Vestfirska fréttablaðið - 29.05.1980, Blaðsíða 7
vestfirska. I
rRETTABLADID
Bílamálunarverkstæði
hjá Vélsmiðjunni þór
Frá verkstæðinu. Á myndinni eru þeir Ægir Hall-
björnsson og Trausti Kristjánsson.
Nýtt verkstæði sem annast
bílasprautun og réttingar hefur
nú opnað í húsakynnum Vél-
smiðjunnar Þórs hf. Gestur
Halldórsson, framkvæmda-
stjóri, sagði í samtali við Vest-
Námsstyrkur
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr
Minningarsjóði Gyðu Maríasdóttur.
Styrkurinn er veittur til framhaldsnáms í
heimilisfræðum.
Umsóknarfrestur er til 17. júní. Um-
sóknir ásamt námsvottorði og upplýsing-
um um fyrirhugað nám sendist til undir-
ritaðra sem veita allar upplýsingar.
Magdalena
Sigurðardóttir Þorbjörg Bjarnadóttir
Seljalandsvegi 38 Húsmæðrask. Ósk
ísafirði, sími 3398 ísafirði, sími 3581-3025
firska fréttablaðið að ráðinn
hefði verið faglærður bifreiða-
smiður að réttingaverkstæð-
inu, Ægir Hallbjörnsson. Auk
hans vinna tveir menn á verk-
stæðinu. Viðgerðarverkstæðið
verður áfram í Vélsmiðjunni
Þór. Eins og kunnugt er annað-
ist það áður réttingar og
sprautun, en hentugra þótti að
aðskilja þetta til að stuðla að
aukinni þjónustu við bifreiða-
eigendur á Isafirði og ná-
grannabyggðarlögum.
Þetta nýja fyrirkomulag gerir
það að verkum að unnt er núna
að gera föst verðtilboð í sprautun
og réttingar. Hið nýja verkstæði
var opnað 7. maí s.l. og hefur sú
þjónusta sem það veitir þegar
mælst vel fyrir og margir notfært
sér hana. Gestur Halldórsson
tjáði blaðinu, að þegar hefði verið
pöntuð sérstök vél að utan til að
unnt verði að blanda bílalökk hér
á staðnum og þarf þá ekki lengur
að panta þau annarsstaðar frá.
Blönduð bílalökk verða einnig
seld út af verkstæðinu.
„Guðmundur“ skrifar um:
Viðhorf ísfirskra ungmenna
til annarra manna eigna
Skemmdarverk, skemmdar-
verk og aftur skemmdarverk.
Hvað er maðurinn eiginlega að
fara? Jú, hann er einungis að
tala um afskaplega hversdags-
lega atburði á Isafirði, en það
er sú holskefla af skemmdar-
verkum, sem yfir þennan bæ
ríður. Hvar sem er blasa um-
merkin við og því er tími til
kominn að Isfirðingar hugi að
því hver viðhorf ísfirskra ung-
menna eru til annarra manna
eigna. Ég er þess fullviss að
nokkur hópur ísfirskra ung-
menna lítur á eignir annarra
manna, sem hluti til þess að
svala skemmdarfýsn sinni á.
Enginn Isfirðingur getur talið
eignir sínar, hverju nafni, sem
þær nefnast, öruggar nema
þeirra sé vandlega gætt allan
sólarhringinn
Hér á síðum Vestfirska
fréttablaðsins hefur að undan-
förnu verið getið um nokkur
skemmdarverk, til dæmis að
kveikt var í íbúðarhúsi vegna
gálausrar meðferðar elds í
húsasundi, við sama hús var
grindverk mölvað mélinu
smærra, sagt hefur verið frá að
rúður hafi verið brotnar f
Barnaskólanum, krotað á veggi
skólans og þakpappi skemmd-
ur vegna umgangs á þaki sam-
komusalar skólans. Ég hef að
undanförnu verið að velta fyrir
mér hvaða hugsunarháttur
væri á bak við slíka umgengni
um eignir manna, en erfitt er að
komast að niðurstöðu um slfkt.
