Vestfirska fréttablaðið - 16.08.1984, Side 7
I vestfirská I
FRETTABLAHID
Við munum berjast
með kjafti og kióm
„Það er Ijósara en skýra
þurfi fyrir mönnum að land
sem undirgengst á venju-
legum tímum, friðartímum
að vera hersetið af erlendu
ríki, þjóð sem ekki hefur full
og óumdeild réttindi til yfir-
ráða innan landamæra
sinna, er ekki lengur full-
valda, hún er ekki sjálfstætt
ríki, hvert stjórnarform sem
hún þykist hafa að öðru
leyti, er hún og verður lepp-
ríki, ánauðugt ríki.
H.K.L. Sjálfsagðir hlutir,
okt. 1945
Það hefur ekki farið fram-
hjá neinum að Bandaríkja-
menn hyggjast senn endur-
reisa radarstöðvar þær sem
þeir ráku hér á árum áður á
sitt hvoru landshorninu.
Leiðtogi þeirra og umboðs-
maður í þessu máli hefur
verið Geir Hallgrímsson.
Hefur hann þó verið fremur
loðinn í svörum, má þó ráða
af svörum hans að hann
hefur bandaríska hagsmuni
að leiðarljósi fremur en ís-
lenska og er hann staðráð-
inn í því að verða húsbænd-
um sínum þægur þjónn.
Þegar málið er rætt meðal
almennings fær margur
Vestfirðingur dollaraglýju í
augun og talar af hrifningu
um væntanlega dýrðartíma
þegar allir þyrpast í kana-
vinnu. Geta menn þá vænt-
anlega hætt þeim útgerðar-
taprekstri sem pólitíkusar
fullyrða að sé baggi á þjóð-
inni, og hreiðrað um sig á
spena hjá amerískum.
Víst má það rétt vera að
stöðvar sem þessar kæmu
íslenskum aö einhverju
gagni, en hitt má ekki
gleymast, að þær eru ekki
reistar af tómri umhyggju
fyrir velferð þjóðarinnar.
Það er ekki öryggi íslenska
fiskiskipaflotans sem er í
húfi, heldur varnarhags-
munir Bandaríkjanna. Það
er einfaldlega verið að færa
vígvöllinn út úr bandarískri
landhelgi.
En það skyldu menn vita
að enn er til fólk á Vest-
fjörðum sem er sjálfstæði
þjóðarinnar meira virði en
útborganir í dollurum. Við
erum fólk sem ætlar ekki að
liggja hundflatt undir hverri
ósk amerískra stríðsæs-
ingamanna eins og Geir
Hallgrímsson. Við munum
berjast með kjafti og klóm
gegn því að vestfirsku fjöllin
verði flekkuð erlendum rad-
arskjöldum.
Páll Ásgeirsson
TIL SÖLU
W.V. Rúgbrauð, árg. 1974
Upplýsingar í síma 7405
ÓSKA EFTIR
að kaupa koju, stærð ca. 65
sinnum 1.60
Upplýsingar í síma 4067.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á ÍSAFIRÐI
LAUST STARF
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði óskar að ráða
karf eða konu til starfa á straustofu nú þegar.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra
í síma 3020.
ísfirðingar nágrannar
Erla Ásgeirsdóttir verður með sýnikennslu á
Husqvarna saumavélum mánudaginn
20. ágúst frá kl. 13:00 — 18:00
í verslun okkar.
PÓLLINN HF.
Sími 3792
DRAUMURINN
Verslunin Draumurinn verður með fatnað
til sölu á verðandi mæður
á Hótel ísafirði 24. og 25. ágúst.
Draumurinn
Kirkjuhvoli Reykjavík
Laust skrifstofustarf
Skrifstofustúlka óskast. Góð
vélritunarkunnátta nauðsynleg. Þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Endurskoðunar- og bókhaldsstofa
Guðmundar E. Kjartanssonar
Silfurgötu 1, ísafirði sími 4066
Gríptu tækifærið
Herra
kulda-
úlpur
[ ~ 1/1 í VrrT /li V —1 T~r^ Jal—^ ^ r~ir l^ítilv ijSfffflJ T: \/ \ - Jr yT',. /f\ • * li 1 t \ 'J \\V 3 ° 11? f 1 1
25 — 50% afsl. Stórútsala
Vinnu-
fatnaður
í miklu
úrvali
Verslunin hættir. Mikið úrval af góðum vörum
sem nú fást með miklum afslætti.
