Vestfirska fréttablaðið - 02.08.1984, Qupperneq 1
36. tbl. 10. árg.
vestfirska
2. ágúst 1984
fRETTABLASID
FULL BUÐ
AFNÝJUM VÖRUM
OPIÐ TIL KL. 18:30 FÖSTUDAG
Verkalýðsfélögin á Vestfjörðum:
Það varprúðbúið fólk fyrir utan Hótel ísafjörð á föstudaginn.
Uppákoma á föstudaginn
Á föstudaginn efndu nokkur
ungmenni frá ísafirði og víðar
til uppákomu á grasfletinum
fyrir framan Hótel ísafjörð.
Brugðið var á leik í gervi há-
stéttarfólks og menningarvita.
Sér til fulltingis hafði þetta
fólk þjóna, einkabílstjóra og
fiðluleikara. Skálað var í
kampavíni og skvaldrað við
undirleik undurblíðra fiðlu-
tóna. Að endingu ók fólkið á
brott í einkabílum og þar með
var þessari skemmtilegu uppá-
komu lokið.
Launaliðum kjara-
samninga sagt upp
Átta verkalýðsfélög á Vest-
fjörðum hafa sagt upp launalið-
um kjarasamninga frá og með 1.
september. Á félagsfundi
Verkalýðsfélagsins Baldurs á
ísafirði á mánudaginn, var sam-
þykkt samhljóða, að segja upp
launaliðum samninga félagsins
við vinnuveitendur. Jafnframt
var samþykkt að segja upp á-
kvæðisvinnusamningi í fiskiðn-
aði og rækjuverksmiðjum.
í fundarsamþykkt segir að
fundurinn telji óhjákvæmilegt
að verkafólk noti þann rétt, sem
samningarnir frá því í febrúar
s.l. gefa, til að knýja fram leið-
réttingu á þeim kaupmætti sem
þá var samið um.
„Hinir hógværu samningar
(3% launahækkun) sem gerðir
voru í febrúar, áttu að tryggja
kaupmátt eins og hann var á 4.
ársfjórðungi 1983. Vegna lof-
orða stjórnvalda um að sá
kaupmáttur yrði tryggður út
samningstímabilið, þ.e. til 15.
apríl 1985, var fallist á að eng-
in verðtrygging yrði á samn-
ingnum.
Neyðarástand í leiguíbúðamálum:
Fólk fegið að fá eitthvert húsnæði
Um alllangt skeið hefur ríkt
neyðarástand í leiguíbúðamál-
um á ísafirði. Framboð leiguí-
búða er nánast ekkert og bygg-
ing leiguíbúða er fyrirbæri, sem
varla þekkist á ísafirði. Á meðan
atvinna hefur verið næg og fólk
hefur viljað koma og setjast hér
að, þá hafa margir orðið frá að
hörfa eða að sætta sig við að búa
í ófullnægjandi húsnæði og/eða
við óviðunandi kringumstæður.
Vf hafði samband við nokkra
aðila, sem með beinum eða ó-
beinum hætti tengjast þessum
málaflokki. En fyrst slógum við
á þráðinn til fólks sem leitað
hefur eftir leiguhúsnæði, og alls
staðar var sami tónninn.
„Það kom ekkert út úr því.
Þau fengu engin tilboð. Þau eru
hérna inni á heimili foreldra og
sjá fram á að svo verði áfram,"
sagði kona um húsnæðislaust
par hér í bæ.
„Við erum búin að leita síðan
í apríl og höfum nú gefist upp.
Maðurinn minn var búinn að
ráða sig á sjó og við vorum
staðráðin í að flytja til Isafjarð-
ar. En enga íbúð var að fá, svo
ekkert varð úr því,“ sagði kona
nokkur, sem nú býr í Reykjavík.
UpPlýsZeda'boa,
Har-
liggur
ÍBÚÐ ÓSKAST
Ungt, barnlaust og reglusamt
par óskar eftir
íbúð _
4,a'
«"«9° AST
ÍBÚÐ — HERBERGI
Herbergi eða lítil ibúð óskast
á leigu sem fyrst. Er á göt-
unni.
ÁGÖTUSvantar I** *
OkKur braOV\. áqústn.k.
.—. oa ntei ýyy “s39
ÍBÚÐ ÓSKAST
Óska eftir 3ja herbergja íbúð
á leigu frá og með 1. sept-
ember. Hef til skipta íbúð í
Hafnarfirði.
Upplýsingar i síma 4244.
Nokkrar húsnæðisauglýsingar
„Við vorum búin að reyna
lengi en það gekk ekki. Það var
ansi skítt, því við gátum fengið
góða atvinnu,“ sagði karlmað-
ur, sem vildi setjast hér að.
„Ég er búinn að bíða með
húsgögnin mín á hafnarbakk-
anum í mánuð og fæ enga íbúð.
Ég sé ekki fram á að úr hús-
næðisvanda mínum leysist í
bráð,“ sagði karl, sem verður að
sætta sig við að búa á vinnustað
sínum.
