Vestfirska fréttablaðið - 06.11.1980, Page 5
I vestfirska I
rp.ZTTABLACID
í þessari viku eru fimm ár
iiðin síðan Vestfirska frétta-
blaðið hóf göngu sína og í
tilefni þess þótti aðstandend-
um þess hlýða að gera lítils-
háttar úttekt á stöðu þess og
útbreiðslu um þessar mundir.
Við leituðum m.a. til allra þing-
manna Vestfjarðakjördæmis
og eins fyrrv. þingmanns, og
spurðum þá hvaða gildi blaðið
hefði haft fyrir þá sem fulltrúa
Vestfirðinga á Alþingi, eða
hvort það hefði yfirleitt haft
nokkurt gildi fyrir þá. Svör
þeirra fara hér síðar í þessu
yfirliti.
Vestfirska fréttablaðið er gefið út
í 1700 eintökum og er það sex
síður aðra vikuna en átta síður
hina. Dreifing blaðsins er í stór-
um dráttum þannig, að 600 eintök
Matthías Bjarnason
Steingrímur Hermannsson
Sighvatur Björgvinsson
Þorvaldur Garðar
Kristjánsson
HVAÐ HAFA ÞEIR AD SEGJA
UM VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ ?
Karvel Pálmason
eru seld í götusölu á ísafirði, sem
þýðir að fimmti hver fsfirðingur
kaupir blaðið. Önnur sex hundr-
uð dreifast á sama hátt og í pósti
víðsvegar um Vestfirði, en nálægt
500 eintök eru send áskrifendum
á 47 stöðum á landinu. Það skal
fullyrt hér að önn-
ur blöð íslensk hafa ekki betri
dreifingu um Vestfirði.
Blaðið er ekki málgagn neins
stjórnmálaflokks og tekur ekki
flokkspólitíska afstöðu í neinu
máli. Það leitast við að miðla
fréttum af því sem gerist innan-
héraðs á Vestfjörðum og öðru því
er varðar Vestfirðinga. Það vill
vinna heiðarlega að hagsmuna-
málum vestfirskra byggða og
landsbyggðarinnar yfirleitt og það
er opið öllum þeim er í það vilja
rita að því marki sem stærð þess
og velsæmi hæfir.
Vestfirska er ekki gefið út af
stjórnmálaflokki og er þar af leið-
andi ekki ríkisstyrkt, en nú eftir
fimm ára baráttu hefur blaðið
náð þeim áfanga, að forystugrein-
ar þess eru lesnar í útvarpi á
mánudagsmorgnum.
Lausasöluverð blaðsins er hið
sama og dagblaðanna á hverjum
tíma. Áskriftarverð er jafnframt
lausasöluverð og er innheimt
hálfsárslega eftirá. Auglýsinga-
verð er hverju sinni miðað við að
vera sem næst 65% af auglýsinga-
verði dagblaðanna.
UMSAGNIR ÞINGMANNA
Eins og áður sagði leituðum við
til þingmanna Vestfirðinga og
eins fyrrv. þingmanns og báðum
þá að svara þessari spurningu:
Hvaða gildi hefur blaðið haft fyr-
ir þig í störfum þínum á Alþingi,
eða hefur blað sem þetta yfirleitt
nokkuð gildi fyrir þingmenn?
Þingmennirnir tóku þessari
spurningu af mikilli ljúfmennsku
og fara svör þeirra hér á eftir:
ÞORVALDUR GARÐAR
KRISTJÁNSSON
Það voru góðar fréttir þegar
Vestfirska fréttablað höf göngu
sína. Manni var þá forvitni á að
vita hvernig gangan yrði og ósk-
Finnbogi Hermannsson
aði blaðinu fararheilla. Nú eru
liðin fimm ár og raun komin á.
Blaðið fór myndarlega af stað og
síðan hefur því stöðugt vaxið ás-
megin. Vestfirska fréttablaðið
hefur mikla þýðingu fyrir frétta-
þjónustu fyrir vestfirskar byggðir
og er mikilvægur vettvangur um-
ræðna og baráttu fyrir vestfirsk-
um hagsmunamálum. Við Vest-
firðingar getum verið þakklátir og
stoltir yfir blaðinu og óskum því
góðs gengis í framtíðinni.
SIGHVATUR BJÖRGVINSSON
Ég átti þess kost að fylgjast
með því þegar Vestfirska frétta-
blaðið varð til. Þá leitaði ritstjór-
ínn til mín um smávegis aðstoð
vegna míns starfs, en ég var þá
ritstjóri Alþýðublaðsins. Ég
reyndi að hjálpa til eins og ég
mögulega gat og var mjög ánægð-
ur með þetta framtak, sem þarna
var a ferðinni. Mér finnst blaðið
hafa farið fram úr því sem kalla
mætti björtustu vonir manna þá,
því bæði hefur það verið ákaflega
gott í flestöllum tilvikum sem
óháð fréttablað, og einnig hefur
verið í því að finna ýmsar mjög
athyglisverðar greinar, þar sem
menn hafa komið fram með á-
bendingar og athugasemdir, sem
hafa orðið okkur þingmönnum að
miklu gagni. Ég vil geta þess
einnig, að yfir vetrartímann þegar
erfitt er um ferðalög fyrir okkur,
má heita að Vestfirska fréttablað-
ið sé orðið einskonar tengiliður
milli okkar og vestfirsku byggðar-
laganna. sem flytur okkur fréttir
af því sem er að gerast í okkar
kjördæmi. Því má segja. að fyrir
okkur sé Vestfirska fréttablaðið
mjög þýðingarmikill fréttamiðill.
