Vestfirska fréttablaðið - 23.08.1984, Page 1
39. tbl. 10. árg.
vestfirska
23. ágúst 1984.
fRETTABLASID
FLUGLEIDIR
Skemmtiferðir
Viðskiptaferðir
Allar ferðir
Umboð Bíldudalur
Innanlands farseðlar
Millilanda ferðir
Allar frekari upplýsingar
Eyjólfur Þorkelsson, sími 2176
Verslunin
ísafirði sími 3103
Panasonic
NV 370 B
Aðeins
kr. 37.300 stgr.
Mikil vanskil í þönkum
— segir Högni Þórðarson útibússtjóri Útvegsbankans
1
! ,,Það eru mikil vanskil í
jbönkum,“ að sögn Högna Þórð-
jarsonar útibússtjóra Útvegs-
Ibankans á fsafirði. „Það eru
leinstaklingar, fyrirtæki og opin-
jberar stofnanir sem standa í
gvanskilum.“
I Högni vildi tiltaka þrennt
Jsem höfuðorsakir vanda bank-
ganna. Það fyrsta sagði hann að
væri mikil birgðasöfnun hjá
fiskvinnslufyrirtækjum sem
bindur mikið fjármagn og á-
berandi hvað greiðslur berast
seint fyrir það sem þó selst.
Annað sagði hann að væri það
hvað sparifjármyndun er hæg,
þrátt fyrir háa raunvexti. Það
síðasta er að vanskil binda
mikið fjármagn og sagði Högni
að bankarnir ættu stórar fúlgur
útistandandi sem að öllu eðli-
legu ættu að vera komnar inn.
„Það gerir það enginn að
gamni sínu að standa í
vanskilum,“ sagði Högni. Það
geta verið ófyrirsjáanleg áföll,
s.s. veikindi, slys o.s.frv. sem
verða til þess að menn eiga erfitt
með að standa við skuldbind-
ingar sínar. Einnig er mjög á-
berandi nú, að um keðjuverkun
sé að ræða, að menn komist í
vanskil vegna þess að þeir fái
ekki greitt það sem þeir eiga
inni hjá öðrum. „En því miður,“
sagði Högni ennfremur, „er of
rnikið um kæruleysi. Það virðist
vera til fólk sem getur keypt sér
sólarlandaferðir en stendur ekki
í skilum með skuldbindingar
sínar. Nú verða menn að fara
varlega. Það er nokkuð um það
að fólk taki lán sem það ræður
ekki við að borga vegna nokkuð
hárra raunvaxta en hinsvegar
eru sparifjáreigendur best settir,
því vextir af innistæðum þeirra
hafa ekki verið hærri frá
stríðslokum."
Heimæðar ryðga
| Frá ritstjórn j
I fjarveru minni mun Krist-I
I ján G. Jóhannsson, við-1
jj skiptafræðingur hafa á hendi J
J ritstjórn með næstu tveimur J
I tölublöðum Vestfirska frétta-J
g blaðsins, hinn 30. ágúst og 6. |
I september. Hinsvegar fellurl
J útgáfa niður 13. september. j
Kristján G. Jóhannsson erj
J lesendum blaðsins að góðu J
I kunnur. Hann starfaði um |
| hríð sem blaðamaður við I
■ blaðið og hefur síðan oft lagt I
J okkur til efni. Einnig hefurj
J hann áður ritstýrt blaðinu íj
J fcrfölium.
Árni Sigurðsson |
Það hefur komið fram tcering
á heimœðum fjarvarmaveitunnar
á ísafirði. Þessi tœringer utanfrá
og kemur fram þar sem rör liggja
í gegnum útvegg.
Jakob Ólafsson hjá Orkubú-
inu sagði að þetta væri sama
vandamál og upp hefði komið
hjá fleiri hitaveitum í landinu.
Þetta hefði komið fram á 2 — 3
stöðum og að þeir væru farnir af
stað í leit að þessum göllum.
Hann sagði að þessa hefði ein-
göngu orðið vart á Eyrinni og
þá í fyrstu áföngunum.
Að sögn Jakobs eru skýring-
arnar á þessu þær að þegar rör-
in eru lögð í gegnum útvegg, þá
er borað gat, eingöngu fyrir
rörið og ekki sett einangrun á
þann hluta rörsins, sem í
veggnum er. Þarna er hætt við
að raki komist að rörinu, því þó
steypt sé að rörinu er erfitt að fá
steypuna til að loða það vel við
gömlu steypuna í veggnum að
ekki geti smogið að því raki.
