Vestfirska fréttablaðið - 02.07.1984, Blaðsíða 1
Mikill áhugi á ,
skíðabrautviðM.Í.
Fyrir skömmu var haldinn
fundur til að ræða hugsanlega
skíðabraut við Menntaskólann
á ísafirði. Á fundinn voru mættir
Hreggviður Jónsson og Ingvar
Einarsson frá Skíðasamband-
inu, Artur Forsberg skíðaþjálf-
ari frá Svíþjóð, Björn Teitsson,
skólameistari, ásamt skíða-
mönnum og framámönnum bæj-
arfélagsins.,
„Það voru nú ekki teknar
beinar ákvarðanir á þessum
fundi,“ sagði Björn Teitsson
þegar við höfðum samband við
hann, „heldur var hér um
frumathugun að ræða.“
Björn sagði hugmyndir þær
sem fram komu um skíða-
brautina hafa verið töluvert
öðruvísi en hann átti von á.
Vísað var til sænskrar reynslu
og sagði Artur Forsberg að
nemendur á svona skóla í Sví-
þjóð gætu valið um ýmsar
brautir eins og aðrir nemendur
og tækju þá alla áfanga í tiltek-
inni braut, slepptu engu úr.
Stefnt væri að því að viðkom-
andi nemandi gæti síðan valið
úr mörgum háskóladeildum,
væri ekki bara að stefna að
námi í íþróttakennaraskóla.
„Þetta mundi hins vegar þýða
það að hugsanlega yrði reynt að
draga námið eitthvað á langinn,
hafa það kannski einu ári
lengra. Á því eru aftur á móti
tæknilegir örðugleikar frá okk-
ar hálfu, t.d. hvað varðar
stundatöflu. Ég hef ekki alveg
séð fyrir hvernig mætti leysa
það mál,“ sagði Björn. „Með
tilliti til framtíðar nemenda er
ég þó hlynntari þessum hug-
myndum en því að hafa eigin-
lega íþróttabraut þar sem nem-
endur sleppa um 20% bóklegra
námsgreina. Þarna er verið að
koma til móts við áhuga ung-
linga á því að stunda skíði sem
mest á námstímanum,“ sagði
Björn og fannst hafa verið al-
mennur vilji fyrir því á fundin-
um að reyna að koma þessu á.
Hann kvaðst mundu taka málið
til athugunar, en hins vegar
væri ljóst að ekki yrði unnt að
koma brautinni á fyrr en á
næsta ári.
30. tbl. 10. árg. 2. júlí 1984. Vestfirska fréttablaðið kemur út á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30.
Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga kl. 10:00 til 12:00 og
13:00 til 17:00 og sunnudaga kl. 13:00 til 17:00. Síminn er 4011. Blaðamaður Rúnar Helgi Vignisson,
sími 3325. Fjármál og dreifing: Guðrún Halldórsdóttir. Auglýsingar o.fl. Rúnar Þórisson. Utgefandi og
ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun: Prentstofan ísrún hf.
Isafirði. Verð í lausasölu kr. 15,00. Auglýsingaverð 130,00 dcm. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað
eftirá, gjalddagar hálfsárslega.
Fyrsti koss hjónabandsins. Foreldrarnir fylgjast gannt með.
Brúðkaup sumarsins?
Það var ekki úti veður vont þegar þau Steinar Örn Kristjánsson og María Valsdóttir, létu pússa
sig saman í gær. Og fyrst veðurguðirnir gerðu sér svona dælt við þau létu þau þessa merku athöfn
fara fram útí garðinum að Engjavegi 29. Á eftir var svo að sjálfsögðu slegið upp garðveislu.
Sannkallað sumarbrúðkaup og gott ef ekki brúðkaup sumarsins. Til lukku.
Ragnar H. hættir sem skólastjóri
— eftir 36 ára starf við Tónlistarskólann
Ragnar H. Ragnar hefur sagt
starfi sinu lausu sem skólastjóri
Tónlistarskóla ísafjarðar. Hann
hefur starfað sem skólastjóri við
skólann frá stofnun hans, eða í
36 ár. Alls hefur Ragnar verið
tónlistarkennari í 61 ár. Hann
verður 86 ára í haust. Saman-
lagður lífs- og starfsaldur
Ragnars er því 147 ár.
Ragnar H. Ragnar
I samtali við V.f. sagði Ragn-
ar, að hann segði starfi sínu nú
lausu af heilsufarsástæðum.
