Vestfirska fréttablaðið - 01.11.1984, Síða 1
45. tbl. 10. árg.
vestfirska
1. nóv. 1984
FRETTABLASIS
f' /'-v
Alla leid me
EIMSKIP
:
AFMÆLISAFSLÁTTUR
ÚT ÞESSA VIKU OG HINA NÆSTU
Smarffidðfjinnsson k £
gími 7200 - tfis Bol untja’iOíh
r................................
I Einar Guðfinnsson hf. 60 ára í dag
í dag, 1. nóvember, eru 60 ár
J liðin frá því að Einar Guð-
I finnsson hóf atvinnurekstur í
| Bolungarvík. Af því tilefni
i verður efnt til afmælisfagnað-
J ar í Félagsheimilinu í Bolung-
I arvík, að kvöldi hins 1. nóv-
1 ember.
Upphaf fyrirtækisins er
I rakið til þess að Einar Guð-
I finnsson keypti, 1. nóvernber
* árið 1924, eignir Hæstakaup-
J staðar hf. í Bolungarvík. Þess-
I ar eignir voru þá verslunar-
* hús, tvö fiskihús og tvær ver-
J búðir, en sjálfur átti Einar á
L-_.............
þessum tíma tvo litla mótor-
báta.
í áranna rás efldist fyrirtæki
Einars Guðfinnssonar og varð
rekstur þess fjölbreyttari. Fyr-
irtækið var gert að hlutafélagi
fyrir nokkrum árum og annast
nú rekstur Ishúsfélags Bol-
ungarvíkur hf., Baldurs hf. og
Völusteins hf„ auk eigin starf-
semi.
Um þessar mundir eru gerð
út fjögur skip á vegum Einars
Guðfinnssonar hf. Skuttogar-
arnir Dagrún og Heiðrún, auk
Hugrúnar sem stundað hefur
línuveiðar. Nýjasta skip Ein-
ars Guðfinnssonar hf er Sól-
rún ís 1. Nýtt skip sem kom til
heimahafnar síðast liðið sum-
ar. Hið nýja skip er á rækju-
veiðum og er búið tækjum til
fullvinnslu á aflanum um
borð.
íshúsfélag Bolungarvíkur var
stofnað 17. júní árið 1928.
Frystihús Ishúsfélags Bolung-
arvíkur hf„ er eitt hið stærsta á
landinu. Á vegum þess er
starfrækt rækjuvinnsla og
hefur svo verið undanfarna
áratugi.
Einar Guðfinnsson hf rekur
ennfremur loðnu- og fiski-
mjölsverksmiðju. Núverandi
húsnæði var reist árið 1963, en
áður hafði fiskimjölsverk-
smiðjan lengi verið starfandi.
Umfangsmikil stækkun og
endurbætur fóru fram á verk-
smiðjunni fyrir nokkrum ár-
um og er hún nú mjög vel búin
tækjum. Á þessu ári hófst
vinnsla á slógmeltu í verk-
smiðjunni og er það nýjung
hér á landi.
Þá er nú umsvifamikill
verslunarrekstur á vegum
Einars Guðfinnssonar hf.
Verslunarreksturinn er í ný-
legu húsnæði og skiptist í
fimm megin deildir: matvöru- I
deild, vefnaðarvörudeild, *
húsgagnadeild og búsáhalda- J
og gjafavörudeild, auk út- |
gerðarvörudeildar. I
í tengslum við verslunina er I
síðan starfrækt brauðgerð og *
kjötvinnsla.
Á vegum Einars Guðfinns- J
sonar hf er einnig starfrækt |
saltfiskverkun. Þá hefur fyrir- J
tækið séð um slátrun á sauðfé, |
á hverju hausti um árabil og I
hefur umboð fyrir ýmsa þjón- J
ustuaðila.
________________________________I
Nýtt íþróttahús á ísafirði:
Teikningar að verða tilbúnar
m ii§
Hér sést líkan af væntanlegu íþróttahúsi í sínu rétta umhverfi.
ísafjarðarmyndin:
Ekki tilbúin enn
— Þrátt fyrir loforð Myndbæjar hf.
Útlitshönnun nýs íþróttahúss
á Isafirði er nú að Ijúka og hefur
arkitektinn, Vilhjálmur Hjálm-
arsson, lagt fram teikningar og
módel sem byggingarnefnd
íþróttahússins hefur fallist á, að
höfðu samráði við ÍBÍ og !-
þrótta- og æskulýðsráð.
