Vestfirska fréttablaðið - 09.02.1984, Blaðsíða 1
6. tbl. 10. árg.
vestfirska
9. febrúar 1984
FRETTABLADIS
FLUGLEIÐIR
ÍSAFJARÐARFLUGVELLI
SÍMI 3000 OG 3400
FLUGLEIDIR
Fáum ætíð það nýjasta af fatnaði
að minnsta kosti vikulega
Fatnaður sendur
með næsta flugi
Verslunin
ísafirði sími 3103
BæjarfiiHtúar Sjálfstæðisflokksins:
Leggja tíl að bæjarsjóður selji
hlutabréf að upphæð 10 m. kr.
„Yfirskrift okkar tillagna er
varfærni og aöhald,“ sagði
Guðmundur Ingóifsson um
breytingartillögur bæjarfulltrúa
sjálfstæðisflokksins við frum-
varp að fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs (safjarðar fyrir árið 1984,
en seinni umræöa um það fer
fram í kvöld.
í greinargerð með breyting-
artillögum sínum segjast bæj-
arfulltrúarnir byggja tillögur
sínar á eftirfarandi grundvallar-
forsendum:
1. Rekstrarútgjöldum verði hald-
ið niðri sem hægt er, og í þeim
efnum stuðst við þá stjórn-
sýsluskipan er bæjarstjórn
samþykkti á liðnu ári.
2. Unnið verði að brýnustu verk-
efnum og tilteknum áföngum
náð, þó með því að fjárveiting-
ar bæjarsjóðs til gjaldfærðrar
og eignfærðrar fjárfestingar
séu í algjöru lágmarki.
3. Tekist verði á við það sem
brýnast er. að leysa verulega
úr lánamálum bæjarsjóðs. Öll
áhersla verði lögð á að bæta
fjárhagsstöðuna með greiðslu
skammtímaskulda og lækkun
langtímalána.
4. Þrátt fyrir aðhald og ýtrustu
gætni í fjármunameðferð bæj-
arfélagsins verði vissir þættir
mála undirbúnir. þannig að í
næstu framtíð verði hægt að
marka skynsamlega fram-
kvæmdastefnu á traustum fjár-
hagslegum grunni.
Þá segir í greinargerðinni að
með hliðsjón af núverandi stöðu
bæjarsjóðs, og þess efnahagsá-
stands er nú hafi skapast í land-
inu. þyki þeim það liggja ljóst
fyrir að lánsfé verði illfáanlegt
nema í sérstökum tilfellum. Það
sé því ekki hægt að gera ráð fyrir
því að útgjöldum verði mætt með
lánsfé. Þvert á móti verði að
leggja áherslu á að laga sem hægt
sé lausafjárstöðu bæjarsjóðs, jafn-
framt því að tryggja skilvísa
greiðslu afborgana og vaxta af
langtímalánum. Með þessari
vinnuaðferð telja þeir að hægt sé
að byggja upp trausta fjármála-
stöðu að nýju, og þar með undir-
Framhald á bls. 6
Vestfirðingar hafa verið
iðnir við að iðka forna siði
uppá síðkastið og blótað
þorra af krafti. Þó bendir
ýmislegt til þess að menn-
ingararfurinn skili sér æ
verr til hinna yngri, enda býr
nú hver kynslóð í sínu horni
og vill helst ekki láta trufla
sig í lífsgæðakapphlaupinu.
Það er þannig tímanna tákn
að kynslóðirnar eiga æ erf-
iðara með að ná saman á
dansgólfinu.
Þessi mynd var tékin á
þorrablóti Hnífsdælinga um
sfðustu helgi og sýnir menn
gæða sér á sviðum, harð-
fiski, hangikjöti, hákarli,
kviðsviðum og öðru hnoss-
gæti ættuðu úr forneskju.
Skipta r skoðan ir
um sn « jómokstí ir
— ófært tíl Suðureyrar síðan fyrir áramót
Pia Cramling kemur
um helgina:
Tekur hún
vestfirska
karlmenn
tíl bæna?
Gangi allt eftir mun sænska
skákdrottningin Pia Cramling
koma hingað til Isafjarðar á
laugardaginn að tefla fjöltefli.
Hr ráð fyrir þvf gert að hún tefli
í Gagnfræðaskólanum á ísa-
firði á laugardaginn kl. 15:00
og í Barnaskólanum f Bolung-
arvík á sunnudaginn kl. 12:30.
Allir skákáhugamenn eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Pia Cramling er tvítug og stiga-
hæst allra skákkvenna í heimin-
um, með 2405 stig. Heimsmeistar-
inn, Maja Chiburg Danibze hefur
2.385 stig, en Pia tók ekki þátt í
undankeppninni á móti henni,
þar sem hún var við nám.
