Vestfirska fréttablaðið - 14.06.1984, Síða 1
25 tbl. 10 árg VGStlÍrSkð 14 jún, 1084
I L 'RÉTTABLASIE
UMBOÐ FLUGLEVÐA Á VESTFJÖRÐUM: • Flateyri Jónína Ásbjarnardóttir, sími 7674 • Suðureyri ... Helga Hólm, sími 6173 • Bolungarvík . Margrét Kristjánsdóttir, simi 7400 • Súðavík Sigurður Þórðarson, sími 6920 ciC\ID • ísafjörður ... Ferðaskrifstofa Vestfjarða, sími 3457 rLL/vjLtltllrl
FYRIR 17. JÚNÍ Tókum upp nýjar vörur í dag , 1 1
Qpið iaugardaga kl. 10— 12
Verslunin ísafirði sími 3103
Menntaskólinn á ísafirði:
Þrír nýir kennarar ráðnir
Ekki um nemendaflótta að ræða
Þrír nýir kennarar hafa nú
verið ráðnir að Menntaskólan-
um á ísafirði. Munu þeir kenna
íslensku, stærðfræði og félags-
og viðskiptagreinar. Hér er um
aðkomufólk að ræða. Umsókn-
arfrestur um þær stöður sem enn
eru lausar rennur ekki út fyrr en
í byrjun júlí og sagðist Björn
Teitsson, skólameistari, ekki
hafa trú á öðru en tækist að
manna þær.
Umsóknarfrestur um skóla-
vist rennur út á morgun. Á
þriðjudag var komið töluvert af
umsóknum, samkvæmt upplýs-
ingum skólameistara. Hann
kvað þær þó ívið færri en í fyrra,
og taldi það m.a. stafa af lélegri
útkomu á grunnskólaprófun-
um. „Það er ekki um afar fáar
umsóknir að ræða, eins og
sumir voru að óttast vegna
blaðaskrifanna," sagði Björn.
„Ég held að skólinn muni lifa
þetta af og komast yfir þessa
örðugleika,“ bætti hann við.
Björn var inntur álits á bréfi
kennaranna til ráðherra. Hann
sagðist engu hafa við svar
Ragnhildar Helgadóttur að
bæta.
Blaðið hafði samband við
Börk Gunnarsson, einn kenn-
aranna sem sagt hafa upp, en
hann vildi hvorki tjá sig um svar
menntamálaráðherra, sem ekki
telur ástæðu til að beita sér i
málinu, né staðfesta þá frétt
Helgarpóstsins að kennarar
hygðust stefna Árna Sigurðs-
syni, ritstjóra Vf, fyrir meiðyrði.
Frá slökkvistarfinu á þriðjudaginn.
Mikið brunatjón hjá Fiskiðjunni Freyju
— Fullvíst talið að milljóna verðmæti hafi eyðilagst
„Þaö var um klukkan hálfátta
á þriðjudagskvöldið að fólk tók
eftir að rauk úr verksmiðjunni.
Það hélt nú fyrst að verið væri að
kveikja upp í henni, en svo tóku
menn eftir því að rauk út um ein-
kennileg göt á húsinu og var þá
farið að kann málið.“
Þetta hafði Bjarni Elíasson,
framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar
Freyju á Suðureyri, að segja um
það hvernig eldur uppgötvaðist í
fiskimjölsverksmiðju fyrirtækis-
ins. Bjarni sagði ekkert vitað með
vissu um eldsupptök, en ýmislegt
benti til þess að um sjálfíkveikju
hafi verið að ræða, því vitað væri
að hitnað hefði í mjölinu. Um 350
tonn af mjöli voru í verksmiðj-
unni og er það allt óhæft til út-
flutnings að sögn Bjarna, en hugs-
anlegt að eitthvað megi nýta sem
áburð. Mjölið skemmdist bæði af
vatni og reyk.
Fiskimjölsverksmiðjan var sett
upp 1978 með nýlegum tækjum og
sagði Bjarni Elíasson hana hafa
verið fyrirtaks vinnustað. „Það
var hægt að ganga þarna um allt á
inniskóm," sagði Bjarni. Miklar
skemmdir urðu á húsinu og tækj-
abúnaði og voru matsmenn frá
tryggingarfélögum að meta þær í
gær. Húsið var tryggt hjá Bruna-
bót en tæki og mjöl hjá Samvinn-
utryggingum. Reiknað er með að
endurbætur hefjist strax í sumar.
Tveir til þrír menn hafa unnið í
verksmiðjunni sem var keyrð eftir
Ljósmynd Jónas Eyjólfsson.
því sem hráefni gafst. í fyrra kom
einnig upp eldur í henni, en
skemmdir urðu þá ekki jafn
miklar.
Slökkvistarf gekk greiðlega á
þriðjudaginn og tókst að koma í
veg fyrir að eldurinn breiddist í
næstu hús. Einn dælubíll er til á
Suðureyri, en honum til aðstoðar
komu tveir bílar frá slökkviliðinu
á ísafirði, ásamt 15 mönnum.
Slökkvistarfinu lauk um kl. 22:00.
Síminn:
Stöðin
brátt
stækkuð
— bið eftir
síma styttist
V.f. hefur heyrt kvartanir
þess efnis að mjög seint gangi
að fá inn síma eftir að umsókn
þar um hefur verið send.
Nú á næstunni er þess að
vænta að einhver bót verði ráð-
in á þessu vandamáli. Að sögn
Kristmanns Kristmannssonar,
stöðvarstjóra Pósts og síma á
ísafirði, stendur til að stækka
stöðina. Henni hefur verið lof-
að í gagnið nú í þessum mán-
uði. Með tilkomu hennar má
vænta styttri biðtíma eftir síma.
Framkvæmdir við
Óshlíð að hefjast:
Hafa
lokanir
íför
meðsér
Framkvæmdir við Óshlíðar-
veg eru nú að hefjast og er á-
ætlað að þær standi yfir í um tvo
mánuði. Þarna á að færa til um
80 þús. rúmmetra af jarðvegi.
Þar af þarf að sprengja 10 þús.
rúmmetra. Eins og kunnugt er
mun verktakafyrirtækið fstak
sjá um framkvæmdina, en Verk-
fræðiskrifstofa Sigurðar Thor-
oddsen mun hafa eftirlit með
höndum.
Meðan á þessum fram-
kvæmdum stendur má fólk bú-
ast við einhverjum umferðar-
töfum á veginum og einnig að
hann verði lokaður um tíma.
Þannig mun lokun eiga sér stað
18. — 21. júní, en þá mun
Djúpbáturinn annast ferðir
milli fsafjarðar og Bolungar-
víkur. Áætlað er að báturinn
fari kl. 7 og kl. 20 þá fjóra daga
sem lokað verður. Einnig
verða ferðir á mánudegi og
miðvikudegi kl. 10, á þriðj-
udegi kl. 11 og fimmtudegi kl.
12.
Dagana 26. júní til 5. júlí, 10.
júlí til 20. júlí og 24. — 27. júlí
verður vegurinn lokaður á
tímabilinu 20:30 til 7:30.