Vestfirska fréttablaðið - 02.10.1980, Blaðsíða 1
23. tbl. 6. árg.
vestíirska
2. okt. 1980
FRETTABLADID
Alla leió meó
EIMSKIP
Sími 3126
*
170 ísfirðingar
í knattspyrnumóti
Hversvegna rofnar
sjönvarpssending ?
- Er sofið á verðinum í Stykkishólmi?
Sjónvarpsáhorfendur á Vest-
fjörðum hafa orðið fyrir því, að
sl. tvo föstudaga hefur útsend-
ing rofnað í miðri sjónvarps-
kvikmyndinni. Þeir sem fylgjast
með kvikmyndum sjónvarpsins
hallast að því að yfirleitt komi
þetta ekki að sök, en stundum
slysast sjónvarpið þó til að
sýna þokkalegar afþreyingar-
myndir og þykir mörgum súrt í
brotið að fá ekki að sjá þær til
enda, þegar þær loksins koma.
Síðasta föstudag rofnaði út-
sending kl. hálf eitt eftir mið-
nætti. Ástæðan var sú, að gleymst
hafði að taka úr sambandi sjálf-
virkan klukkurofa í Stykkishólmi,
sem slekkur á útsendingu kl.
00.30 og kveikir aftur kl. 2 á
daginn. Líkur benda til að
gleymst hafi að gera eftirlits-
manninum í Hólminum viðvart
um að dagskrá stæði fram yfir
hálf eitt. Hugsanlega mætti ráða
bót á þessu með því að færa fram
klukkuna til eitt eftir miðnætti.
Föstudaginn 19. september
rofnaði útsending sjónvarpskvik-
myndarinnar tvisvar. Enginn
þeirra tæknimanna hjá Landsím-
anum, sem blaðið hafði samband
við, vissi skýringuna á þessu, en
þeir töldu flestir að hér hefði
verið um að ræða rafmagnstrufl-
anir í Stykkishólmi.
etj-
Lýsing við stofn-
braut að Sætiini
Orkubú Vestfjarða hefur nú
hafið framkvæmdir við lýsingu
stofnbrautarinnar. Bolli Kjart-
ansson, bæjarstjóri, sagði í
samtali við blaðið, að gert
hefði verið ráð fyrir lýsingu
stofnbrautarinnar frá Hafnar-
stræti inn að tengingu við Sæ-
tún, þar sem bílastæðið fyrir
skólabílinn er, strax við gerð
fjárhagsáætlunarinnar.
Þá sagði Bolli, að óskað
hefði verið eftir þvt við Vega-
gerðina, að hún veitti þessum
framkvæmdum forgang á sín-
um hluta stofnbrautarinnar,
þ.e. frá tengingu við Sætún og
inn í Fjörð. Sagði bæjarstjóri
að sér væri ekki kunnugt um
að Vegagerðin hefði ennþá á-
kveðið með lýsingu vegarins á
þessum kafla. etj.-
ISAFJÖRÐUR-REYKJAVÍK
11 ferðir vikulega
í vetur
Um síðustu helgi fór tram
firmakeppni í knattspyrnu á
vegum Knattspyrnuráðs Isa-
fjarðar. 22 fyrirtæki og stofnan-
ir tóku þátt í keppninni frá ísa-
firði, Bolungarvík, Súðavík og
Súgandafirði. Firmakeppni í
knattspyrnu hefur ekki verið
haldin hér áður, en víða ann-
arsstaðar er hún fastur liður í
fjáröflun knattspyrnufélag-
anna. Arnar G. Hinriksson, rit-
ari K.R.Í. tjáði blaðinu, að hvert
félag sem tæki þátt í firma-
keppninni á fsafirði greiddi
50.000 kr. þátttökugjald og
rynni féð til starfs K.R.I., sem
ennþá værj stórskuldugt.
Veltan á ári hjá K.R.Í. er 30-40
milljónir kr„ að sögn Arnars, og
af þeirri upphæð kemur aðeins
ca. 1.5 millj. kr. inn fyrir leiki á
heimavelli, en til samanburðar
má geta þess að ef fara þarf í
keppnisferðalag til Austfjarða
með meistaraflokkslið kostar það
yfir eina milljón kr.
Arnar sagði að forráðamenn
K.R.Í. væru hæstánægðir með
þátttökuna í firmakeppninni og
væri sömu sögu að segja um
keppendur og áhorfendur. Tveir
leikir voru leiknir samtímis á vell-
inum inni á Skeiði og voru átta
manns í flestum liðunum. Hátt á
annað hundrað manns léku því
fótbolta á ísafirði um helgina.