Pia hefur ekki farið hefð-
bundnar leiðir í skákheiminum,
fór t.d. strax að keppa á karlamót-
um og er alþjóðlegur meistari
karla, þó enginn vafi leiki á kyn-
ferði hennar. Hún hefur unnið
alla sterkustu skákmenn Svía að
Anderson undanskildum, og gerði
sér sem kunnugt er iítið fyrir og
vann Jón L. Árnason á Búnaðar-
bankaskákmótinu um daginn, en
Jón er nú stigahæstur íslenskra
skákmanna. Pia þykir tefla mjög
beittan sóknarstíl. og hefur ekki
ómerkari maður en Boris Spassky
orðið til að hæla taflmennsku
hennar.
Það er því ekki að furða þótt
mestu karlrembusvín nagi sig í
handarbökin af ótta við að ein-
veldi karla sé að falla í skákinni.
Sagði ekki Fischer að konur gætu
ekki teflt?
Fischer dró sig líka i hlé.
Að lokum má geta þess að
Reiknistofa Vestfjarða og E.G. í
Bolungarvík hafa með fjárfram-
lögum gert Taflfélagi ísafjarðar
kleift að fá Piu hingað.
Meðal Flateyringa og Súg-
firðinga hefur verið töluverð ó-
aænægja með snjómokstur
það sem af er árinu. Það var
þannig ekki fyrr en á miðviku-
dag í liðinni viku að Breiða-
dalsheiðin var opnuð í fyrsta
skipti á árinu og þá uppá helm-
ingskostnað Þingeyrar og Flat-
eyrar á móti Vegagerðinni.
Botnsheiði hefur enn ekki verið
mokuð á árinu, en til stóð að
taka upp mokstursáætlun í
þessari viku að sögn Kristins
Jóns Jónssonar, rekstrarstjóra
hjá Vegagerðinni.
Það er um tveggja daga verk
að moka Botnsheiði að sögn
Kristins. Hann sagði heiðina ekki
hafa verið mokaða í síðustu viku
þar eð þeir hefðu verið fram á
miðvikudag að opna Breiðadals-
heiðina og því einsýnt að komið
yrði framundir helgi þegar tækist
að opna og mokstursdagur á
mánudegi.
í reglum um snjómokstur á
þessum leiðum er kveðið svo á að
opna skuli einu sinni í viku með-
an fært þyki vegna veðráttu og
snjóþyngsla og heimilt að opna
tvisvar í viku meðan snjólétt sé.
„Þetta var kannski skiljanlegt
Kvennaknattspyma:
Setja
markið
hátt
— Rósa Valdimars-
dóttir ráðin þjálfari
Eins og hraustum, jafnréttis-
sinnuðum tuttugustualdar kon-
um sæmir ætla ísfirskar stúlk-
ur að halda uppl heiðri ísa-
fjarðar hvað knattspyrnuna
varðar í sumar. Elns og mönn-
um er í fersku minni þá unnu
þær sig upp í fyrstu deild síð-
asta sumar, en strákarnir
pompuðu niður í aðra.
Stelpurnar ætla að taka málin
föstum tökum og æfa nú fyrir
íslandsmótið innanhúss, sem
haldið verður í lok mánaðarins.
Þar verða þær í riðli með Hvera-
gerði, Stokkseyri, K.A. og Akra-
nesi, en þær síðastnefndu ku
orðnar ansi skæðar.
Þá hefur verið ráðinn þjálfari
fyrir vertíðina. Er það Rósa nokk-
ur Valdimarsdóttir, sem leikið
hefur með Breiðabliki og var fyr-
irliði landsliðsins þangað til í
fyrra. Rósa mun taka við liðinu í
mars og spila með því líka. Ekki
mun verða um afföll að ræða í
liðinu, frekar öfugt.
Það er semsagt mikill hugur i
Isafjarðarstelpunum og víst að
þær verða ekki auðveld bráð þeg-
ar þær verða komnar í toppform í
sumar.
framanaf janúar, því þá var alltaf
brjálað veður,“ sagði Viðar Már
Aðalsteinsson, sveitarstjóri á Suð-
ureuyi, „en seinnipart mánaðar-
ins var blíða dag eftir dag, og
ekkert skeði. Það erum við mjög
óhressir með. Náttúrlega er ekk-
ert vit í að moka í vitlausu veðri,
en þegar menn sjá fram á blíðu
dag eftir dag, þá er lágmark að
renna hérna eina bunu í gegn. því
það er ekkert sérstaklega mikill
Frtmhald á bls. 6