Vestfirska fréttablaðið - 16.08.1984, Page 1
VE 38. tbl. 10. arg. 1 m istfirst -n ■ U 16. ágúst1984
FRÉ1 'TABL
EjMSKI ■ F tl|J|
15tegundir
af fallegum
ungbarna
skóm
Stærðir frá 17 til 27.
SinarQuðfcymszon k ý
7200 - if 15 Bol uncja’iúík
Tilraunaeldi að
hefjast á Reykjanesi
Samningaviðræður bæjar-
stjórnar ísafjarðar og Orkubús
Vestfjarða um það hvorum að-
ilanum orkuréttindi í Reykja-
nesi til heyri, standa enn yfir.
Hinsvegar hefur ísafjarðar-
kaupstaður heimilað fyrirtæk-
inu íslax hf. og Pétri Bjarnasyni
að hefja tilraunaeldi f Reykja-
nesi og að nýta í því skyni sjálf-
rennandi heitt vatn í tvö ár.
Talið er að Orkubúið muni ekki
blanda sér í það mál.
Að sögn Kristjáns Jóakims-
sonar hjá Norðurtanganum hf.,
verður þessi tilraun gerð til að
athuga vaxtarforsendur og
prófa hluti eins og t.d. að
blanda heitu vatninu beint í sjó,
en hætt er við að í heita vatninu
séu efni, sem fiskurinn ekki
þolir. Ætlunin væri að athuga
það, hvort fiskurinn þoli þessa
beinu íblöndun í sjóinn. Krist-
ján sagði að með þessari tilraun
væri verið að reyna að ná í
ýmsar grundvallarforsendur
áður en farið yrði í að leggja
drög að einhverju stærra.
„Síðan ætlum við að reyna að
koma út flotkví þarna við
Reykjanesið í haust með það í
huga að ala þar fisk í sjónum í
flotkvíum frá júníbyrjun og
fram á haust. Við verðum ekki
með fisk í þeim núna, heldur
verður ýmislegt athugað áður
en tekin er áhætta með fisk og
fjármuni,“ sagði Kristján.
Að lokum sagði Kristján, að
ef ekki hefði verið samþykkt að
leyfa tilraunaeldi nú, hefði það
þýtt seinkun í heilt ár eða jafn-
vel lengur, því þessi tilraun
þyrfti helst að fara fram yfir
veturinn þannig að hægt væri
að halda henni áfram um sum-
arið.
Erkvótinn
að klárast
Nú um þessar mundir hef-
ur nokkuð verið rætt og ritað
um kvótamál og fréttir að
berast um það að ýmsir séu
að klára kvótann. Vestfirska
fréttablaðið fór á stúfana og
kannaði hvað togarar á
Vestfjörðum eiga eftir af
kvóta. í ljós kom að kvótinn
er sumsstaðar að klárast, þó
að allvíða séu líkur á að hægt
verði að treina hann út árið
og halda þannig uppi fullri
atvinnu. Verst virðist ástand-
ið vera á Patreksfirði, BHdu-
dal, og Súðavík, en á öllum
þessum stöðum sjá menn
fram á lokun eftir 2 til 3
mánuði. Þá er óljóst hvenær
vinnsla stöðvast á Þingeyri
þar sem ekki reyndist unnt að
fá upplýsingar um það
hvernig sókninni yrði hagað
á næstunni. Einnig er búist
við lokun hjá Hraðfrystihús-
inu í Hnífsdal.
Kvennalið ÍBÍ:
Tryggðu
örugglega
setu sína
í I. deild
Kvennalið ÍBÍ í knattspyrnu
tryggði örugglega setu sína í 1.
deild, er þær unnu kvennalið
Víkings á heimavelli s.l. sunnu-
dagskvöld. fsafjarðarstúlkurnar
skoruðu hvorki meira né minna
en 5 mörk en lið Víkings ekkert.
Staðan í hálfleik var 2— 0.
Mörkin skoruðu Rósa Valdi-
marsdóttir, Stella Hjaltadóttir,
Margrét Geirsdóttir og Ingi-
björg Jónsdóttir, en hún skoraði
tvö mörk.
