Vestfirska fréttablaðið - 23.10.1980, Blaðsíða 8
Nýjar íslenskar plötur
örvar Kristjánsson (10.600)
Pálmi Gunnarsson (12.000)
Sprengisandur (12.000)
Kátirdagar (11.000)
Bubbi Mortens (10.600)
Bessi segir börnum sögur ( 9.600)
ÓÁTEKNAR KASSETTUR
60 mín. kr. 1.750 - 90 mín. kr. 1.950
Haukur Mortens
Upplyfting
Meira salt
Silfurkórinn
Utangarðsmenn
(12.900)
( 9.350)
(11.050)
(12.900)
( 3.000)
Bókav. Jónasar Tómassonar
Sími 3123 ísafirði
rHETTABLASIS
ERNIR P
ISAFIROI
Símar 3698 og 3898
BILALEIGA
Afli og sjósókn í september 1980
Allgdðar gæftir
ágætur togaraafli
Gæftir voru allgóðar í sept-
ember. Fengu togararnir margir
ágætan afla í mánuðinum, en afli
togbátanna, sem hafa leyfi til tog-
veiða innan 12 sjómílnanna yfir
haustmánuðina, var fremur treg-
ur. Línubátarnir byrjuðu margir
róðra um miðjan mánuðinn, en
afli var almennt mjög tregur.
Enginn smokkur hefir veiðst á
þessu hausti, þrátt fyrir líklegt
útlit í sumar, þar sem hans varð
vart á allri fiskislóðinni út af
Vestfjörðum fram eftir öllu
sumri. Er það öllum ráðgáta,
hvað því veldur, að hann gengur
ekki inn á firðina, eins og hann
átti vanda til á árum fyrr. Færa-
bátarnir hættu flestir veiðum um
og eftir mánaðamótin. 1 sept-
ember stunduðu 110 (100) bátar
botnfiskveiði frá Vestfjörðum, 81
(69) með handfæri, 11 (10) réru
með línu, 15 (16) með botnvörpu,
1 (3) með dragnót og 2 (2) með
þorskanet. Rækjubátarnir, sem
hafa stundað rækjuveiðar útaf
Vestfjörðum í sumar, hættu allir
veiðum í byrjun mánaðarins, og
varð mánaðaraflinn aðeins 72
lestir. Tveir bátar frá ísafirði
stunduðu skelfiskveiðar og öfluðu
158 lestir í mánuðinum.
Heildarbotnfiskaflinn í sept-
ember varð 6.261 lest, en var
3.154 lestir í september í fyrra. Er
heildaraflinn frá áramótum þá
orðinn 74.179 lestir, en var 71.304
lestir á sama tíma í fyrra.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
PATREKSFJÖRÐUR
Jón Júlí dr.
Ársæll Sigurðss. 1.
María Júlía 1.
Vestri 1.
15 færab.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Tálknf. tv.
BÍLDUDALUR:
Sölvi Bjarnas. tv.
ÞINGEYRI:
Framnes I tv.
Guðbjörg tv.
Hamraborg 1/tv.
33.1
15.2
12.3
14.3
139,5
337,3 4
218,7 2
138,0 3
155,0 1
28,6
FLATEYRI:
Gyllir tv. 430,4
8 færabátar 31,9
SUÐUREYRI
Elín Þorbj.d. tv. 464,4
Ólafur Firðb.s. 1. 35,6
Sigurvon 1. 21,7
12 færabátar 60,8
BOLUNGARVtK:
Dagrún tv. 447,8
Heiðrún tv. 213,2
Páll Helgi n. 64,5
Halldóra Jónsd. 1 52,4
Kristján n. 41,9
15færab. 71,2
(SAFJÖRÐUR
Júlíus Geirm.ss. tv. 662,3
Páll Pálsson tv. 419,6
Guðbjartur tv. 223,9
Guðbjörgtv. 160,4
Víkingur III 1. 41,0
Orri 1. 38,7
Bryndís tv. 25,7
Engilráð tv. 21,4
Tjaldur f. 20,7
23 færab. 156,6
SÚÐAVÍK
Bessi tv. 328,7 4
Valur tv. 32,9
Sigrún tv. 27,6
HÓLMAVÍK:
Sæbjörg f. 20,2
Ásbjörg f. 12,7
4 DRANGSNES:
Grímsey f. 10,9
Framanritaðar aflatölur eru
5 miðaðar við slægðan fisk, nema
9 aflatölu línubáta. þar sem miðað
5 er við óslægðan fisk.
Aflinn í hverri rerstöð í sept-
ember:
4 1980 1979:
3 25 Patreksfj. 204 ( 175)
17 Tálknafj. 404 ( 241)
22 Bíldudalur 262 ( 82)
Þingeyri 436 ( 80)
Flateyri 554 ( 38)
Suðureyri 687 ( 342)
4 Bolungarvík 1.069 ( 542)
4 ísafjörður 2.107 (1.409)
2 Súðavík 473 ( 215)
l Hólmavík 49 ( 25)
8 Drangsnes 16 ( 15)
Jan./ág.
