Vestfirska fréttablaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 1
35. tbl. 10. árg.
vestfirska
26. júli 1984
FRETTABLAOIS
FLUGLEIDIR
Skemmtiferðir
Viðskiptaferðir
Allar ferðir
Umboð Bolungarvík
Innanlands-farseðlar
Millilanda-ferðir
Allar frekari upplýsingar
Margrét Kristjánsdóttir sími 7400
Kenwood
Panasonic
Silver og
Toshiba
Verslunin
ísafiröi sími 3103
Aldursflokkamótið í sundi:
Bolvíkingar hrundu veldi Ægis
Vestri varð í 4.-5. sæti
Aldursflokkamótið í sundi
var haldið í Vestmannaeyjum
um seinustu helgi. Vakti
frammistaða Bolvíkinga mikla
athygli, en þeir unnu mótið eftir
mjög harða keppni við sundlið
Ægis og þykja það mikil tíðindi
í sundheiminum. Kom flestum
á óvart hve sterku sundfólki
Bolvíkingar eiga nú á að skipa.
Bestum árangri Bolvíkinga
náði tvímælalaust hinn efnilegi
Símon Þór Jónsson, en hann
setti eitt íslenskt drengjamet er
hann synti 100 m flugsund á
tímanum 1:09,10. Hann sigraði
einnig í 100 m bringusundi og
200 m fjórsundi.
Á hæla hans kom Hannes
Már Sigurðsson, en hann sigr-
aði í 100 m skriðsundi og varð
annar í 4 greinum. Ásta Hall-
dórsdóttir sigraði auðveldlega í
100 m flugsundi.
Yngri krakkarnir stóðu sig
einnig vel og urðu þeir Ástmar
Ingvarsson og Rögnvaldur
Ólafsson aldursflokkameistar-
ar. Ástmar í 50 m flugsundi og
Rögnvaldur í 50 m bringusundi.
Sundfólkið úr Vestra á Isa-
firði stóð sig einnig vel, varð í
4.—5. sæti samanlagt. Þar var
Ingólfur Arnarson fræknastur,
vann 100 m skriðsund pilta og
200 m fjórsund. Þá var Bára
Guðmundsdóttir fljótust allra
telpna í 100 m bringusundinu.
Bolvíkingar fengu 178,5 stig
á mótinu, Ægir 166,8, HSK 116
og Vestri 81,3. Þjáifari Bolvík-
inga er hinn góðkunni sund-
maður Hugi Harðarson. Ólafur
Gunnlaugsson hefur veg og
vanda af þjálfun ísfirðinganna.
Við óskum sundfólkinu
hamingju með titlana.
til
Stjórn verka-
mannabústaða:
Engin fyrir-
greiðsla
„Við fáum ekki leyfi til að
byggja verkamannabústaði. Það
strandar raunverulega á Hús-
næðismálastofnun ríkisins. Hún
hefur aldrei getað staðið við lög
um verkamannabústaði og bygg-
ingarsjóður verkamanna er í al-
gjöru svelti. Á sama tíma ergefið
í skyn að hleypa eigi inn nýjum
byggingarflokkum. Reynslan af
byggingu sölu- og leiguíbúða hef-
ur sýnt, að raunverulega er kom-
ið í veg fyrir það, að á sama tíma
séu byggðir verkamannabústað-
ir.“
Þetta sagði Pétur Sigurðsson,
sem á sæti í stjórn verkamanna-
bústaða á ísafirði, þegar Vf leit-
aði upplýsinga um það hvað liði
byggingu 9 íbúða fjölbýlishúss á
lóðinni nr. 55 við Fjarðarstræti,
en umsókn þess efnis barst Hús-
næðismálastofnun ríkisins fyrst
fyrir tveimur árum. Pétur sagði
að öll afgreiðsla málsins hefði
verið með þeim hætti að stofnur.-
inni væri ekki sómi af. „Við
höfum t.d. ekki fengið skrifleg
svör, fyrr en nú um daginn, að
okkur barst bréf um að heimilað-
ur væri tæknilegur undirbúningur
en engin loforð um lán voru hins
vegar gefin.
Það er byggingarsjóður
verkamanna, sem fjármagnar
þessar framkvæmdir, en sjóður-
inn er fjármagnaður af fjár-
lögum. Vf. hafði samband við
Percy Stefánsson framkvæmda-
Síðsumar á Silfurtorqi
_■ | ■■ | .« i | r m m ■ $C æ ææ m m / f ,
— mikil skemmtidagskrá fyrirhuguð 10. og 11. ágúst
Síðsumar á Silfurtorgi er heiti
dagskrár sem hin nýstofnuðu
Ferðamálasamtök Vestfjarða
gangast fyrir dagana 10. og 11.
ágúst n.k. Þar verður ýmislegt
til skemmtunar.
