Vestfirska fréttablaðið - 06.11.1980, Blaðsíða 2
2
I vestfirska I
FRETTABLASIS
Vikublaö, kemur út á fimmtudögum kl. 18:00 -
Skrifstofa Hafnarstræti 1, sími 4011 - Opin virka
daga frá kl. 13:00 — 17:00 - Blaðamaður Eðvarð
T. Jónsson, sími 4269 - Útgefandi og ábyrgðar-
maður Árni Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði,
sími 3100. - Verð í lausasölu kr. 300. Áskriftar-
verð er lausasöluverð, reiknað hálfsárslega
eftirá. - Prentun: Prentstofan ísrún hf., sími 3223
Vestfirska
fimm ára
Framhald af bls. I.
kom fljótt á daginn, aö þörfin var fyrir
hendi. Blaöinu óx fiskur um hrygg. Smám
saman jókst útgáfan og nú aö fimm árum
liðnum er blaðið prentað í 1700 eintök-
um, kemur út vikulega og hefur í þjón-
ustu sinni blaðamann í fullu starfi.
Auðvitað hefur gengið á ýmsu í útgáfu-
sögu blaðsins. Við það hafa starfaó mest
þrír blaðamenn samtímis, en á tíðum
hefur öll efnisöflun verið á einni hendi.
Gæfa blaðsins, þessi ár hefur verið sú, að
Vestfirðingar almennt hafa sýnt þessu
starfi mikinn áhuga og aðsent efni hefur
gert það fjölbreyttara, en nokkur kostur
hefði verið ella. Sú stefna að birta allt
aðsent efni, svo fremi að það hæfi stærð
blaðsins og velsæmi, má segja að sé
grundvöllurinn að fjölbreyttu og lifandi
efnisvali.
Svo til frá upphafi hafa forystugreinar
verið fastur liður í blaðinu. Ýmsir mætir
velunnarar blaðsins hafa þar lagt hönd á
plóginn. Undirritaður ber að sjálfsögðu
fulla ábyrgð á forystugreinunum og öllu
efni í blaðinu. Þær greinar, sem ekki eru
öðrum merktar, má að jafnaði rekja til
Forsíða Vestfirska frétta-
blaðsins 3. nóvember 1975
hans. Eftir fimm ára baráttu, sem meðal
annars var studd af alþingismönnum
kjördæmisins og Fjórðungssambandi
Vestfirðinga, var Vestfirska fréttablaðið
ásamt héraðsfréttablöðum, loks viður-
kennt af útvarpsráði sem fullgildur aðili
að landsmálaumræðu. Vestfirska frétta-
blaðið þakkar það traust og mun reyna
að axla þá ábyrgð, sem því fylgir.
Sú spurning hefur oft verið orðuð við
undirritaðan, hvort grundvöllur sé fjár-
hagslega fyrir útgáfu Vestfirska frétta-
blaðsins og menn hafa undrast hvernig
takast má að halda því úti. Því er til að
svara að frá upphafi hefur blaðið mætt
skilningi og velvilja alls þorra fólks á
Vestfjörðum. Vestfirska hefur umboðs-
menn á þéttbýlisstöðunum, sem sjá um
söluna. Fyrirtæki og stofnanir líta á blaðið
með velvilja og skilningi og sjá í því hinn
heppilega fjölmiðil til þess að koma á
framfæri auglýsingum og kynna starfsemi
sína. Það er skilningur þessara aðila og
samstarf við þá, ásamt ósérplægni allra
þeirra, sem sem blaðinu vinna á einn eða
annan hátt sem hefur gert það kleift að
halda því úti.
Ekki verður skilist við þessar hugleið-
ingar svo, að ekki sé vikið að margumtöl-
uðu hlutleysi blaðs, sem ekki er háð
stjórnmálaflokkum. Þetta tvennt vill
stundum blandast saman í hugum fólks.
Sumir telja, að blað sem er óháð stjórn-
málaflokkum þurfi ætíð að vera skoðana-
laust í umræðu um menn og málefni.
Varðandi þetta tel ég nauðsynlegt að
taka fram, að í mínum huga er mikill
munur á því að vera utan vébanda stjórn-
málaflokka og því að vera skoðanalaus
um þjóðfélagsmál. Það er löngu úreltur
hugsunarháttur, að sá sem er ekki flokks-
bundinn þurfi að vera skoðanalaus. Að
sjálfsögðu gætum við hlutleysis og fyllstu
sanngirni í fréttaflutningi, en hvað varðar
greinaskrif og aðra umfjöllun teljum við
okkur rétt og skylt að halda fram málstað
Vestfirðinga og landsbyggðarinnar.
Árni Sigurðsson, ritstjóri.
—Smáaug lýsingar—
TIL SÖLU Nýtt og ónotað bárujárn til sölu. 24 plötur í 6 m. lengjum. Upplýsingar í síma 3954 TIL SÖLU 4 stk. nýjar 13” Rocket krossa-krómfelgur. Passa á alla japanska bíla. Upplýsingar í síma 3474
A.A. FUNDIR Kl. 9 á þriðjudagskvöldum, safnaðarheimilinu, uppi í Gúttó. Opið á sama stað milli 2 og 4 á sunnudögum, sími 3171. A.A. deildin.
TAPAÐ Dökk hornspangargleraugu töpuðust á Skeiðisvelli, er firmakeppni KRÍ fór fram. (Sennilega skilin eftir í bifreið á áhorfendasvæðinu.) Finnandi hringi í síma 4144 eða 3214
TIL SÖLU Mercedes Benz, árgerð 1969, 6 cyl., sjálfskiptur. Topplúga, snjódekk. Upplýsingar í síma 3060, Halli.
HÚSTILSÖLU Til sölu er húseignin Hlíðar- stræti 14, Bolungarvík. Laus til afhendingar eftir 20. júní 1981. Nánari upplýsingar gefur Ól- afur B. Halldórsson í síma 3975 á kvöldin.
TILSÖLU Píanó, falleg og eiguleg mubla, einnig ónotað 3 gíra Raleigh karlmannsreiðhjól, stærð 26”. Upplýsingar í síma 3702
Karlakór ísafjarðar AÐALFUNDUR Karlakórs ísafjarðar verður haldinn í Gagnfræða- skólanum n.k. miðvikudag kl. 20:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Kórfélagar og áhugamenn eru eindregið hvattir til að mæta. STJÓRNIN
Söfnuðu
fyrir
Þorleif
Krist-
mundsson
Þessar ungu stúlkur heita Ár-
óra Gunnarsdóttir, Guðrún
Hrefna Sigurðardóttir og Sigur-
lína Jónasdóttir og öfluðu þær
álitlegrar fjárhæðar með hluta-
veltu til styrktar Þorleifi Krist-
mundssyni. Söfnun í hans
þágu á vegum Hjálparsjóðs
ísafjarðarkirkju, 7000 10, fer nú
senn að Ijúka.
3 millj. í Afríkusöfnun
Þetta myndarfólk úr 6. bekk
Barnaskóla ísafjarðar gekk fyr-
ir hvers manns dyr á ísafirði í
forbón fyrir börn f Austur-
Afríku. Sama gerðu jafnaldrar
þeirra f Hnífsdal og Súðavík.
Alls söfnuðust á þessum þrem-
ur stöðum nær 3 milljónir
króna.