Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1984, Page 5
vsstfirska
FRETTABLADID
mtog drungalegt...
ensku, en passaði mig á að nota
hana ekki of mikið, byrjaði
strax að reyna að babbla ís-
lensku. Ég lærði bara sjálf já og
hjá fjölskyldunni.“
— Þú varst í Menntaskólanum,
hvernig gekk það?
„Það var svolítið leiðinlegt í
byrjun. Ég skildi ekki neitt sem
kennarinn sagði og var alltaf að
hugsa um eitthvað annað. En
það var skemmtilegra eftir ára-
mót, þá var ég farin að skilja
meira.“
— Nú ertu búin að ná íslensk-
unni vel, hvað ætlarðu svo að
gera við hana?
„Ég get ekkert gert við hana.
Ég var að hugsa um að halda
áfram að læra íslensku, en það
er bara hvergi hægt að læra
hana í Belgíu.“
— Fyndist þér ekki Ieiðinlegt að
týna henni niður?
„Ég ætla ekki að gera það. Ég
mun skrifa og senda kassettur
og koma aftur einhvern tíma.
Þetta týnist nú ekki svo fljótt."
— Finnst þér það hafa verið þess
að hafa frumkvæðið. Þegar ís-
lendingar eru á annað borð
búnir að opna sig, þá eru þeir
mjög fínt fólk og gaman að
kynnast þeim.' ftalir babbla
stöðugt og segja kannski ekkert
nema mamma mía, en fslend-
ingar eru dýpri. Þeir tala minna
en segja meira.“
— Hefurðu kynnst mörgum
íslendingum?
„Ég þekki kannski marga
sem ég heilsa á götu, en það eru
fáir sem ég þekki vel. Þá fáu
sem ég þekki get ég alltaf
heimsótt og er alltaf velkomin.
íslendingar hafa tekið mér mjög
vel. — Nei, þeir hafa ekki ein-
angrað mig eða neitt svoleiðis,
þvert á móti hafa þeir sýnt mér
mikinn áhuga. Krakkarnir í
frystihúsinu spurðu t.d. mikið
um Belgíu."
— Vinna krakkar í Belgíu á
sumrin?
„Nei, það er svo mikið at-
vinnuleysi að ekki er hægt að fá
vinnu. Mér fannst svo mikill
lúxus að fá að vinna hérna. Bara
fara upp í frystihús og biðja um
fá að vinna
es skiptinema frá Belgíu
skemmtilegt sjálf með alls kon-
ar sprelli.“
— Gætirðu hugsað þér að vinna
heilt ár í frystihúsi?
„Kannski hálfan daginn, ekki
allan. Ég var aðeins farin að
þreytast í lokin, þó ég hefði ekki
unnið nema einn mánuð. Síð-
asta daginn var sprautað á mig,
en ég sprautaði bara til baka.“
— Nú kunnir þú ekki stakt
orð í íslensku þegar þú komst,
hvernig gekk að ná sambandi við
íslendinga?
„Það var erfitt. Maður gat
bara brosað. Ég reyndi aðeins
virði að eyða heilu ári af lífi þínu
hér í þessu norðlæga þorpi?
„Já. En ég get ekki sagt að
það hafi alltaf verið gaman, það
var erfitt stundum. En ég hef
lært heilmikið. Ég þurfti að
breyta sjálfri mér til að passa í
kramið. Mér finnst íslendingar
alltaf opnir fyrir nýjum hug-
myndum, en það var ég ekki. Ég
hélt ég mundi geta lifað eins og
Belgi héma, en raunin varð
önnur.“
— Fannst þér erfitt að kynn-
ast íslendingum?
„Nei, en það þurfti stundum
vinnu næsta mánuðinn. Jájá,
komdu bara, sögðu þeir. Ég var
svo hissa.“
— Að lokum Karine, hlakkarðu
til að fara heim?
„Já, það geri ég. En það
verður svolítið erfitt að kveðja.
Ég er samt dálítið hrædd að fara
heim, veit ekki hvað ég hef
breyst mikið og hvort þau hafa
breyst heima. Kannski er heima
ekki til lengur.“
Vestfirska fréttablaðið óskar
Karine góðrar ferðar heim og
vonar að sú lífsreynsla að búa
meðal fslendinga eigi eftir að
koma henni til góða.
■ ■■ég hugsaði með mér: Ha, snjór í ágúst! Svakalegtl...
...En þetta hetur víst verið mildur vetur erþað ekki?"
