Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1984, Blaðsíða 1
14. tbl. 10. árg.
vestfirska
5. apríl 1984
FHCTTABLADIS
Tókum upp fullt af
nýjum vörum í dag
FLUGLEIÐIR
ÍSAFJARÐARFLUGVELLI
SÍMI 3000 OG 3400
FLUGLEIDIR
Verslunin
ísafirði sími 3103
ÁTVR bygg-
ir kálfinn
Áfengis og tóbaksverslun
ríkisins hefur ákveðiö að
byggja sinn hluta stjórnsýslu-
hússins á ísafirði í sumar. Að
sögn Jónatans Arnórssonar,
útibússtjóra, er stefnt að því að
hægt verði að flytja í nýja hús-
næðið fyrir næstu áramót. Út-
salan er nú í leiguhúsnæði
Brunabótafélagsins og átti að
losa það í maí en leigutíminn
hefur nú verið framlengdur til
áramóta.
Kálfurinn, en svo er þessi
hluti Stjórnsýsluhússins kall-
aður í daglegu tali, verður
einnar hæðar, 237 ferm. að
flatarmáli, og kemur neðantil
við húsið. Um alla hönnun sjá
Guðfinna og Afbína Thordar-
son.
Hótelsíjóraskíptí á Hótel ísafirði
— Ferðaskrifstofa ríkisins tekur alfarió við rekstrinum
Hótelstjóraskipti fóru fram á
Hótel ísafirði 1. apríl s.l. Jón
Grétar Kjartansson og Guð-
mundur Kristinsson létu af
störfum eftir fjögurra mánaða
starf við góðan orðstír og við
tók Guðrún Janusdóttir. Hún
þvertók ekki fyrir að eiga kyn til
Vestfirðinga að sækja.
Samtímis hótelstjóraskiptunum
varð sú breyting á að Ferðaskrif-
stofa ríkisins tók algjörlega við
rekstri hótelsins en áður hafði
einungis verið um aðstoð að ræða
að sögn Ingólfs Péturssonar hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins. Samið
hefur verið um að Ferðaskrifstofa
ríkisins sjái um reksturinn til ára-
móta. Ekki vildi Ingólfur segja
neitt um hvort haldið yrði því
rekstrarfyrirkomulagi sem verið
hefur, sagði það einkamál Ferða-
skrifstofunnar. Það er hins vegar
alveg ljóst að hótelið verður rekið
áfram með sama sniði og verið
hefur og hljóta Vestfirðingar að
fagna því. Reksturinn mun hafa
gengið allvel síðustu mánuði.
Og eins og fram hefur komið í
blöðum hefur nefndin sem unnið
hefur að lausn á fjárhagsvanda
hótelsins á vegum samgönguráðu-
neytisins komist að þeirri niður-
stöðu að heppilegasta lausn vand-
ans væri að skuldheimtumenn af-
skrifuðu allt að fimmtíu prósent
af kröfum sínum.
í '' 3'
f *
Guðrún Janusdóttir í móttökunni
fl'Tí t lll
Fengur í Bolungarvíkurhöfn. Jóhannes Guðmundsson verkefnisstjóri á innfelldu myndinni
Fengur í Bolungarvík:
Fer áleiðis til Grænhöfðaeyja
um miðjan aprfl
Fengur, hið nýja skip Þróun-
arsamvinnustofnunar islands,
hefur verið á tilraunaveiðum
undanfarið. Það kom til Bol-
ungarvíkur s.l. fimmtudag úr
fyrstu veiðiferðinni og landaði
þar um 15 tonnum af rækju.
Reyndist skipið í alla staði vel.
Þetta er 157 tonna skip, smíð-
að á Akureyri og útbúið til tog-
veiða, nótaveiða og á Ifnu og
net, þannig að hægt er að
stunda ýmiskonar veiðiskap á
því.