Hér á isafirði hafa fjölmargir
aðilar bundist samtökum um
að reisa veglegt hótel í miðjum
bænum og lagt fram til þess
umtalsverðar fjárhæðir. Maður
skyldi nú ætla að slfk fram-
kvæmd yrði metin að verðleik-
um hjá bæjarbúum. Nei, því er
ekki að heilsa, því litlu mátti
muna að þetta stórátak færi
fyrir lítið vegna þess að ein-
hverjir pörupiltar vildu svala
skemmdarfýsn sinni á þessari
byggingu. Hvaða viðhorf
skyldu þessir piltar hafa til
slíkra framfaramála, eða hugsa
þeir yfirleitt ekki?
ÓBÆTANLEGT TJÓN Á TRJÁ-
GRÓÐRI
Eitt dæmi um skemmdarverk
vil ég nefna, sökum þess að
það er af þeirri tegundinni að
áratugi tekur að bæta það. Mér
hefur borist til eyrna að ein-
hverjir pörupiltar hafi lagt leið
sína í trjágarðinn f Stórurðinni
og sagað greinar af trjám. Jafn-
vel heilu trén. Hvaða viðhorf
hafa þessir piltar til þeirrar
vinnu, sem lögð hefur verið í
þennan garð, að mestu leyti í
sjálfboðavinnu. Sú vinna var
lögð fram til þess að fegra
bæinn, en síðan koma pöru-
piltar, sem hugsa um það eitt
að eyðileggja, þeir virðast ekki
sjá neitt annað áhugavert í Iff-
inu. Skyldi ekki hvarfla að þeim
hvað það hefur kostað mikið
og fórnfúst starf að koma upp
slíkum gróðurreit í Stórurð-
inni?
Hvað skyldu'nú öll þessi
skemmdarverk kosta, þ.e. að
wi
segja þau sem á annað borð
eru bætanleg? Það eru áreið-
anlega stórar fjárhæðir sem
fara í súginn hjá Isfirðingum á
hverju ári vegna skemmdar-
verka. Ég gæti trúað að það
sem af er þessu ári skipti þær
fjárhæðir jafnvel tugum
milljóna ef allt er tallð. Að öðru
skulum við hyggja og það er að
þessar fjárhæðir hefðu hæg-
lega getað orðið miklu hærri,
hugsum okkur til dæmis hvað
hefði getað skeð þegar kveikt
var í bílhræi innan um timbur-
hús niður í Silfurgötu um miðja
nótt. Skyldi þessum ísfirsku
ungmennum, sem stunda það
að eyðileggja annarra manna
eignir, aldrei verða til þess
hugsað hversu mikið mætti
gera með þessum fjárhæðum,
væru þær notaðar í annað?
LÖGREGLAN VÆRUKÆR
Nú gæti margur spurt sem
svo: Hvernig getur slíkt gerst,
það er jú lögregla í bænum.
Skyldi það vera þar, sem hluti
af þessu vandamáli liggur, þ.e.
ónóg löggæsla. Það vekur
menn til umhugsunar um það
hvort þeir hafi nokkurn tíma
séð lögregluþjón á gangi um
göturnar. Það er víst sjaldgæf
sjón, en batnar kannski því nú
er Dómsmálaráðuneytið búið
að beina því til löggæslu-
manna að vera meira á gangi á
götum úti. En, ísfirskir lög-
regluþjónar láta fátt raska ró
sinni, ekki einu sinni þó að
sumir bæjarbúar haldi á stund-
um að þeir séu staddir í miðri
Chicago þegar hver sprengjan
springur á fætur annari eins og
oft hefur víst viljað brenna við í
miðbænum á Isafirði nú að
undanförnu.
