Vestfirska fréttablaðið - 09.02.1984, Blaðsíða 2
2
I vestíirska ~1
FRETTABLAÐID
Vikublað, kemur út á fimmtudögum kl. 18:00 — Skrifstofa
Hafnarstræti 14, sími 4011 — Opin virka daga frá kl. 10:00 —
12:00 og 13:00 — 17:00 — Blaðamaður Rúnar Helgi
Vignisson, sími 3325 — Útgefandi og ábyrgðarmaður Árni
Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100 — Verð í
lausasölu kr. 22,00 — Auglýsingaverð kr. 110,00 dcm. —
Smáauglýsingar kr. 210,00 — Áskriftarverð er
lausasöluverð, reiknað hálfsárslega eftirá — Prentun:
Prentstofan ísrún hf. sími 3223.
Fyrir neðan virðingu
forsætísráðherra
/
A það hefur verið minnst hér í blaðinu fyrr, að nauðsyn-
legt sé fyrir leiðtoga þjóðarinnar að viðhalda reisn og virð-
ingu sinna embætta. Óþarft er að leiða rök að svo sjálf-
sögðum hlut.
Okkur finnst nokkuð á það skorta, þegar forsætisráðherra
lætur leiða sig í nokkurskonar spurningaleiki í sjónvarpssal
viku eftir viku til þess að þrasa um dægurmál.
Ríkisstjórnin hefur til þessa staðið sig með prýði og með
störfum sínum vakið vonir manna um meiri festu í þjóðlíf-
inu en þekkst hefur um langt árabil.
Nú reynir á samstöðu ráðherranna og stuðningsmanna
þeirra á viðkvæmum tíma. Ráðherrar mega ekki gefa út
yfirlýsingar sem stangast á, í umræðum um mikilvæg
þjóðmál. Komi brestur í samstöðu þeirra, er hætt við að
ríkisstjórnin missi tökin á þeirri stefnu sem hún hefur fylgt
og borið hefur góðan árangur í baráttunni við verðbólg-
una.
Ríkisstjórnin á að vera samtaka um að fjárlagaramminn
verði ekki sprengdur. Höfuðverkefni samningsaðila vinnu-
markaðarins verður að vera það, að bæta kjör láglauna-
fólksins í landinu, þótt aðrir þurfi að bíða eitthvað eftir
kjarabótum.
Niðurstöður tekjukönnunar kjararannsóknarnefndar sýna
að til eru þjóðfélagshópar, sem raunverulega berjast við
fátækt.
Þarna er um minnihlutahópa að ræða, sem samningsaðilar
hafa takmarkaðan áhuga á og því verða þeir einatt útund-
an, þegar samið er um kaup og kjör.
Þetta er óhæfa. Samningsaðilar verða að vera samtaka um
að bægja fátæktinni frá dyrum sérhvers íslendings.
...... Smáauglýsingar.
BAHÁ'I TRÚIN
Upplýsingar um Bahá'i
trúna eru sendar skriflega,
ef óskað er. Utanáskrift:
Pósthólf 172, ísafirði. Opið
hús að Sundstræti 14, sími
4071 öll fimmtudagskvöld
frá kl. 21:00 til 23:00.
AL ANON FUNDIR
fyrir aðstandendur fólks,
semfengis á við áfengis-
vandamál að stríða, eru kl.
21:00 á mánudagskvöldum
að Aðalstræti 42, Hæsta-
kaupstaðarhúsinu.
Upplýsingar veittar í síma
3411 á sama tíma.
AA FUNDIR
Kl. 21:00 á þriðjudagskvöld-
um, kl. 23:30 á föstudags-
kvöldum og kl. 11:00 á
sunnudögum að Aðalstræti
42, Hæstakaupstaðarhús-
inu. Sfmi 3411.
AA DEILDIN
AA FUNDIR BOLUNGARVfK
kl. 20:30 á fimmtudögum í
Kiwanishúsinu á Grundum.
