Vestfirska fréttablaðið - 28.08.1980, Síða 1
FRETTABLASIS
Farþega- og vöruafgreiðsla á (safjarðarflugvelli: Símar 3000
3410. Söluskrifstofa í Hafnarstræti: Símar 3457 - 3557.
Útsalan hefst
á mánudag!
Verslunin KUkAXjó ísafirði sími 3103
Guðmundur
formaður
stjórnar
fjórðungs-
sambands
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær hin nýja stjórn Fjórð-
ungssambands Vestfjarða
kemur saman til fundar, en
þær breytingar urðu á stjórn-
inni að Guðmundur H. Ingólfs-
son var kjörinn formaður til
næstu tveggja ára. Fráfarandi
formaður, Ólafur Kristjánsson,
baðst undan endurkjöri. Eð-
varð Sturluson frá Suðureyri
var kosinn í stjórnina í stað
Þórðar Jónssonar frá Múla, en
hann féll frá á kjörtímabilinu.
Aðrir í stjórn eru Ólafur Krist-
jánsson frá Bolungarvfk, Karl
M. Loftsson, Hólmavík og
Gunnar R. Pétursson, Patreks-
firði. Varamannalisti er óbreytt-
ur.
Guðmundur H. Ingólfsson
I viðtali við Vestfirska sagði
Jóhann T. Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins, að ekki hefðu orðið
miklar umræður á þinginu. Til
nýmæla sem þar komu fram var
ályktun um skipulagsstofnun
Vestfjarða. Samþykkt var að
koma á skipulagsþjónustu og kos-
in þriggja manna starfshópur til
að gera tillögur um hvernig henni
yrði best háttað. í þessum starfs-
hóp eiga sæti þeir Guðmundur
Ingólfsson, Ólafur Kristjánsson
og Aage Steinsson. Þeir eiga að
kynna sínar tillögur fyrir stjórn
Fjórðungssambands, Skipulags-
stofnun ríkisins og sveitarstjórn-
armönnum.
Jóhann sagði, að fulltrúar
sveitastjórna á Fjórðungsþinginu
hefðu verið færri en búast hefði
mátt við. Til þess lágu ýmsar
orsakir og nefndi Jóhann sem
dæmi, að fulltrúar frá Stranda-
sýslu hefðu lent í árekstri á leið til
þingsins og orðið að snúa við.
Auk þess voru fulltrúar úr
bændastétt bundnir við önnur
störf.
Á Fjórðungsþinginu eiga sæti
44 kjörnir fulltrúar, en auk þess
eiga þingseturétt alþingismenn
kjördæmisins, sýslumenn og bæj-
arfógetar. Jafnframt hefur sveit-
ar- og bæjarstjórum verið boðin
seta á þinginu, þ.e. þeim sem ekki
eru kjörnir fulltrúar. etj.-
i tilefni sextugsafmælis Úlfs Gunnarssonar og 25 ára starfsafmælis hans sem yfirlæknis
Fjórðungssjúkrahússins á isafirði, var þetta málverk af honum eftir listmálarann Baltazar,
afhjúpað á sjúkrahúsinu sl. fimmtudag. Sjá nánar frétt Inni í blaðinu. Ljósm. Hrafn Snorrason
Pétur Svavarss. og Guðm.
Heiðarsson í Grænu lyftunni.
L.L. með
útvarps-
leikrit
Fyrir nokkrum dögum hljóð-
ritaði Ríkisútvarpið nýtt út-
varpsleikrit með félögum úr
Litla Leikklúbbnum á isafirði.
Hljóðritunin fór fram í Selinu í
Hnífsdal, en hljómburður þar
er eins og best verður á kosið,
að sögn formanns L.L., Trausta
Hermannssonar.
Hér er um að ræða enskt saka-
málaleikrit, sem ber það ógn-
þrungna nafn ,,Djöflakriki“, og
hefur ekki áður verið fært upp
hérlendis. Leikstjóri var Baldvin
Halldórsson, en með hlutverkin
fóru átta félagar í L.L., Guð-
mundur R. Heiðarsson, Reynir
Guðmundsson, Kristján Viggó-
son, Guðjón Davíð, Snorri
Grímsson, Pétur Svavarsson,
Margrét Óskarsdóttir og Elísabet
Þorgeirsdóttir.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær leikritið verður flutt í út-
varpi, en það verður væntanlega
einhverntíma í vetur.
Litli leikklúbburinn fer
snemma af stað í haust með fyrsta
verkefni sitt. Þrjú leikrit eru til
skoðunar hjá L.L., en ennþá er
óráðið hvert þeirra verður fyrir
valinu. etj.-
Útimarkaður á
Silfurtorgi um helgina
Útimarkaðir setja jafnan
mikinn svip á bæjarlffið og
bjóða upp á velþegna tilbreyt-
ingu frá hversdagslegu búðar-
rápi, eins og þeir vita sem
gengið hafa um Lækjartorg eft-
ir að hinn vinsæli útimarkaður
þar var settur upp. Á morgun
föstudag hefst útimarkaður á
Silfurtorgi og stendur yfir
næstu þrjá daga. Knattspyrnu-
ráð ísafjarðar gengst fyrir
þessum markaði í fjáröflunar-
skyni og verður á honum selt
grænmeti hverskonar, m.a.
tómatar, agúrkur, blómkál og
hvítkál, rófur og gulrætur,
paprika, salat, selleri, púrru-
laukur o.fl. Markaðurinn hefst
kl. 1. e.h. á morgun og stendur
til kl. 22 um kvöldið. Á laugar-
dag verður hann opinn frá kl.
10-19 og á sunnudag (ef græn-
metið verður ekki uppselt) frá
kl. 10-17.
Arnar G. Hinriksson, ritari
Knattspyrnuráðs, sagði í samtali
við blaðið að á markaðinum gæf-
ist tilvalið tækifæri til að gera
hagstæð innkaup fyrir veturinn,
en grænmetið er allt selt á útsöiu-
verði. Á föstudagskvöld verður
síðan gengið í hús og fólki boðið
að kaupa blóm til styrktar KRÍ.
Arnar sagði, að dýrara væri að
reka Knattspyrnuráð núna en
undanfarin ár, því að nú eru allir
yngri flokkar í knattspyrnunni á
vegum ráðsins, sem t.d. kostar
þátttöku þeirra í íslandsmótum.
Vestfjarðamót í öllum flokkum
knattspyrnunnar verður haldið
eftir fyrstu vikuna í september.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Arnars G. Hinrikssonar,
Aðalstræti 13, sími 3214, fyrir I.
september næstkomandi. Verður
þá dregið um niðurröðun leikja
í mótinu.
etj,-