Vestfirska fréttablaðið - 04.06.1984, Síða 1
vestfirska
FRETTABLAÐIÐ
22. tbl. 10. árg. 4. júní 1984. Vestfirska fréttablaöið kemur út á mánudögum og fimmtudögum kl.
17:30. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka aö Hafnarstræti 14 er opin virka daga kl. 10:00 til
12:00 og 13:00 til 17:00 og sunnudaga kl. 13:00 til 17:00. Síminn er 4011. Blaðamaður Rúnar Helgi
Vignisson, sími 3325. Fjármál og dreifing: Guðrún Halldórsdóttir. Auglýsingar o.fl. Rúnar Þórisson.
Útgefandi og ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun: Prentstof-
an ísrún hf. ísafirði. Verð í lausasölu kr. 22,00. Auglýsingaverð 130,00 dcm. Áskriftarverð er lausa-
söluverð reiknað eftirá, gjalddagar hálfsárslega.
Önnur verkefni í sumar
Af öðrum verkefnum Vega-
gerðarinnar í sumar ber Stein-
grímsfjarðarheiði hæst, en í
hana er áætlað að verja rúmlega
20 m. kr. Verkið hefst ekki fyrr
en í júlí.
Byrjað er á lagfæringu á veg-
inum við Amarnes, hann verð-
ur breikkaður og undirbúinn
undir slitlag svotil innað gati.
Slitlagið kæmi síðan á næsta ári,
en Vegagerðin leggur ekki slit-
lag nema annaðhvert ár.
I sumar verður ennfremur
undirbúinn 1500 m kafli fyrir
utan Súðavík. Sama gildir um
veginn frá Flateyri innað Kald-
á. Þar verður síðan lagt 3 km
slitlag á næsta ári.
Unnið verður við veginn milli
Tálknafjarðar og Patreksfjarð-
ar. Áformað er að endurbyggja
veg um Hálsgötu og lagfæra
veginn á Þorsteinshjalla. Þarna
kemur síðan slitlag á næsta ári
og gæti það orðið um 9 km.
þannig að ekki yrðu eftir nema
2 km að vegamótunum útá
Tálknafjörð.
Gert er ráð fyrir lagningu
slitlags sitthvoru megin við
Menntaskólinn á ísafirði:
Agreiningur milli skóla-
meistara og kennara
Þjóðviljinn og NT gerðu sér
fyrir skemmtu mikinn mat úr
illdeilum milli kennara og
skólameistara Menntaskólans á
ísafirði. Voru stór orð viðhöfð í
því sambandi. Þannig hélt Þjóð-
viljinn því fram að 7 kennarar
Tilboði ístaks hefur verið
tekið í fyrirhugaðar vegabætur á
Óshlíð í sumar. Þeirra tilboð var
lægst og hljóðaði upp á 92,2% af
kostnaðaráætlun, sem var 8,93
milljónir. Verkið mun hefjast
um miðjan júlí og ljúka ekki
seinna en um miðjan ágúst. Um
er að ræða tvo kafla, 500 m kafla
um Ófæru, með Stiga og
Hvanngjá, og 1 km kafla frá
Ósvita inní Skriður.
Einar Gíslason, umdæmis-
verkfræðingur Vegagerðar rík-
isins á ísafirði, var spurður
hvort aldrei hefði komið til
greina að láta heimamenn hafa
verkið.
„Nei, það er litið á hag-
kvæmasta kostinn fyrir Vega-
gerðina. Þegar um útboð er að
ræða yrði það ákaflega óvinsælt
að taka tilboði heimamanna,
bara af því þeir eru heima-
menn.“
Einar gat þess þó að munur-
inn á tilboði heimamanna og
fstaks þætti ekki mikill í til-
boðabransanum. Hann sagðist
heldur ekki telja að verkið
krefðist neinna þeirra tækja
sem heimamenn hefðu ekki
umráð yfir.
hefðu sagt upp störfum vegna
þessa máls.
„Ég veit ekki hvernig sú tala
er fengin,“ sagði Bjöm Teitsson
þegar Vf bar þessa frétt undir
hann. „Síðastliðinn vetur voru
hér 10 kennarar í meira en hálfu
Bíldudal á næsta ári. Þá rennur
töluvert fé í Ingjaldssandsveg
frá Núpi og vesturíur. Síðan
verður unnið við Ketildalaveg
um Austmannsdal og 2 km
kafla um Brjánslæk.
Tvær brýr verða smíðaðar í
sumar, önnur á Penningsdalsá
við Flókalund, hin á Móru á
Krossholtum við Birkimel.
starfi auk mín og þar af virðast 6
hafa sagt upp eins og málin
standa í dag. Af þeim voru 4—5
búnir að tilkynna mér það áður
en þessar deilur hófust. Síðan
hafa einn til tveir bæst við. Ekki
hefur verið um óeðlilegar upp-
sagnir að ræða meðal annars
starfsfólks
Svo mikil kennaraskipti eru
ekkert einsdæmi í sögu skólans,
Kennaraskipti undanfarin ár
hafa að meðaltali ekki verið
meiri en þau voru á fyrstu árum
skólans.“
Börkur Gunnarsson hefur
sagt starfi sínu lausu vegna ó-
ánægju með skólameistara.
