Vestfirska fréttablaðið - 26.11.1981, Qupperneq 2
I YEstíirska ~
rRETTABLASID
1 rcstfirskí
FRÉTTABLABID e
Vikublað, kemur út á fimmtudögum kl.
18:00 - Skrifstofa Hafnarstræti 2, sími 4011
- Opin virka daga frá kl. 13:00 — 17:00 -
Blaðamaður Finnbogi Hermannsson, sími
4057 - Útgefandi og ábyrgðarmaður Ámi
Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími
3100 - Verð í lausasölu kr. 6,00. Áskriftar-
verð er lausasöluverð, reiknað hálfsárslega
eftirá - Prentun: Prentstofan Isrún hf., sími
3223.
Það hefur ekki verið digur barki sem talað hefur
fyrir hinum mjúku verðmætum í samtímanum, en
þó hefur sú rödd látið æ meir eftir sér taka sem
fyrir þeim hefur talað. Nú seinast er að heyra að
konur hafí tekið málið fyrir í sambandi við baráttu
sína fyrir frekari hlutdeild í stjórnmálalífínu.
En hver eru þessi mjúku verðmæti? Það eru þau
verðmæti sem ekki verða virt til fjár, verða ekki
metin út frá hagrænum sjónarmiðum einvörð-
ungu. Sú tíð hefur verið uppi að ekkert hefur verið
talið hafa verulegt gildi sem ekki ber með sér
fjárhagslega arðsemi. Hennar vegna var oft fótum
troðið hið mannlega meðan verið var að koma
velferðarþjóðfélaginu á laggirnar. Manneskjulegir
þættir urðu að víkja fyrir bjargræðinu.
Ein grófasta yfirtroðslan í þessu efni var á
togurunum fyrir tíma vökulaganna. Annað dæmi
er atlætisleysi barna í nútímasamfélaginu sem
krefst mæðra þeirra á vinnumarkaðinn. Mjúku
verðmætin tengjast hinum mannlegu þáttum sem
skáldið var að hugsa um þegar það sagði: „Aðgát
skal höfð í nærveru sálar.“
Það er algild staðhæfing að mest sé um vert að
maðurinn sé hamingjusamur. Finni sjálfan sig og
finni tilgamgin með amstri sínu. Tæknivæðing og
krafa um aukin hagvöxt hafa fengið menn til að
gleyma að að gá að þessu, og því er margur
nútimamaðurinn firrtur sambandi við raunveru-
leika iðju sinnar. hann sér ekki annað en sama
hlutinn berast að sér milljónfaldan á færibandi og
hann verður að halda þeim takti sem stjórntölva
bandsins skammtar honum. Japanir sýna að þeir
muna eftir manneskjunni þegar þeir stöðva færi-
böndin til þess að starfsfólkið fái teygt úr sér og
gert leikfimiæfingar í liðkunarskyni og til afslöpp-
unar. Iðjuhöldar á Vesturlöndum hafa meir að
segja komið auga á það sumir að það getur haft í
för með sér aukna framleiðni að stuðla að því að
fólk sé hamingjusamt í störfum sínum.
Hin mjúku
verðmæti
Konur hafa körlum fremur verið í lífrænum
tengslum við hið menneskjulega í tilverunni. Og
einhverjir mannfræðingar hafa leitt líkur að því að
líffræðilegar forsendur liggi að því að heilastarf-
semi og hugsun kvenna sé öðru vísi en karla.
Spaklega hafa þá þeir mælt sem halda því fram að
konur eigi alls ekki að reyna að tala og hugsa eins
og karlar í þvi augnamiði að skapa grundvöll fyrir
aukinni stjórnmálaþátttöku sinni. Frekar beri að
benda á þörfina á ráðum kvenna til allrar stjórn-
málaákvörðunar.
Með þessu er mælt hér í þeirri von að konur
verði málsvarar hinna mjúku verðmæta: Menn-
ingar, kirkju, fjölskyldu, barna, aldraðra og and-
legrar starfsemi, bæði í sveitarstjórnum og á
Alþingi.
