Vestfirska fréttablaðið - 09.02.1984, Qupperneq 7
véstlriki I
rRCTTABlAÐID
Slökkvilið Isafjarðar:
Útköllum fækkaði verulega á síðasta ári
Slökkvilið (safjarðar var kall-
að út í 21 skipti vegna elds á
árinu 1983. Þar af 11 sinnum í
hús, 2 sinnum í skip og 8
sinnum utanhúss. Til saman-
burðar má geta þess að árið
1982 urðu útköllin 36, þannig
að um verulega fækkun er að
ræða.
6 sinnum varð um brunatjón
að ræða og rannsóknarlög-
reglan kvödd á staðinn. Elds-
upptök voru í þeim tilfellum
þrisvar af völdum rafmagns og
þrisvar var um íkveikju að
ræða.
Sjúkraflutningsútköll voru 271.
þar af 32 í önnur sveitarfélög.
Aðstoð með stigabíl var veitt í 22
skipti og aðstoð við dælingu í 13
skipti.
Þá voru skoðuð og hlaðin sam-
tals 290 handslökkvitæki, hlaðnir
loftkútar og fleira. Þjónustureikn-
ingar vegna þessa. að upphæð
170.846, voru sendir til inn-
heimtu, en þetta eru einu tekjur
slökkviliðsins.
Verulegt átak var gert í við-
byggingu slökkvistöðvar á síðasta
ári. Stöðin var pokapússuð og
máluð að utan. gengið var frá
forstofu og sett í ný útihurð, sal-
erni var fullklárað, innréttuð var
fundaraðstaða fyrir slökkviliðs-
menn, skrifstofa fyrir slökkviliðs-
stjóra og smíðaður stigi milli
hæða. Þá var varðstofa fullkláruð
og slökkvistöðin máluð að innan í
hólf og gólf.
Við spurðum Guðmund Helga-
son, slökkviliðsstjóra, hverja hann
teldi vera ástæðuna fyrir þeirri
fækkun útkalla sem varð í fyrra.
Guðmundur sagði að út-
breiðsla fjarvarmaveitunnar, þ.e.
fækkun olíukyndinga vægi þungt.
en einnig hefði áróður slökkvi-
liðsmanna, einkum í söluherferð
með eldvarnartæki, haft sitt að
segja.
„Við erum með nógu góð
vatnsöflunartæki, en þau eru
gömul og dýr í viðhaldi," sagði
Guðmundur þegar við spurðum
hann hvort slökkviliðið væri nógu
vel tækjum búið. „Það eru engin
stórmál á okkar óskalista, en
framundan er að kaupa fleiri við-
urkennda hlífðargalla fyrir
slökkviliðsmenn. Þá þyrfti einnig
að endurnýja og bæta við bruna-
slöngum."
A slökkvistöðinni starfa þrír
menn við eftirlit og viðhald og
akstur sjúkrabíls. Slökkviliðsstjóri
sér síðan um eldvarnareftirlit, en
Guðmundur sagðist ekki komast
yfir að gera það sem gera þyrfti í
þeim efnum.
Guðmundur vildi benda eig-
endum slökkvitækja á að skoðun-
arþjónusta er á slökkvistöðinni.
Hann sagði að sjálfsagt væri að
koma með slík tæki til skoðunar
einu sinni á ári, sérstaklega ef
innsigli hefðu verið rofin.
Hiti og þungi slökkvistarfsins
sjálfs hvílir á um 40 áhuga-
slökkviliðsmönnum. í fyrra voru
vinnustundir þeirra 1604 á móti
1757 árið áður. Æfingar eru
haldnar einu sinni í mánuði.
Þess má í lokin geta, ef það
skyldi hafa farið framhjá ein-
hverjum, að Slökkvilið ísafjarðar
varð 100 ára á síðasta ári. f tilefni
afmælisins bárustþví margar góð-
ar gjafir, þ.á.m. fullkominn stiga-
bíll sem slökkviliðsmenn söfnuðu
fyrir.
