Vestfirska fréttablaðið - 08.11.1984, Síða 5
ísafjarðarkaupstaður
Heimilisþjónusta
Starfsmann vantar við heimilisþjónustu
hjá ísafjarðarkaupstað.
Frekari upplýsingar hjá félagsmálafulltrúa
í síma 3722 milli kl. 10:00 og 12:00 f. h.
Kvöldskólinn ísafirði
— Fræðsla fullorðinna —
Laus er staða forstöðumanns. Um er að
ræða Vi starf í 5 mánuði.
Upplýsingar veitir formaður grunnskóla-
nefndar, Lára G. Oddsdóttir, í síma 3580.
Umsóknarfrestur er til 23. nóvember n. k.
Læknisbústaður
í Bolungarvík
Tilboð óskast í innanhússfrágang læknis-
bústaðar 1 Bolungarvík.
Bústaðurinn er tilbúinn undir trésmíði.
Innifalið í verkinu er allt, sem til þarf að
fullgera húsið að innan, þar með talin tæki
og rafmagnsofnar svo og málun utanhúss.
Verkinu sé að fullu lokið innanhúss 1. apríl
1985, en utanhúss 15. júní 1985. Útboðs-
gögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7 í Reykjavík og hjá bæjarstjóranum
1 Bolungarvík gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð hjá innkaupastofnun
ríkisins þriðjudaginn 20. nóvember 1984,
kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
SVÆÐISSTJÓRN VESTFJARÐA
UM MÁLEFNI ÞROSKAHEFTRA
Framkvæmdastjóri og forstöðumaður
Svæðisstjórn Vestfjarða um málefni fatl-
aðra auglýsir eftirfarandi stöður lausar til
umsóknar:
I. Stöðu framkvæmdastjóra svæðisstjórnar.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar veita formaður svæðis-
stjórnar í síma 94-3722 eða 94-3783 og
framkvæmdastjóri í síma 94-3224 eða 94-
3816.
II. Stöðu forstöðumanns Bræðratungu —
þjálfunar og þjónustumiðstöðvar fatlaðra
á Vestfjörðum. Umsóknarfrestur er til 15.
nóvember n.k. Nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri svæðisstjórnar í síma
94-3224 eða 94-3816.
Bræðratunga; þjálfunar- og þjónustu-
miðstöð fatlaðra á Vestfjörðmn
Þroskaþjálfar og uppeldisfulltrúar óskast
til starfa.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
94-3290.
I vestíirska
rHETTADLADIÐ
vestfirska
FRETTABLADID
Vestfirðingar þurfa að taka upp
samstarf við aðra aðila
í ferðamannaiðnaðinum
Reynir Adóifsson í viðtali við Vestfirska fréttablaðið
Hvernig gengur ferðamannaiðnaðurinn á
Vestfjörðum? Hvað geta ferðamenn átt
hingað að sækja? Erum við í stakk búin til
að taka á móti fleiri ferðamönnum? Ef svo
er, hvernig eigum við að laða þá að? Þessar
og fleiri spurningar komu í hugann þegar
blaðamaður V. f. ákvað að spjalla um þessi
mál við Reyni Adólfsson, framkvæmda-
stjóra Ferðaskrifstofu Vestfjarða fyrir
skömmu. Ferðaskrifstofa Vestfjarða er orð-
in þriggja ára gömul og á þessum tíma hefur
hún verið mikil lyftistöng fyrir ferða-
mennsku á Vestfjörðum. Reynir var fyrst
spurður um hlut Hornstrandaferða í rekstri
skrifstofunnar.
„Hornstrandaferðir verða
aldrei undirstaðan i ferða-
mannaiðnaðinum hérna á
Vestfjörðum. Það er ekki nema
verulega lítill hluti af ferða-
mönnum sem ferðast með tjald
og liggur úti, ef við tökum ís-
lenska ferðamenn sem dæmi.
Þeir sem fara þarna norður eru
helst þeir sem eiga ættir sínar að
rekja þangað norður, eiga þá
annaðhvort hús eða fara á ætt-
armót, eða eitthvað slíkt. Og
síðan eru Útivist, Ferðafélagið
og við með auglýstar ferðir og
þetta eru svona 8 ferðir á ári.
Þetta er ekki meira sem fer
þarna norðureftir en hinsvegar
held ég að ferðamannastraum-
urinn hingað, ef við getum þá
nokkurn tíma kallað það
straum, byggist miklu meira
upp á hinum stöðunum þar sem
hægt er að byggja upp aðstöð-
una fyrir t.d. Islendinginn sem
kemur við á þessum stað:
Tjaldstæði, svefnpokagisting og
betri gisting o.s.frv.
