Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1984, Síða 4
4
isafjarðarkaopstaðor
Hundahreinsun
Umráðamenn hunda á ísafirði, sem ekki
hafa látið hreinsa hunda sína enn, hafi sam-
band við dýralækni, föstudaginn 6. jan. eða
laugardaginn 7. jan. og fái tíma. Hund-
ahreinsun fer síðan fram að Urðarvegi 16,
mánudaginn 9. jan. kl. 10:00 — 12:00 og
16:00— 18:00.
HEILBRIGÐISFULL TRÚINN
Styrkir frá Menningarráði
Þeir aðilar sem óska eftir styrkjum frá
Menningarráði ísafjarðar á árinu 1984, eru
vinsamlega beðnir að senda umsóknir til for-
manns þess, Sigríðar J. Ragnar, Smiðjugötu
5, pósthólf 271, eigi síðar en 15. janúar
1984.
MENNINGARRÁÐ ÍSAFJARÐAR
Námskeið
Húsmæðraskólinn Ósk á ísafirði býður upp
á eftirtalin námskeið eftir áramót:
Almenna matreiðslu, gerbakstur, síldarrétti,
fatasaum, bótasaum, vefnað, spjaldvefnað,
postulínsmálningu, leirmunagerð.
Innritun hófst 2. jan. Kennt verður á kvöldin.
Körlum sem konum heimil þátttaka.
Upplýsingar og tekið á móti umsóknum í
símum 3025 og 4148.
SKÓLASTJÓRI
Viðtalstímar
Föstudaginn 6. janúar n.k. verða bæjarfull-
trúarnir Reynir Adólfsson og Árni Sigurðsson
til viðtals við bæjarbúa á bæjarskrifstofunum
Austurvegi 2, frá kl. 17:00 til 19:00.
Atvinna
Forstöðumann, fóstrur og afleysingafólk
vantar á leikskólann v/Hlíðarveg.
Dagmömmur vantar nú þegar.
Upplýsingar gefur félagsmálafulltrúi í síma
3722.
BÆJARS TJÓRINN
BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN í ÍSAFJARÐARSÝSLU
íbúðir fyrir lögreglumenn
Embættið óskar eftir tveimur 2ja til 3ja her-
bergja íbúðum í góðu ástandi til leigu fyrir
lögreglumenn.
Upplýsingar á skrifstofunni eða hjá yfirlög-
regluþjóni.
4. janúar 1984
Bæjarfógetinn á ísafirdi
Sýslumaðurinn í Isafjarðarsýslu
Pétur Kr. Hafstein
vestlirska
rRSTTABLADIO
Tómstundastarf;
„Markmiðið er að
þeir sem eru farnir
að eldast eða hafa
misst getu til að
vera úti á hinum al-
menna vinnumark-
aði af öðrum sökum,
fái tækifæri til að
þjálfa sig upp í létt-
ari verkefnum eða
dægradvöl.“
Vestfirska er komið á
fund Málfríðar Halldórs-
dóttur og Halldórs Guð-
mundssonar og þau eru að
segja frá því sem einu nafni
flokkast undir Félagsstarf
eldri borgara á fsafirði. Við
sitjum í salnum á efstu hæð
í Hlíf, en þar fer mikill hluti
þessa starfs fram. Við stórt
borð sitja nokkrir af eldri
borgurunum og eru að
föndra við eitt og annað,
sumir sauma, aðrir mála,
ein kona er að búa til blóm,
nokkrar sitja við prjón eða
hekl og enn aðrir gera eitt-
hvað annað. Tvær rosknar
konur eru að þvo upp eftir
kaffið. Andrúmsloftið er ró-
legt, þó létt og þægilegt.
Það er Málfríður, eða
Malla eins og allir kalla
hana, sem er að gera grein
fyrir tilgangi þessa starfs.
Og þar sem föndurtími
stendur yfir, segir hún frá
því í leiðinni að fyrir utan
tilsögn í þessum ýmsu
greinum handavinnu sem
þarna er látin í té, geti þátt-
takendurnir fengið keypt
þar allt efni sem til þarf á
hagkvæmu verði og fái leið-
beiningar um val á því.
Hún segir að margt af fólk-
inu finni sig vel í þessu
starfi og jafnvel uppgötvi
hæfileika sem það óraði
ekki fyrir að það hefði.
„Fólk sem kannski hefur
aldrei látið sér detta í huga
að það gæti málað, fer að
mála og finnur að það hefur
til þess hæfni og nýtur þess.
Þetta finnst mér mikið at-
riði,“ segir Malla.
Félagsstarf eldri borgara
á ísafirði er orðið talsvert að
vöxtum. Eins og fyrr sagði
fer mestur hluti þess fram í
Hlíf og að því eiga að sjálf-
sögðu allir eldri borgarar
aðgang. Þar er eitthvað
gert í félagsstarfinu alla
virka daga. A mánudögum
er leikfimi, sem þar heitir
“léttar líkamsæfingar.“ Á
þriðjudögum kemur hár-
skeri fyrir karlana og hár-
greiðslukona fyrir konurn-
ar, og þá er líka föndurtími.
Á miðvikudögum er fót-
snyrting fyrir hádegið en
eftir mat er spilað á spil í
þrjá tíma. Þá spilar hver
það sem hann vill, þar er
m.a. spilað bridge, vist,
lomber eða hvað annað sem
fólkið kann og vill spila. Á
fimmtudögum er leikfimin
aftur og á föstudögum
föndur og hárgreiðsla. Auk
þessa standa ýmis frjáls
félagasamtök fyrir kvöldvök-
um eða “opnu húsi“ í hverj-
um mánuði, venjulega er
fimmtudagskvöld þá valið.
Enn er eftir að nefna ýms
námskeið sem haldin eru
Guðmunda Þorbergsdóttir
Guðmunda Þorbergs-
dóttir var að mála „Drott-
inn blessi heimilið“ á gler.
Hún sagði að það væri nú
frekar litið sem hún gæti
sagt en brosti þó til okkar
og sagði:
„Síðan ég brotnaði hef ég
verið að leika mér við svona
alls konar föndur, dunda
við að mála og svo hef ég
gert lampa úr pinnum úr
ís.“
— Hefurðu málað áður?
„Ekki mikið, bara svona
smámyndir og gengið það
vel. Svo hef ég málað í
rúmföt með tauþrykki.“
Fyrir rúmum tveim árum
varð Guðmunda fyrir bíl og
hefur ekki náð sér eftir það
svo að hún geti gengið til
vinnu. En hún fær tölu-
verða útrás fyrir athafnaþrá
sína í tómstundastarfinu.
Áður vann hún allskonar
vinnu, var m.a. starfsstúlka
á sjúkrahúsinu í 17 ár. Og
það kom á daginn að hún
hefur lengi haft gaman af
að fara með liti og pensla,
þótt í lífsbaráttunni hafi lítil
tækifæri gefist til að sinna
þeirri löngun, fyrr en nú.
Svo spyrjum við hana
hvernig andinn sé meðal
fólksins í föndrinu.
„Ég held hann sé bara
ljómandi góður — hjá sumu
fólkinu.“
— Hvemig líður þér hér?
„Mér líður alltaf ljóm-
andi vel, hvert sem ég fer og
sama hvar ég er,“ sagði
Guðmunda Þorbergsdóttir.