög til framkvæmda vegna samgöngumála og á vegum Pósts og
síma.
Fjórðungssamband Vestfirð-
inga hefur látið frá sér fara
ýtarlegt yfirlit um fjárveitingar á
fjárlögum 1980 til hinna ýmsu
verkefna á Vestfjörðum. I yfir-
litinu er gefinn samanburður
við þrjú síðustu ár í krónum. Til
aðalmálaflokkanna, þ.e. sam-
göngumála, skóla og íþrótta-
mála, heibrigðismála o.s.frv.
renna alls í kringum 1.967
millj. kr. Utan við þessa upp-
hæð er vegafé, sem ekki var
búið að skipta, er skýrslan var
tekin saman. Sömuleiðis fram-
kvæmdafé til orkumála, svo
sem til Vesturlínu og fram-
kvæmda Orkubús Vestfjarða
o.fl., þar eð ekki hafði verið
gengið frá lánsfjáráætlun, er
yfirlitið var gert. Utan við fyrr-
greinda upphæð er einnig hlut-
deild í framkvæmda- og rekstr-
arfé til Skipaútgerðar ríkisins,
svo og hlutdeild í framlagi til
flóabátsins Baldurs sem að
nokkru þjónar Vestfirðingum.
Upphæðir á aðalmálaflokka
skiptast þannig: Til samgöngu-
mála renna kr. 806.3 millj.. til
skóla og íþróttamála 468 piillj.. til
heilbrigðismála 267 millj.. til dag-
vistaheimila 66 millj.. til fyrir-
hleðsna tæpar 2 millj.. til Pósts og
síma 3I3 millj. Til ýmissa annarra
hluta renna um 44 millj.
Vestfirska mun birta yfirlit
Fjórðungssambandsins. þar sem
greint er frá því hvernig fjárveit-
ingarnar skiptast milli hinna
ýmsu staða á Vestfjörðum. í fjár-
lögunum eru ennfremur eftirtald-
ir heimildir. sem snerta Vestfirð-
ina: l. Að kröfum ríkissjóðs og
ríkisábyrgðasjóðs á Þörunga-
vinnsluna hf. verði breytt í hluta-
fé. 2. Að breyta kröfum ríkissjóðs
á hendur Olíumöl hf. í hlutafé að
fengnu samþykki fjárveitinga-
nefndar Alþingis. 3. Að fella nið-
ur eða endurgreiða aðflutnings-
gjöld og söluskatt af eldneytis-
stöðvum Orkubús Vestfjarða. 4.
Að selja húseignina nr. 20 við
Túngötu á ísafirði. 5. Að selja
prestsseturhúsið við Miðstræti I4
í Bolungarvík og verja andvirði
þess til kaupa á annarri húseign
þar. 6. Að selja prestssetursjörð-
ina Stað í Súgandafirði og verja
andvirði jarðarinnár til þess að
kaupa eða byggja prestsseturshús
á Suðureyri. 7. Að selja Hótel
Flókalund. V-Barðastrandarsýslu.
8. Að selja hluta ríkissjóðs í gamla
barnaskólahúsinu á Borðeyri. 9.
Að semja við Útvegsbanka ís-
lands. bæjarstjórn (safjarðar o.fl.
um hönnun stjórnsýsluhúss á ísa-
firði.
Sumar þessara heimildir eru
þegar komnar til framkvæmda að
einhverju leyti eins og til dæmis
salan á Hótel Flókalundi.
Mikil spjöll
unnin á
byggingum
skólanna
Talsvert hefur borið á því í
vetur að spjöll hafa verið unnin
á húsum skólanna hér á Isa-
firði í vetur. Hafa rúður marg-
sinnis verið brotnar bæði í
barnaskólanum, gagnfræða-
skólanum og sundhöllinni og
ýmis önnur skemmdarverk
unnin. I samtali við Vestfirska
sagði Björgvin Sighvatsson,
skólastjóri, að meta mætti það
tjón, sem unnið hefur verið í
barnaskólanum á hundruð
þúsunda króna.
—Það sem við eigum í sífellu
stríði við eru knattleikir við skól-
ana, sagði Björgvin. og við erum
með fimm eða sex rúður brotnar
núna af þessum sökum. Það er
ekki bara okkar stofnun sem fyrir
þessu verður. Þetta undirstrikar
m.a. nauðsynina á því að skapa
krökkunum aðstöðu til knatt-
leikja á öðrum stöðum heldur en
þar sem þeir valda stórtjóni. Þá
hafa unglingar farið upp á þakið
á samkomusalnum. sem er
pappalagt. og þar hafa orðið
verulegar skemmdir og mikill leki
hefur verið á þakinu. einkum í
síðustu rigningum. Við viljum
vekja athygli fólks á þessu og
beina því til foreldra að þeir ræði
þetta við börn sín og brýni fyrir
þeim góða umgengni. Bæði eru
þarna stórverðmæti í húfi og síð-
an er þetta spurning um eðlilega
umgengnishætti. sagði Björgvin
Sighvatsson.