En, eitt ber að athuga, að
löggæsla leysir ekki allt vanda-
málið, það er hugsunarháttur-
inn sem þarf að breytast. Það
verður að leiða þessum ís-
firsku ungmennum það fyrir
sjónir, að til þess að hægt sé
að búa í samfélagi við aðra
einstaklinga verður að virða
rétt annarra einstaklinga til að
eiga sínar eignir í friði.
Með bestu kveðjum
„Guðmundur"
Skemmdarverkin eru mörg og ekki er frágangur við
framkvæmdir á vegum opinberra aðila alltaf til fyrir-
myndar. Ljósm. Daníel Sigmundsson
jFÁSTÉÍGNA
VIÐSKIPTI
I Hjallavegur 15,130 ferm
I einbýlishús úr timbri.
I Steyptur kjallari, ca. 90
| ferm. meó 2ja herb. íbúð
| og bílageymslu. Afhending
I í sumar, eftir samkomulagi.
I Fitjateigur 3, grunnur að
| einbýlishúsi ásamt sökklum
I fyrir bílskúr. Efni fylgir.
! Stórholt 11,3ja herb. ca.
. 75 ferm. íbúð í nýju fjöl-
■ býlishúsi. Afhending eftir
■ samkomulagi.
I Hlíðarvegur 7, 3ja herb ca.
| 70 ferm. íbúð í góðu standi.
| Afhending eftir samkomu-
I lagi.
I Traðaland 11, Bolungarvík,
J einbýlishús úr steyptum
I einingum, ásamt bíl-
■ geymslu. Laust í síðasta
I lagi í september n.k.
I Aðalstræti 32, 4 herb. ca.
I 80. ferm. íbúð í fjórbýlis-
J húsi. Laus 1. júní n.k.
I Strandgata 19a, 5 herb.
| gamalt einbýlishús á 2
I hæðum. Afhending eftir
I samkomulagi.
I Sundstræti 14, 4ra herb.
I ca. 85 ferm. íbúð á 2. hæö,
I norðurenda. Afhending
J með skömmum fyrirvara.
I Fitjateigur 2, nýtt 144 ferm.
I einbýlishús úr timbri
| (Siglufjaröarhús) Selst í
I núverandi ástandi eða full-
I frágengiö ef óskað er.
J Laust til afnota strax.
I Hjallavegur 8, neðri hæð, 4
■ herb. 135 ferm. íbúð með
I sérinngangi. Laus 1. maí
| n.k.
| Vitastígur 17, Bolungarvík,
I 4 herb. íbúð á efri hæð í
I tveggja hæða fjölbýlishúsi.
I Laus til afnota 1. ágúst n.k.
| Urðarvegur 56, grunnur að
I raðhúsi. Komnir eru sökkl-
I ar, milliveggur og plata að
• hluta.
S Tryggvi
j Guðmundsson,
LÖGFRÆÐINGUR
I Hafnarstræti 1, sími 3940
I ísafirði
SAAB 96
Til sölu er f-137 sem er
Saab 96 árg. 1974, keyrður
77 þús. km. kasettutæki, 4
nagladekk.
Upplýsingar í sírna 3853
ÓSKA EFTIR
íbUð til leigu
Óska eftir að fá íbúð til
leigu í 3 mánuði í sumar.
Nánari uppl. í síma 4204.
BÍLLTILSÖLU
Ford Escort árgerð 1973.
Uppl. í síma 4171 á kvöldin.
ÓSKASTKEYPT
Notað sófasett og notað
sjónvarp.
Uppl. í síma 3109.
ÓSKA EFTIR
Að taka íbúð á lelgu 2ja tll
5 herb.
Uppl. í síma 4164.
HÚSNÆÐI
Óska að leigja 2-4
herb. íbúð á ísafirði eða
Hnífsdal 3ja manna
fjölskylda.
Uppl. ísíma4316
TILSÖLU
Volvo 144 árgerð 1971.
Uppl. í síma 3821.