AA DEILDIN
L
RÚMTILSÖLU
með áföstu náttborði, út-
varpi og klukku. Stærð
1,10x2m. Rúmteppi, dýna
og dýnuhlíf fylgja.
Upplýsingar í síma 4335.
SÝNINGARTJALD
Sá sem fékk sýningartjald
að láni hjá sr. Jakob á síð-
asta ári vinsamlega skili því
aftur.
TIL SÖLU
Remington haglabyssa 5
skota 3 tommu magnum
(pumpa).
Upplýsingar í síma 4101 á
kvöldin.
TILSÖLU
Mazda 323 1981 módel,
skemmdur eftir árekstur.
Bíllinn verður til sýnis á
Bílaverkstæði Nonna Boi-
ungarvík, föstudag 10/2, til-
boðum verði skilað þar
mánudag13/2.
TIL SÖLU
Thomson VHS videótækl lít-
ið notað. Verð kr. 25.000
gegn staðgreiðslu
Upplýsingar í síma 4152.
BfLL TIL SÖLU
Fiat 132, 2000, 107 ha. árg.
1978. Vökvastýri, rafmagns-
rúður, veltistýri, dekkja-
gangur. Lftur mjög vel út.
Verð 130 þús. Skipti á jeppa
á svipuðu verði, eða ódýrari
fólksbíl.
Upplýsingar í síma 3853.
L..?WWI.J
—OTiW-WIW
Orðið er laust
---Lcsendadálkur---------
Sjaldan veldur einn, þá tveir deila
Þingeyri, 23. 12. '83
Þegar ég las greinina hans
Tómasar sparisjóösstjóra í Vest-
firska fréttablaðinu hinn 8. des.
s.l. varð ég bæði hissa og reið.
Hann skrifaði um hvað höfðingi í
ættbálki myndi gera ef hann
þyrfti að semja við nágranna
sína um dagleg samskipti þeirra.
Hvað kom það grein Kristjönu
Vagnsdóttur við? Hún skrifaði
um að risið hafi upp deila á
vinnustað og afleiðingin varð sú
að 10 — 20 manns komu ekki á
vinnustað í 2 daga.Ég var ein af
þessu fólki og veit því hvað olli
þessari deilu. Tómas heldur því
fram að deilan hafi veriö út af
bónusnum. Mig langar að benda
honum á að hlusta minna á
slúður, þá verður honum
kannske ekki eins á í messunni,
eins og í þessari grein sinni.
Kristjana skrifaði um yfirgang
verkstjórans. Það er hverju orði
sannara, og það mega báðir
verkstjórarnir vita og þeirra yfir-
maður líka, því að ekki er hann
barnanna bestur. Og það get ég
staðið við, hvar og hvenær sem
er! Til dæmis er ekki svo lítið
búið að ganga á í þessum des-
embermánuði. Nú, þegar ég
skrifa þessa grein (án aðstoðar)
er þegar búið að traðka gróflega
á okkar samningsrétti og átti
kaupfélagsstjórinn stærsta heið-
urinn af því. Það er ekki langt
síðan gengið var á bak okkur
verkafólkinu í sambandi við bón-
usinn og ég leitaði til Bolla Thor-
oddsen hjá Alþýðusambandi ís-
lands og hann sagðist ætla að
sjá til þess að slíkt myndi ekki
koma fyrir aftur og ég trúi að
hann standi við það. Sá samn-
ingsréttur sem á okkur var brot-
inn og ég minntist á áðan, var sá
að fólki var neitað um fastráðn-
ingu. Ég hafði samband við Pétur
Sigurðsson í A.S.V. og útskýrði
ástandið hér í H.D. og sagði
hanfl að þarna væri verið að
brjóta á verkafólkinu. Og það
samá sögðu þau í A.S.Í. En það
er staðreynd að sumu verkafólki
hér í H.D. er sama þó samningar
okkar séu að engu hafðir, svo
lengi sem það bitnar ekki á þeim
sjálfum. Og þegar fólkið, sem
samningsbrotið bitnar á, leitar
réttar síns, er það kallað frekt og
friðarspillar. Og til að kóróna allt
saman er formaður verkalýðsfé-
lagsins fyllilega sáttur við þetta
allt saman, það er kannske ekki
skrýtið, þvi hann á sæti í stjórn
Kaupfélags Dýrfirðinga á Þing-
eyri. En hvað varðar þá deilu
sem Kristjana skrifaði um, skal
ósagt látið því það fór eins og
það fór. Einnig skrifaði Tómas
um sálarflækjur og hefndarhug,
það er best að láta það liggja milli
hluta, því það geta þeir átt sem
eiga. Ekki ætla ég að hafa þetta
lengra, þó sjálfsagt væri hægt að
telja fleira upp. Þetta eru bara tvö
dæmi sem komu nú nýlega upp.
