Vestfirska fréttablaðið - 12.04.1984, Side 1
15. tbl. 10. árg.
vestfirska
12. apríl 1984
FIIETTABLADIS
I vefnaðarvörudeildinni:
ALDREI FYRR
MEIRA ÚRVAL
AFVEFNAÐARVÖRU OG
OG SMÁVÖRUM TIL SAUMA
SinarQuðfjinmzon k £
£<W 7200 - tflS So lun^a'iOík
r1
1
1
Kynmngarmynd um Ísaíjörð tekin í vor
1
■ — fer víða um lönd
I undirbúningi er gerð kynn-
ingarmyndar um ísafjörð. Hér
er um 20—30 mínútna langt
myndband að ræða og hefur
bæjarsjóður ásamt allmörgum
fyrirtækjum í bænum gerst að-
ili að myndinni. Heimildasöfn-
un er að fara í gang en kvik-
myndunin fer aðallega fram á
tímabilinu frá miðjum maí fram
í miðjan júní.
Það er fyrirtækið Myndbær
h.f. sem annast gerð myndar-
innar en fær til liðs við sig
fyrirtækin ísmynd, sem sér um
myndatökuna og Kynningar-
þjónustuna, sem gerir endan-
I
I
I
I
I
I
I
h
Framkvæmdir
við Óshlíð
boðnar út
Ákveðið hefur verið að bjóða
út framkvæmdir við Óshlíð í
sumar og verður það auglýst á
næstunni. Ekki er á þessu stigi
Ijóst hvenær í sumar verkið
verður unnið eða hve langan
tíma það kemur til með að
taka.
Þær framkvæmdir sem hér eru
til tals felast í áframhaldandi end-
urbótum á veginum. Teknir verða
tveir kaflar, annar yst á Óshlíð,
hinn um Hvanngjár. Samtals eru
þeir um 1,5 km. Framkvæmdir
munu hafa einhverjar lokanir á
veginum í för með sér og verða þá
teknar upp bátsferðir á milli.
Útboð er nýmæli í vegagerð á
Vestfjörðum. f fyrra var boðið út
lítið verk á Laxárdalsheiði, en
Óshlíðarframkvæmdin mun
verða stærsta útboð í vegagerð á
Vestfjörðum til þessa. f samtali
við Vf sagði Gísli Eiríksson, um-
dæmisverkfræðingur Vegagerðar-
innar, að útboð hefðu verið að
aukast hjá Vegagerðinni á undan-
förnum árum og værum við Vest-
firðingar dálítið á eftir í þeim
efnum. Á fjárlögum eru 12,6 mill-
jónir króna ætlaðar til fram-
kvæmda við Óshlíð á þessu ári.
Bflddælingar taka
Snoira Sturluson
á leigu
Rækjuver á Bíldudal hefur
tekið hinn 1000 tonna togara
BÚR, Snorra Sturluson, á leigu
til 5 mánaða með eins árs for-
leigurétti. Togarinn mun fara á
úthafsrækju og hefja veiðar um
helgina. Áætlað er að hann
landi á Bíldudal í fyrsta skipti
23. apríl næstkomandi.
Átta rækjubátar stunda nú
veiðar á Arnarfirði og hafa leyfi
til 1. maí. Eyjólfur Þorkelsson,
framkvæmdastjóri Rækjuvers,
sagði framlengingu til 15. maí
liggja í loftinu og þó næðist
ekki leyfður kvóti, sem er 500
tonn.
legan texta. Gert er ráð fyrir að
Bryndís Schram stjórni mynda-
tökunni og lesi textann að
nokkru á móti Magnúsi Bjarn-
freðssyni.
Að sögn Hauðar Helgu Stef-
ánsdóttur hjá Myndbæ hf.
verður myndin byggð upp á
sjálfstæðum einingum um
hvern aðila fyrir sig. Með í
kaupunum fylgir dreifing
myndarinnar á nokkra tiltekna
staði, m.a. á sjávarútvegs- og
heimilissýningarnar í haust, á
Keflavíkurflugvöll, á Hótel Esju
og Sögu. Síðan mun myndinni
verða dreift af Myndbanka sjó-
manna, sem Myndbær sér um,
og einnig er hún ætluð til sýn-
inga hjá Námsgagnastofnun.
Þá væri hægt að nota myndina
þegar gesti bæri að garði eða
taka hana með f vinabæjar-
heimsóknir, sagði Hauður.
Unnt er að fá myndina með
erlendu tali. Fyrirtæki sagði
Hauður að gætu notað mynd-
ina sem gangandi sölumenn.
Sem dæmi um aðila sem
verða með 1 myndinni má nefna
báða bankana, rækjuverk-
smiðjur, Skipasmíðastöðina,
Ferðaskrifstofu Vestfjarða,
Flugfélagið Ernir, verslanirnar í
Ljóninu og síðan munu kaup-
menn á eyrinni ætla að vera
saman um einn hluta myndar-
innar.
Hauður Helga sagðist von-
ast til að bæjarbúar yrðu
ánægðir með þessa mynd, það
yrði reynt að gera hana eins
góða og mögulegt væri.
Rétt áður en blaðið fór í
prentun bárust þær fréttir að
vegna góðra undirtekta fsfirð-
inga og þess hve þátttaka
þeirra er mikil hafi Myndbær
h.f. ákveðið að setja enskan
texta með myndinni. Hefur
þegar verið samið við Flugleið-
ir og utanríkisráðuneytið um
dreifingu hennar erlendis.
Þessi mynd verður fyrsta mynd
um byggðarlag á fslandi sem
gerð er með ensku tali og dreift
víða um lönd. Er hugmyndin að
hún verði jafnframt kynning á
dæmigerðum kaupstað á fs-
landi.
Að fortíðÆKal hyggja, só'
barnaskemmtun á sunm
fyá landnámi til nútíman
hver um sigJMK ákveðfh
in%gg í Uj
, f «.
úr Barnaskólá Isafjarðar á# - ý * ^
fóru á kostum gegnum sögym
omu márgar merkar persónur fram^
a þjóðfélagshófes. Gott
Golf:
Bæjarstjóm
samþykkir að
stefna að því
að golfvöllur
verðir staðsett-
ur í Tungudal
Á fundi í bæjarstjórn ísa-
fjarðar s.l. fimmtudag var sam-
þykkt sameiginleg tillaga frá
meiri- og minnihluta þess efnis
að stefnt verði að því að Golf-
klúbbi ísafjarðar verði úthlutað
landi í Tungudal undir golfvöll,
„enda verði nýting svæðisins í
samræmi við þær hugmyndir
sem þegar eru fram komnar,"
eins og segir í samþykktinni.
Vegna þessa samþykkti bæjar-
stjórn að skipa þrjá menn í starfs-
hóp er kanni og geri tillögur um
framkvæmd þessa máls. Bæjar-
stjórn tilnefnir tvo menn í nefnd-
ina en forstöðumaður tæknideild-
ar verður þriðji nefndarmaður.
Á fundi bæjarráðs 2. apríl voru
lagðar fram nýjar tillögur Golf-
klúbbs Isafjarðar að 9 hola golf-
velli í Tungudal, unnar af Krist-
jáni Kristjánssyni FTFÍ. Erstarfs-
hópnum áðurnefnda ætlað að
vinna starf sitt með hliðsjón af
framlögðum till. ,,Verði niður-
staða jákvæð," segir í samþykkt
bæjarstjórnar, „geri starfshópur-
inn tillögu til bæjarráðs um út-
hlutan lands og fyrirkomulag
vallarstæðis ásamt drögum að
samningi milli bæjarstjórnar og
Golfklúbbs ísafjarðar um fram-
vindu málsins, þar sem fram
komi réttindi og skyldur Golf-
klúbbs ísafjarðar varðandi starf-
semina á svæðinu."
r1
i
i
i
i
i
■
Sjúkraflutningamir aftur orðnir vandamál
„Sjúkraflutningarnir eru að
verða heilmikið vandamál,"
sagði Anna Helgadóttir á bæj-
arstjórnarfundi á Hótel ísafirði
s.l. fimmtudagskvöld. Þessi
ummæli koma í kjölfar bréfs frá
Pétri Kr. Hafstein, bæjarfógeta,
þar sem hann tilkynnir að við
ríkjandi aðstæður telji hann
ekki rétt að ræða frekar um
þátttöku lögreglunnar á ísafirði
í sjúkraflutningum í kaup-
staðnum. Væri því viðræðum
bæjarfógeta og bæjarstjóra um
þetta mál lokið af hálfu bæjar-
fógeta.
Slökkviliðið á ísafirði hefur
sem kunnugt er sinnt sjúkraflutn-
ingum síðan snemma á síðasta ári
að lögreglan hætti þátttöku í
þeim. í júlí s.l. skrifaði bæjarfó-
getinn bæjarstjórn hins vegar bréf
þar sem hann bauð fram tiltekna
aðstoö ef það hefði ekki auka-
kostnað i för nteð sér fyrir ríkið.
Þetta var nokkru eftir að tekin var
slitnar uppúr viðræðum sýslumanns og bœjarstjóra
á lögreglu- auk þess hafa verið stefnu ríkis-
valdsins að losa sig undan þessum
sjúkraflutningum og hefði sú þró-
un orðið víðast hvar á landinu
„Ég tel að sjúkraflutningar eigi
að vera í höndurn lögreglunnar
eins og þeir voru." sagði Haraldur
L. Haraldsson, bæjarstjóri, í sam-
tali við blaðið. „Lögreglan er með
að minnsta kosti tvo menn á vakt
allan sólarhringinn og ég tel að
við séum hér að halda uppi tvö-
földu almannavarnakerfi í bæn-
um. Þarna finnst mér peningum
mjög illa varið og ef menn eru
tilbúnir að eyða þessum pening-
unt þá væri þeim miklu betur
varið á annan hátt."
Sjúkraflutningar kostuðu bæj-
arsjóð fsafjarðar um 1.2 milljónir
í fyrra. Þar af kostuðu bakvaktir
upp sólarhringsvakt
stöðinni.
í samtali við Vf sagði Pétur
Hafstein að upp hefði komið
nokkur andstaða nteðal lögreglu-
manna gegn þessu. Hluti þeirra
vildi taka flutningana að sér án
beinnar aðildar embættisins og
láta greiðslur renna í sjóð Lög-
reglufélags Vestfjarða. Um það
náðist þó ekki samstaða meðal
lögreglumanna, þeir töldu þetta
ekki löggæsluverkefni og fundu
sig að auki vanbúna til að sinna
þessu ef alvarleg tilfelli kæmu
upp.
„Vegna þess ágreinings sem
þátttaka lögreglunnar í sjúkra-
flutningum olli hér áður. hef ég
ekki talið rétt að hún tæki þessa
flutninga að sér aftur nema um
það væri algjör samstaða meðal
lögreglumanna, þannig að þessi
þáttur starfsins yrði ekki til að
spilia nauðsynlegri einingu og
samheldni í lögreglunni," sagði
Pétur Hafstein. Hann kvað það
um 440 þúsund og sumarafleys-
ingmaður 120 þúsund. Slökkvilið-
ið á ísafirði hefur, eftir aðstæð-
um, annast sjúkraflutninga fyrir
Suðureyri. Flateyri, Súðavík,
hreppana í Djúpinu, jafnvel Þing-
eyri. Þessi sveitarfélög hafa þá
borgað útkallið en ekki tekið þátt
í neinum öðrum kostnaði. Nú
hefur bæjarstjóri sent sveitar-
stjórnarmönnum bréf þess efnis
að bæjarsjóður treysti sér ekki til
að annast sjúkraflutningana í ó-
breyttri mynd án þess að sveitar-
félögin i kring taki þátt i kostnaði
að einhverju leyti.
„Að mínu mati þarf Slökkvilið
Isafjarðar eingöngu á einum
manni að halda. þ.e.a.s. slökkvi-
liðsstjóra, sagði Haraldur. „Síðan
höfum við þurft að ráða tvo menn
í viðbót, nær eingöngu til að
annast sjúkraflutningana, þannig
að við þurfum að bera kostnað af
tveimur mönnum, bakvöktum
þeirra og sumarafleysinga-
manni," sagði Haraldur og vildi
að sveitarfélögin tækju þátt í
þessum kostnaði.
Þess má geta að í Bolungarvík
annast lögreglan sjúkraflutninga.