Tólf lið komust í undanúrslit,
og fara þau fram á morgun og
laugardag. 3-4. okt. Sunnudaginn
5. okt. kl. 2 hefjast síðan sex liða
úrslit.
Eftirtalin tólf lið komust í und-
anúrslit. .Tölur í svigum tákna
markafjöldann.
Bæjarsjóður (12-0), Eiríkur og
Einar (22-2), Málarar (9-2), Flug-
leiðir (11-4), Kennarar M.I. (6-5),
Norðurtangi h.f. (19-3), Verslun-
armenn (8-2), Hraðfrystihús
Hnífsd. (16-7), Orkubú Vestfjarða
(6-4), Kennarar G.f. (7-6), Ishús-
fél. Bolvíkinga (4-4), Fiskiðjan
Freyja (7-7).
Riðlar í undanúrslitum eru sem
hér segir:
I. Riðill:
1. Eiríkur og Einar Valur
2. íshúsfélag Bolungarvíkur
3. Freyja, Suðureyri
4. Flugleiðir
II. Riðill
1. Málarar
2. Bæjarsjóður Isafjarðar
3. Norðurtanginn
4. M.í.
III. Riðill
1. Verslunarmenn
2. Orkubú Vestfjarða
3. G.í.
4. Hraðfr.h. Hnífsdal
Vetraráætlun Flugleiða er
gengin í garð og verða í vetur
farnar ellefu ferðir f viku milli
Reykjavíkur og fsafjarðar.
Morgunferðir eru alla daga vik-
unnar og sfðdegisferðir fjóra
daga. Þá verður flogið milli Ak-
ureyrar og fsafjarðar sex daga
vikunnar. Fluginu í vetur verður
hagað samkvæmt birtu, þannig
að morgunferðirnar til Reykja-
víkur og Akureyrar verða á
breytilegum tíma í vetur.
Reynir Adólfsson, umdæm-
isstjóri Flugleiða á fsafirði,
tjáði Vestfirska, að í áætluninni
eins og hún væri uppsett yrðu
notaðar Fokker Friendship vél-
arnar, en hinsvegar yrði Twin
Otter vél leigð einhvern hluta
vetraráætlunarinnar. Ekki hef-
ur verið ákveðið enn hvort sú
vél verður í förum milli ísafjarð-
ar og Reykjavíkur eða ein-
hverra annarra staða.
Reynir sagði að fimm daga vik-
unnar yrðu morgunferðir Flug-
leiða á breytilegum tíma. í októb-
er verður brottför úr Reykjavík
kl. 8.30, en þegar kemur fram í
nóvember verður brottför kl. 9.00
og í svartasta skammdeginu kl.
10.15. Á laugardögum er brottför
úr Reykjavík kl. 12 á hádegi og á
sunnudögum kl. 10.30.
Síðdegisferðir verða á þriðju-
Framhald á bls. 2
se m—iihiiii m i
Úr samþættingartfma
Rödd hrópandans
í eyðimörkinni ?
Leitað áiits nokkurra kennara á viðtali
Vestfirska við Skúla Benediktsson.
Viðtal Vestfirska fréttablaðs-
ins við Skúla Benediktsson, ís-
lenskukennara, um málfar ung-
linga og íslenskukennslu í
skólum hefur vakið mikla eftir-
tekt og umræður meðal skóla-
manna og annara. I þættinum
„Á ratsjánni" í Alþýðublaðinu
á dögunum er vlðtalið gert að
umræðuefni og er Skúli þar
kallaður „vox clamantis in
deserto" (rödd hrópandans f
eyðimörkinni), þegar talið hef-
ur borist að íslenska mennta-
kerfinu. Höfundur þessa þáttar
nefnir sig Þagal og kveðst
hann þekkja af eigin reynslu,
að fólk sem komið er í fram-
haldsskóla kunni ekki skil á
einföldustu málfræðihugtök-
um, svo sem frumlagi, andlagi
og umsögn. Ritstjóri Alþýðu-
blaðsins er eins og kunnugt
Jón Baldvin Hannibalsson,
fyrrv. skólameistari Mennta-
skólans á ísafirði.
í þessum þætti segir Þagall
m.a.: „Skúli gefur þá skýringu á
þessum ósköpum öllum, að kenn-
Framhald á bls. 3