Vestfirska fréttablaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 1
Alla leiö meö , r
EIMSKIP
Sími 3126
Loðnubræðslan í Bolungarvík. - Leó Ijósmyndastofa
Loðnuvinnslan gengur vel
16000 tonn komin á land í Bolungarvík
ört gengur á loðnukvótann, sem hefur verið lækkaður
Loðnulöndun hefur gengið
vel í Bolungarvík að undan-
förnu og nú á mánudag sl.
hafði verið tekið við alls um
16.000 lestum af loðnu en það
er um 6000 lestum meira en á
sama tíma í fyrra. Sex bátar
lönduðu loðnu í Bolungarvík
um síðustu helgi.
Loðnubræðslan hefur gengið
mjög vel og eru afköst verksmiðj-
unnar betri en í fyrra vegna bætts
vélakosts. f síðustu viku var skip-
að út 500 tonnum af mjöli og 240
tonnum af lýsi. f byrjun þessarar
viku var skipað út 1500 tonnum
af lýsi og rösklega 1000 tonnum
af mjöli.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur sjávarútvegsráðu-
neytið ákveðið að lækka loðnú-
kvótann niður í 70% af því sem
veiddist á síðasta ári. Heimildar-
maður Vestfirska í Bolungarvík
tjáði blaðinu, að einstaka bátar
væru að verða búnir með sinn
kvóta og ættu sumir þeirra ekki
eftir nema i mesta lagi tvo róðra
til viðbótar.
Eini Bolungarvíkurbáturinn
sem gerður er út á loðnu, Hafrún,
landaöi 300 tonnum á mánudag-
inn var.
etj-
Níundi hver Flateyringur
í tdnlistarskola
Tónlistarskóli tekur tll starfa
á Flateyrl um næstu mánaðar-
mót og er skóllnn reklnn á
vegum sveitarfélagsins. Skóla-
stjóri hans er Ragnar Jónsson,
tónmenntakennarl frá Reykja-
vfk. Guðvarður Kjartansson,
sem á sæti f undirbúnings-
nefnd Tónllstarskólans, sagðl f
Áskrift
að Vestfirska
fréttablaðinu
Vegna ítrekaðra fyrirspurna
um áskriftlr að Vestflrska
fréttablaðinu, vlljum vlð benda
á að áskriftasímann er jafnan
að flnna f „blaðhausnum“ á
bls. 2 fyrir ofan leiðarann. Á-
skriftasfmi blaðslns er 4011.
Skrifstofa blaðsins er að Hafn-
arstræti 1. Hún er opin frá kl.
13-17 alla virka daga. Enn sem
komið er verður þvf miður ekki
hægt að taka við áskriftum á
Isafirði og Hnífsdal og verður
blaðið selt áfram í lausasölu á
þessum stöðum a.m.k. fyrst um
sinn. Blaðið er sent f áskrift til
allra annarra staða á Vestfjörð-
um og raunar um allt land.
samtali við Vestfirska, að
stofnun skólans hefði vakið
geysilega lukku á Flateyri og
yfir fimmtíu nemendur hefðu
þegar látið skrá sig, en það er
níundi hver maður á Flateyri.
—Þetta mál kom til umræðu
hjá okkur á síðastliðnum vetri,
sagði Guðvarður, og frá því í vor
hefur verið ósleitilega unnið að
undirbúningi. Við vorum svo
heppnir að fá gagnmenntaðan
tónlistarkennara sem skólastjóra.
Ýmsir góðir menn lögðu okkur
lið og vil ég þá sérstaklega nefna
Ragnar H. Ragnar, sem barðist
eins og Ijón við hlið okkar í því að
koma skólanum á laggirnar og fá
mann að honum. Ekki var gengið
frá ráðningu skólastjóra fyrr en
um síðustu mánaðamót og síðan
höfum við staðið í hljóðfæra-
kaupum og öðru slíku fyrir stofn-
unina.