Og eins og máltækið segir: Sjald-
an veldur einn, þá tveir deila.
Hrönn Magnúsdóttir
Þingeyri.
Létt handleíkið búmerang
Það er margt sem hendir
mann á langri leið, en þó hélt
ég að það ætti ekki eftir að
henda mig að skattyrðast við
afdankaðan skólastjóra, en nú
starfandi bankastjóra. En reyna
má það.
Hann talar um það í sinni
grein að hún sé eða eigi ekki að
vera nein svargrein við minni
grein, en ég veit þá ekki hvað
hann á við eða hvað hann
meinar með þessu pári sínu. Ég
er ekki viss um að ég sé fær um
að handleika það undravopn
sem hann nefnir í grein sinni.
Það vopn kallar hann
bumerang og er því líkast að
hann hafi handleikið það í
draumi, eða bara það að hann
hafi verið frumstæður indíáni í
fyrra lífi, svo fjálglega talar
hann um náttúru þessa undra-
tækis. Ég hef ekki haft sam-
skipti við svo háþróaðan kyn-
stofn sem indíánar eru! Ekki
veit ég af hverju hann er að
pota sér inn í þennan vítahring.
Mér finnst þetta alls ekki hans
mál, mér finnst eins og hann sé
að kasta fyrir horn, þar eð hann
hefur lítt eða ekkert unnið í fiski
eða mér er ekki kunnugt um að
svo sé.
Ég er nú ekki búin að vinna í
þessu kroppi nema um 9 ár og
aldrei hef ég séð hans (blíða)
auglit á þeim slóðum sem við
höslum okkur völl í peningaleit.
Ég hef aldrei séð hann kroppa
orm úr flaki eða þukla hálffreð-
inn þorsk, svo hann getur lítt
dæmt um afstöðu þess sem
það gerir. Varðandi deilu þá
sem um var rætt ætla ég að
leyfa mér að minna hann á að
hann hefði átt að kynna sér þau
mál betur áður en hann freist-
aði þess að láta Ijós sitt skína.
Hans hugdettur eiga alls ekki
heima í máli sem þessu.
Deilumál núna var alls ekki
um beinagarða eða ormahreið-
ur, því síður um ormagarða
sem er algjört nýyrði sem hann
hefur búið til. Heldur stóð deil-
an um það að því var slengt
fram af vissum aðila sem nátt-
úrulega hefur mikil völd á
svona staö, að systir mín ein,
en við erum víst 5 sem vinnum
á þessum staö, ynni ekki fyrir
kaupi sínu og hún og hennar
ætt, væri alls ekki hæf til að
vinna þá vinnu, sem á frysti-
húsamáli kallast tafarvinna. En
hún er þannig launuð, að við
vinnum á tímakaupi plús áunn-
inn bónus þriggja undanfarinna
daga, og er þá fundið meðaltal
þessara þriggja daga, og það
skal vera bónus okkar á með-
an á tafarvinnu stendur. Þetta
vildi svo viðkomandi aðili alls
ekki kannast við að hafa sagt,
og þar eð engin vitni voru eða
þau sem næst stóðu deiluaðil-
um voru harðlæst, sem sjaldan
kemur fyrir í frystihúsum. Var
ekkert hægt að sanna og því fór
sem fór. En fleiri hafa víst feng-
ið vitnisburð um leti en viö syst-
ur, hjá viðkomanda þessa máls.
