Vestfirska fréttablaðið - 25.10.1984, Page 1
44. tbl. 10. árg.
vestfirska
25. okt. 1984
FRETTABLASIS
Til Reykjavíkur.
Til Akureyrar.
FLUGLEIDIR
VIDEO — EPLIÐ
Nýjar myndir í hverri viku
The year of living dangerously
Oskarsverðlaun sem bosta mynd ársins 1984.
Ég lifi
Christine
Tootsie
Verslunin
Aðrar vinsælar:
James Bond myndir
Pixote og Dynasti í hverri viku.
ísafirði sími 3103
Bæjarstjórn
ísafjarðar:
Frestaði
afgreiðslu
samning-
anna
í gærkvöldi frestaði bæjar-
stjóm ísafjarðar því á fundi
sínum að greiða atkvæði um
nýgerðan kjarasamning
bæjarins og Orkubús Vest-
fjarða við F.O.S. Vest,
„vegna þeirrar nýju stöðu
sem upp hefur komið í stöðu
samningamála,“ eins og seg-
ir í bókun fundarins.
í fyrrakvöld samþykkti
stjóm Orkubúsins samning-
inn með 4 samhljóða at-
kvæðum. Kristinn Jón Jóns-
son fulltrúi iðnaðarráðuneyt-
isins í stjóminni sat hjá þar
sem hann var ekki sáttur við
verðtryggingarákvæði samn-
ingsins.
Iþróttamenn rífa hús
Um síðustu helgi voru rifin
tvö hús á ísafirði, Kaupfélags-
skemman og húsið að Silfurgötu
3. Bjömsbúð hefur keypt húsið
að Silfurgötu 3 og er ætlunin að
þarna verði bílastæði, a.m.k.
fyrst um sinn. ÍBÍ fékk það
verkefni að rífa Kaupfélags-
skemmuna gegn hæfilegri þókn-
un. Ætlunin er að hirða eitthvað
af timbri og járni af húsinu og
nota það til uppbyggingar í þágu
íþróttahreyfingarinnar. f því
sambandi er helst talað um að
byggja úr timbrinu, hús eða
annað, á skíðasvæði ísfirðinga á
Seljalandsdal.
íþróttamenn hafa einnig
fengið það verkefni að rífa hús-
ið að Hafnarstræti 1 og verður
það gert einhverntíma á næstu
vikum. Einhverjir ætluðu að
taka af þeim ómakið og kveiktu
í húsinu á miðvikudaginn í síð-
ustu viku, en það þóttu ekki
heppileg vinnubrögð, svo að
slökkviliðið mætti á staðinn og
slökkti eldinn. Það vakti athygli
um helgina að þátttaka hinna
ýmsu sérráða og félaga, innan
ÍBf var misgóð. Til stóð að
Það var gengið ákveðið og ötullega tíI verks.
peningunum sem fyrir þetta
fengjust, alls 300.000 krónur
fyrir bæði húsin, yrði skipt í
sömu hlutföllum og styrk bæj-
aryfirvalda, milli sérráða og fé-
laga, en nú eru uppi raddir um
að nær væri að fara eftir vinnu-
framlagi.
Tálknafjörður
Bókhaldið komið í lag
— Mikill áhugi fyrir fiskeldi
Vestfirska fréttablaðið hafði
samband við nýráðinn sveitar-
stjóra á Tálknafirði, Brynjóif
Gíslason og spurði hann tíðinda.
Hann sagði að þaðan væri fátt
eitt að frétta og engar slæmar
fréttir. Bókhaldsmál hreppsins,
sem voru nokkuð til umræðu í
sumar vegna óreiðu, eru að
komast í rétt horf og ekkert
hefði komið fram sem benti til
fjársvika af neinu tagi.
Allmikill hugur er í Tálkn-
firðingum að stofna til fiskeidis
og miklar þreifingar i gangi í því
sambandi en ekkert formlegt
enn farið af stað. Á Tálknafirði
eru taldir vera góðir möguleikar
fyrir fiskeldi, jarðhiti og allt
hvað heitir. Við munum fregna
meira af þeim málum síðar.
