Vestfirska fréttablaðið - 18.06.1984, Blaðsíða 1
I vestfirska 1
FRETTABLADIÐ
26. tbl. 10. árg. 18. júní 1984. Vestfirskafréttablaöið kemur út á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30.
Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga kl. 10:00 til 12:00 og
13:00 til 17:00 og sunnudaga kl. 13:00 til 17:00. Síminn er4011. Blaðamaður Rúnar Helgi Vignisson,
sími 3325. Fjármál og dreifing: Guðrún Halldórsdóttir. Auglýsingar o.fl. Rúnar Þórisson. Utgefandi og
ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson, Fagraholti 12, (safirði, sími 3100. Prentun: Prentstofan (srún hf.
ísafirði. Verð í lausasölu kr. 15,00. Auglýsingaverð 130,00 dcm. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað
eftirá, gjalddagar hálfsárslega.
Lýð-
veldið
40ára
ígær
Það rættist vonum betur úr
sautjándanum í gær. Menn
höfðu nagað á sér neglurnar
af ótta við rok og regn sem
gerði margra vikna undir-
búning að engu, enda höfðu
veðurfræðingar gefið slíkt í
skyn. Svo fór þó ekki, a.m.k.
ekki á ísafirði, skýjað var og
þurrt og svo mikið logn að
vart ióaði á steini. Þetta
gerði það að verkum að há-
tíðahöldin á Sjúkrahústúninu
lukkuðust Ijómandi vel og
voru skátafélögunum sem
um þau sáu til mikils sóma.
Sömu sögu er að segja af
ballinu í tjaldinu, það fór á-
gætlega fram.
Meðfylgjandi mynd tók
Hrafn Snorrason í gær og
hann tók einnig myndirnar á
bls.2
Það
skásta
—samkomulag milli
ASVogÚFV
„Þetta er það skásta sem við
töldum að við gætum náð með
friði og með tilliti til þeirrar ó-
vissu sem ríkir í sjávarútvegin-
um og efnahagslífinu í heild. Við
betri aðstæður en nú eru, hefur
oft verið staðið upp við minna“,
sagði Pétur Sigurðsson formað-
ur Alþýðusambands Vestfjarða
um samkomulag það sem gert
var í síðustu viku á sáttafundi
sjómanna og útvegsmanna.
Pétur
Sigurðsson
Pétur sagði að með þessum
samningi hefðu fengist ýmsar
leiðréttingar á liðum sem dottið
hafa úr samningum eða breyst
undanfarið, en ekki hafa verið
gerðar orðalagsbrey tingar á. Nú
mun vera unnið að þessum
leiðréttingum. Að því loknu
verða samningarnir kynntir í
sjómannafélögunum á Vest-
fjörðum.
Guðmundur Guðmundsson
formaður Útvegsmannaféags
Vestfjarða sagðist aðspurður,
vera ánægður með samkomu-
lagið og að samningar hefðu
náðst.
Kjartan Sigurjónsson:
Tíð keppnisferðalög spilla skólastarfinu
— útkoman á samræmdu prófunum enn lakari en í fyrra
íslenska 1983 1984
Ljóst er að útkoman á sam-
ræmdu prófunum var enn lakari
á Vestfjörðum í vetur en í fyrra.
Meðaleinkunnir í Vestfjarða-
umdæmi eru umtalsvert lægri en
landsmeðaltal, eins og sjá má á
eftirfarandi töflu:
ísafjörður 48.5 46.6
Vestfirðir 43.5 42.6
Landið 5 2.9 55.5
Danska
ísafjörður 45.1 46.0
Vestfirðir 41.0 44.1
Landið 49.9 53.9
Enska
ísafjörður 54.2 46.0
Vestfirðir 47.5 44.6
Landið 5 6.3 56.0
Stærðfræði
ísafjörður 47.1 48.5
Vestfirðir 4 3.4 41.5
Landið 5 2.7 55.2
Eins og sjá má er Grunnskól-
inn á ísafirði töluvert yfir Vest-
fjarðameðaltali, en hann er þó
ekki hæstur skólanna á Vest-
fjörðum. Samkvæmt heimild-
um blaðsins mun skólinn í Bol-
ungarvík hafa komið best út, en
ekki tókst að ná í skólastjórann
til að fá nánari upplýsingar.
Sjá nánar á bls. 3
Bolungarvík:
Sólrún sigldi í höfn á föstudaginn
Græni liturinn skar sig úr
hafblámanum. Svo stækkaði
þessi græni blettur á hafinu uns
greina mátti útlínur skips. Það
kom nær og á endanum mátti
lesa stafina á bógnum: Sólrún
ÍS 1. Nýtt skip hafði bæst í bol-
víska flotann.
Þetta var á föstudaginn.
Það var töluverður mann-
fjöldi á bryggjunni, sumir
greinilega komnir beint úr vinnu
til að berja hina nýju eign aug-
um. Myndavélar voru óspart
mundaðar þó ekki væri beint
myndrænt veður, stinningskaldi
úr norðri svo sultardropafram-
leiðsla var mikil.
Nú, svo lagði Jón Guð-
brandsson, skipstjóri, nýja
skipinu að, og fólk flykktist um
borð til að grandskoða herleg-
heitin. Einar gamli Guðfinns-
son lét sig ekki vanta.
Jújú, þetta var prýðilegasta
skip að sjá og Jón skipstjóri lét
vel af þvi. Þetta er alhliða fiski-
skip, en hefur sérstaklega verið
búið til rækjuveiða. Það er 298,5
brúttólestir, 36 m langt, 8,5
breitt og 6,5 m djúpt. Aðalvél er
af Mireless Blackstone gerð 990
hestöfl, 8 strokka. í skipinu eru
tvær ljósavélar af Lister gerð og
ein minni til rafmagnsfram-
leiðslu í höfnum. Bógskrúfa er á
Sólrúnu og Becker stýri.
Á milliþilfari hefur verið
komið fyrir fullkomnum
búnaði til vinnslu á rækju. Er
þar um að ræða vél sem flokkað
getur rækjuna í fjóra stærðar-
flokka, suðupott og tvennskon-
ar hraðfrystibúnað. Ennfremur
verður í skipinu tækjabúnaður
til meltuvinnslu.
Þrjár frystilestar eru í skipinu.
Togbúnaður er hinn fullkomn-
asti, að sjálfsögðu, og spilin af
Rapp gerð. Einnig er Sólrún
búin „Auto-troll“ kerfi. Óþarfi
er að taka fram að siglinga- og
fiskileitartæki eru hin full-
komnustu sem völ er á og þau
eru af J.R.C. gerð.
Skipstjóri á Sólrúnu er Jón
Guðbrandsson, eins og áður
sagði. stýrimaður Ólafur Svan-
ur Gestsson, en í fyrstu veiði-
ferðum verður Hrólfur Ólafs-
son stýrimaður. Fyrsti vélstjóri
er Þór Ó. Helgason, annar
vélstjóri Ingþór Karlsson. Ell-
efu manns eru í áhöfn. Mar-
sellíus Guðmundsson fiskiðn-
aðarmaður verður með í fyrstu
veiðiferðunum til ráðleggingar
og aðstoðar við vinnsluna um
borð.
Sólrún var smíðuð hjá
Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf.
Hún fór á veiðar á laugardags-
kvöld.
Sólrún kemur til heimahafnar