I \ Æ
f 'C ]
1i *
Hvað segja útgerðarmenn um aðgerðir ríkisstjórnarinnar
Patreksfjörður:
Afhending
verkamanna-
bústaða
1. ágúst voru afhentar 8
tveggja og þriggja herbergja í-
búðir í verkamannabústöðum
við Sigtún á Patreksfirði. Bygg-
ing íbúðanna hófst haustið
1982. í fyrra var hafin smíði
samskonar 8 íbúða húss, sem á-
ætlað er að afhent verði í maí á
næsta ári.
Að sögn Úlfars Thoroddsens,
sveitarstjóra Patrekshrepps, er
mikil ásókn í þessar íbúðir á
Patreksfirði, enda væri 90% af
kostnaðarverði lánað.
Skref í rétta átt, en alltof
— segir Einar K. Guðfinnsson
Margrét Geirsdóttir
„Við erum mjög ánægðar
með leikinn. Það er langt síðan
við höfum unnið svona stórt."
sagði Margrét Geirsdóttir við
blaðamann Vf. „Þetta þýðir að
ef við vinnum eða náum jafn-
tefli í leiknum við KR. þá höf-
um við náð 4. sæti." Sá leikur er
í kvöld á útivelli.
Vestfirska fréttablaðið leitaði
álits útgerðarmanna á Vest-
fjörðum á aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar til lausnar vanda
útgerðar í landinu. „Skref í rétta
átt, en ákaflega stutt,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson í Bolung-
arvík, og þessi orð hans eru
jafnvel einkennandi fyrir viðhorf
útvegsmanna til aðgerðanna.
Einar Oddur Kristjánsson
hjá Hjálmi á Flateyri sagði að
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
þýddu 2% aukningu á tekjum
en útgerðin væri eftir sem áður í
buliandi tapi, þó að það munaði
um hverja prósentu sem þeir
fengju.
„Þeir saka okkur um að vera
með of mörg og of ný skip, of
mikla fjárfestingu, en það er
kjaftæði," sagði Bjarni Einars-
son útgerðarstjóri á Þingeyri.
„Þetta er ekki það sem að er í
sjávarútveginum. Það sem að er
er það að fjármagnið er ann-
arsstaðar í þjóðfélaginu en hjá
þeim senr raunverulega búa það
til," sagði Bjarni ennfremur.
„Þessar aðgerðir miða ekkert
að því að bæta reksturinn. Þetta
eru skuldbreytingar til að
bjarga mestu skuldunum. gefa
gálgafrest. Það bætir ekkert
reksturinn í dag," sagði Guð-
mundur Guðmundsson hjá
Hrönn hf.
Eins og fram kemur annars
staðar í blaðinu segir Einar K.
Guðfinnsson að hann hafi ekki
mestar áhyggjur af atvinnuleysi
vegna kvótans, í Bolungarvík.
„Ég hef meiri áhyggjur af fjár-
hagsvandanum sem við er að
glíma í sjávarútvegi í dag. Ég tel
að fyrirtækjum í sjávarútvegi og
starfsfólki þeirra stafi meiri
hætta af hinni veiku fjárhags-
stöðu fyrirtækjanna heldur en
takmörkunum sem stafa af
kvótanum. Og ég er þeirrar
skoðunar að sé unr að ræða
stærsta byggðamál Vestfirð-
inga, kannski fyrr og síðar, að
það reynist unnt að snúa við
blaðinu og rétta af fjárhags-
stöðu fyrirtækjanna. Það er ljóst
að byggðirnar hér, þær lifa og
dafna eingöngu í takt við af-
komu fyrirtækjanna og sömu
StUtt
sögu er að segja um afkomu
starfsfólksins." Einar sagði að
olíuverð væri óeðlilega hátt en
langstærsta málið væri, að það
þyrfti að koma til umtalsverð
tekjuaukning inn í sjávarútveg-
inn. „Það er ljóst að ýmis fyrir-
tæki og aðilar í þjóðfélaginu
hafa komist vel af á sama tíma
og það er ójafnvægi í innflutn-
ingi og útflutningi. Það er verið
að færa til fjármagn frá út-
flutningsgreinum, þ.á.m. sjá-
varútvegi, til innflutnings. Það
ber með einum eða öðrum hætti
að snúa dæminu við. Það eru til
tvær leiðir, millifærsla og geng-
isfelling. Það er auðvitað póli-
tísk ákvörðun hvor leiðin verð-
ur farin."