Þegar vatn kemur að heitri og
óvarinni pípunni ryðgar hún.
Nú er farið að ganga þannig
frá þessum lögnum að það er
vafið utan um með plasti til að
verjast því að vatn komist að
rörinu.
Af samgöngubótum
í Dýrafirði
Við Þingeyrarflugvöll er nú
risin ný flugstöðvarhygging sem
fljótlega verður tekin í notkun.
Mun mörgum hafa þótt tími til
kominn, þar sem sú gamla sem
enn er í notkun, er gamalt stýr-
ishús af skipi og allsendis ófœr
um að taka á móti stórum hópum
fólks.
Blaðamaður Vf. fór vestur á
dögunum til að mynda nýju
flugstöðina og spjalla við Jónas
Ólafsson sveitarstjóra, en hann
er mikill áhugamaður um bætt-
ar flugsamgöngur í Dýrafirði og
á Vestfjörðum öllum.
Jónas sagði að það þyrfti að
lengja flugbrautina um 100 til
150 metra og koma upp lýsingu
við brautina og þá yrði unnt að
fljúga næturflug á Þingeyri. Þar
með yrði flugvöllurinn einnig
mun betur í stakk búinn til að
{ijóna sem varaflugvöllur fyrir
safjörð, en það er ekki mögu-
legt að fljúga næturflug til Isa-
fjarðar á Fokker vegna þrengsla
í aðflugi. Einnig er þess að geta
að ef byggð verður brú yfir
Dýrafjörð, styttist leiðin milli
ísafjarðar og Þingeyrar til
muna, bæði í vegalengd og
tíma.
Vegurinn frá Þingeyri til ísa-
fjarðar er hryllilegur eins og er,
eins og má reyndar segja um svo
marga vegi á Vestfjörðum. Jón-
as sagði t.d. að vegagerðin hefði
Stýrishúsið á Þingeyrarflugvelli.
varla borið ofan í veginn milli
Þingeyrar og Flókalunds í mörg
ár.
En hvað brú yfir Dýrafjörð
varðar, þá hefur Vegagerð rík-
isins reiknað það út að hún sé
hagkvæmari kostur en að nota
veginn fyrir fjörðinn, jafnvel þó
hann verði ekki lagaður. Lík-
lega myndi maður spara sér um
15 mínútur með því að fara yfir
væntanlega brú í stað þess að
krækja innfyrir.
Samkvæmt heimildum Vf. er
hvorki brúin né endurbætur á
flugvellinum í sjónmáli, þar
sem brúin er ekki inni á 3 ára
vegaáætlun sem fékkst sam-
þykkt á Alþingi í vor og hvað
flugvöllinn varðar, þá sagði
Pétur Einarsson flugmálastjóri
að það væru nokkur verkefni
brýnni en þetta á Vestfjörðum
og allt undir fjárveitingavaldinu
komið. Það er því allt útlit fyrir
að Dýrfirðingar og aðrir Vest-
firðingar þurfi að bíða eitthvað
enn eftir þessum samgöngubót-
um.
Seglbrettasiglingar eru mjög að færast í vöxt á íslandi enda er
þetta sjálfsagt spennandi og skemmtileg íþrótt. Nú og ekki vantar
okkur vindinn. Seglbrettaskólinn í Nauthólsvík varmeð námskeið,
um síðustu helgi, á Pollinum á ísafirði og mátti þá sjá ýmsa skraut-
lega tilburði. Meðfylgjandi mynd sýnir einn sem hefur misst jafn-
vægið og er alveg að skella í sjóinn.
Tölvuvogir Pólsins
Póllinn hf. á ísafirði hefur
gert samning við fyrirtæki Þor-
steins Þorsteinssonar í Banda-
ríkjunum um markaðssetningu á
tölvuvogum fyrirtækisins í N-
Ameríku. Póllinn leggur til
framleiðsluleyfi og tækniþekk-
ingu og fær í staðinn prósentu af
sölutekjum, að sögn Ásgeirs Er-
lings Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra Pólsins.
Þeir í Pólnum eiga fullt í
fangi rneð að sinna markaðnum
á Norðurlöndum og telja þeir
því að það komi vel út fyrir fyr-
irtækið að láta öðrum eftir
framleiðsluleyfið í N-Ameríku,
en það hlýtur að teljast þó
nokkur áfangi að komast inn á
markað þar.
Vogin sem um er að ræða er
svokölluð pakkninga- eða
borðavog og sagði Ásgeir að
það væri á dagskrá að veita
Þorsteini framleiðsluleyfi á
fleiri vörutegundum frá Póln-
um hf.