Bæjarfógetinn á ísafirði:
Lét innsigla spilakassa KRÍ
Bæjarfógetinn á ísafirði hefur
látið loka fyrir rekstur spila-
kassanna í Mánagötu 1.
(Mánakaffi).
í samtali við Vf sagði hann
að Knattspyrnuráð ísafjarðar
hefði í ágúst, síðastliðnum, sótt
um það til bæjarfógeta að fá að
reka þarna veitingasölu og
spilakassa. Umsóknin hefði
verið send Bæjarstjóm til um-
sagnar og hefði ekki enn komið
til baka aftur, til endanlegrar
afgreiðslu. Þrátt fyrir það að
tilskilin leyfi væru ekki fengin
hefði KRÍ rekið, bæði veitinga-
sölu og spilakassa nú um nokk-
urt skeið. Bæjarfógeti kvaðst
ekki ætla að skipta sér af rekstri
veitingasölunnar á meðan um-
sóknin væri til umfjöllunar hjá
Bæjarstjórn, en samkvæmt lög-
reglusamþykkt væri óheimilt að
reka þessi leiktæki og því gæti
hann ekki gefið út leyfi fyrir því
fyrr en ný lögreglusamþykkt
hefði tekið gildi.
Núgildandi lögreglusam-
þykkt er frá árinu 1949 en síð-
astliðið vor lét Bæjarstjórn bæta
inn í hana ákvæði því sem
bannar rekstur leiktækjasala á
ísafirði. Ný lögreglusamþykkt
hefur verið samin, þar sem gert
er ráð fyrir því að bæjarfógeti
geti gefið út leyfi fyrir rekstri
leiktækja, en hún á eftir að
hljóta staðfestingu Dómsmála-
ráðuneytisins og ekki gott að
segja á þessari stundu hvenær
það getur orðið.
Hvar er ísafjarðarmyndin
Á aðalfundi Kaupmannafél-
ags Vestfjarða um daginn, var
rætt um samning fsfirskra
kaupmanna og fleiri aðila við
myndbandaframleiðandann
Myndbæ hf.
Samningurinn var á þá leið
að Myndbær ætlaði að gera
mynd um ísafjörð og bauð
verslunareigendum, þjónustu-
fyrirtækjum, fiskvinnslufyrir-
tækjum og bæjarsjóði að kau-
pa tiltekinn sekúndufjölda í
myndinni. Úr þessum bútum
öllum átti svo að gera eina
heilsteypta mynd, með lesnum
texta, um ísafjörð og þá þjón-
ustu sem þar stendur til boða.
Þessari mynd átti að dreifa á
ýmsa staði þar sem fólk gæti
séð þetta, s.s. á flugstöðvum,
ferðaskrifstofum, sýningum
og víðar. Einnig var kaup-
mönnum boðið að fá sinn
hluta í hendur, þ.e.a.s. þann
bút sem var úr viðkomandi
verslun og sumir höfðu jafnvel
hugsað sér að nota sitt efni í
sjónvarpsauglýsingar.
Það var gerður samningur
við hvern einstakan kaup-
mann og luku þeir allir við að
greiða fyrir sinn hluta í sum-
arbyrjun. Afhending myndar-
innar átti að fara fram í júní en
enn hefur enginn, rúmum
fjórum mánuðum síðar, séð
hana í heild sinni. Hluti
myndarinnar var sýndur á
Sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöll, en það var sá
hluti sem snýr að sjávarútvegi.
Kaupmenn hafa skipað
nefnd, til þess að ganga eftir
þvi' að staðið verði við gerða
samninga, eftir þvi' sem unnt
er.
í þeirri nefnd situr meðal
annarra, Sigrún Magnúsdóttir
og tjáði hún blaðamanni Vf að
hún hefði gert þá kröfu að Jó-
hann Briem, forstjóri Mynd-
bæjar, og Sigurjón Valdi-
marsson, sem var umboðs-
maður fyrirtækisins hér á ísa-
firði og gerði samninga við
kaupmenn, kæmu hingað
vestur með myndina tilbúna
og svo væri hægt að ræða um
Framhald á bls. 7