Samstarf og upp-
lýsingamiðlun
Það sem þarf að fara að ræða
núna er hvemig Vestfirðingar
ætla að taka upp samstarf við
aðra aðila í ferðamannaiðnað-
inum því við getum aldrei verið
einir og sér. Þetta eru 10 þúsund
manns og það er enginn sem
hefur peninga né heldur áhug-
ann til að gera þetta. Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga þarf
að taka þetta til sín, leggja fram
peninga til að dreifa upplýsing-
um og síðan þarf að fara í sam-
starf við aðila eins og á Vestur-
landi til þess að þarna myndist
ein heild og menn séu svona
samstíga í ýmsu.
Það þarf að setja
uppferðirum
Vesturiand og
Vestfirði
Það hefur alltaf verið talað
um Hornstrandir og Horn-
bjargið sem eitthvað voðalegt
aðdráttarafl en það held ég að
verði bara hluti af stærri pakka.
Við skulum segja að settar séu
upp ferðir, sem við erum
reyndar þegar búin að ræða um
að gera, sem byrja í Reykjavík
og láta Vesturland og Vestfirði
hjálpast að. Þá notarðu tækin
sem eru á stöðunum, hótelin og
söluapparatið og þá yrðu
Hornstrandir bara dagsferð.
Djúpbáturinn hefur alveg það
sama út úr farþega, hvort sem
hann fer dagsferð eða skilur
hann eftir, þannig að þá fá allir
sitt út úr þessu. Við byrjuðum
aðeins á þessu í sumar, að taka
farþega bara að morgni, skutla
þeim úteftir og síðan fengu þeir
aðeins labbitúr þarna og komu
aftur sama dag, og þeir voru
mjög ánægðir með það að geta
notað aðstöðuna hér, að
minnsta kosti meðan engin að-
staða er byggð upp þama fyrir
norðan, sem verður sjálfsagt
ekki gert í bráð.
Menn þurfa að ræða meira
um, ekki bara þetta svæði hér,
heldur t.d. allt ýesturland.
Við stofnuðum ferðamála-
samtök til að fá alla sem vinna
að ferðamálum á Vestfjörðum
til þess að verða „aktívir". Það
er greinilegt að það hjálpar
enginn Vestfjörðum sérstaklega
í ferðamálum nema þeir sjálfir.
Það er ekki til neinn bæklingur
um Vestfirði eins og er. Sem
dæmi um það hvað þetta er
erfitt má nefna að í dag erum
við með þrjá bæklinga í smíð-
um: einn sem nær yfir alla hluta
Vestfjarða og hann er tilbúinn
til prentunar en það vantar
fjármagnið til að prenta hann,
við erum með götukort hérna af
bænum og það hefur verið tekið
vel í að fjármagna það en það
hefur ekki skilað sér inn það
mikið af peningum frá þessum
aðilum að það sé hægt að koma
því út eins og er. Allt þetta, bara
vegna smæðarinnar, vegna
smæðar hverrar einingar. Þú
sérð bara allar litlu veitingasöl-
umar á þessum stöðum. Þetta er
náttúrulega ekki burðugt miðað
við það sem gerist á Suðurlandi
t.d„ þar sem eru stórar veit-
ingasölur og mikil „traffík“,
þannig að þeir eiga svo lítið af
peningum afgangs til að leggja í
auglýsingar.
Þetta er
fjórðungsmál
Það verður að verða breyting
á hlutunum þannig að Fjórð-
ungssambandið komi meir inn í
þetta mál en verið hefur og þá
eingöngu með útgáfustarfsemi í
huga. Þetta er fjórðungsmál.
Það vantar nýja ferju yfir
Breiðafjörð. Ef við gætum
fengið aukinn straum ferða-
manna upp í Borgarfjörðinn og
jafnvel upp í Stykkishólm, þeir
eru með ágætt hótel líka, þá
getur góður Breiðafjarðarbátur
skipt sköpum um það að fólk
haldi áfram, t.d. upp í Hótel
Flókalund. Síðan ertu með
Hótel ísafjörð hér sem ágætis-
stað og Hótel Bjarkarlund,
þannig að það væri hægt að
keyra fólk svona hring og gista
alltaf á sæmilega góðum hótel-
uym og þarna gætirðu búið til
hringferð sem örugglega yrði
vinsæl, ekki síst ef farin yrði
Þingvallaleiðin úr Borgarfirð-
inum til baka. Þá ertu kominn
með ferð sem vel er seljanleg
erlendum ferðamönnum.
Svefnpokagisting
Annað er að öll svefnpoka-
gisting verði seld á sama verði
þannig að aðili sem kemur inn á
söluskrifstofu erlendis geti
keypt einn miða fyrir hverja
nótt sem hann ætlar að gista á
íslandi og skiptir þá ekki máli
hvar hann gistir í hvert skipti.
Það er miklu þægilegra en
núna, þegar það kostar 160 á
þessum stað, 180 á öðrum, 210 á
þeim þriðja o.s.frv. Það ætti að
vera hægt að samræma þetta.“
Það er semsagt margt á döf-
inni hjá Ferðaskrifstofu Vest-
fjarða og Reynir sagðist vera
nokkuð bjartsýnn ná að hér sé
markaður fyrir slíka skrifstofu.