Að sögn Haraldar L
aldssonar, bæjarstjóra,
fyrir mikill fjöldi umsókna um
leiguíbúðir hjá Bæjarsjóði. Það
fólk, sem vantaði leiguhúsnæði,
væri úr öllum stéttum bæjarfé-
lagsins — bæði þeir sem ekki
virtust hafa mikil fjárráð og svo
embættismenn og aðrir slíkir.
„Hins vegar getur sveitarfélagið
engan veginn brugðist við
þessu. Það hefur verið litið svo á
að við ættum ekki að fjárfesta í
íbúðum til að leigja út á al-
mennum húsaleigumarkaði,“
sagði Haraldur. Ennfremur
sagði hann, að sveitarfélagið
hefði eignast þær félagslegu í-
búðir, sem það þyrfti að eignast
samkvæmt lögum um leigu- og
söluíbúðir.
I lögum um húsaleigusamn-
inga segir að í hverjum kaup-
stað skuli vera húsaleigunefnd,
sem bæjarstjórn kjósi til 4ra ára
í senn. Hlutverk þeirra er m.a.
að veita leiðbeiningar um á-
greiningsefni leigusala og
leigutaka. Með breytingum á
þessum lögum s.l. vor, þá segir-
einnig, að bæjarstjórnir skuli í
samvinnu við húsaleigunefndir
láta fara fram á 4ra ára fresti,
könnun á fjölda leigjenda og
framboði á leiguhúsnæði. Nið-
urstöður slíkra kannana skulu
sendar til félagsmálaráðuneyt-
isins.
Halldór Jónssdn, sem sæti á í
húsaleigunefnd á ísafirði, sagði
að starf nefndarinnar væri ein-
ungis fólgið í því að taka við
kvörtunum í sambandi við
leiguhúsnæði bæjarins. Hins
vegar væru kvartanir fátíðar, þó
svo að ástand margra leiguí-
búða bæjarins væri fyrir neðan
allar hellur. Fólk væri aðeins
fegið því að fá eitthvert hús-
næði, slíkt væri ástandið í
leiguíbúðamálum. Hann sagði
að engin könnun á framboði
leiguhúsnæðis og fjölda leigj-
enda hefði farið fram.
í húsnæðisvanda sínum hefur
fólk gripið til ýmissa leiða og í
samtali við Vf. sagði Arnar Geir
Hinriksson, lögfræðingur og
fasteignasali, að daglega væri
hringt í sig og spurt um leiguí-
búðir. Þó væri þetta alls ekki á
hans könnu. Hann kvað þetta
mikið vera utanbæjarfólk, sem
vildi setjast hér að og í byrjun
búa í leiguhúsnæði.
Samningurinn var því tví-
hliða, verkafólk tók á sig veru-
lega kjaraskerðingu í eitt og
hálft ár, en stjórnvöld ætluðu á
móti að tryggja samninginn og
töldu að þá fengju þeir nægan
tíma til að ná varanlegum bata í
efnahagsmálum þjóðarinnar.“
Fundurinn telur að verkafólk
hafi staðið við sinn hluta samn-
inga og krefst þess að viðsemj-
endur geri slíkt hið sama.
Um helgina fór fram alls-
herjaratkvæðagreiðsla félags-
manna í Verkalýðsfélagi Bol-
ungarvíkur. Þátttakendur í at-
kvæðagreiðslunni voru 41. 38
samþykktu uppsögn kjara-
samninga en 3 voru á móti.
Önnur verkalýðsfélög, sem
hafa samþykkt að segja upp
launaliðum samninga land-
verkafólks eru félögin á
Hólmavík, Þingeyri, Bíldu-
dal, Flateyri, Suðureyri og Pat-
reksfirði. Einnig hafa Verslun-
armannafélag ísafjarðar og
Verslunarmannafélag Bolung-
arvíkur samþykkt uppsögn.
Fólksfiótti""'
frá Flateyri
„Frá 1. desember hafa 6
fjölskyldur flust héðan var-
anlega eða eru u.þ.b. að
flytja. Að auki munu 4 fjöl-
skyldur fara héðan í haust
um stundarsakir. Þetta eru
alls um 40 manns,“ sagði
Eiríkur Finnur Greipsson,
oddviti Flateyrarhrepps að-
spurður um fólksflótta frá
Flateyri.
Eiríkur kvað aðalorsakir
brottflutnings nú vera
samdrátt í atvinnu, minnk-
andi yfirtíð og óöryggi í at-
vinnulífinu. Frystihúsið
væri að stoppa og togarinn
væri langt kominn með
kvótann. Ennfremur vís-
uðu margir til þess að ó-
dýrara væri að lifa í
Reykjavík. Orsakir þess að
4 fjölskyldur flytja í haust,
eru þær að í þeim er fólk
sem hyggur á nám í öðrum
byggðarlögum. Eiríkur
sagði að alltaf væri mikil
hreyfing á fólki og að ann-
að kæmi í staðinn fyrir þá
sem færu. „En við hljótum
að keppa að því að auka
öryggi og fjölbreytni í at-
vinnumálum, því það er
veruleg þörf á því að hafa
áhyggjur af þessu.“