Vestfirska fréttablaðið - 10.05.1984, Qupperneq 1
FERMINGARGJAFIR
ALLRA
HÆFI
w
\
ott<
i#**
de'
SinarffiAðfji/insson k £
^ínti 70.00 - ^//5 SoliMíja’iOilz
------------------------------------------^
Batnandi fjárhagur Orkubús Vestfjarðaj
- Leiðir þó ekki til lækkunar orkuverðs strax
Sjöundi aðalfundur Orku-
I bús Vestfjarða var haldinn um
I nýliðna helgi. Þar var up'týst
I að fjárhagur fyrirtækisins
batnaði þegar á síðasta ár leið
I eftir að hafa verið þröngur
I framan af ári. Rekstrarafkoma
I reyndist óhagstæð um 0,5
mkr., en var óhagstæð um 31,3
mkr. árið 1982 á þáverandi
verðlagi. í skýrslu Orkubús-
| stjóra, Kristjáns Haraldsson-
I ar, kom fram að það sem eink-
um hafi stuðlað að þessari
bættu afkomu væri hjöðnun
verðbólgu, stöðugleiki í geng-
I ismálum og hagstæðari kjör
■ við orkuöflun. Ólafur H.
Ólafsson, fjármálastjóri,
nefndi í tilbót áfallalausan
I rekstur, þ.e. engar stórbiianir.
Samkvæmt rekstraráætlun
þessa árs er útlit fyrir áfram-
haldandi bata og jákvæðari
rekstrarafkomu í fyrsta sinn
síðan 1978.
I „Þessi bætta afkoma gefur
I þó ekki tilefni til lækkunar
orkuverðs strax eins og ein-
hverjum kynni að detta í hug,“
sagði Kristján Haraldsson.
„Byrja þarf á að leysa upp-
safnaðan vanda undangeng-
inna ára, draga úr lántökum til
framkvæmda og greiða niður
skuldir fyrirtækisins. Til lengri
tíma litið leiða þessar aðgerðir
til lækkaðs orkuverðs.“
GREIÐSLUBYRÐI LÁNA
EKKIKOMIN FRAM
1 skýrslu fjármálastjóra,
Ólafs H. Ólafssonar, kom
fram að heildarskuldir O.V.
nema nú 561,6 mkr. og væri
greiðslubyrði þeirra engan
veginn komin fram þar sem
lán væru mörg hver afborg-
unarlaus fyrstu árin „ Góð
niðurstaða síðasta árs og bætt
eiginfjárstaða í árslok er því
engan veginn einhlítur mæli-
kvarði á stöðu þess í náinni
framtíð,“ sagði Olafur. „Þetta
ber að hafa í huga við alla
umræðu um breytingu á
tekjustofnum Orkubúsins.“
VERÐJÖFNUNARGJALD
FELLT NIÐUR?
Verðjöfnunargjald var 23%
af heildartekjum O.V. á síð-
asta ári, eða 55,4 mkr. og voru
15 millj. innheimtar af Vest-
firðingum sjálfum. Nú er hins
vegar starfandi nefnd á vegum
iðnaðarráðherra sem á að gera
tillögur um niðurfellingu
verðjöfnunargjaldsins.
„Verði gjaldið fellt niður
bótalaust,“ sagði Kristján
Haraldsson, „þýddi það að
gjaldskrár O.V. yrðu að
hækka um 30%, jafnt til hit-
unar íbúðarhúsnæðis sem
annars til þess að vega upp
tekjutapið." — Kristján sagð-
ist afturámóti þess fullviss að
það væri ekki hugmynd iðn-
aðarráðherra að leggja gjaldið
bótalaust niður.
NÝFRAMKVÆMDIR 1984
Helsta framkvæmd s.l. árs
var lagning 66 kV háspennu-
línu frá Mjólká til Tálkna-
fjarðar og er stefnt að verk-
lokum seinnihluta þessa árs.
Á árinu áætlar O.V. að verja
71.5 mkr. til nýframkvæmda.
Þær verða fjármagnaðar með
langtímalánum (30mkr.),
framlagi úr Orkusjóði (9.35
mkr.) og frá rekstri (32,15
mkr.).
Þannig er áætlað að verja 10
mkr. til framkvæmda í þétt-
býli (mest á ísaf. 3.6 mkr.),
30.6 mkr. til framkvæmda við
línur (mest við Tálknafjarðar-
línu 15 mkr.) og 17,6 mkr. við
aðveitustöðvar (mest á
Keldnaeyri, 13,5 mkr.), svo
tekin séu dæmi af helstu lið-
um.
AUKNING
Heildarorkuöflun O.V. jókst
um 9,5% frá fyrra ári og nam
alls 171 GWst. Eigin orku-
vinnsla var 49,6% af heildar-
orkuöfluninni, þannig að ríf-
lega helmingur var keyptur af
Landsvirkjun og RARIK.
í upphafi ársins 1983 tóku
gildi orkukaupasamningur
milli O.V. og Landsvirkjunar
um forgangsorku og afgangs-
orku og þar með var O.V.
komið í bein og milliliðalaus
viðskipti við Landsvirkjum.
Orkusala jókst um 12,4%.
Mest var aukningin í sölu orku
til húshitunar. Gjaldskrár
hækkuðu alls um 93% á síð-
asta ári, en hafa verið óbreytt-
ar frá 1. ágúst ef undan eru
skildar auknar niðurgreiðslur
ríkissjóðs á raforku til hitunar
íbúðarhúsnæðis.
