Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1984, Qupperneq 3

Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1984, Qupperneq 3
vsstfirska FRETTA3LABIÐ I tugthúsi í 24 ár — Jóhann vitavörður á Horni að hætta Á mánudagsmorgun var heit- ast á Jóhanni Péturssyni, vita- verði á Homi, af öllum íbúum Norður-Evrópu. Þetta þóttu okkur svo merkilegar fréttir, að við slógum á til Jóhanns, reynd- ar í gegnum Siglufjarðarradíó. Þegar við náðum sambandi við hann sagðist hann hafa verið að enda við að senda frá sér ísfregn. „Já, það er gaman að setja lokapunktinn með svona mikl- um andstæðum, hitanum í morgun og ísfréttinni núna,“ sagði Jóhann og hló. — Menn voru að velta því fyrir sér hvað þú hefðir gert við mæl- inn þarna í morgun. „Ekkert, það hefur verið undanfarna 5 — 6 daga frá 11 upp í 14 — 15 stig. Það hefur verið alveg einmuna veður. Ég man ekki eftir svona blíðu í jafn langan tíma. Hafið þið kannski lítið haft af blíðunni að segja þarna á ísafirði? — Nei, hún hefur ekki farið fram hjá okkur. „Þið hafið kannski haft meira af henni að segja frá hendi fag- urra kvenna?“ — Ja, jú, má vera. Hm — Hvernig er það annars, líður þér ekki vel í svona einmuna veður- blíðu? „Jú, mér líður nú yfirleitt sæmilega vel, svo framarlega sem allt er í lagi að öðru leyti. Eftir 24 ár hérna er ekki til neitt í mér sem heitir þreyta eða kergja, ég er vel á mig kominn. En ég fagna því að vera frjáls, það má segja að ég hafi verið hér í tugthúsi í 24 ár. Þetta er einangraðasti staður á íslandi og ekki minnsta glæta af fé- lagslegum þáttum af neinu tagi og það er gífurlegt álag sem fylgir því. Ég mundi a.m.k. ekki óska eftir því að vera hérna aft- ur.“ — Ertu að hætta þarna fyrir fullt og allt? „Ja, ég er að taka árs frí og ég hef enga trú á að ég komi hing- að aftur. Ég er búinn að vera Hornbjarg, nágranni Jóhanns í 24 ár. hérna í 24 ár og það er 23 árum of mikið.“ — Ætlaðirðu kannski aldrei að vera nema eitt ár? „Ja, það var alveg óákveðið. Ég var ekki að spekúlera neitt í því. Hinsvegar er það þetta, þó það þyki nú orðið helvíti bjánalegt, því það skilur enginn orðið ábyrgð núna, að þegar maður tekur að sér eitthvað, þá rísa upp þær hvatir að reyna að skila því vel og þá er spurningin hversu lengi. Inn í þetta bland- ast nú sennilega og þó ekki að maður sé ómissandi Maður hefur tekið þetta að sér og þá er bara að reyna að skila því vel og lengi. Kannski sýnir þetta hvað maður er ónormal.“ — Heldurðu að þú farir á annan vita eftir fríið? „Nei, guð hjálpi þér. Mig langar til að fara á flakk og eg DUÐIN skoða heiminn áður en drepst.“ — Heyrðu, það er kannski eins gott að þú ert að fara, þeir voru að sjá ísbirni þarna fyrir utan hjá þér. „Ef þeir koma héma í land, þá mundi ég gefa þeim bara, ég á hér tvo kjötskrokka. Svo mundi ég bara hringja í Ómar og láta hann koma á flugvélinni. Hvers vegna að vera að drepa þetta? Sannleik- urinn er sá að það er lítil hetju- dáð að drepa björn, því þetta er eins og belja að stærð. Það er hægt að drepa þetta með kindaskoti. Svo eru menn að gaspra af þessum andskota. Það á bara að fanga þessi grey. — Það eru allir að reyna að drepa allt hvar sem það er í heimin- um. Þú ættir að vera hérna, ég er hér með 6 tófur sem koma næstum inn í forstofuna og borða úr hendi mér. Svona á maður að umgangast þessar skepnur.“ — Ekki treystirðu þér til að temja ísbirnina eins og þú temur tófurnar? „Neinei, en það væri kannski hægt að gera þá spaka með því að gefa þeim að éta ef þeir hafa ekkert annað.“ — Hefurðu séð ísbjöm þarna? „Nei, ekki lifandi. Ég hef fundið þá tvo og rostung. Ég á tennurnar úr rostungnum.