Að sögn Jóhannesar Guð-
mundssonar, verkefnisstjöra, mun
skipið halda áleiðis til Græn-
höfðaeyja um miðjan apríl og
tekur siglingin þangað um 20
daga, en eyjarnar eru milli 14 og
18 gráðu norður breiddar. Jó-
hannes sagði að sitt hlutverk yrði
að stjórna verkefninu og vera
tengiliður milli innfæddra og ís-
lendinga. Hann sagði að íslend-
ingar væru hátt skrifaðir hvað
varðaði þróunaraðstoð í sam-
bandi við fiskveiðar, þeir væru
yfirleitt svo fjölhæfir.
„Fyrsta mánuðinn verðum við
á togveiðum en síðan hefjast tún-
fiskveiðarnar sem standa frammí
desember og síðan förum við
aftur á togveiðar,” sagði Jóhannes
þegar við spurðum hverskonar
veiðar þeir kæmu til með að
stunda þarna suðurfrá.
— Hvernig verður kennslunni
háttað?
„Við erum með mikið kennslu-
efni á vídeó, en í okkar hlut mun
þó aðallega koma verkleg
kennsla. Þarna er líka verið að
stofnsetja stýrimannaskóla og er
hugsanlegt að við tökum einhvern
þátt í því."
Jóhannes hefurstarfað við þró-
unaraðstoð frá 1972 og verið m.a.
í Jemen og Burma. Hann sagðist
hafa komið til yfir 30 landa á
þessum ferðum sínum um heim-
inn.
Skipstjóri fyrstu sex mánuðina
verður Halldór Lárusson, en stýri-
maður Guðmundur Kristjánsson
úr Bolungarvík. Vélstjórinn er
innfæddur, lærður í Reykjavík.
Skipasmíðastöðin:
Hafa hannað eigin toghlera
og veríð beðnir um að heija
framleiðslu á norskum hlerum
Skipasmfðastöð Marsellíus-
ar á Isafirði hefur hannað og
smíðað nýja gerð af toghlerum.
Hafa þeir undanfarið verið
reyndir á Sigrúnu frá Súðavfk
og m.a. verið myndaðir með
neðansjávarmyndavél Neta-
gerðarinnar. Hafa þeir reynst
vel og er skipstjórinn mjög á-
nægður með hlerana og segir
þá ekki gefa norsku toghlerun-
um eftir.
Þá ber það við að fyrirtækið
sem framleiðir þessa norsku hlera
hefur óskað eftir því við Skipa-
smíðastöðina að hún taki að sér
að framleiða toghlera fyrir ís-
lenskan markað. Að Sögn Sævars
Birgissonar, framkvæmdastjóra
Skipasmíðastöðvarinnar, getur
vel komið til greina að þeir taki
boði norska fyrirtækisins enda er
mikil reynsla komin á hlera þess.
Hann sagði þetta hins vegar
geta orðið svo stórt verkefni að
æskilegt væri að fá samstarf vél-
smiðja á Isafirði um það.
Flugleiðir auka þjónustuna:
Framhaldsflug
á suðurfirðina
Frá og með 8. apríl n.k.
munu Flugleiðir hefja fram-
haldsflug innan Vestfjarða f
tengslum við áætlunarflug til
ísafjarðar. Þeir staðir sem hér
um ræðir eru Suðureyri, Holt,
Ingjaldssandur, Þingeyri,
Bíldudalur og Patreksfjörður.
Fyrst um sinn verður flogið
mánudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga í tengslum við morg-
unflug til ísafjarðar kl. 9.15.
Brottför í framhaldsflug verður
síðan kl. 10.00 og mun Flugfélag-
ið Ernir annast flugið. Hér er
bæði farþega- og fraktflutningum
til að dreifa.
Fargjald er þannig reiknað að
25% afsláttur er veittur af hvorum
iegg og sagði Arnór Jónatansson,
umdæmisstjóri Flugleiða. það
þýða hér um bil sama og ef
flogið væri beint. Ennfremur
gefst framhaldsfarþegum kostur á
öllum afsláttarmöguleikum sem
Flugleiðir bjóða uppá. Bókanir
munu fara í gegnurn Alex-
bókunarkerfið.
Arnór sagði að ef þessi ný-
breytni fengi góðar undirtektir
yrði ferðatíðni aukin.