Vestfirska fréttablaðið - 26.06.1980, Blaðsíða 2
vestfirska
nSTTMLjjD
I vestfirslia ~1
FRETTABLADID
Útgefandi og ábyrgðarmaður:
Árni Sigurðsson
Blaðamaður:
Eðvarð T.Jónsson
Prentun: Prentstofan fsrún hf.Jsafirði
Skuggalega horfir nú í fisksölumálum lands-
manna. Hér er ekki um að ræða tímabundnar
verðsveiflur, eins og við höfum oft kynnst áður.
Málið er miklu alvarlegra en svo. Hér er um það
að ræða, að afurðir okkar seljast miklu tregar en
áður og stórir markaðir, eins og t.a.m. Bretland,
eru að lokast, eða hafa gjörsamlega lokast fyrir
íslenskar afurðir. Orsakirnar eru, eins og Jón Páll
Halldórsson, framkvæmdastjóri Norðurtangans
hf. bendir á í viðtali í Vestfirska fréttablaðinu í
dag, ýmsir samverkandi þættir, harðnandi sam-
keppni á helstu mörkuðum okkar og ekki síst
minnkandi kaupgeta fólks í viðskiptalöndum
okkar.
Það má til sanns vegar færa, að efnahagslíf
þjóðar, sem á allt sitt undir fiskinum í sjónum,
standi á brauðfótum, og í víðara samhengi að
efnahagur Vesturlanda, sem eiga gengi sitt undir
olíu og geðþótta OPEC-ríkjanna, sé byggður á
sandi. En með þessu er ekki nema hálf sagan
sögð.
Hinn beiski sannleikur er sá, að með vaxandi
velmegun í hinum vestræna heimi, hafa menn
misst sjónar á eðlilegum tilgangi auðsköpunar-
innar. Það er augljóst og yfirlýst markmið sið-
menntaðra þjóða, að aukna auðsæld skuli nota
til að bæta mannlífið, gera það fegurra og um
fram allt réttlátara.
Syrtir
r
I
álinn
En auðlegðin hefur ekki gefið daglegu lífi
Vesturlandamannsins neitt æðra gildi, né gert
það á nokkurn hátt fegurra. Þvert á móti hefur
efnishyggjan, sem æfinlega hefur siglt hraðbyri í
kjölfar hennar, afskræmt líf manna, aukið byrðar
þeirra og andlega áþján. I þeim frjálsu löndum,
þar sem auðsældin er hvað mest, t.a.m. í okkar
litla landi, logar af og til allt í sundrung og
úlfúð.
Markmið auðsins hefur einfaldlega orðið meiri
auður. Slíkt markmið er framandi öllum gildum,
sem Vesturlandabúinn í orði kveðnu heldur í
heiðri. Það er ósamboðið mannlegri virðingu og
stöðug ógnun við mannlegt frelsi.
Eitt af því fáa, sem stjórnmálamenn hafa
getað komið sér saman um, er að efnahagskerfi
hins vestræna heims sé sjúkt. Sumir telja jafnvel
að það liggi banaleguna. Augljósasta einkenni
þessa sjúkdóms er verðbólgan. Annað er hið
kaldranalega viðhorf efnishyggjunnar, að það
sem maðurinn á, sé mikilvægara en það sem
maðurinn er.
Nútímamaðurinn lifir í tæknivæddri veröld og
einhvernveginn gengur hann út frá því sem vísu,
að hægt sé að lækna meinsemdina eftir tæknileg-
um leiðum, með því að leggja á hana ýmiskonar
bakstra — gengisfellingu, nýkrónu, meiri ríkisaf-
skipti, minni ríkisafskipti, frjálsan markað o.s.frv.
í það óendanlega. Hann lítur alltaf framhjá
þeirri einföldu staðreynd, að meinsemdin liggur í
hugarfari hans, viðhorfum og viðmiðunum. Hún
stafar blátt áfram af hófleysi hans, gengdarlausri
ásælni og óheiðarleika..
Engum blandast hugur um að við íslendingar
og raunar heimurinn allur stendur andspænis
miklum vanda og sá vandi stafar ekki eingöngu
af óhagstæðum ytri skilyrðum. Engum blandast
lengur hugur um að breyting hlýtur á að
verða. Þó ekki væri nema vegna þess, að lengra
verður ekki haldið í sömu átt. Það er fásinna að
ætla, að sú breyting verði sársaukalaus eða að
menn geti tekið til óspilltra málanna við nýtt
lífsgæðakapphlaup, þegar hún er afstaðin. Von-
andi bera þjóðir heims gæfu til að hefjast handa
um það af alvöru að byggja upp réttlátan heim,
þar sem menn geta lifað í sátt og samlyndi
hverjir við aðra og við sjálfa sig.
etj.-
STUÐNINGSMENN
ALBERTS OG BRYNHILDAR
leggja áherslu á eftirfarandi meginatriði í kosn-
ingabaráttunni:
Við kjósum Albert Guðmundsson vegna ár-
angursríkrar baráttu fyrir velferð þeirra, er
minna mega sín í þjóðfélagi okkar.