Ég óska blaðinu innilega til ham-
ingju og vona, að næstu fimm
árin verði ekki verri og helst betri,
en þau fimm sem liðin eru.
STEINGRÍMUR
HERMANNSSON
Ég hef oft haft fróðleik af því
að lesa blaðið og hef satt að segja
undrast það og dáðst að því hvað
ykkur tekst að halda því úti og oft
Kjartan Ólafsson
með miklum upplýsingum. Blað-
ið kallar sig óháð og ætli maður
verði ekki að segja, að þið a. m. k.
reynið að standa ykkur í þeim
efnum, en með því er ég ekki að
segja, að ég sé alltaf sammála því
sem í blaðinu stendur. Sem þing-
maður Vestfirðinga tel ég þó engu
að síður að blaðið hafi haft gildi
fyrir mig.
KJARTAN ÓLAFSSON,
RITSTJÓRI ÞJÓÐVILJANS
Ég fagnaði því þegar útgáfa
Vestfirska fréttablaðsins hófst og
hef fundið til þess með því að
fylgjast með blaðinu, að það hef-
ur auðveldað mér að glöggva mig
á ýmsum málum, sem uppi hafa
verið á Vestfjörðum. Ekki síst
kom það að góðu gagni, þegar ég
sat sem fulltrúi Vestfirðinga á
Alþingi. Ég vil nota tækifærið og
óska blaðinu til hamingju með að
tekist skuli hafa að halda því
gangandi þessi fimm ár og óska
því alls góðs í framtíðinni.
MATTHÍAS BJARNASON
Mér fannst blaðið fara ákaf-
lega vel af stað og ég tel að blað
sem þetta sé nauðsynlegt og eigi
fullan rétt á sér. Ég tel einnig, að
slíkt blað eigi ekki að vera alltof
einskorðað við héraðsmál og
megi ekki vera of einsýnt í þeim
efnum. Við sem erum þingmenn
og viljum vera góðir þingmenn
verðum auðvitað að horfa á mál-
in frá breiðari sjónarhóli og gæta
þess að hlutur þeirra byggðarlaga,
sem verst eru á vegi stödd. sé ekki
fyrir borð borinn, samtímis því
sem við gætum hagsmuna um-
bjóðenda okkar. Þar tel ég að
blaðið hafi á margan hátt sýnt
ágæta viðleitni. í blaðinu kemur
margt fram, sem ella hefði farið
fram hjá okkur þingmönnum.
þegar við erum ekki alltaf í þeirri
sömu nálægð við kjördæmið og
áður var. Mér er því ánægja að
því að þetta blað kemur út og
óska því alls góðs. Vitaskuld kem-
ur fyrir að manni líkar ekki allt,
sem í blaðinu stendur, en það
væri nú meira gæðablaðið sem
enginn lesandi gæti sett út á. Þið
viljið gæta hlutleysis og ég tel að
ykkur hafi tekist það að verulegu
leyti.
KARVELPÁLMASON
Það er augljóst að Vestfirska
fréttablaðið hefur haft almennt
gildi fyrir Vestfirðinga. Það er
almennt fréttaöflunar- og upplýs-
ingablað, sem nauðsynlegt er að
sé í gangi, ekki kannske síst fyrir
landshluta eins og Vestfirði. Blað-
ið segist vera óháð og það hugtak
er hægt að skilgreina á ýmsa
vegu, en ef verið er að tala út frá
flokkspólitísku sjónarmiði þá sýn-
ist mér blaðinu hafa tekist nokk-
uð vel að sigla milli skers og báru.
Enginn vafi er á því að blaðið
hefur haft gildi fyrir þingmenn.
burtséð frá pólitískum sjónarmið-
BÁRUJÁRN
allar lengdir
ÞAKPAPPI
ÞAKSAUMUR
PAPPASAUMUR
SPÓNAPLÖTUR
allar þykktir
um, og þeir hafa haft stuðning af
blaðinu.
FINNBOGI HERMANNSSON
Vestfirska fréttablaðið hefur
eðlilega gildi fyrir þingmenn, eins
og önnur blöð. Alþingismenn
verða að fylgjast með því sem
fjallað er um í blöðum og útvarpi
vegna þess hve þessir fjölmiðlar
vega þungt í umræðu um alla
þætti þjóðlífsins.
Sem upplýsinga- og fréttablað
tel ég Vestfirska fréttablaðið af-
gerandi á ísafirði og kostur að
það skuli hafa blaðamann í fullu
starfi.
Hvað stefnu blaðsins snertir, þá
tel ég það ekki mjög gagnrýnið á
okkar samfélag og þá hugmynda-
fræði, sem það er byggt á. Aftur á
móti hefur Vestfirska fréttablaðið
tekið á ýmsum samfélagsmálum,
sem önnur blöð hafa ekki gert.
FILMUPLÖTUR
ÞURR PANILL
AMERÍSK
GÓLFTEPPI
ÁLPAPPÍR
og fleira
FELAGSHEIMILID HNIFSDAL
AUGLÝSIR
Lcikfimi
Nýtt leikfiminámskeið ffyrir konur á
öllum aldri hefst 13. nóvember.
Tímar verða á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 20:30.
Gufubað innifalið.
UPPLÝSINGAR GEFUR ÁSTHILDUR
í SÍMA 3577
FÉLAGSHEIMILIÐ HNÍFSDAL
UIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIU
Byggingarvörur!
TIMBURVERSLUNIN
ÍSAFIRÐI----- ====7;-==s^m BJdRK
SlMAR 3063 og 3293 — PÓSTHÓLF 66
lilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHIHIIIMIIIIIIII