Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Qupperneq 1

Vestfirska fréttablaðið - 26.04.1984, Qupperneq 1
17. tbl. 10. árg. vestfirska 26. apríl 1984 FRETTABLASIÐ FLUGLEIÐIR ÍSAFJARÐARFL UG VELLI SÍM, 3000 OG 3400 FLUG/_£/Ð//? LITLU ÓDÝRU HLJÓMTÆKJA- SAMSTÆÐURNAR ÚTVARP PLÖTUSPILARI SEGULBAND MAGNARI HÁTALARAR VERÐ FRÁ KR. 10.580 Verslunin Gpíiá ísafiröi sími 3103 Þeim sem ekki lentu í flensunni ber saman um að þetta hafi verið góðir páskar. Lögreglumaður á ísafirði kall- aði þá fyrirmyndarpáska. Veðrið var líka til fyrirmyndar og skíðafærið, enda flykktist fólk á Dalinn, ungir sem aldnir, og við höfum haft spurnir af skíðamennsku víða á Vest- fjörðum um hátíðarnar. Karlakórar leggja land undir fót Á sfðasta ári tóku Karlakór- inn Ægir í Bolungarvík og Karlakór fsafjarðar uppá því að syngja saman. Þeir hyggjast halda því skemmtilega sam- starfi áfram og efna til tónleika f Félagsheimilinu í Bolungarvík á þriðjudaginn 1. maí. Daginn eftir munu þeir svo þenja radd- böndin fyrir ísfirðinga í Alþýðu- húsinu. Ekki nóg með það, 4. maí verður lagt upp í söngför um norðurland. Verður sungið í Miðgarði, ídölum og á Akur- eyri. Efnisskráin er mjög fjöl- breytt enda prýða hana yfir tutt- ugu lög eftir innlenda og er- lenda höfunda. Stjórnandi kórsins er Kjartan Sigurjóns- son og undirleikari Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir. Ein- söngvarar verða Bergljót Sveinsdóttir, Björgvin Þórðar- son og Steinþór Þráinsson. Góða skemmtun. Pálmi, Bergþóra Og Tryggvi á Patreksfirði — drœm aðsókn Á laugardaginn héldu Pálmi Gunnarsson, Tryggvi Hubner og Bergþóra Árnadóttir tvo tón- leika í bíóhúsinu Skjaldborg á Patreksfirði. Þar kynnti Berg- þóra lög af plötum sínum, en einnig léku þau eldri lög og nokkur Mannakornslög. Að- sókn að tónleikunum var léleg, einungis hundrað manns mættu til að hlýða á hið lands- þekkta fólk. Það voru tveir ungir menn á Patreksfirði sem stóðu fyrir tón- leikunum. þeir Kristófer Kristó- fersson og Davíð Hallgrímsson. Að sögn Kristófers voru tónleik- arnir mjög vel heppnaðir og taldi tónlistarfólkið bíóhúsið eitt besta tónleikahús á landinu. þar væri topphljómburður. Húsið er ný- innréttað. Kristófer sagði þeim hafa geng- ið það eitt til með þessum tón- leikahaldi að bjóða Patreksfirð- ingum uppá einhvern menningar- viðburð um páskana. Hefðu þeir búist við yfir 200 manns og væri þeim hin dræma aðsókn mikil vonbrigði. Nokkurt tap varð á tónleikhaldinu og bjóst Kristófer ekki við að þeir gerðu fleiri slíkar tilraunir í bráð fyrst svo fór. - '■ ■’’*' " V -. „ - ■* ' " 'jZy■Jjr?.m ,!í ‘f msi ■ '-ZT1 '&SF . £35 * "* ■■ é i. ts M >#■ jp*?;. .í -; ^ '1 ■-«***" ***** & * ■*■ * -i... * .».