STYRKUR FRÁ
MINNINGARSJÓÐI
—Það er sérstaklega einn sjóð-
ur hérna, sagði Guðvarður, sem
styrkt hefur þessa stofnun mjög
myndarlega, en það er minning-
arsjóður um Arngrím Jónsson,
fyrrv. skólastjóra á Núpi í Dýra-
firði. Hjálmur h.f. á Flateyri setti
sjóðinn á stofn til minningar um
Arngrím og átti að verja tekjum
sjóðsins til grunnskólans á Flat-
eyri. Þarna sáu forráðamenn
sjóðsins verkefni, sem þeir vildu
gjarnan styrkja og þessi veiga-
mikli stuðningur hefur orðið til
þess að stofnun skólans var afráð-
in.
—Ekki hefur ennþá verið á-
kveðið með aðra kennara, en
þessi gífurlega þátttaka þýðir
sjálfsagt í framkvæmd, að við
þurfum fleiri kennara að skólan-
um og er verið að kanna þau mál
betur. Hljóðfærin sem kennt
verður á, eru píanó og gítar, auk
hljóðfæra fyrir yngri nemendur,
eins og flautur, sem eru undir-
staða fyrir mörg önnur blásturs-
hljóðfæri. Þá verður kenndur
nótnalestur, tónfræði, tónmennt
og tónheyrn. Skólinn verður um
sinn til húsa í grunnskóla Flateyr-
ar.
Einar Oddur Kristjánsson hef-
ur veitt forstöðu undirbúnings-
nefndinni, sem starfað hefur að
stofnun skólans, en aðrir í nefnd-
inni eru Guðvarður Kjartansson
og Böðvar Gíslason, formaður
skólanefndar.
etj.-
Vandarhögg
fær misjafnar
undirtektir
— Umsagnir fimm Vestfirðinga um leikritið.
Milljónatugi kostaði að framleiða það, segir
Hinrik Bjarnason, forstöðumaður Lista- og
skemmtideildar sjónvarps.
Sjónvarpsleikritið Vandar-
högg, sem sýnt var sl. sunnu-
dagskvöld, hefur vakið nokkrar
umræður og deilur manna á
meðal, eins og við var að búast
og kannske var ætlunin. Höf-
undur leikritsins er Jökull heit-
inn Jakobsson, en það var til-
reitt fyrir sjónvarp af Hrafni
Gunnlaugssyni, höfundi Blóð-
rauðs sólarlags, sem sýnt hef-
ur verið tvisvar í sjónvarpi, og
kvikmyndarinnar Óðals feðr-
anna. Hlnrik Bjarnason, for-
stöðumaður LSD (lista- og
skemmtideildar sjónvarps),
tjáði Vestfirska fréttablaðinu,
að kostnaður við gerð leikrits-
ins hefði enn ekki verið gerður
upp, en hann hlypf á tugum
milljóna króna. Sumir benda á,
að fyrir þá upphæð hefði verið
hægt að rýmka um á geðdeild-
um sjúkrahúsanna í landinu.
En, spyrja aðrir, hvað tjóir að
meta listina og menninguna tll
peninga? Við leituðum til
nokkurra einstaklinga og báð-
um þá að segja álit sitt á hug-
verkinu. sjá w*. 2
9
Frá sýningunni. - Leó Ijósmyndastofa
Verk þekktra
listmálara
sýnd á
Sýning á málverkum úr eigu
Listasafns alþýðu hefur verið
opnuð í bókasafninu á isafirði
á vegum Menningarráðs fsa-
fjarðar og verkalýsfélagslns
Baldurs. Á sýningunni eru 14
málverk, eftir tólf íslenska
listamenn, meðal annars Ás-
grfm Jónsson, Júlíönu Sveins-
dóttur, Sverri Haraldsson, Þor-
vald Skúlason, Benedikt Gunn-
arsson, Louise Matthíasdóttur
og Eirík Smith. Sýningunni lýk-
ur 15. nóv. n.k. og er hún opin
á venjulegum afgreiðslutíma
ísafirði
bókasafnsins.
Menningarráð ísafjarðár vænt-
ir þess að geta opnað aðra slíka
sýningu frá Listasafni alþýðu í
bókasafninu einhverntíma næsta
vor.
Listasafn ASl var stofnað með
frumgjöf Ragnars Jónssonar, for-
stjóra fyrir röskum nítján árum,
er hann færði „samtökum ís-
lensks erfiðisfólks" að gjöf 120
valinkunn listaverk. Síðan hefur
mikið bæst við þann stofn og eru
nú í safninu á fjórða hundrað
listaverk.