Nú er eftir að leggja þessar
teikningar fyrir bæjarstjórn og
samþykki hún teikningarnar
verður unnið eftir þeim. Gróft
áætlað mun bygging íþrótta-
hússins kosta um 70 milljónir og
greiðir Ríkissjóður 59.8% af
byggingarkostnaði, afganginn
greiðir Bæjarsjóður. Á þessari
stundu er ómögulegt að segja til
um það hvenær bygging hússins
hefst eða hvenær henni lýkur.
Það er allt háð fjárveitingum.
Á mánudagskvöldið gafst
blaðamanni Vestfirska frétta-
blaðsins kostur á að sjá fsa-
fjarðarmyndina sem Myndbær
hf hefur gert um ísafjörð og at-
vinnufyrirtæki í bænum.
Samkvæmt ummælum Jó-
hanns Briem, forstjóra Mynd-
bæjar hf„ átti myndin að vera
tilbúin og orðin afar góð en að
mati þeirra sem skoðuðu
myndina með blaðamanni, á
myndin enn nokkuð í land með
að geta talist fullbúin. Hljóð-
setningu var stórlega ábótavant
og víða misræmi, endurtekn-
ingar eða aðrir ágallar í texta og
virtist sem þeir þrír textahöf-
undar sem hlut áttu að máli hafi
lítið borið sig saman.
Með myndinni kom hingað
vestur tæknimaðurinn sem
klippti myndina og tók hann á
móti ábendingum og athuga-
semdum frá kaupendum
myndarinnar til að unnt verði
að leiðrétta og laga það sem
betur má fara.
ísfirskir kaupmenn eru enn
mjög óánægðir með frammi-
stöðu Myndbæjar í þessu máli
þar sem þeir hafa, þrátt fyrir
margítrekaðar beiðnir, ekkert
staðfest í höndum um það
hvernig ætlunin sé að koma
myndinni á framfæri. Jóhann
Briem hefur í samtölum við
menn sagt að hægt sé að gera
margt í þessum efnum og nefnt
ýmis dæmi um dreifingar-
möguleika, en ekkert staðfest
um það hver skuli borga kostn-
að af dreifingunni o.s.frv.
Vegna fenginnar reynslu Uta
kaupmenn ekki við öðru en
skriflegum samningum ef eitt-
hvað framhald á að verða í
þessu máli.
Jóhann Briem, forstjóri
Myndbæjar hf. sagði í samtali
við Vestfirska féttablaðið að þar
,--------------------------1
; bsrb ;
! búið að !
; semja ;
— bæjarstjórn
| samþykkti ísa- |
fjarðarsamn- j
inginn
I Á fundi sínum, síðastliðinn I
J mánudag samþykkti bæjarstjórn J
J (safjarðar samninga viðj
I F.O.S.Vest með 7 samhljóða|
| atkvæðum. Áður höfðu aðrir jj
I samningsaðilar, þ.e. F.O.S. Vestl
I og stjóm Orkubús Vestfjarðal
J samþykkt samninginn.
Seint í fyrrakvöld undirrituðu J
I svo samninganefndir BSRB og|
| ríkisins samningana með venju-1
I legum fyrirvara um samþykkil
I deiluaðila. Það má því reiknal
J með að verkföllum sé lokið aðj
J sinni. Þó er rétt að taka þaðj
■ fram að þegar þetta er skrifað er ■
| ekki búið að semja í Reykjavík |
I og á Seltjarnamesi og standal
I verkföll því enn þar. Einnig erl
J eftir að semja i deilu ASf og VSf J
■ en reiknað er með að það komi J
I til með að ganga án þess að til |
| verkfalls þurfi að koma. |
sem seinkun hefði orðið á af-
hendingu myndarinnar vildi
Myndbær bæta það með því að
gera styttri útgáfu af myndinni,
með enskum texta, til dreifingar
hjá utanríkisþjónustunni og er-
lendis, kaupendum myndar-
innar að kostnaðarlausu. Einnig
vildi hann koma því á framfæri
að Myndbær hefði gert samn-
ing við Isfirðinga um mynd-
gerð, en ekki mynddreifingu.
Hinsvegar hefði hann frá upp-
hafi lýst því yfir að hann væri
reiðubúinn að aðstoða við
dreifingu myndarinnar.