6.261 (3.154)
67.918 (68.150)
74.179 (71.304)
Úr vinnusal fshúsfélags fsfirðlnga hf. -Leó Ijósmyndastofa.
PÓLLINN HF
Isafiröi
Sími3792
Útiluktir
Vinsælu ISMOS útiluktirnar
loksins komnar aftur.
Eigum einnig gott úrval
af Ijósakúplum, gler og plast.
Ljósaperur, kertaperur, kúluperur,kastaraperur,
spegilperur, ofnaperur, flúorperur, ísskápaperur.
-Leó Ijósmyndastofa
Sundhöllin opnuð
eftir breytingar
Sundhöll fsafjarðar var opn-
uð fyrir skömmu eftir tveggja
mánaða lokun vegna lagfær-
inga og breytinga á húsakynn-
um. f samtali við Vestfirska
sagði Björn Helgason, íþrótta-
fulltrúi, að breytingarnar hefðu
orðið miklu meiri en reiknað
var með í upphafi og fór kostn-
aðurinn við þær langt fram úr
áætlun. Þessar breytingar eru
fyrsti liðurinn í því áformi bæj-
aryfirvalda, að koma sundhöll-
inni í nýtískulegra horf. Næsta
stigið er að koma upp aðstöðu
til gufubaða.
Björn Helgason sagði, að engin
endurnýjun hefði farið fram á
sundhöllinni og tækjum hennar
síðan hún var tekin í notkun fyrir
rúmum 30 árum. Á sínum tíma
var hún mikið og veglegt mann-
virki. Nauðsynlegt var því orðið
að endurnýja allar leiðslur í hús-
inu, bæta snyrti- og salernisað-
stöðu og leggja nýjar lagnir í gólf.
Sturtum var fjölgað um tvær og
settir voru upp baðvatnsskammt-
arar, sem spara munu mikinn
hita.
Bæjarstjórn og bæjaryfirvöld
hafa verið mjög hlynnt þessum
framkvæmdum, að sögn Björns,
og 8 millj. kr. var veitt til fram-
kvæmdanna. Stefnt er að því
núna að setja upp gufubaðstofu í
sundhöllinni og liggja teikningar
og kostnaðaráætlun fyrir. Sagðist
Björn vonast til, að hægt væri að
koma þessum framkvæmdum inn
á fjárhagsáætlun næsta árs.
etj,-
Kyndistöðvarhús
Nú er unnið að byggingu
kyndistöðvarhúss við bráða-
birgðaskýli Orkubús Vestfjarða
á hafnarsvæðinu á ísafirði.
Húsið verður 18.50x12.40 fer-
metrar og lofthæðin nálægt 5
metrum. Húsið er byggt upp á
steinsteyptum súlum, sem
verða klæddar utan með stál-
klæðningu og þakið borið uppi
af límtrésbitum, sem keyptir
hafa verið frá Danmörku.
Kristján Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Orkubúsins sagði í
viðtali við blaðið, að reiknað væri
með því að um miðjan nóvember
yrði byrjað að kynda frá fyrri
svartolíukatlinum, en ætlunin er
að setja þarna upp tvo svartolíu-
katla á fimm megawött hvorn.
Einn rafskautsketill upp á 10
megawött er væntanlegur í mars á
næsta ári og verður þá fyrst og
fremst notuð raforka til hitunar á
fjarvarmaveitunni, en svartolía
sem varaafl.
—Við verðum að nota varaafl-
stöðinna hérna þangað til við er-
um búnir að koma upp þessum
nýja katli, sagði Kristján, því að
öðrum kosti höfum við ekki næga
orku á hitaveituna. Svartolíukatl-
arnir, sem nú eru í bráðarbirgðar-
skýlinu, eru aðeins með 3 mega-
wött og við verðum því að fá
afgangsorkuna frá díselvélinni
líka. Hún er keyrð á svartolíu,
þannig að orkukostnaðurinn fyrir
hana er ekki mikið hærri en raf-
magn eftir Vesturlínu. Ástæðan er
sú, að við framleiðum hvor-
tveggja rafmagn og hita með
henni og brennum i henni svart-
olíu.
etj.
Hjónaklúbbur
BG - flokkurlnn hefur geng-
Ist fyrir stofnun hjónaklúbbs á
Isafirðl og munu danslelkir
verða haldnlr mánaðarlega að
Uppsölum. ( klúbbnum eru nú
150 félagar að sögn talsmanna
BG - flokksins, en 50 manns
eru á biðlista. Aðsóknin er
langt umfram þessi 200 manns
og virðist því greinileg þörf á
starfsemi klúbbs sem þessa.
Ólafur Guðmundsson, meðlim-
ur í BG - flokknum, tjáði blaðinu
að þeim félögum hefði virst á-
kveðnir hópar fólks ekki skila sér
á böllin og því hefði stofnun
hjónaklúbbsins verið afráðin.
Mætti líta á hana sem þjónustu
við bæjarbúa. Miðað er við að
félagar klúbbsins séu um eða yfir
tvítugu.