Vestfirska fréttablaðið - 16.08.1984, Blaðsíða 3
vestíirska
FRETT.'BLADID
Ég hef aldrei sagt að við
munum ekki búa áfram við erfiðleika
— segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
Eftir að hafa rætt við útgerð-
armenn hafði blaðamaður sam-
band við Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar.
Nú sianda sum útgerðarfvrir-
tœki hérfvrir vestan frammi fvrir
því að vera búin með kvótann,
kannski í næsta mánuði. Stend-
ur hugsanlega til að auka við
kvótann?
„Nei, það stendur ekki til.
Það var tekin ákvörðun um það
á síðastliðnum vetri að bæta við
10*1. Ég taldi nauðsynlegt að
gera það eftir þær upplýsingar
sem ég fékk frá hafrannsóknar-
stofnuninni og einnig vegna
þess að menn óttuðust að at-
vinnuástand yrði erfitt. Ég er
þeirrar skoðunar að það hafi átt
að veita, almennt séð, nægilegt
svigrúm til að halda uppi, svona
bærilegri atvinnu um landið.
Það eru engar upplýsingar frá
okkar fiskifræðingum sem
benda til þess að það sé réttlæt-
anlegt að bæta við verulegu
magni. Einnig verður að líta á
þá staðreynd að það eru miklar
birgðir sem hafa safnast upp á
mörkuðunum og það er ekki
skynsamlegt að bæta miklu þar
við, þannig að ég get sem sagt
fullyrt að það er ekkert sem
bendir til þess að þar verði
neinu breytt um.“
Nú eru til lítil pláss hér fyrir
vestan þar sem menn sjá fram á
stöðvun í september og ekkert
tekur við. H vað heldurðu að sé til
ráða á svona stöðum?
„Ja, ég vil aðeins segja það að
viðkomandi aðilar hafa að
sjálfsögðu vitað að hverju hefur
stefnt. Og ég undrast það einnig
að menn skuli ekki draga úr afla
á sama tíma og menn ráða vart
við að vinna hann. Menn hafa
reynt að skipuleggja veiðarnar
og vinnsluna á hinum ýmsu
stöðum við landið og aðlagað
sig þessum aðstæðum og ég
bendi einnig á það að togararnir
á Vestfjörðum fengu kvóta
miðað við reynslu undangeng-
inna ára og þessir kvótar voru
þeir hæstu hjá togurunum við
landið.“
Einar K. Guðfinnsson sagði í
samtali við Vfað hann hefði ekki
áhvggjur af þessu kvótamáli
varðandi atvinnulíf í Bolungar-
vík eins og er, það vœri ekki
rekstrargrundvöllur fyrir útgerð-
ina og það vœri miklu alvarlegra
mál fyrir útgerð og atvinnulíf
fó/ksins i þessum sjávarplássum.
Halldór Ásgrímsson
sjá varútvegsráðherra
„Já, ég er alveg sammála því
að það er mjög alvarlegur hlut-
ur, en ég bendi hinsvegar á það
að við höfum nú gert mjög
niikið til þess að lagfæra þenn-
an rekstrargrundvöll. Við búum
við tímabundinn vanda, von-
andi, vegna minnkandi afla og
erfiðleika á markaði og við fá-
um ekki góðan grundvöll í
sjávarútvegi fyrr en þessar að-
stæður lagast."
Nú segja vmsir útgerðarmenn að
þessar aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar séu ekki neitt til þess að bœta
úr rekstraraðstœðum útgerðar-
innar. Þetta séu eingöngu skuld-
brevtingar og breyti því ekki að
útgerðin er í bullandi taprekstri.
„Jújú, en í fyrsta lagi er verið
að endurgreiða sem samsvarar
10'? af olíukostnaði sem að
hefur nú þýðingu. Nú auðvitað
hefur skuldbreyting verulega
þýðingu fyrir menn til þess að
dreifa þeim vanda sem við
stöndum frammi fyrir, yfir len-
gra tímabil. í þeirri von að við
búum við meiri afla á næstu ár-
um. Einnig bendi ég á bætur úr
Aflatryggingasjóði til alls
skipaflotans. Allt hefur þetta
sína þýðingu en ég hef aldrei
sagt að við munum ekki búa á-
fram við erfiðleika. Menn mega
bara ekki reikna með því að
þetta verði leyst í eitt skipti fyrir
öll, af stjórnvöldum. Það verða
allir að takast á við þessi
vandamál. En mér finnst
stundum að útgerðarmenn og
fiskverkendur vilji beina þessu
fyrst og fremst til ríkisstjórnar-
innar, að þetta sé bara vanda-
mál ríkisstjórnarinnar. Það væri
betur ef það væri svo einfalt."
Einar K. Guðfinnsson sagði við
okkur að það vœri Ijóst, að á
meðan útgerðin vœri rekin með
bullandi tapi, kæmust sumir all-
vel af og átti þá við að útflutn-
ingsgreinar töpuðu á kostnað
innflutnings. Til bóta vœru tvœr
leiðir fœrar, millifærslur eða
gengisfelling. Megum við eiga
von á gengisfellingu?
„Nei."
Svo við víkjum nú að öðru.
Halldór Hermannsson sendi þér
áskorun um að mœta hér á fund
á Isafirði til að rœða um sjávar-
útvegsmál. Ætlar þú að taka
þessari áskorun?
