Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1984, Page 8
Úr Bókhlöðunni
Samdráttur í bóksölu
á Vestfjörðum
— Alistair McLean söluhæstur
Vestfirska fréttablaðið hafði
samband við þrjá bóksala á
Vestfjörðum og spurðist fyrir
um söluna fyrir jólin. Var sam-
dóma álit þeirra að hún hefði
dregist allverulega saman frá
árinu áður. Gunnlaugur Jónas-
son í Bókhlöðunni á ísafirði
taldi veltuna 15 — 20% minni,
en Ingólfur Arason á Patreks-
firði taldi samdráttinn um 30%.
Hann gat þess þó að ekki væri
fyllilega sanngjarnt að miða við
1982, því þá hefði salan verið
óvenjumikil. Gunnlaugur taldi
fjölda seldra bóka svipaðan og
áður, þó veltan væri minni, því
fólk hefði nú keypt meira af
eldri bókum. Rögnu Magnús-
dóttur hjá verslun Bjarna Ei-
ríkssonar í Bolungarvík þótti
kaup á eldri bókum sérstak-
lega áberandi í ár.
..Fólki finnst bækur alltaf dýr-
ar." sagði Gunnlaugur þegar við
spurðum hann hvort verð bók-
anna væri fólki þyrnir í augum.
Ingólfur á Patreksfirði sagði fólk
hafa spáð meira í verðið en áður.
Báðir voru sammála um að niður-
felling söluskatts af bókum yrði
mikill fengur.
Ingólfur taldi orsakir samdrátt-
arins líka liggja í minnkandi á-
huga fyrir bókinni. ..Unga fólkið
hefur ekki þetta energí fyrir bók-
um sem mín kynslóð hafði." sagði
hann.
Gunnlaugur og Ragna voru
sammála um að bókin héldi enn
velli sem helsta jólagjöfin. ..Það
er alveg á mörkunum." sagði Ing-
ólfur hins vegar.
Hér fer á eftir listi yfir I2
söluhæstu bækur hjá Bókhlöð-
unni. Samkvæmt ummælum
hinna bóksalanna er ekki ólíklegt
að hann eigi við um Vestfirði í
heild.
1. Skæruliðarnir — Alistair Me
Lean
2. Ellefu lif — ævisaga Brynhild-
ar
3. Saga stríðs og starfa —
Hallgrímur Jónsson
4. Sitji Guðs englar — Guðrún
Helgadóttir
5. Bjarni Benediktsson
6. Helför á heimskautaslóðir —
Hammond Innes
7. Bréf til Sólu — Þórbergur
Þórðarson
8. I4 bráðum I5 — Andrés Ind-
riðason
9. Öldin okkar. 1971 — 75
10. Komiði sæl — endurminning-
ar Sigurðar Sigurðssonar
11. Skrifaö í skýin — Jóhannes R.
Snorrason
12. Ástin grípur unglingana —
Ármann Kr. Einarsson.
Eínar Ólafs spjarar sig í Svíþjóð
Jafnt sumar sem vetur sér í
iljar honum uppum fjöll og firn-
indi. Þindarlaus sem hind
hleypur þessi eldhugi meó
járnvilja og hefur að sögn
kunnugra allt sem til þarf til að
verða afreksmaður í íþrótt
sinni. Er reyndar orðinn það.
Megum við kynna: Einar Ól-
afsson. íslandsmeistara í skíða-
göngu. Hann hefur að undan-
förnu verið við æfingar með
sænska landsliðinu í skíðagöngu.
Hefur hann keppt i nokkrum
mótum og hafa okkur borist úrslit
úr sérstæðu móti sem haldið var í
Dalajarna 27. des. s.l. Til mótsins
var boðið I5 sterkum göngu-
mönnum. að Einari frátöldum. og
voru gengnir 12 km. Árangur Ein-
ars telja menn með því betra sem
íslcnskur göngumaöur hefur af-
rekað á erlendri grund. Einar
varð tíundi á tímanum 34:25. en
sigurvegari varð Benny Kolberg á
31:49. Benny hefur verið topp-
maður í sænska landsliðinu um
tíma. I 7. sæti varð Juha Meoto.
mikill maður og rammur. enda 2
metrar á hæð og um 100 kg á
þyngd. I I5 km göngunni á síð-
ustu Ólympíuleikum varð Juha
aðeins sekúndubroti á eftir sigur-
vegaranum. Tomasi Wassberg.
sem nú varð að láta sér lynda 12.
sætið. 29 sek. á eftir Einari okkar.
Björn Risby sem varð í 14. sæti
kom m.a. á Skíðamót fslands
19S2 og náði þar besium tima í 30
km göngunni.
gamlársdag mun Einar hafa
keppt í Osarna. en ekki liafa
okkur borist fréttir þaðan.
