Vestfirska fréttablaðið - 13.11.1980, Qupperneq 1
Alla leiö meö
EIMSKIP
Sími 3126
*
Nokkur samdráttur í
fasteignasölunni mi
Söng- og skemmti-
kvöld tveggja kóra
— Fasteignaverð á ísa-
firði með því hæsta
sem gerist á lands-
byggðinni.
Nokkur samdráttur hefur
verið í fasteignasölu á ísafirði
og nálægum byggðarlögum
síðustu þrjá mánuðina og er
salan töluvert tregari nú en
gengur og gerist í venjulegu
árferði, að því er Tryggvi Guð-
mundsson, fasteignasali, tjáði
Vestfirska nú fyrir skömmu.
Fasteignaverð á ísafirði er
með því hæsta sem gerist úti á
landsbyggðinni og sem dæmi
um það má nefna, að meðalí-
búðir hér eru allt að 15% hærri
en sambærilegar íbúðir á Akra-
nesi. Sagði Tryggvi að blokkar-
íbúðir á ísafirði væru hvað
verðlag snertir nokkuð sam-
bæriiegar við blokkaríbúðir í
Breiðholtshverfunum.
Tryggvi sagði. að sér virtist að
ástæðan fyrir þessum samdrætti í
fasteignasölu hér á svæðinu væri
m.a. sú að fólk hefði minni pen-
inga handa á milli vegna stopp-
anna hjá frystihúsunum í sumar.
Við þetta bættist að lánafyrir-
greiðsla bankanna væri i lág-
marki. Gætu menn í mesta lagi
herjað út eina milljón kr. á stuttu
vaxtaaukaláni og færi enginn
langt á slikri fyrirgreiðslu.
Framboð á fasteignum er ekki
mjög mikið um þessar mundir. en
að jafnaði er mest framboð á
eldra húsnæði og er þá um að
ræða ungt fólk, sem er að selja og
vill þá kaupa sér betra húsnæði
eða byggja. Mjög lítið framboð er
á einbýlishúsum og betri íbúðum
yfirleitt. Engir toppar hafa verið í
sölunni á þessu ári, að sögn
Tryggva. og var hún nokkuð jöfn
fram á seinni part sumars. Vegna
sölutregðunnar hafa hækkanir á
fasteignum verið í lágmarki síð-
ustu 3-4 máilbðina.
70% ÚTBORGUN
Útborgun á fasteignum hefur
hækkað lítilsháttar á síðustu 4-5
árum. Nú greiða menn að jafnaði
70% fasteignaverðsins á ársgrund-
velli, en þetta hlutfall var um 65%
um miðjan síðasta áratug. Fast-
eignir á Bolungarvík eru aðeins
ódýrari en á ísafirði. en sá munur
er lítt merkjanlegur, að sögn
Tryggva Guðmundssonar. Fast-
eignasala í Bolungarvík er einnig
treg um þessar mundir.
Verð á fasteignum á Ísafirði er
mjög hátt miðað við landsbyggð-
ina almennt og sagði Tryggvi, að
það væri töluvert hærra hér held-
ur en- víða í kringum Reykjavík.
Á Akranesi eru fasteignir t.d. allt
að 15% lægri í verði heldur en á
ísafirði. Má segja. að meðalíbúðir
í fjölbýlishúsum hér séu sambæri-
legar við íbúðir í fjölbýlishúsum í
Breiðholti. Ástæðuna fyrir hinu
háa fasteignaverði hér sagði
Tryggvi vera þá, að þetta væri
einn af fáum stöðum á landinu.
þar sem atvinna hefði verið næg á
undanförnum árum, og svo virtist
sem fólksstraumurinn væri frekar
að færast út á land heldur til
Reykjavíkur á síðustu árum.
etj.-
Söng-og skemmtikvöld var
haldið á vegum kirkjukóranna í
Hnífsdal og Bolungarvík í Fé-
lagsheimilinu í Hnífsdal sl.
sunnudagskvöld. Stjórn kór-
anna önnuðust organistarnir
Guðrún Eyþórsdóttir og Sigríð-
ur Norðkvist, auk Ágústu Á-
gústdóttur, raddþjálfara, en
jafnframt naut söng fólkið að-
stoðar Jónasar Ingimundar-
sonar, píanóleikara.
Nokkurt samstarf hefur verið
með kórunum í Hnífsdal og Bol-
ungarvík um hríð og kom sú
hugmynd upphaflega fram hjá
einum kórfélaga í Bolungarvík.
að kórarnir æfðu saman einhver
lög og skemmtu sér saman. Á
samæfingu fjögurra vestfirskra
kirkjukóra á Þingeyri í sumar var
síðan afráðið að hrinda þessari
hugmynd í framkvæmd. Til söng-
kvöldsins í Hnífsdal var boðið
Sóknarnefndum staðanna auk
gamalla kórfélaga og annarra.
