Vestfirska fréttablaðið - 08.08.1980, Blaðsíða 1
Nú
vikulega
Næst
fimmtu-
dag
Frystihúsin
opna 18. ágúst
Reiknað er með því að frysti-
húsin hér á ísafirði og f Súða-
vfk opni á tilsettum tíma, 18.
ágúst næstkomandi, að sögn
Jóns Páls Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra. Raddir hafa
verið uppi um það að opnun
frystihúsanna myndi dragast,
en Jón Páll tjáði Vestfirska
fréttablaðinu að hann vissi
ekki betur en staðið yrði við
tfmasetningu, sem upphaflega
var gefin þegar frystihúsin lok-
uðu vegna sumarleyfa. Staðan
í sölumálunum hefur ekkert
breyst frá því sem var, þegar
frystihúsin lokuðu f júlí, og
virðist jafnvel heldur hafa sigið
á ógæfuhliðina að sögn Jóns
Páls. Ekki hefur bæst við
birgðirnar í frystigeymslunum,
en fiskbirgðir hér á ísafirði
voru um s.l. mánaðamót miklu
meiri en þær hafa nokkurntíma
verið áður.
Sáralitlu af frystum fiski hefur
verið skipað út það sem af er
sumarleyfistímanum, en vonir
standa til að verulegar útskipanir
verði næstu daga. Allt geymslu-
rými er troðfullt og hefur frystum
fiski jafnvel verið komið fyrir í
geymslurými sem ætlað er til ann-
arra hluta, eins og beitu- og bala-
geymslu. Sagði Jón Páll, að ljóst
væri að róðrar hæfust ekki fyrr en
búið væri að losa þetta geymslu-
rými í haust. Frystihúsin munu þó
byrja að taka á móti fiski strax að
loknum sumarleyfum.
etj-
Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra í ræðustól á Hrafnseyri.
sungu fyrir hátíðargesti. Biskup Guðmundssonar, prófasts í Holti.
íslands vígði nýju kapelluna á Kirkjukór Þingeyrar söng við at-
Hrafnseyri með aðstoð Lárusar höfnina.
Á þriðja þúsund á
Hrafnseyrarhátíð
Hrafnseyrarkvæði
ort af
Guðmundi Inga Kristjánssyni
ari jörð veitti honum á sínum
tíma kosningarétt og kjörgengi til
Alþingis, en afi hans séra Jón
Sigurðsson, ánafnaði honum tíu
hundruð í jörðinni Auðkúlu, en
seinna var þeim jarðarparti skipt
fyrir Gljúfurá. Hannibal Valdi-
marsson afhenti Benedikt minn-
ingarpening Jóns Sigurðssonar
fyrir hönd nefndarinnar sem
þakklætisvott fyrir gjöfina.
Nú kemur þú hingað að garði sem gestur á göngu sinni
með sjálfstæðisbaráttu srðustu aldar í samfylgd þinni.
Þú gengur að steini Jóns Sigurðssonar á sílgrænum velli.
Og Hrafnseyri gefur þér geisla þess bjarma sem geymist til elli.
Ef fylgir þú baráttu farinnar aldar í frásagnar línum,
þá finnur þú vel hvernig fólkið stækkar af foringja sínum.
Sé honum manndáð af Guði gefin með göfgi og viti,
þá mannast þjóðin í athöfn og orðum og yfirliti.
Og sæmd þinnar þjóðar og hamingju hennar bar hetjan merka
sem aldrei brá sverði og aldrei hvatti til ofbeldisverka
en trúði á orðið í ræðu og riti og röksemdir góðar.
Seinfarið var það en samt var það leið hinnar sigrandi þjóðar.
Það snið hefur orðið að eiginleika í íslenzkum sálum
og dugað þeim löngum í lýðvörn þeirra og landhelgismálum.
Enn fylgja þær Jóni Sigurðssyni til sóknar og varnar.
Með orðsins krafti þær koma til móts við kynslóðir farnar.
Þú bíður hjá steininum hljóðlátum huga í hamingju þinni.
Þú krýpur þar ekki þótt lotningin laðist að leiðtogans minni.
En þakkir og heit eru hugsanir þínar á hátíðarstundu.
Þú skilur hjá Jóni Sigurðssyni hvað samherjar fundu.
Svo gengur þú brott með þann Hrafnseyrarhug sem þú hefur í brjósti.
Hann yljar þér bæði við sögunnar svið og í samtímans gjósti
og styrkir þig jafnan í ævinnar óró og æsingafregnum
sem ilmur landsins hjá lágmynd í steini, - sem Ijós undir veggnum.
Guðmundur Ingi Kristjánsson.
Hrafnseyrarhátíðin var hald-
in 3. ágúst s.i. á Hrafnseyri við
Arnarfjörð í tilefni 100 ára ár-
tíðar Jóns Sigurðssonar for-
seta. Talið er að hátt á þriðja
þúsund manns hafi sótt hátíð-
ina, sem fór fram í mildu sum-
arveðri. Margir forystumanna
þjóðarinnar sóttu hátíðina,
sem nú var haldin í fjórða sinn,
þeirra á meðal forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, Gunnar
Thoroddsen, forsætisráðherra
og hr. Sigurbjörn Einarsson,
biskup.
Formaður Hrafnseyrarnefndar,
Þórhallur Ásgeirsson, flutti
setningarræðuna, en síðan flutti
forseti íslands minni Jóns Sig-
urðssonar. Gunnar Thoroddsen,
forsætisráðherra flutti einnig
ræðu.
Stjórnandi hátíðarinnar var
Hannibal Valdimarsson og skýrði
hann frá því við athöfnina, að
Hrafnseyrarnefnd hefði borist
gjafabréf frá Benedikt Þ. Bene-
diktssyni, vélstjóra frá Bolungar-
vík, þar sem safni Jóns Sigurðs-
sonar á Hrafnseyri er gefin jörðin
Gljúfurá í Auðkúluhreppi með
öllum gögnum og gæðum. Eign-
arhald Jóns Sigurðssonar á þess-
Um Eyri geymist í elztu ritum sú einstæða saga
að Grelöð kom hingað og gjörði hér bú sitt við glaða daga.
En áhrif landsins sem unað hennar og ánægju gjörðu,
þau spruttu frá íslenzkum ilmi úr grasi og angan úr jörðu.
Og Sturlunga dregur upp draumasýnir og dulmyndir fleiri.
Þeir byggðu hér virki til bjargar og varnar um bæinn á Eyri.
Og svo bar það við þegar horft var hingað af hollum þegnum,
þeir sáu Ijóma sem lék um staðinn og Ijós undir veggnum.
í tilefni hátíðarinnar fluttu
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
skáld og bóndi á Kirkjubóli í
Bjarnardal, kvæði, sem birtist í
heild sinni í þessu blaði.
Karlakórinn Ægir frá Bolung-
arvík og Karlakór Þingeyrar
Vigdís Finnbogadóttir, forseti á leið í Hrafnseyrarkapellu.
FRETTABLAÐIÐ
Frá hátíðinni.