Dagskráin hefst kl. 15 föstudag-
inn 10. ágúst með markaði á torg-
inu og mun hljómsveitin KAN
leika þar nokkur lög. KI. I7
skemmtir leikhópurinn Svart og
sykurlaust, hestamenn munu gefa
fólki kost á að bregða sér á bak og
hraðbátar fara með þá sem þess
óska hring á Pollinum. Kl. 18
opnar Hótel ísafjörður ölstofu og
framreiðir smárétti með. Kl. 21:30
um kvöldið hefst síðan dansleikur
að Uppsölum, KAN leikur.
Á laugardeginum verður einnig
fjölbreytt dagskrá. Hefst hún kl.
13:00 með því að opnuð verður
vinnustofa fyrir börn í Gagn-
fræðaskólanum. Leikhópurinn
Svart og sykurlaust föndrar með
krökkunum til kl. 17, en þá verður
farið í skrúðgöngu inn á Silfurtorg.
Milli kl. 15 og 16 verður markaður
stjóra sjóðsins og kvað hann það
staðreynd, að rólega gengi. „En
við hjá Húsnæðismálastofnun
gerum eins mikið og við getum
miðað við það fjármagn, sem við
fáum og höfum til skiptanna."
Hann sagði að engar nýjar fram-
kvæmdir væru fyrirhugaðar á
þessu ári, hvorki á ísafirði né
annars staðar á landinu. Það
besta sem þeir hefðu getað gert í
bili, var að senda fyrrgreint bréf
og láta menn vita að þetta mál
væri komið inn í kerfið.
á torginu og mun hin landskunna
hljómsveit Grafík þá seiða fram
einhverja tóna. Kl. 16 verða bíla-
sýningar, útileikir og kaffisala í
Faktorshúsi. Einnig verða hestar
og hraðbátar á kreiki. Kl. 18 opnar
ölstofan aftur og kl. 20 leggur
Fagranesið úr höfn með matar-
Patreksfjörður:
Leikskóli á
lokastigi
ísfirðingar eru ekki einir um
að basla við leikskólagerð. Á
Patreksfirði hefur verið leikskóli
í smíðum undanfarin fjögur ár,
sem í sjálfu sér er ekki átakan-
lega langur tími. Nú er nefnilega
verið að leggja síðustu hönd á
smíðina, — reyndar stóð til að
opna 1. maí s.l., en vegna skorts
á iðnaðarmönnum dróst verkið
á langinn, eins og oft vill verða.
Nú sýnist mönnum afturámóti að
hægt muni verða að taka leik-
skólann í notkun um eða eftir
mánaðamótin.
Að sögn Úlfars Thoroddsen,
sveitarstjóra, er þetta samskonar
leikskóli og í Bolungarvík. Gólf-
flötur er 264 ferm. og skólinn
rúmar 35 börn í tveimur deildum.
Síðastliðin 3 ár hefur félagsheim-
ilið verið notað sem leikskóli. Þar
hafa komist fyrir um 40 börn og
sagði Úlfar að yfirleitt hefði verið
hægt að fullnægja eftirspurn. Og
svo hafa blessuð börnin létt undir
með félagsheimilinu, sem var
ekki of fjáð frekar en önnur fél-
agsheimili.
gesti. Dansað verður um borð við
harmonikuleik og komið til baka
kl. 23. Kl. 21:30 hefst svo dansleik-
ur með Grafik að Uppsölum.
Hraðfrystihúsinu í Hnífsdal veitt viðurkenning
Eins og greint hefur verið frá
í Vf, þá var Hraðfrystihúsið hf. í
Hnífsdal eitt af fimm fyrirtækj-
um hér á landi, sem voru til-
nefnd til viðurkennngar frá
Coldwater fyrir góða fram-
leiðslu fiskafurða á síðasta ári.
Á mánudaginn var frystihúsinu
veittur viðurkenningarskjöldur
og af því tilefni bauð fyrirtækið
starfsfólki og öðrum velunnur-
um sínum til veislu.
Magnús Gústafsson forstjóri
Coldwater afhenti skjöldinn og
þakkaði góðar móttökur. Magnús
sagði að á Bandaríkjamarkaði
greiddu menn fyrir íslenskan fisk á
því verði sem best fengist fyrir fisk
þar. Að því hefði verið unnið með
kynningu, að starfsfólkið hefði
með gæðakröfum og réttri með-
höndlun tekist að búa til vöru, sem
væri í hæsta gæðaflokki. Þetta
væri aðalsmerki Hraðfrystihússins
í Hnífsdal.
Einar Garðar Hjaltason verk-
stjóri veitti viðurkenningunni við-
töku fyrir hönd fyrirtækisins.
Hann sagðist tala fyrir munn
starfsfólksins þegar hann sagði
„Fyrir okkur er þetta, það sem við
höfum verið og erum alltaf að
stefna að.”
Hraðfrystihúsið í Hnífsdal hefur
einu sinni áður hlotið slíka viður-
kenningu, en það var fyrir árið
1981.