5
Tónlistarskólahús:
Deilt um fjárhagslegan
stuðning bæjarsjóos
— málinu vísað til næstu fjárhagsáætlunar
„Ég er afskaplega óhress með
það, hvernig meirihluti bæjar-
stjómar tekur á þessu mikiivæga
máli, því að þetta er 36 ára
gömul stofnun, sem aldrei hefur
eignast þak yfir höfuðið. Það er
tími til kominn að þessi rekstur
fái fast aðsetur. Það er siðferði-
leg skylda okkar bæjarfulltrúa
að stuðla að því að svo geti orð-
ið. Ellegar sé ég ekki fram á
annað en að við stöndum
frammi fyrir því, að þessi stofn-
un leggist bara niður.“
Þetta sagði Geirþrúður
Charlesdóttir, bæjarfulltrúi í
samtali við Vf, um þá afgreiðslu
sem tillaga hennar og Áma Sig-
urðssonar bæjarfulltrúa fékk á
bæjarstjórnarfundi s.I. fimmtu-
dagskvöld, þess efnis að bæjar-
stjórn lýsi yfir stuðningi við
byggingu tónlistarskólahúss.
Orðrétt var tillagan svohljóð-
andi:
„Bæjarstjórn fsafjarðar lýsir
því yfir, að hún muni styðja
byggingu tónlistarskólahúss,
fjárhagslega, eftir nánari á-
vörðun síðar.”
Geirþrúður sagði að í til-
unni hefðu ekki falist neinar
tímasettar skuldbindingar, held-
ur hefði ætlunin verið sú að
knýja fram hvort stuðnings bæj-
arsjóðs mætti vænta.
En á bæjarstjórnarfundinum
lagði Þuríður Pétursdóttir bæj-
arfulltrúi til að tillögu Geir-
þrúðar og Árna yrði vísað til
fjárhagsáætlunar næsta árs. Var
sú tillaga samþykkt af meiri-
hluta bæjarstjórnar að viðhöfðu
nafnakalli.
f samtali við Vf sagði Þuríður
Pétursdóttir að fjárhagsstaða
bæjarsjóðs væri það slæm að
hún leyfði engarfjárhagslegar
skuldbindingar varðandi bygg-
ingu tónlistarskólahúss. „Það er
alveg sama þótt bæjarstjórn sé
öll af vilja gerð, þá er það
blekking að segja við fólk að
bærinn ætli að styðja þetta. Það
verður ekki gert nema pen-
ingar séu til. Ég sé ekki fram á
að bærinn geti eytt fjármagni í
þetta næstu árin.“
Þuríður sagði ennfremur, að
það hlyti að vera hægt að leysa
húsnæðisvandamál skólans með
öðrum hætti. í því sambandi
sagði hún, að það mætti vel
hugsa sér nýskipan skólamála,
þar sem starfsemi Tónlistar-
skólans yrði í skólahúsnæði,
sem til væri fyrir í bænum. í því
sambandi hefur m.a. verið bent á
Húsmæðraskólann og Mennta-
skólann.
Ljóst er að þeir aðilar, sem
staðið hafa að fjáröflun vegna
byggingar tónlistarskólahúss,
hafa treyst verulega á fjárhags-
stuðning frá bæjaryfirvöldum.
Nú hefur Tónlistarfélagið til
umráða 2 milljónir til fram-
kvæmdanna. Kostnaðaráætlun
við byggingu hússins samkvæmt
fyririiggjandi teikningum miðað
við verðlag í vor er um 20 mill-
jónir.
Að ákvörðun bæjarstjórnar
hefur skólanum nýlega verið út-
hlutað lóð á Torfnesi. Fyrirhug-
að var að byrja á að steypa plötu
hússins í sumar. f því sambandi
var verulega treyst á væntanleg-
an stuðning bæjaryfirvalda. Því
er ekki Ijóst hvert framhald
málsins verður. Við höfðum
samband við Högna Þórðarson
formann tónlistarfélagsins og
spurðum hann hver staða mála
væri eftir bæjarstjórnarfundinn
á fimmtudag. Hann sagði, að
enn hefði ekkert verið ákveðið
um framhald. Reiknaði hann
með því að efnt yrði til félags-
fundar mjög fljótlega til að
fjalla um þetta mál. Hann sagði
hins vegar að dræmar undirtekt-
ir bæjarstjórnar yllu sér miklum
vonbrigðum. Að nú þegar væri
búið að leggja í kostnað með
fullu samþykki bæjarstjórnar og
með framlögum frá bæjarsjóði
við að teikna þetta hús. Það
hefði verið leitað til almennings
og fyrirtækja eftir fjárstuðningi
í fullri alvöru um að farið yrði út
í byggingu. „Þess vegna eru
dræmar undirtektir bæjarstjórn-
ar okkur mikil vonbrigði. Að
ekki sé einu sinni um viljayfir-
lýsingu að ræða, heldur sé mál-
inu vísað til fjárhagsáætlunar
næsta árs. Þetta er ekkert annað
en frestun á því að taka afstöðu í
málinu,” sagði Högni. Hann
taldi ennfremur tillögur um
annað húsnæði óraunhæfar að
því leyti að ekki hafi ennþá 'verið
bent á húsnæði, sem sé laust
undir þessa starfsemi. Hann
sagði að einungis hafi verið
nefnt húsnæði, sem þegar væri
fast undir aðra skóla og að það
væri ekki á valdi Tónlistar-
félagsins að ráðskast með slíkt
húsnæði.