Það er á því rík þörf að við látum velmegun
liðinna áratuga skila sér í aukinni andlegri velsæld
með því að krefjast sparnaðar í rekstri og skrif-
finnsku til þess að fá aukin mannafla og fjármuni
til að sinna þeim störfum sem áður var gegnt
alfarið innan veggja heimilisins. Þróuninni verður
ekki snúið við. Enginn vill í alvöru senda konurnar
heim aftur. En það þarf að veita börnunum
tækifæri til að þroskast á eðlilegan og farsælan
hátt. Það verður að ganga fyrir öllu öðru. Þau
þurfa að fá að njóta foreldra sinna á frumþroska-
skeiðum og þess sama þarfnast foreldrarnir líka
þroska síns vegna. . Og allt þarf að gera til þess að
stuðla að viðhaldi fjölskyldnanna og hjónaband-
anna. Upplausn þeirra er meiriháttar ógæfa fyrir
hlutaðeigendur og tap fyrir þjóðfélagið í heild.
Hræddur maður er ekki hamingjusamur. Friður
er fremstur hinna mjúku verðmæta. Að okkur
berast hinar uggvænlegustu fréttir um atómvædda
kafbáta innan landhelgi okkar á sama tíma og
fyrirætlanir eru uppi um aukningu atómvopna í
Evrópu.
Ein mjó rödd má sín lítils en nokkurs þó. Við
getum ekki ætlað upp á aðra sem stærri eru og
sterkari að hafa vit og forráð fyrir okkur í þeim
mæli að við fórnum myndugleika okkar. Við
eigum að taka eindrægna afstöðu með friði og
aldrei vinna „ það fyrir vinskap manns (þjóðar) að
víkja af vegi sannleikans.“ Við höfum tekið af-
stöðu í alþjóðamálum með þeim þjóðum sem
okkur eru skyldastar sem og eðlilegt er, en við
heimtum óskoraðan frið og næði af öllum þjóðuín
til þess að fá að lifa og njóta öryggis. Ógnanir
stigmögnunar valdakapphlaups stórveldanna
kalla á einróma mótmæli okkar allra. Samstaða og
sannfæringarkraftur getur kallað á athygli fyrir
rödd okkar þó mjó sé.
Friður, öryggi, framför og hamingja eru verð-
mæti sem við höfum mætur á, en við höfum ef til
vill af misskilningi talið að þau staðfestust af sjálfu
sér ef atvinnulífið skapaði peninga. En það er
misskilningur. Um þessa hluti er nauðsynlegt að
gera ráðstafanir eins og annað það er verða á. Að
því skulum við vinna í eindrægni og leggja saman
ráð okkar og krafta, karlar og konur.
Sr. Jakob Hjálmarsson.
r-— Smáauglýsingar -—■■
Guðrún Jónsdóttir
— Minning —
A.A. FUNDIR
Kl. 9 á þriðjudagskvöldum,
safnaðarheimilinu, uppi í
Gúttó. Opið á sama stað
milli 2 og 4 á sunnudög-
um, sími 3171.
A.A. deildin.
BAHÁ’I TRÚIN
Upplýsingar um Bahá’í-
trúna eru sendar bréflega,
ef óskað er. Utanáskrift:
Pósthólf 172, (safirði. Opið
hús að Dalbraut 1, Hnífs-
dal (2. hæð, suðurendi) öll
fimmtudagskvöld frá kl.
21-23.
AL—ANON FUNDIR
fyrir aðstandendur fólks,
sem á við áfengisvanda-
mál að stríða, eru kl. 21:00
á mánudagskvöldum í
safnaðarheimilinu.
Upplýsingar eru veittar í
síma3171 ásamatíma.
TIL SÖLU
hjónarúm
Upplýsingar í síma 7270.
TIL SÖLU
bílskúr í byggingu við Hlíð-
arveg. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 4143.
TIL SÖLU
nýlegur kerruvagn.
Upplýsingar í síma 3068.
TIL SÖLU
Picasso sófasett, mjög vel
með farið. Einnig borð og
hornborð.
