Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 04.09.1980, Síða 1

Vestfirska fréttablaðið - 04.09.1980, Síða 1
Alla leiö meö ■ P EIMSKIP Sími 3126 Höröur leggur drög að kaupum á nýrri flugvél Telja besta kostinn að samþykkja Nú er í athugun hjá flugfé- laginu Ernir h.f. á ísafirði að selja Islander-flugvél félagsins og kaupa aðra nýrri í staðinn. f viðtali við Vestfirska sagði Hörður Guðmundsson, eigandi Ernis h.f., að markaðurinn hefði verið kannaður að und- anförnu og nokkrar vélar skoð- aðar, m.a. brasilísk vél af gerð- inni Banter-Ante, önnur af gerðinni Casa og einnig Cessna 404. ÁKVÚRÐUN TEKIN A NÆSTU MÁNUÐUM —Engin endanleg ákvörðun hefur verið tekin enn sem komið er, sagði Hörður, en þessi mál verða athuguð gaumgæfilega á næstu mánuðum og ákvörðun tekin öðru hvoru megin við ára- mótin. Malblkunarframkvæmdirnar hér í bænum hafa gengið með ólfkindum vel, ef frá eru talin óhöpp á borð við það, er eldur kom upp í þurrkara malbikun- arvélarinnar inni á Stakkanesi og framkvæmdir lágu niðri í einn dag meðan beðið var eftir varahlutum. Sem dæmi um þann mikla vinnuhraða sem náðst hefur má nefna, að í gær afkastaði vélin nálægt 1000 tonnum af malbiki. Vesturlína: Straumur á upp úr mánaða- mötum Lagning Vesturlínu og bygg- ing aðveitustöðva er nokkurn- veginn á áætlun, að því er Guðjón Guðmundsson hjá RARIK tjáði Vestfirska frétta- blaðinu nú á dögunum. Smá- truflanir hafa orðið á „þverun- um“ yfir Gilsfjörð og Þorska- fjörð, þar sem undirstöður mastra hafa sigið dálítið á ann- an veg en verkfræðingar reikn- uðu með. Guðjón sagði að ekki væri á þessu stigi hægt að segja um hvort áætlunin raskaðist um fáeina daga. Sigið á undirstöðum í Gils- firði og Þorskafirði er ekki álitið alvarlegs eðlis miðað við lengri tíma. Sagði Guðjón, að þetta væri eins og með önnur mannvirki - það tæki sinn tíma að ná jafnvægi og fyrst og fremst væri það tíma- þröngin sem gerði þetta erfitt. Guðjón sagði orðrétt: —Ef við treystum okkur ekki til að Ijúka þessu á tilsettum tíma með því að reisa stálmöstrin eins og upphaflega var áætlað, þá munum við leggja bráðabirgða- línu yfir á trémöstrum. Málið verður því leyst og straumur og spenna komin á línuna upp úr mánaðarmótum sept.-okt. að öllu óbreyttu. etj.- —Verkefni hafa verið næg hjá okkur í sumar og reyndar allt þetta ár og ég er frekar bjartsýnn Hörður Guðmundsson á framhaldið. Allur kostnaður við flugútgerð hefur aukist gífurlega á síðasta ári og sem dæmi um það má nefna, að fyrir rúmu ári kost- aði bensínlíterinn 93 kr„ en núna kostar hann 376 kr. Hækkunin er því fjórföld. I gærkvöldi var búið að leggja á hraðbrautina allt inn að steypu- stöðinni, en í morgun tóku mal- bikunarmenn sig til og lögðu á Fjarðarstræti. Hægt er að leggja á hraðbrautina í rigningu, að því er fróðir menn tjáðu okkur í morg- un, en þegar lagt er ofan á gamalt slitlag verður það að vera þurrt. Sá tími nálgast því óðum þegar ísfirðingar geta ekið á glænýju slitiagi alla leið frá Hnífsdal og inn að Hafrafellshálsi. LÉLEGIR FLUGVELLIR Flugfélagið Ernir h.f. eru nú með tvær flugvélar, Islander- vélina, sem er I0 sæta og Piper Aztec, 6 sæta. Báðar þessar vélar eru ágætlega útbúnar, að sögn Harðar, en endurnýja þarf Island- erinn m.a. vegna þeirrar meðferð- ar, sem hann og aðrar flugvélar fá á þessum lélegu flugvöllum okkar hér fyrir vestan. Sagði Hörður að til þess að viðunandi verð fengist fyrir flugvélina mætti það ekki dragast lengi úr þessu að endur- nýja hana. Hörður fer til Bandaríkjanna um miðjan þennan mánuð og hefur væntanlega eitthvað fróð- legt í pokahorninu. þegar hann kemur til baka. etj.- Allsherjaratkvæðagreiðsla verður í dag og á morgun um samninga BSRB og ríkisins og hafa þessir samningar verið kynntir aðildarfélögum undan- farna daga á fundum vfða um land. Kristján Thorlacius, form. BSRB, var fulltrúi samninga- nefndarinnar á kynningarfund- inum á (safirði í byrjun vikunn- ar og hélt þar framsögu um samningana. Um 30 manns sóttu fundinn. Vestfirska frétta- blaðið náði tali af Kristjáni að fundinum loknum og spurði hann hvernig undirtektir samn- ingarnir hefðu fengið. EKKI TILBÚNIR f VERKFALL —Það voru haldnir nokkrir fundir í gær (mánudag), sagði Kristján, og eftir því sem ég veit best, þá hafa menn tekið þessum samningum þannig, að þeir telja það vera besta kostinn að sam- þykkja þá. Að öðrum kosti blasir við hörð verkfallsbarátta og það hefur komið mjög greinilega í Ijós að menn eru ekki tilbúnir í slíkar aðgerðir eins og sakir standa. —Hverjar voru helstar mótbár- urnargegn samningunum? —Það var nú ekki mikið um mótbárur. Að mínum dómi er sá galli á samningunum að kaup- hækkanir eru ekki nógar og um það eru menn yfirleitt sammála. f hliðarsamkomulaginu eru hins- vegar mjög þýðingarmikil atriði, svo sem atvinnuleysistryggingar, umbætur á samningsrétti opin- berra starfsmanna og allmiklar umbætur á lífeyrissjóðamálum. Samningarnir eru ekki lengur bundnir við tvö ár, heldur verður hér um samningsatriði að ræða og í reynd hefur strax orðið sú breyt- ing, að þeir samningar sem nú eru til umræðu gilda í eitt ár. EKKI FÁMENNT —Varðstu fyrir vonbrigðum með fundarsóknina? —Ég held að ef við lítum á hóp ríkisstarfsmanna á ísafirði, þá hafi fundurinn ekki verið fá- Framhald á bls. 2 Malbikunin gengur yel Markalaust jafntefli Sfðastllðlnn laugardag gerðu Isflrðlngar markalaust jafntefll vlð botnllð 2. delldar, Austra frá Esklflrði, á heimavelli. Isflrðlngar áttu mun meira f leiknum, en mörkin létu svo sannarlega á sér standa. fsfirðingar hafa nú leikið 15 leiki og hlotið 15 stig. Þrír leikir eru eftir, heimaleikur við Völsunga 13. september c útileikur við þór og Ármann. Kristján Jóhannsson tók þess mynd, er Sturla Frostason á f baráttu við einn varnarmar Eskifjarðarliðsins. Ljósm. Kr. Jól

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.