Verkefnin eru næg, bæði fyrir
Ferðaskrifstofuna og Ferða-
málasamtök Vestfjarða.
Vetraráætlun
flugfélaganna
— Fækkun á ferðum
Það hefur örugglega ekki
farið framhjá neinum að nú er
að koma vetur. Þegar fer að
hausta skipta flugfélögin um
áætlun, vetraráætlun tekur við
af sumaráætlun. Vf fór á stúf-
ana og kannaði hvaða breyt-
ingar það hefði í för með sér
fyrir flug til Vestfjarða.
Þau flugfélög sem um er að
ræða eru: Flugleiðir hf„ Arn-
arflug hf„ Flugfélag Norður-
lands hf. og Flugfélagið Ernir.
Flugleiðir fljúga á þrjá staði
á Vestfjörðum: Patreksfjörð,
Þingeyri og ísafjörð. Til Pat-
reksfjarðar hafa þeir flogið
þrisvar í viku í sumar: á
mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum. í vetur er
flogið á sömu dögum með
þeirri breytingu að á mánu-
dögum fer vélin frá Patreks-
firði til Þingeyrar og þaðan
suður.
í sumar flugu Flugleiðir
tvisvar í viku, á þriðjudögum
og fimmtudögum, til Þingeyr-
ar og áfram til ísafjarðar en í
vetur fljúga þeir um Patreks-
fjörð á mánudögum, eins og
áður segir, og um Þingeyri til
ísafjarðar á fimmtudögum
eins og í sumar. Semsagt,
þriðjudagsferðin fellur niður,
en í staðinn kemur ferð á
mánudögum um Patreksfjörð.
Til Isafjarðar er flogið ellefu
sinnum í viku í vetur. Ein ferð
á sunnudögum, miðvikudög-
um og laugardögum og tvær
ferðir á dag á mánudögum,
þriðjudögum, fimmtudögum
og föstudögum. I sumar voru
farnar tvær ferðir á dag alla
daga vikunnar og reyndar
voru þrjár ferðir á sunnudög-
um um hásumarið. Ferðum
fækkar því um 3 — 4 á viku.
Arnarflug flýgur til fjögurra
staða á Vestfjörðum: Bíldu-
dals, Flateyrar, Suðureyrar og
Hólmavíkur.
Til Bíldudals fara þeir þrjár
ferðir á viku í vetur og er það
sama tíðni og í sumar. Ferð-
irnar eru á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardög-
um.
Ferðum til Flateyrar fjölgar
úr þremur í fjórar í vetur og er
flogið á mánudögum, mið-
vikudögum, föstudögum og
sunnudögum.
Ferðum til Suður-
eyrar fjölgar einnig og er flog-
ið þangað á sömu dögum og til
Flateyrar.
Til Hólmavíkur er flogið á
mánudögum og fimmtudög-
um í vetur og er það sama
ferðatíðni og í sumar.
Flugfélag Norðuralands er
með áætlunarferðir milli Ak-
ureyrar og ísafjarðar. í sumar
var flogið 8 sinnum í viku, alla
daga nema sunnudaga og tvær
ferðir á mánudögum og föstu-
dögum. I vetur fækkar ferðum
niður í 4 í viku og er flogið á
mánudögum, miðvikudögum,
föstudögum og laugardögum.
Og þá er það flugfélagið
Ernir á ísafirði, sem flýgur í
vetur eftir sömu áætlun og í
sumar. Frá ísafirði til Súg-
andafjarðar, Önundarfjarðar,
Þingeyrar, Bíldudals og Pat-
reksfjarðar, alla virka daga. Á
mánudögum og fimmtudög-
um er einnig komið við á
Ingjaldssandi.
Helstu breytingarnar eru
greinilega fækkun á ferðum
milli ísafjarðar og Reykjavík-
ur og milli Isafjarðar og Ak-
ureyrar.
Miðað við sama farþega-
fjölda og í fyrravetur, gera
Flugleiðir ráð fyrir um 59%
sætanýtingu í ferðum milli
Reykjavíkur og ísafjarðar
miöðað við áætlun, sem er að
þeirra sögn sæmileg nýting, en
þó undir meðaltali.
Sigurður Aðalsteinsson
framkvæmdastjóri Flugfélags
Norðurlands sagði skýringuna
á þessari miklu fækkun ferða á
milli Akureyrar og Isafjarðar
að vetrinum vera þá að far-
þegum fækkaði mikið og er
farþegastraumurinn mjög ó-
reglulegur að vetrinum á
þessari leið. Það væri helst
þegar eitthvað er um að vera á
öðrum hvorum staðnum, t.d.
skíðamót, að eitthvað væri af
farþegum og þá bættu þeir inn
aukaferðum. Það sem auð-
veldaði þeim að halda uppi
þetta tíðum ferðum væri það
að þeir gætu notað mismun-
andi stórar vélar, allt frá 5 og
upp í 19 farþega eftir hentug-
leikum.
Flugleiðavél á ísafjarðarflugvelli.
Ferðamál — Ferðamál