Hann tjáði blm. Vf að ekki
hefði verið haft rétt eftir sér í
Þjóðviljanum, hann hafi átt við
að kennararnir hefðu sagt upp
að einhverju leyti vegna þessa,
þó það væri kannski ekki aðal-
áherslan. „Og það er ekki
þannig hjá öllum, ég viðurkenni
það fúslega," sagði Börkur. Þá
sagðist Börkur ekki hafa búist
við að málið yrði gert að upp-
sláttarfrétt á útsíðu.
Jóhanna Hálfdánsdóttir sem
einnig hefur sagt upp, sagði að
fótur væri fyrir fréttum blað-
anna, en skrif þeirra gæfu ekki
rétta mynd af málinu. Hún vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um
málið, en sagði það hafa gengið
alltof langt.
En um hvað snúast deilurn-
ar? Erfitt reyndist að fá grein-
argóðar upplýsingar um það, en
svo virðist sem framkoma
skólameistara við kennara og
stjóm hans á skólanum valdi ó-
ánægjunni. Gangi sumir jafnvel
svo langt að telja hann ófæran
um að gegna starfinu. Uppúr
hafi síðan soðið í vor með þeim
Framhald á bls. 2
Hraðfrysti-
húsið hf.
Hnífsdal
verðlaunað
Á aðalfundi Sölurniðstöðvar
Hraðfrystihúsanna nýverið var
tilkynnt að Hraðfrystihúsið i
Hnífsdai, ásamt fjórum öðrum
fyrirtækjum, hefði fengið við-
urkenningu frá Coldwater fyrir
góða framleiðslu á síðasta ári.
Hraðfrystihúsið hefur einu sinni
áður hlotið slika viðurkenningu
og var það fyrir árið 1981.
Hraðfrystihúsið í Hnífsdai er
eina frystihúsið á Vestfjörðum
sem fær siíka viðurkenningu i ár.
Konráð Jakobsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, var
hógvær þegar Vf spurði hverju
það sætti að þeir sköruðu svona
fram úr. Hann sagði að hér
þyrfti ekki að muna miklu, ein-
ungis væri um herslumun að
ræða. Konráð kvaðst fyrst og
fremst þakka starfsfólki og
góðri verkstjórn þennan árang-
ur og taldi hann verða þeim
hvatning til að standa sig jafn
vel í framtíðinni.
Sjómannadagurinn:
MINNISMERKIAFHJÚPAÐ
Helstu vega-
framkvæmdir
„Hér verður aðeins staldrað við í dagskrá Sjó-
mannadagsins og litið til fortíðarinnar með því að
afhjúpa minnisvarða tileinkaðan fyrsta vélknúna
skipinu og jafnframt fyrsta gufuskipinu er íslendingar
eignuðust, en skipið var Ásgeir iitli, 34 rúmlestir að
stærð.“
Þannig hóf Guðmundur Guðmundsson, stjómar-
formaður Olíusamlags útvegsmanna, ræðu sem
hann flutti við afhjúpun áðurnefnds minnisvarða
fyrir utan Olíusamlagið í gær. Jón Egilsson, vélstjóri.
sem heiðraður var í tilefni Sjómannadagsins (ásamt
Hálfdáni Kristjánssyni) afhjúpaði síðan minnis-
varðann og kom þá skipsskrúfa í ljós. Téð skrúfa var
af Ásgeiri litla og hafði verið geymd frá því skipið
hætti siglingum 1915. Hönnuður minnisvarðans var
Pétur Guðmundsson.
Það var Ásgeir G. Ásgeirsson sem keypti Ásgeir
litla til ísafjarðar. Skipið kom í fyrsta skipti til bæj-
arins 30. júlí 1890. Upphaflega var ætlunin að nota
skipið eingöngu í flutninga til útibúa og fisktöku-
staða Ásgeirsverslunar og í aðrar snattferðir. Lítið
varð þó úr því, skipið var þegar tekið á leigu til
áætlunarferða um lsafjarðardjúp og nágrenni til
mikilla hagsbóta fyrir Djúpmenn, sem fram að því
höfðu ekki getað farið í kaupstað nema á sínum litlu
fjögurra og fimm manna förum þegar veður leyfði og
stundum orðið slys í þeim ferðum. Varð Ásgeir litli
þannig fyrsti flóabáturinn hér við land.
Skipið hætti siglingum um ísafjarðardjúp árið
1915 og var þá sett á land í Neðstakaupstað. Um
allmörg ár var það notað til íbúðar en síðan skorið
niður í brotajárn, en skrúfu skipsins haldið til haga
með það í huga að koma henni fyrir á viðeigandi
stað. Því var loks hrundið í framkvæmd í gær.
Þess má að lokum geta að hátíðahöld Sjómanna-
dagsins á ísafirði fóru hið besta fram, enda veður í
skárra lagi.