Sem dæmi um spjöllin má
nefna. að grípa hefur þurft til þess
ráðs að Iáta mála allan neðri
hluta skólans eftir að nýbúið var
að mála hann vegna þess hve illa
útileikinn hann var eftir krot og
krass barna og unglinga með túss-
penna og að frá áramótum hafa
sjö rúður verið brotnar í skóla-
húsinu. Spjöll sem þessi eru engin
nýjung og má segja að tjón seni
unnið er á opinberum byggingum
hér í bænum kosti bæjarfélagið
hundruð þúsundir króna á ári
hverju.
Hátt á 6. hundrað
í prófum
Próf eru nú hafin í skólunum
og munu líklega hátt á sjötta
hundrað nemendur þreyta próf
frá skólunum hér á ísafirði í
yfirstandandi mánuði. Hér á
myndinni má sjá nokkra nem-
endur 9. bekkjar Gagnfræða-
skólans á ísafirði í þungum
þönkum yfir vorprófi í stærð-
fræði.
Önundarfjarðarbrúin
tengd á þessu ári
Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegs- og samgöngu-
málaráðherra hélt almennan
borgarafund um þá málaflokka
í Félagsheimilinu í Hnífsdal,
laugardaginn 3. maí sl. i upp-
hafi fundarins flutti Steingrím-
ur yfirlit um stöðu samgöngu
og sjávarútvegsmála í landinu
almennt, en þó einkum hvað
varðar Vestfirði.
SAMGÖNGUMÁL
Steingrímur kvaðst ..eftir atvik-
um ekki óánægður með það fé.
sem fengist hefur til framkvæmda
á sviði samgöngumála." Nefndi
hann þar til. að af allri fjárveit-
ingu til flugvalla. á fjárlögum
1980. kæmi 209Í til framkvæmda
á Vestfjörðum og 18'/< af fjárveit-
ingu til hafna. þá sagði ráðherra
það niikilvægt. að fé hefði fengist
til að bæta radíósamband milli
Stykkishólms og Patreksfjarðar
og myndi það bæta sambandið
við Vestfirði í heild.
Ráðherra vék að hinu nýja
leiðakerfi Skipaútgerðar ríkisins.
Kvað hann það hafa reynst vel.
Þá upplýsti hann að ákvörðun um
byggingu nýrra skipa fyrir útgerð-
ina yrði tekinn eftir fáar vikur og
gæti þá bygging þeirra hafist eftir
næstu áramót.
Varðandi vegagerð á Vestfjörð-
um nú í sumar kom fram í máli
Steingríms. að brúin yfir Önund-
arfjörð mun verða tengd en til
þess verkefnis verður varið 450
millj. króna. Fjárveiting til vegar-
lagningar í Súgandafirði. við Suð-
ureyri hækkar frá fyrri áætlun úr
55 millj. króna í 100 millj.
Varðandi tengingu Inn-Djúps.
lýsti Steingrímur þeirri skoðun
sinni að hann hallaðist að vegar-
gerð um Steingrímsfjarðarheiði
Harðasti kjarninn" kemur út
f fundinum.
og myndi hann fylgja því að hún
yrði valin. Taldi hann jafnvel
hugsanlegt. yrðu sú leið fyrir val-
inu. að framkvæmdir gætu hafist
á næsta ári.
Þá upplýsti Steingrímur það. að
samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar, þá kæmu nú 127
kílómetrar af vegum hér á Vest-
fjörðum tilbúnir undir bundið
slitlag.
SJÁVARÚTVEGSMÁL
Ráðherra upplýsti að sam-
kvæmt nýútkomjnni skýrslu Haf-
rannsóknarstofnunnar væri
þorskstofninn í góðri framför.
Hrygningin 1976 hefði verið góð
og ástand þess árgangs nú væri
með besta móti. Mjög mikilvægt
væri að hrygning 1976 árgangsins
tækist vel á næsta ári. Sagði
Steingrímur að miðað við núver-
andi verndunaraðgerðir teldi
hann að þorskstofnarnir myndu
þola 500 þús. tonna veiði á árinu
1985 eða 1986.
Steingrímur vék að markaðs-
málum og benti á að Kanada-
menn. sem eru okkar hættuleg-
ustu keppninautar á Bandaríkja-
markaði legðu nú æ meiri áherslu
á fiskiðnað og stefndu þeir að því
að ná úr sjó 500-600 þús. lesta
afla á árinu 1985.
Þá ræddi Steingrímur um
tengsl veiða og vinnslu. Benti
hann á að víða um land væri ekki
afkastageta til þess að vinna á
heppilegusta hátt allan þann afla.
sem bærist á land á topp aflatím-
um. Sagði hann að framleiðni.
sem þyrfti að vera 18-2051 félli
iðulega niður í um I0T á slíkum
timabilum. Þetta er að sjálfsögðu
mjög alvarlegt vandamál. og
bendir til þess. að afkastageta
vinnslustöðvanna haldist ekki í
hendur við afkastagetu flotans.