Guðmundur Helgason,
slökkviliðsstjóri, bað fyrir þakkir
til bæjarbúa fyrir góða samvinnu
á síðastliðnu ári.
FASTEIGNA- j
VIÐSKIPTI i
ÍSAFJÖRÐUR:
Fjarðarstræti 51, (Grund), |
3 herb. íbúð á efri hæð.
Aðalstræti 8, nyrðri endi, j
3 herb. íbúð í tvíbýlishúsi. |
Hlíðarvegur 27, 55 ferm. 2 J
herb. íbúð á neðri hæð í J
tvíbýlishúsi.
Túngata 3, 2 herb. 55 ferm. ■
íbúð á n.h. í fjórbýlishúsi.
Seljalandsvegur 44, 3 |
herb. íbúð á neðri hæð í I
tvíbýlishúsi. Laus eftir sam- ■
komulagi.
Hlíðarvegur 16, suðurendi I
3 herb. íbúð á efri hæð í I
þríbýlishúsi.
Silfurgata 11, 100 ferm. 4 j
herb. íbúð á 3. hæð í fjór- j
býlishúsi. Góð kjör.
Túngata 17, 4 herb. íbúð á j
neðri hæð í tvíbýlishúsi j
ásamt kjallara.
Hlíðarvegur 45, 100 ferm. j
4 herb. íbúð á 2. hæð í fjór- j
býlishúsi ásamt bílgeymslu ■
og lóð.
Skólagata 8, 80 ferm. 3 I
herb. íbúð á einni hæð í j
þríbýlishúsi ásamt 30 ferm.
kjallara.
Hafraholt 18, 146 ferm. 5 I
herb. raðhús ásamt bíl- J
geymslu og lóð.
Mjallargata 6, 4 herb. 100 I
ferm. íbúð á efri hæð, ■
suðurenda.
Seljalandsvegur 85, 80 j
ferm. 4 herb. eldra einbýlis- |
hús úr timbri. Góð kjör.
Pétur Sigurðsson, formaður Baldurs:
Hvar er öll samkeppnin?
„Þessi könnun er gerð á
vegum verkalýðsfélagsins
Baldurs og er bara ein af mörg-
um sem framkvæmdar hafa
verið síðan í febrúar 1981.
Þarna er verið að skoða hækk-
un á vöruverði milli ára miðað
við launahækkanir," sagði Pét-
ur Sigurðsson hjá Baldri, þeg-
ar hann afhenti okkur verð-
könnun þeirra.
Pétur sagði það ekki fjarri
lagi að meðaltalsverðhækkun
vöru væri helmingi meiri en
iaunahækkanirnar á tímabilinu
frá því síðasta könnun var
gerð. Laun hækkuðu um 26% á
tímabilinu feb.— nóvember að
sögn Péturs.
„Út frá svona könnunum er
hægt að skoða ýmislegt fleira. I
febrúar ‘82 var bent á það að
verðið væri óeðlilega líkt á flest-
öllum vörum og þessi könnun,
sem gerð var í nóvember, sannaði
það. Þá velti menn því fyrir sér,
hvar sé öll samkeppnin? Þetta er
óeðlilega lítil samkeppni og virð-
ist vera samráð fremur en sam-
keppni."
Þetta var Pétur Sigurðsson.
Könnunin tók til fjögurra versl-
ana: Kaupfélags ísfirðinga og
Björnsbúðar á ísafirði, og Einars-
búðar og Bjarnabúðar í Bolungar-
vík. Þegar teknar voru vörur sem
til voru í.öllum verslununum og
verð þeirra lagt saman kom eftir-
farandi í ljós:
K.I. 2.315,15
Björnsbúð 2.313,15
Einar Guðfinnsson 2.297,15
Bjarnabúð 2.298,30
Hér er vart hægt að tala um
mun á vöruverði.