Auk þess sem það væri miklum
erfiðleikum háð að halda áfram
rekstri skólans við þær aðstæð-
ur, sem hann hefur lengi búið
við. Ragnar sagðist þó hafa hug
á að halda áfram kennslu við
skólann, því að í skólanum
væru nemendur, sem hann
hefði kennt mörg undanfarin ár
og treystu því að hann yrði á-
fram kennari þeirra.
Aðspurður um hvort Ragnar
væri ánægður með það sem á-
unnist hefði í skólastarfinu
sagði hann: „Já, ég get ekki
annað sagt en ég sé ánægður
með það hvað þessi skóli hefur
blómgast og blessast með nú
hundrað og sjötíu ákaflega
efnilega nemendur og ágæta,
vel menntaða og áhugasama
kennara.“
Um framtíð skólans sagði
Ragnar að það væri allt undir
Nýr markaður að opnast:
bæjarbúum komið. „Bæjarbúar
hafa reynst vel. Þeir hafa sent
börn sín og unglinga í skólann
og verið skólanum mjög
hlynntir. En það er þessi stóri
misskilningur að athuga ekki að
ég er dauðlegur maður. Mér
hefur tekist að halda skólanum
við án þess að hafa skólahús en
það held ég að enginn gangi inn
á til lengdar. Það er vel hugs-
anlegt, að verði ekkert gert í
þessum málum, að skólinn
leggist hreinlega niður. Menn
hugsa bara ekki út í það.
Ragnar sagðist að lokum
bera mjög mikinn hlýhug til
skólans og vona að framtíð hans
yrði sem björtust. „Ég vona að
ísfirðingar sjái sóma sinn í því
að halda skólanum ekki aðeins
við, heldur að hann stækki og
verði enn betri skóli en hann er í
dag.“
Hefja útflutning á rækju til
Bandaríkjanna
— tvö fyrirtæki stofnuð í því skyni
Erfiðlega hefur gengið að
selja rækju undanfarið, eins og
þeir sem fylgjast með sjávarút-
vegsmálum vita. Forráðamenn
rækjuverksmiðjunnar Vina-
minni vilja ekki una því og
hyggjast gera tilraun til að
komast inná markað sem hingað
til hefur verið algerlega lokaður
fslendingum, Bandaríkjamark-
að. Gunnar Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri verksmiðjunnar,
og Jón Grímsson, sem búsettur
er í Bandaríkjunum, hafa í því
skyni stofnað fyrirtækið Icemar
og hefur það skrifstofu í Seattle
á vesturströnd Bandaríkjanna.
Mun Jón veita henni forstöðu.
Hér heima hefur jafnframt verið
stofnað útflutningsfyrirtæk-
ið IPEX (Icelandic Prawn
Export) til að eiga viðskipti við
Icemar. Þegar hefur töluvert
verið selt og fer fyrsti farmurinn
væntanlega út 12. júlí n.k.
Gunnar Þórðarson sagði í
samtali við Vf að hér væri um
tilraun að ræða. Kvaðst hann
Knattspyrna:
Fyrsti sigur
ísafjarðar-
stúlknanna
ísfirsku stúikurnar unnu sinn
fyrsta sigur í 1. deild s.l.
fimmtudag er þær lögðu Víkinga
að velli í Reykjavík 2 — 0. Kær-
kominn sigur það. Aðeins eitt lið
fellur úr riðlinum, þannig að ís-
firðingar þurfa aðeins eitt stig
til viðbótar til að halda sér uppi.
Margrét Geirsdóttir skoraði
fyrra mark ísfirsku stúlknanna á
fimmtudaginn, rétt eftir miðjan
fyrri hálfleik. Ingibjörg Jóns-
dóttir innsiglaði svo sigurinn
skömmu fyrir leikslok. 2 — 0 og
þrjú stig í höfn.
frekar vilja taka þessa áhættu
en sitja uppi með vöruna en
birgðir hafa hrannast upp hjá
verksmiðjunum undanfarið
„Ég er bjartsýnn á þetta,“
sagði Gunnar, „því ég trúi því
að við séum að bjóða betri vöru
en samkeppnisaðilar okkar.
Við erum að selja nánast lif-
andi rækju meðan t.d. Norð-
menn eru að selja ársgamla
rækju,“ sagði Gunnar og fannst
furðulegt að Islendingar skyldu
aldrei hafa sinnt þessum stærsta
rækjumarkaði heims. Hann
bjóst ekki við að selja alla sina
framleiðslu í vesturveg í fram-
tíðinni, þar eð Evrópumarkað-
urinn hefði alltaf gefið meira af
sér. Samt sem áður kvað hann
þá hafa fengið viðunandi verð í
Bandaríkjunum fyrir þá rækju
sem þegar væri seld, þó það
hefði ekki þótt gott i fyrra.