Ekki er sætt að una við svona
dómsorð.
Nú vendi ég mínu kvæði í
kross. Mitt vit er líklega snökt-
um minna en þitt og því skil ég
ekki af hverju þú ert að skipta
þér af svona málum. Varstu
kannski beðinn um að finna
lausn á þessum vanda? Ef svo
er, hefur þér illa tekist
(bumerang)kastið. Mér finnst
að þá hafi verið farið í geitarhús
að leita ullar, mér finnst að þú
eigir að láta sálarflækju okkar á
vinnumarkaði lönd og leið þar
til þú hefur verið ráðinn til þess
að gera þar bragarbót. Þú get-
ur kannski tekið að þér trúnað-
arstarfiö. Ekki tókst þér svo vel,
aö fyrirbyggja sálarflækjur
barnanna á meðan þú varst
skólastjóri, þar hafðir þú bæði
tögl og hagldir.
Þú líkir þessari deilu okkar
við sviðssetningu á leikriti og
segir í því sambandi, að þar sé
mikil sóun á leikendum, það er
líklega satt hjá þér. Þú sómir
þér bara vel einn á sviði, aleinn
flytjandi grófa brandara eða
bara gerandi grín að náungan-
um. Viti menn, þú færð alltaf
góða undirtekt, það hlæja allir,
einnig ég. Líkt og allir öskruðu
þegar Hitler steig fram á sinn
pall.
Svona getur einn maður haft
áhrif á fjöldann, nei satt segir
þú, það þarf ekki nema einn
góðan, ef hann er með rétt efni,
mætir á réttum stað, á réttum
tíma. Það eru ekki allir menn
svo vel af Guði gerðir, eða þeir
hafa vanrækt að hlúa að þeim
vísi sem átti kannski að verða
stór.
Enginn ormur er velkominn,
því yfirleitt veldur hann skaða
hvar sem hann finnst, nema
ánamaðkurinn sem er álitinn
nauðsynlegur fyrir móður jörð.
Ég býst tæplega við því að
skeljarormur eða sem sumir
kalla skreiðarorm sé eins nauð-
synlegur fyrir sparisjóðinn
okkar. En ég hef nú lítið vit á
málefnum sparisjóðshaldara og
því læsi ég munni mínum í þeim
efnum. Mig langar til að benda
þér á að mér væri ánægja af því
ef þú vildir lúta svo lágt að
vinna nokkra daga meðal okkar
á þessum nafntogaða vinnu-
stað áður en þú hyggst svara
þessu bulli mínu og væri fróð-
legt að vita hvort þú handlékir
þorskinn af sömu mildi og þú
handleikur þitt undravopn
(bumerang).
Ég veit nú ekki hvort lengra á
að halda að sinni og ætla ég því
fara að slá botn í bréfið. Ég
vona að sá maður sem lagði
það á sig að eyða kvöldi frá
sínum búskap til þess að veita
þér lið við fyrri grein þína, leggi
þér lið eftir bestu getu.
Ef ég greini Ijós í Ijóra
lífstrú verður bætt.
En skatt yrði við skólastjóra,
„bankastjóra",
skemmir mína ætt.
KristjanaV.
Einar Valur Kristjánsson, yfirkennari:
Skólamir þurfa meira fjármagn
I tilefni umfjöllunar okkar um
skólamál á Vestfjörðum í síð-
asta blaði, hafði Einar Valur
Kristjánsson, yfirkennari í
Barnaskóla ísafjarðar, sam-
band og vildi benda á aö barna-
skólinn í Hnífsdal væri 8V2 mán-
aða skóli, en ekki 9 mánaða
skóli eins og við héldum fram í
blaðinu.
Einar Valur kvaðst annars
þeirrar skoðunar, að til að bæta
skólana þyrftu þeir fyrst og
fremst á meira fjármagni að
halda. Þá yrði hægt að stór-
bæta tækjakost þeirra og að-
stöðu, og þá væri meiri von til
þess að kennarar ílentust við
skólana.