Alls voru um 180 manns við-
staddir þessa skemmtun.
Það mun nýmæli að kórar
komi saman eins og gerðist á
Þingeyri í sumar og æfi saman
lög. í samtali við Vestfirska sagði
Guðrún Eyþórsdóttir, að þarna
hefði verið unnið merkilegt
brautryðjendastarf og væri henni
kunnugt um þrjá kóra í Reykja-
vik. sem ætluðu sér að fara að
dæmi vestfirsku kirkjukóranna og
æfa saman lög um næstu helgi.
Pétur Bjarnason um laxveiði Færeyinga í sjó:
Stunda þeir veiðiþjófnað
á afréttum laxabænda?
Hinn fyrsta nóvember hófu
Færeyingar laxveiði í sjó með
reknetum og línu á svæðinu norð-
ur og norðvestur af Færeyjum.
Það er þekkt staðreynd, að það
er enginn lax til í sjónum. sem
ekki á uppruna sinn í ferskvatns-
kerfi einhvers lands og á þessu
svæði elst upp lax. sem ræktaður
er í Noregi. Svíþjóð, Skotlandi,
írlandi og íslandi svo eitthvað sé
nefnt.
Það þarf því ekki að fara í
neinar grafgötur með að þessar
aðfarir Færeyinga eru ekkert
annað en hreinn sauðaþjófnaður.
þar sem ráðist er á hjarðir ann-
arra á afréttinum og tekið það
sem mönnum sýnist.
Það hafa aldrei veiðst merktir
laxar frá íslandi á þessum slóðum
segja stjórnvöld í Færeyjum. En
hvað vita þeir urn það?
íslenskur lax er nú merktur
með lítilli málntflís. sem skotið er
í trjónuna og finnst alls ekki aftur.
nema með þartil gerðum tækjum.
sem eru alls ekki til í Færeyjum.
Færeysk stjórnvöld. sem út-
hluta sauðaþjófnaðarleyfum tala
því gegn betri vitund, þegar þeir
fullyrða að aldrei hafi veiðst
merktur lax frá íslandi á þessurn
slóðum.
Allt síðastliðið sumar hefur
mátt sjá allmarga norska. danska.
'og færeyska báta. alls um áttatíu
skipakomur, sem leitað hafa
hafnar á Vestfjörðum og fengið
þar alla fyrirgreiðslu, olíu, vatn
og vistir og ennfremur verið upp
um alla kanta með veiðarfæri sín
til viðgerðar.
Þarna hefur verið um að ræða
rækjuveiðiflota, sem vegna aðild-
ar Dana að Efnahagsbandalaginu
hafa getað stundað veiðar í land-
helgi Grænlands. hvort sem
Grænlendingum líkaði betur eða
verr.
Það voru íslendingar. sem
fyrstir fóru að nýta þessi norð-
lægu rækjumið. meðan þau voru
enn þá öllum opin. en. hafa nú
orðið að fara þaðan síðan þau
komust undir yfirráð Efnahags-
bandalagsins.
Ég held að við ættum að endur-
skoða þá afstöðu okkar, að greiða
jafn kyrfilega fyrir því. eins og við
gerðum síðastliðið sumar. að
þessi floti Efnahagsbandalagsins
geti rótnagað þessi mið áður en
Grænlendingar fá þau sjálfir til
umráða, þar seni allt útlit er fyrir
að þessi floti Efnahagsbandalags-
ins gæti ekki staðið að þessari
rányrkju án okkar atfylgis.
Við ættum heldur að bjóða
Grænlendingum að taka að okk-
ur sem víðtækastar rannsóknir á
þessu svæði og leggja niðurstöður
þeirra síðan til grundvallar við þá
samningagerð um sameiginlegar
veiðar á þessu hafsvæði. sem við
óumflýjanlega verðum að gera
við þá, þegar þeir hafa sjálfir
öðlast umráð sinnar landhelgi.
Ég fagna því innilega nýlega
framkomnu frumvarpi Matthías-
ar Bjarnasonar og fleiri þing-
manna úr öllum flokkum um
Grænlandssjóð. þar sem gert er
ráð fyrir miklu nánari tengslum
við þessa nágranna okkar en verið
hefur hingað til.
fsafirði 6.1 1.1980
Pétur Bjarnason
Laxaseiðum sleppt í Botni í Súgandafirði