Þeir Einar og Gottlieb Kon-
ráðsson æfðu saman með S\ium
fram til jóla. en þá fór sá síðar-
nefndi heim í jólasteikina. Hann
mun þó fara utan aftur og munu
þeir félagar keppa í 30 km göngu
um næstu helgi. og siðan rekur
hvert mótiö annað fram að Ól-
ympíuleikunum í Sarajevo. en
þangað stefna þessir vösku \ík-
ingar úr norðri.
vestíirska
FHETTABLAÐIÐ
Engin hætta á ferðum, sagði
húseigandinn, lá við
stórslysi, sagði útvarpið
„Þetta er bara smá sýnis-
horn,“ sagði Kristján Frið-
björnsson í Hnífsdal um snjó-
flóðið sem þrengdi sér innum
bakdyrnar hjá honum síðastlið-
ið föstudagskvöld. Kristján
sagðist hafa verið úti í bflskúr
um níuleytið tiltekið kvöld þeg-
ar hann heyröi skyndilega dynk
útifyrir. Var þar komið snjóflóð
úr Bakkahyrnu að taka hús á
honum. Sprengdi það upp
dyrakarminn og flæddi inn í
þvottahús og búr. Sem betur
fór varð enginn fyrir flóðinu,
sem einnig braut glugga í
geymsluhúsnæði ofar í hlíð-
inni,' án þess þó að valda um-
talsverðum skemmdum.
„Þarna var engin hætta á
ferðum," sagði Kristján og
furðaði sig á æsifregnastíl út-
varpsins í kvöldfréttum mánu-
daginn 2. janúar (sagt var að
legið heföi við stórslysi).
Kristján sagði elstu menn
ekki muna eftir snjóflóði þarna
fyrr. Þetta væri algjör undan-
tekning sem ekki yrði til að
raska svefnró hans f framtíð-
inni.
Jóhann Torfason
kjörínn knatt-
spymumaður ársins
„Við völdum Jóhann Torfa-
son vegna þess að hann átti
mjög góða leiki, sýndi sérstak-
lega góðan baráttuhug, gafst
aldrei upp þótt á móti blési og
hélt uppi góðum liösanda."
Þetta sagði Jón Axel Stein-
dórsson, en hann átti sæti í
nefndinni sem valdi knatt-
spyrnumann ársins 1983.
Jói Torfa. ein.s \>g hann heltir
hversdags. er enginn nýgræðingur
á knattspyrnuvellinum. 14 tímabil
hefur hann leikið með meistara-
flokki. oftast í l. deild. Hann
hefur leikið með KR. Viking og
tvær vertíðir var hann atvinnu-
spilari i Svíþjóð. Síðustu þrjú
sumur hefur hann leikið með ÍBÍ
þar sem ferill hans hófst.
Hann hefur ristarbrotnað.
puttabrotnað. brotið tennur. feng-
ið gat á hausinn. meiðst á öxl.
verið skorinn upp i hné. legiö 8
mánuði bakveikur. fyrir utan
annað smotterí. Sanit er engan
bilbug á honum að finna. Síðasta
keppnistímabil lék hann reyndar i
fyrsta skipti alla leiki án meiðsla.
..Þetta kemur svona með aldrin-
um.“ segir hann kíminn. og
hyggst halda áfram að fórna líma
og peningum fyrir þetta áhuga-
mál.
En er það þess virði?
..Já." segir Jói ákveðinn. ..Mað-
ur kynnist ótalmörgu fólki og
þetta er viss lærdómur út af fyrir
sig. Auk þess getur þetta opnað
manni ýmsar leiðir. t.d. í sanr-
bandi við þjálfun síðar."
Jói segir þurfa að gera stórátak
í uppbyggingu meistaraflokksins
hér á Isafirði. Æ færri menn skili
sér nú uppí meistaraflokk og því
er svo málum komið að arftaka
vantar. Jói vill kenna aðstöðuleysi
um. en nefnir einnig að uppbygg-
ing unglingastarfsins hafi verið
trössuð þangað til í fyrra.
..Ég tel það þurfi að gera stórt
átuk lil að við eigum möguleika á
einu af þremur efstu sætunum í 2.
deild næsta sumar." segir Jói.
..M iðað við stöðu mála í dag er ég
þ\ í ekki mjög bjartsýnn á kom-
andi sumar."
En við óskum Jóa samt til ham-
ingju meö titilinn.
BÍLALEIGA
\cs\cgi 5 — Suúa\ík — 94-6972-6932
Grcnsásvcgi 77 — Kcvkjavík — 91-37688
Sendum bflinn
Opið allari súlarhringinn