Við kjósum Albert Guðmundsson vegna þess að
hann er farsæll talsmaður atorku og framtaks,
og mun því verða sérstakur talsmaður atvinnu-
veganna í landinu.
Við kjósum Albert Guðmundsson, vegna þess
að þau hjónin eru traustir fulltrúar almennings í
landinu hvar sem þau fara.
Við kjósum Albert Guðmundsson vegna þess að
hann er reyndur að því að fylgja sannfæringu
sinni og sannfæringu fram í öllum málum.
Við kjósum Albert Guðmundsson vegna þess að
enginn áhrifamaður í íslensku þjóðlífi ber með
meiri reisn sæmdarheitið maður fólksins \ land-
inu.
Áhrifamenn allra flokka og í flestum samtökum
styðja kjör Alberts og Brynhildar.
Kjör Alberts Guðmundssonar sem forseta og
þar með seta þeirra hjóna að Bessastöðum er
sómi íslands.
FYLKJUM OKKUR UM ALBERT!
STUÐNINGSMENN
ALBERTS OG BRYNHILDAR
Á VESTFJÖRÐUM
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu
og samúð við fráfall og útför
Jónu Kristínar Guðjónsdóttur
Hlíðarvegi 16, ísafirði
Magnús Eiríksson
Ásdís Magnúsdóttir, Halldór Sveinbjörnsson
Helga Magnúsdóttir, Richard Wynveen
Rósa Magnúsdóttir, Tryggvi Jónsson
og barnabörn
Frá
Salemsöfnuðinum
Áttu við vandamál að stríða. Við viljum
hjálpa þér.
Vertu velkomin(n) á samkomu í dag og á
hverjum sunnudegi kl. 20.30.
Eða hafðu samband við forstöðumann-
inn Indriða Kristjánsson í síma 3461.
HVÍTASUNNUMENN.
Hárgreiðslan
HILDUR
auglýsir:
Tek að mér klippingar, lagningar, blástur
og litanir. Opið alla virka daga. Síma-
pantanir í síma 3135 milli kl. 11-12 f.h.
Margrét Gestsdóttir
Sundstræti 26
Fram-
kvæmda-
hugur...
Framhald af bls. 8
Tveir bátar hafa verið á hörpu-
diskveiðum og komust þeir upp í
átta tonn á dag samtals. Þrír bátar
eru nú byrjaðir á úthafsrækju og
einn þeirra landaði í síðustu viku,
alls 20 tonnum.
Unnið er að alhliða byggingar-
framkvæmdum á Bíldudal.
Rækjuverið er nú orðið fokhelt,
en þar er um að ræða þreföldun á
því húsnæði rækjuverksmiðjunn-
ar sem fyrir var. Smíði þessa húss
hófst í vetur, en nú er þar unnið
að niðursetningu á tækjum og
öðru.
Nokkur íbúðarhús eru í smíð-
um og byrjað hefur verið á 4ra
íbúða bíokk á vegum fram-
kvæmdanefndar um byggingu
leiguíbúða. Þegar var búið að
byggja 6 íbúða blokk á vegum
nefndarinnar og gerður hefur ver-
ið grunnur undir stækkun á því
húsnæði upp í 10 íbúðir.
Þá er unnið að því að skipta um
jarðveg í götum, en í sumar á að
undirbúa lagningu varanlegs slit-
lags á göturnar. Jafnframt er unn-
ið af fuilum krafti við höfnina, en
þar er verið að steypa plan ofan á
þá framlengingu hafnarinnar,
sem gerð var á síðasta ári.
etý-
TILSÖLU
Til sölu Ford Escord árg. 1973 í
góðu standi. Segulband og
snjódekk fylgja. Einnig til sölu
Kenwood sterotæki.
Upplýsingar í síma 4171 kl. 7-8
á kvöldin.
TEIKNIBORÐ
Óska eftir að kaupa teikniborð.
Upplýsingar í síma 3526
BfLL TIL SÖLU
Fiat 128, rally, er til sölu, selst í
því ástandi sem hann er í. Selst
ódýrt.
Upplýsingar í síma 3062
TIL SÖLU
Bifreiðin f-236, sem er Volvo
244 DL, árg. 1976, er til sölu
strax. Skipti á minni og ódýrari
bíl koma vel til greina.
Upplýsingar í sfma 3119