„Ég hef lengi ætlað mér að
koma til ísafjarðar og það er nú
svo með minn tíma að það
gengurnú stundum erfiðlega að
skipuleggja ferðir um landið,
því miður. Meðal annars hef ég
sáralítið getað sinnt mínu kjör-
dæmi síðan ég fór í þetta em-
bætti, en ég mun koma til ísa-
fjarðar og halda þar fund. Trú-
lega getur það ekki orðið fyrr en
í byrjun september og Halldór
Hermannsson er að sjálfsögðu
velkominn þangað eins og allir
aðrir."
Megitm við þá gera ráð fyrir þér
Itér í bvrjun september.
„JáT
MEÐ EÐA ÁN HÚSGAGNA
Dagný Björk, danskennari og dóttir hennar
(2ja ára) óska eftir eins til 3ja herbergja íbúö
frá 20. september fram í desember. Góðri
umgengni heitið.
Upplýsingar í síma 91-44367 eftir kl. 19:00.
Útgerðarmenn sjómenn
Til sölu þorskanetaslöngur
6 einn fjórða tomma. Gott verð.
Seljum einnig uppsett net eftir pöntunum.
Upplýsirigar í síma 4927.
DANSLEIKUR
í Góðtemplarahúsinu
laugardagskvöld 18. ágústkl. 23:00—03:00
Borðapantanir frá kl. 22:30
Komið og skemmtið ykkur í Gúttó
Asgeir og félagar
TIL S0LU
22 feta flugfiskur.smíðaár ‘78
með Volvo Penta 135 HÖ diesel vél,
árgerð ‘82.
Talstöð CB, dýptarmælir og vagn.
Upplýsirigar í síma 3806 ísafirði
og 7245 Bolungarvík.
\ FASTEIGNA-]
i VIÐSKIPTI i
■ ÍSAFJÖRÐUR:
J Lyngholt 11, rúmlega fokhelt J
I einbýlishús ásamt tvöföldum J
I bílskúr.
J Stórholt 11, 3ja herb. íbúð á J
I 2. hæð.
■ Urðarvegur 80. Nú eru 4 ■
[ íbúðir óseldar í fjölbýlishús- J
j inu sem Eiríkur og Einar Val- j
I ur s.f. eru að byggja. Um er að |
I ræða 3 3ja herb. og 1 2ja I
I herb.íbúð sem afhendast til- ■
J búnar undir tréverk og máln- J
J ingufyrir 1. sept. 1985.
I Aðalstræti — Skipagata, ■
J 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í J
J sambýlishúsi sem Guðmund- j
I ur Þórðarson er að byggja. |
I íbúðirnar verða afhentar til- |
I búnar undir tréverk og máln- I
J ingu fyrir 1.10.1985.
I Hafraholt 18, raðhús átveim |
I hæðum, ásamt bílskúr. Laust I
J fljótlega.
I Stórholt 13,4ra herb. íbúð á |
I 2. hæð, ásamt bílskúr. I
I Hrannargata 10, 3ja herb. |
I íbúð á efri hæð. Laus 1. sept. |
J Sundstræti 29, 2ja herb. J
j íbúðá2. hæð. íbúðinerlaus. |
■ Strandgata 5a, lítið einbýlis- *
J hús. Laust 1. sept.
I Strandgata 5, ca. 120 ferm. I
I íbúð á neðri hæð í tvíbýlis- I
J húsi. Laus fljótlega.
I Silfurgata 12, lítið einbýlis- I
■ hús. Laust fljótlega.
I Góuholt 5, rúmlega fokhelt |
I 135 ferm. einbýlishús ásamt I
■ bílskúr.
I Stekkjargata 4, lítið einbýlis- |
I hús. Selst með góðum |
■ kjörum, ef samið er strax. I
j BOLUNGARVÍK:
J Holtabrún 3,130 ferm. ófull- J
. gert einbýlishús. Skipti mögu- J
I leg á eldra húsnæði í Bol- j
I ungarvík. |
J Traðarland 10, 112 ferm. J
I einbýlishúsásamtbílskúr. Út- |
I borgun aðeins 50%, eftir- |
I stöðvar á 6 — 8 árum I
J verðtryggt.
I Dísarland 14,156 ferm. fok- |
I helt einbýlishús ásamt tvö- I
J földum bílskúr. Verð kr. ■
J 1.100.000. Útb. kr. 550.000., J
I eftirst. á 6 árum verðtryggt. |
J Höfðastígur 18, ca. 140 1
J ferm. einbýlishús ásamt bíl- J
j skúr og stórri lóð.
■ Stigahlíð 2, 2ja herb. ibúð á ■
J jarðhæð.
! ARNAR GEIR !
i HINR1KSS0N hdl. |
I Silfurtorgi 1 I
ísafirði, sími 4144
l„ — ......................J
TIL SÖLU
Pólskur Fiat Station. árg.
1978
Verðtilboð.
Upplýsingar í síma 3894 eftir
kl. 20:00
ÓSKA EFTIR
Öska að kaupa notuð skrif-
stofuhúsgögn og innrétting-
ar
Fyrirtækjaþjónustan
Bolungarvík sími 7570
FUNDIÐ
Fundist hefur karlmannsúr
(Kinzle).
Eigandi hringi í síma 4185.