“ — En hvað er þér minnisstæðast eftir þessi 24 ár á Horni? „Elskan mín, þetta er allt einn samfelldur hrakfallabálk- ur og þó hefur þetta verið stór- kostlegt ævintýri, harmleikur og yfirleitt allt þar á milli. Sann- leikurinn er nú sá að það er enginn öfundsverður af því að byggja svona stað. Það er allt í lagi að vera svona 3 — 4 ár, en svo eiga menn að fara.“ — Hvemig er með túristana, eru þeir farnir að sýna sig? „Þeir komu hér klerkurinn á ísafirði og i Bolungarvík. Prest- urinn í Bolungarvík kom hing- að til að vísitera, en það hefur ekki verið gert s.l. 24 ár. Þeir hafa ætlað að veita mér ein- hverja guðsblessun og ekki talið mér veita af áður en ég færi í menninguna.“ — Hefur túristunum ekki fjölg- að stöðugt? „Jú, það leiðir af sjálfu sér, sérstaklega eftir að Fagranesið fór að moka þessu hingað. Þá er þetta orðin örtröð.“ — Er þetta til óþæginda? „Já, þetta er til óþæginda að vissu marki. Þegar þetta er orð- ið svona mikið þá er ekki aðeins að þyrfti allt kaupið til að veita því sómasamlega, látum það nú vera, heldur eyðir það tíma manns líka.“ — Þú ert búinn að venja túrist- ana eins og dýrin? „Nei, ég hef ekki vanið þá neitt. Þetta hefðir þú gert líka sérðu, — fyrstu árin var tiltölu- lega fámennt hérna og þá var tekið vel á móti hverri einustu manneskju. Svo æxlaðist þetta ósjálfrátt þannig að þetta fór vaxandi. Og hvenær á maður að stoppa? Raunar var ekki hægt að stoppa.“ — Þannig að þú verður bara að fara? „Ég segi nú ekki það.“ — Jæja, þú segir þetta. Segðu mér, hvernig er heimspeki vita- varðarins? „Hún er helvíti góð skal ég segja þér. Ég ætla nú samt ekki að fara að tíunda hana núna, það tæki alltof langan tíma, mundi enda með að blaðið færi á hausinn vegna símakostnað- ar.“ — En að lokum Jóhann, hvað ertu orðinn gamall? „Ég er búinn að vera 27 ára í 39 ár.“ — Af hverju 27 ára? „Æi, mér finnst það svona þægilegur aldur.“ Þess má geta að Ragnar Halldórsson verður næsti vita- vörður. FASTEIGNA- VIÐSKIPTI ÍSAFJÖRÐUR: Engjavegur 25, 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýlis- húsi. Urðarvegur 80. Nú eru 5 íbúðir óseldar í fjölbýlishús- inu sem Eiríkur og Einar Val- ur s.f. eru að byggja. Um er að ræða 3 3ja herb. og 2 2ja herb. íbúðir sem afhendast til- búnar undir tréverk og máln- ingu fyrir 1. sept. 1985. Aðalstræti — Skipagata, 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í sambýlishúsi sem Guðmund- ur Þórðarson er að byggja. íbúðirnar verða afhentar til- búnar undir tréverk og máln- ingu fyrir 1.10.1985. Hafraholt 18, raðhús á tveim hæðum, ásamt bílskúr. Laust fljótlega. Stórholt 13, 4ra herb. íbúð á 2. hæð, ásamt bílskúr. íbúðin er laus. Hrannargata 10, 3ja herb. íbúð á efri hæð. Laus 1. sept. Sundstræti 29, 2ja herb. íbúð á 2. hæð. íbúðin er laus. Strandgata 5a, lítið einbýlis- hús. Laust 1. sept. Seljalandsvegur 85, lítið einbýlishús. Strandgata 5, ca. 120 ferm. íbúð á neðri hæð í tvíbýlis- húsi. Laus fljótlega. Silfurgata 12, lítið einbýlis- hús. Laust fljótlega. Gouholt 5, rúmlega fokhelt 135 ferm. einbýlishús ásamt bilskúr. Stekkjargata 4, lítið einbýlis- hús. Selst með góðum kjörum, ef samið er strax. BOLUNGARVÍK: Höfðastígur 18, ca. 140 ferm. einbýlishús ásamt bíl- skúr og stórri lóð. Þjóðólfsvegur 14, 3ja herb. íbúð á 2. hæð. Stigahlíð 2, 2ja herb. íbúð á jarðhæð. ARNAR GEIR HINRIKSSONhdl. Silfurtorgi 1 ísafirði, sími 4144 GRILL Nú er grillvertíðin í algleymingi Höfum margar gerðir á boðstólum Einnig: GRILLKOL (dönsk) GRILLOLÍU GRILLÁHÖLD ARINKUBBAR — ARINVIÐUR OLÍUSAMLAG ÚTVEGSMANNA HAFNARHUSINU SIMI3245

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.