Bolungarvík:
VORDAGAR HEFJAST
Á SUNNUDAGINN
- fjölbreytt dagskrá
ísaf jörður orðinn miðstöð
fyrir erlend fiskiskip
Á sunnudag hefjast Vordagar
(vonandi bera þeir nafn með
rentu) í Bolungarvík. Svo heitir
menningarvika sú sem ýmis fé-
lagasamtök ásamt menningar-
ráði bæjarins gangast fyrir.
Þetta er í fyrsta skipti sem slík
vika er haldin.
Vordagar hefjast með hátíð-
armessu í Hólskirkju kl. 14:00 á
sunnudag.
Kl. 16:00 sama dag verða
síðan opnaðar hvorki meira né
minna en fjórar sýningar: í
Ráðhúsinu verður málverka-
sýning Baltasars og í grunn-
skólanum verða myndlistarsýn-
ing heimamanna, heimilisiðn-
aðarsýning og ljósmyndasýn-
ing. Þessar sýningar verða síðan
opnar meira og minna alla vik-
una.
Kl. 20:30 um kvöldið verða
tónleikar í Félagsheimilinu. Þar
verður vígður nýr flygill sem
Bolvíkingar hafa verið að safna
fyrir. Píanóleikari verður Hall-
dór Haraldsson, en með hon-
um munu koma fram séra
Gunnar Björnsson sellóleikari
og Ágústa Ágústsdóttir söng-
kona.
Á mánudag verða vortón-
leikar og skólaslit Tónskóla
Bolungarvíkur. Fram koma
6—70 nemendur, eldri og yngri.
Og á þriðjudeginum verða síð-
an tónleikar eldri nemenda.
Miðvikudaginn 16. maí kl.
20:00 frumsýnir Leikfélag Bol-
ungarvíkur barnaleikritið
Finnur karlinn, seppi og kisa.
Leikstjóri er Svanhildur Jó-
hannesdóttir. Önnur sýning
verður á fimmtudagskvöld.
Á föstudeginum verða áður
tíundaðar sýningar opnar og
hand- og myndmenntasýning
nemenda Grunnskólans í Bol-
ungarvík að auki. Kl. 20:30
hefst síðan Jasskvöld. Meðal
þeirra sem fram koma eru Vil-
berg Vilbergsson, Baldur Geir-
mundsson, Samúel Einarsson,
Ólafur Garðarsson og Ólafur
Kristjánsson.
Vordagar renna síðan skeið
sitt á enda laugardaginn 19. maí
(vonandi tekur sumarið þá við).
Þann dag verður mikil dagskrá í
íþróttamiðstöðinni Árbæ og
verður íþróttahúsið nýja þá
vigt. Lúðrasveit Mosfellssveitar
mun sækja Bolvíkinga heim af
þessu tilefni, efnt verður til
íþróttasýningar og sundmóts.
Þennan dag verða líka allar
sýningar opnar. Kl. 20:30 hefst
síðan skemmtikvöld í Félags-
heimilinu, blönduð dagskrá.
Að lokum verða Vordagar
dansaðir inní bleika sumarnótt.
Á undanfömum árum hefur
ísafjörður þróast uppí að verða
helsta þjónustuhöfn á íslandi
fyrir erlend skip sem eru á
rækjuveiðum milli Islands og
Grænlands eða norður við
Svalbarða. Allir kannast við
grænlensku rækjutogarana sem
lönduðu hér í vetur, en þeir
hafa fyrir nokkru hætt veiðum.
Enn eru þó 10—15 norskir tog-
arar, 2 franskir og 1 færeyskur á
veiðum á Dohmbanka og leita
hingað eftir ýmissi þjónustu.
Það er ljóst að þjónusta við
erlend skip er orðin nokkuð
snar þáttur í viðskiptalífi bæj-
arins. Skipin sækja hingað við-
gerðarþjónustu, olíu og vistir og
annað sem þau vanhagar um.
Þá em töluverðir flutningar
þessu samfara, bæði á fólki og
vömm.
Á tímabilinu frá janúar og
frammí marslok í vetur lönduðu
10 grænlenskir togarar samtals
1552 tonnum af rækju á ísafirði,
en kvóti þeirra hljóðaði uppá
1690 tonn. Samkvæmt íslensk-
um lögum er erlendum skipum
óheimilt að landa afla í íslenskri
höfn og hafa Grænlendingar
einir fengið undanþágu til þess,
þó aðrir hafi einnig farið þess á
leit. Þetta er þriðji veturinn sem
Grænlendingar leggja upp afla
sinn hér og er reiknað með
framhaldi næsta vetur. Nokkrar
aðrar hafnir hafa þó sýnt áhuga
á að fá þessi skip til sín.
Grænlensku skipin frysta öll
afla sinn um borð. Hann er síð-
an geymdur hér í frysti uns
hann er fluttur til Danmerkur,
þaðan sem honum er dreift á
markaði, einkum frá Álaborg
og Hirtshals.
Gunnar Jónsson, skipaaf-
greiðslumaður, annast fyrir-
greiðslu fyrir norsk, grænlensk
og færeysk skip hér. Hann
sagðist frá fyrstu tíð hafa gert
sér far um að veita þessum
skipum góða þjónustu og
byggðust áframhaldandi hing-
aðkomur þeirra á því að þau
yrðu ánægð með þjónustuna.
Gunnar sagði það umhugsun-
arvert hvort þjónusta okkar við
grænlensku skipin stuðlaði ekki
að betri samningsstöðu íslend-
inga gagnvart Grænlendingum
þegar þeir losnuðu úr EBE og
færu að ráðstafa sínum veiðum.