**»»- ' *** * ' m m * Hótelmálið: Ferðamálasjóður andvígur til- j lögum bjargráðanefndarínnar | — Framtíð Hótels ísafjarðar hf. veltur á afstöðu Ferðamálaráðs Framtíð Hótels isafjarðar hf. er enn á huldu, þó sam- gönguráðherra hafi lagt blessun sína yfir þá tillögu bjargráðanefndar hótelsins að lánadrottnar verði beðnir að afskrifa 50% af kröfum sín- um. Ferðamálaráð, sem er yfir Ferðamálasjóði, er á mikinn meirihluta krafna á hendur hótelinu, hefur ekki enn tekið afstöðu til tillagna nefndar- innar. Stjórn Ferðamálasjóðs hefur hins vegar lýst sig andvíga þessari leið og ku m.a. óttast það fordæmi sem slfkt mundi sýna. Hér er um háa upphæð að ræða því hótelið skuldar sjóðnum um 26 milljónir. Heildarskuldir þess néma um 36 milljónum, þannig að Ijóst er að Ferðamálasjóður á þarna langmestra hagsmuna að gæta. Það er því Ijóst að framtíð H.I. sem hlutafélags veltur á á- kvörðun Ferðamálaráðs. Bæjar- stjórinn hefur þegar sent al- mennum lánadrottnum hótels- ins erindi þar sem þess er farið á leit að þeir afskrifi 50% krafna sinna. með þeim fyrirvara að allir lánadrottnar gangist inná það. Stjórn hótelsins taldi ekki rétt að hefja slíkar samningavið- ræður fyrr en afstaða Ferða- málaráðs lægi fyrir. Samkvæmt þeim heimildum Hótel (safjörður sem Vf hefur aflað sér fer Ferðamálaráð í flestum tilvik- um eftir samþykktum Ferða- málasjóðs. Hins vegar beri að hafa í huga að Isafjarðarmálið hefur nokkra sérstöðu og því e.t.v. ekki hægt að beita sama líkindareikningi við það og önn- ur mál. Auk þess gæti pólitikin komið til skjalanna. En hver sem niðurstaðan verður munu menn vera einhuga um að tryggja áframhaldandi hótel- rekstur í þeim glæsilegu húsa- kynnum sem risin eru. Ekki er búist við fundi í Ferðamálaráði fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku, en ráðið hefur einu sinni frestað afgreiðslu þessa máls. Ferðamálaráð skipa 14 menn úr öllum greinum ferðamannaiðnaðarins. Stjórn hótelsins hyggst ekki boða til framhaldsaðalfundar fyrr en afstaða ráðsins liggur fyrir, nema bæjarstjórn óski mjög eindregið eftir því. Bæjar- stjórn hefur sem kunnugt er skorað á hótelstjórnina að boða til fundarins sem fyrst. Veðurathugun á ísaflarðarflugvelli Valur Jónatansson, starfs- maður Flugmálastjórnar á ísa- firði hafði samband við blaðið útaf grein um veðurathugun 5. apríl s.l. þar sem Hlynur Sig- tryggsson, veðurstofustjóri, lýsti yfir því að hugsanlegt væri að koma á veðurathugun á isa- firði í samvinnu við Flugmála- stjórn. Valur vildi benda á að þeir í flugturninum væri löngu búnir að lýsa yfir vilja sínum til að þetta næði fram að ganga og væri ekkert því til fyrirstööu að hægt væri að hefja þessa þjónustu. Vegna þessa hafði Vf samband við Hauk Hauksson, varaflug- málastjóra (Pétur Einarsson. flug- málastjóri, var erlendis) og sagði hann að nefnd á vegum Flug- málastjórnar og Veðurstofunnar hefði einmitt komið fram með þá hugmynd að flugturninn á ísa- firði safnaði upplýsingum frá áætlunarflugvöllum á Vestfjörð- um og sendi til Veðurstofunnar. „Það er búið að semja drög að starfsreglum um þetta og þær eru nú í athugun, meðal annars hjá veðurstofustjóra," sagði Haukur. Taldi Haukur þetta fyrirkomulag mundu verða til þess að flugmenn fengju nákvæmari verðurupplýs- ingar. Hlynur Sigtryggsson, veður- stofustjóri, var spurður álits á áð- urnefndum starfsreglum. Hlynur sagði þessar starfsreglur ekki hafa komið til Veðurstofunnar og vildi ekki tjá sig um málið.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.