Upplýsingar í síma 3180.
ATVINNA
Óska eftir atvinnu við
verslunarstörf eða sam-
bærileg störf.
Upplýsingar í síma 3762 kl.
18:00-19:00
Tregt er mér um tungu
þá ég reyni að minnast okk-
ar ástsæla og virta for-
manns, Guðrúnar Jónsdótt-
ur.
Guðrún andaðist hinn 15.
nóvember, langt um aldur
fram, fæðingardagur hennar
var 12. desember árið 1916,
og hefði hún því orðið 65
ára nú í næsta mánuði.
Ég ætla ekki að tíunda
störf hennar almennt, aðeins
þakka með fáum orðum,
það sem hún var félagi okk-
ar Kvennadeild S.V.F.Í. hér
á ísafirði, en í þann félags-
skap gekk hún árið 1955,
Kjarabætur
eða...
Framhald af bls. 1
var að pakka skreið af miklum
móði og er það gert í bónus.
Grétari fannst þessir samningar,
sem gerðir voru um daginn,
smánarsamningar og óréttlátt, að
fiskvinnslufólk fengi svo litla
hækkun, allir í húsinu væru á
einhverskonar bónus, þannig að
ef menn skrifuðu undir þennan
samning, þá væri ekki verið að
skrifa undir neitt í rauninni.
Hann vildi að A.S.V. héldi sínu
máli til streitu og léti reyna á
hvað gerðist.
varaformaður var hún frá
árinu ’61, kjörin formaður
frá ’75 og gegndi því til
dauðadags með miklum
sóma.
Guðrún, eða eins og ég vil
helst segja, Gunna okkar
Jóns, var elskuleg og vel
gerð manneskja. Sérstæðan,
skemmtilegan húmor hafði
hún, og setti með framkomu
sinni allri ákveðinn svip á
fundi félagsins.
Hún var gædd þeim eig-
inleik að laða fram það
besta hjá samstarfsfólki sínu,
og þannig fá það til að njóta
sín, en draga sjálfa sig held-
ur til baka.
Mikilvirk var hún í starfi
að slysavarnamálum og á-
vann félaginu virðingu og
velvilja útávið og með henni
var gott að starfa.
1 húsi hennar áttum við í
stjórn Kvennadeildar
S.V.F.Í. á ísafirði, margar
ánægjustundir.
Fyrir allt sem hún var
félaginu, og allt það er hún
skilur eftir hjá okkur sem
einstaklingum, þökkum við
nú að leiðarlokum.
Minningar þyrpast fram í
hugann, þær verða ekki
skráðar á blað, en ég trúi og
vona að sá andblær er hún
skóp á fundum, og í allri
Guðrún Jónsdóttir
okkar starfsemi, lifi áfram,
og verði hvati áframhald-
andi öflugs starfs, félagsskap
okkar til handa. Þannig
heiðrum við best okkar
látna formann.
Skáldamál tengist okkar
síðustu samskiptum, með
orðum hans sendum við eig-
inmanni hennar, svo og ást-
vinum öllum, samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé hennar minn-
ing.
Löng er leið.
Langir eru farvegar.
Djúp er dauðans móða.
En minning þinni
glata’ ei hin myrku öfl
úr grátnum muna mér.
F. h. Kvennadeildar
S.V.F.Í. á ísafirði
Anna M. Helgadóttir.
AÐALFUNDUR
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
HÖRÐUR
heldur aðalfund n.k. miðvikudag,
2. desember kl. 20:30, að Uppsölum,
miðhæð.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf
önnur mál
STJÓRNIN
á leið til borgarinnar?
Þá er gott að hafa lipran gæðing til umráða
Hann höfum við til reiðu fyrir þig
Þú hringir og bíllinn bíður á flugvellinum...!
Tlilaleiaan hf.
--------CAR RENTAL
$75400
o_:>:__: A a i/ ___:
Smiðjuvegi 44 Kópavogi
1 ' 1 11 11 11 11 1 1 1 1 1 1 1 1 1