Þessa og næstu viku.
Látið ekki happ úr hendi sleppa
Verslunm Skemman
Ljóninu, Skeiði —símí4024
jFASTÉÍGNA-S
j VIÐSKIPTI j
J ÍSAFJÖRÐUR:
J 2. herb. íbúðir:
I Túngata 3,2ja herb. íbúð, I
I ca. 65 ferm. á jarðhæð.
J 3 herb. íbúðir:
I Fjarðarstræti 38 n.h., 3 I
I herb. 70 ferm. íbúð í fjórbýl- I
I ishúsi. Mjög rúmgóður kjall- ■
■ ari. Hagstæðir greiðsluskil- *
J málar.
I Fjarðarstræti 29, 3 herb., I
I 70 ferm. íbúð í vesturenda í I
I tvíbýlishúsi, ásamtlóð. Laus •
J strax.
J 4 — 5 herb. íbúðir:
I Fjarðarstræti 13, 90 ferm. I
■ íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi J
J ásamt tvöföldum bílskúr og J
J garði.
I Túngata 17, 5 herb. íbúð á ■
■ n.h. í tvíbýlishúsi. Laus 1. ■
J ágúst.
I Stórholt 13, 2.h.b., 4 — 5 1
I herb. 110 ferm. íbúð í fjölbýl- I
■ ishúsi ásamt bílskúr. Laus ■
J strax.
I Einbýlishús/Raðhús: |
J 3ja herb. einbýlishús á J
J tveimur hæðum, úrtimbri og (
I forskalað.
J Seljalandsvegur 84a, 3 J
J herb. eldra einbýlishús á J
J einni hæð. Stór lóð.
I Seljalandsvegur 77, 2x128 ■
■ ferm. hlaðið einbýlishús ■
J ásamt bílskúr og góðri lóð.
J Suðursvalir.
I Hlíðarvegur 2 — Sóltún, I
■ 3x32 ferm. 4 herb. einbýlis- ■
J hús ásamt góðri lóð. Skipti í J
J Reykjavík koma til greina.
I Hlíðarvegur 39, 3x60 ferm. I
■ raðhús í góðu standi ásamt ■
■ bílskúr og ræktaðri lóð.
I Góuholt 7, 160 ferm. nýtt |
I einbýlishús ásamt bílskúr. |
J Hafraholt 18,142 ferm. rað- J
J hús ásamt 32 ferm. bílskúr. |
I Tryggvi j
j Guðmundsson j
■ Hrannargötu 2,
■ ísafirði sími 3940
I..—.....................Ji
TIL SÖLU
Morris bassagítar og
Philco þurrkari mjög lítið
notaður.
Upplýsingar í síma 3886
eftir kl. 19:00
TIL SÖLU
Rúm br. 1.20 I. 2 með ný-
legri svampdýnu. Sóf-
aborð, dökkur massífur
viður I. 1.39 br. 59 h. 45.
Hillusamstæða, tvær ein-
ingar, dökkur viður 1.80 á
hæð og 86 cm á breidd
(hvor). Ásamt nokkrum
öðrum hlutum ss. gamall
Elektrolux ísskápur, fryst-
ihólfshurð þarnast lag-
færingar, Ijóst snyrtiborð
með þtískiptum spegli,
selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 4329.
TIL LEIGU
Skrifstofuhúsnæði ca. 20
ferm. ásamt forstofu og
snyrtingu á jarðhæð,
Hrannargötu 8, ísafirði.
Laust frá 15. ágúst n.k.
Upplýsingar gefur Sigurður
Sigurðsson í síma
95-4287 og Brynjólfur Sig-
urðsson í síma 91-73322.