Fjöldi vöruflokka sem ekki
voru til voru fæstir í K.Í., 15,
síðan kom E.G. með 17, Bjarna-
búð 22 og Björnsbúð 25. Vöruval-
ið var því mest í K.Í., en minnst í
Björnsbúð.
Þá er bara að bíða eftir niður-
stöðum verðkönnunarinnar sem
framkvæmd var í vikunni.
H*
Alls staðar sama verð?
Gunnar Bjarni Ólafsson íþróttakennari stendur fyrir nýju
marki.
Bolungarvík:
Glæsilegt íþróttahús
tekíð í notkun
Nýja íþróttahúsið í Bolungar-
vík hefur nú verið tekið í notk-
un, þó ekki hafi það verið form-
lega vígt ennþá. Húsið er 27 x
23 m að stærð og allt hið snotr-
asta á að líta. Víst er að það
verður íþróttalífi f Bolungarvík
mikil lyftistöng, og hætt við að
margir Vestfirðingar komi til
með að líta öfundaraugum til
þeirra Bolvíkinga á næstunni.
Að sögn Gunnars Bjarna Ól-
afssonar, íþróttakennara, rúmar
húsið einn blakvöll, þrjá bad-
mintonvelli, körfuboltavöll í lög-
legri stærð og 15 x 26 m hand-
boltavöll. Hann sagði að húsið
yrði alveg fullnýtt á virkum dög-
um, en um helgar væri gert ráð
fyrir kappleikjum. Þess má geta
að Körfuknattleiksfélag ísafjarð-
ar mun leika sína heimaleiki í
Bolungarvík auk þess sem það
kemur til með að æfa þar.
Gunnar Bjarni sagðist vera
mjög ánægður með íþróttaaðstöð-
una í Bolungarvík, enda er þar ný
sundlaug og nýtt íþróttahús. Má
segja að þeir Bolvíkingar séu nú
með tromp á hendi.
Tölvís kom til okkar á blaðið
og hafði verið að velta fyrir sér
skyldusparnaðarmálum. Hann
setti sér að árið 1978 hefðu
verið teknar af honum 8.000 kr.
í skyldusparnað. Þá kostaði 1
cl. af svartadauða (sem fylgir
framfærsluvístölu) 68 kr.,
þannig að hann fékk 117.65 cl.
af þessum merka vökva fyrir 8
þúsund kallinn sinn.
Nú, 1984, kostar l cl. af svarta-
Túngata 3, 65 ferm. 2 herb. [
íbúð á 2. hæð. Uppgerð að |
öllu leyti.
I
BOLUNGARVÍK: I
Holtabrún 7, 2x131 ferm. I
nýbyggt steinhús. Hagstæð J
greiðslukjör.
Holtabrun 2, 2x83 ferm. 5 ■
herb. einbýlishús.
Höfðastígur 12, 137 ferm. |
5 herb. steinsteypt, fullfrá- ■
gengið einbýlishús.
Móholt 4, 108 ferm. 4 herb. j
nýbyggt raðhús á einni j
hæð.
Völusteinsstræti 13, 105 J
ferm. 5 herb. einbýlishús.
Vitastígur 8, 180 ferm. 6 I
herb. vikurhlaðið, plastklætt J
og einangrað einbýlishús. J
Hugsanleg skipti á Stór- j
Reykjavíkursvæði.
I
I
I
Tryggvi j
Guðimindsson i
hdl. !
Hrannargötu 2,
ísafirði sími 3940
dauða 5.07 kr. , þannig að fyrir 80
kr. (= 8.000 gkr.) fær hann 15.78
cl. Fyrir verðbæturnar, 446 kr„
fær hann 87,97 cl. samtals 103,75
cl. Mismunurinn milli '78 og '84
er því 13,90 cl eða 11.81% rýrnun.
„Það hafa náttúrulega verið
margir fjármálaráðherrar á þess-
um tíma,“ sagði tölvís, „en ein-
hver þeirra hefur fengið sér sopa
af flöskunni minni.“
Reikni nú hver fyrir sig.
Einhver hefur fengið sér
sopa af flöskunni minni