Vestfirska fréttablaðið - 08.11.1984, Síða 7
I vestfirska
rp.ETTAELADID
30 manns heiðraðir
í afmælishófi
Hamrahlíð
sigraði í mælsku
Eins og sagt var frá í síðasta
tölublaði Vf átti fyrirtæki Einars
Guðfinnssonar 60 ára afmæli
síðastliðinn fimmtudag. Af því
tilefni var efnt til afmælisfagn-
aðar í Félagsheimilinu í Bol-
ungarvík að kvöldi hins 1. nóv-
ember. Þar var öllum gestum
boðið upp á veitingar og flutt
ávörp, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir söng einsöng og allir þeir
Bolvíkingar sem fæddir voru
fyrir stofnun fyrirtækisins og
höfðu starfað hjá því í 25 ár eða
lengur voru heiðraðir. Það vakti
athygli hvað þetta var stór hóp-
ur, eða um 30 manns.
Sðastliðið föstdagkvöld var
háð í Alþýðuhúsinu á ísafirði
rökræðukeppni á milli Mennta-
skólans á Isafirði og Mennta-
skólans við Hamrahlíð.
Keppni þessi var liður í
Mælsku og rökræðukeppni
framhaldsskólanna á íslandi.
Keppni þessi var öllum opin og
var hún vel sótt. Úrslit urðu
þau að Menntaskólinn við
Hamrahlíð sigraði með 1513
stigum gegn 1153. Stigagjöf var
samkvæmt reglum sem J.C. fer
eftir, og var einn þriggja dóm-
ara frá J.C. Auk þess að Menn-
taskólinn við Hamrahlíð sigr-
aði í þessari keppni varð einn
þeirra, Helgi Hjörvar, valinn
ræðumaður kvöldsins. Aðrir í
sveit M.H. voru Ragnhildur
Þórsdóttir, Benedikt Stefáns-
son og Vilhjálmur Hjálmars-
son. I sveit ísfirðinga voru
Steinþór B. Kristjánsson, Ás-
geir Þ. Jónsson, Inga Bára
Þórðardóttir og Jens Óli Jesp-
ersen.
Stangaveiðimenn vilja
fá ferskvatnsfiskifræðing
Fyrir skömmu var haldinn fé-
lagsfundur í Stangaveiðifélagi
Isfirðinga til að skýra félags-
mönnum frá því sem stjórn fé-
lagsins væri að gera og að segja
frá veiðinni í sumar.
Vestfirska fréttablaðið hafði
samband við Sigurð Sigurðs-
son, gjaldkera félagsins og
spurði hann tíðinda. Félagið
hefur tvær ár á leigu, Hvanna-
dalsá og Langadalsá, og er
skemmst frá því að segja að
mun minna veiddist nú en á
undanförnum árum og sagði
Sigurður að veiðin nú hefði
verið um 60% minni en í með-
alári. Helstu orsakir þessa sagði
hann vera taldar þær að selum
hefði fjölgað mjög og að þeir
ætu drjúgt af laxi. Einnig sagði
Sigurður að það hefði myndast
köld tunga í sjónum, sem lægi
skammt norður af Horni og
austur að Melrakkasléttu.
Þama væri sjórinn miklu kald-
ari en hann er sitt hvoru megin
við og að laxarnir stoppuðu við
tunguna.
Á fundinum var samþykkt á-
lyktun þar sem krafa er gerð um
að á Isafirði verði staðsettur
ferskvatnsfiskifræðingur fyrir
Vestfirði og var þessi ályktun
send til Landbúnaðarráðherra.
Sá fiskifræðingur sem á að
þjóna þessu svæði er staðsettur í
Borgarnesi og telja stangveiði-
menn hér að það sé ákaflega
lítið gagn að honum fyrir Vest-
firðinga.
KERAMIK
NÁM-
SKEIÐ
Keramiknámskeiðin
eru að hefjast.
Hef fengið mikið úrval
af fallegum mótum.
Einnig nýja og betri tegund af leir.
Til sölu eru tilbúnir hlutir, tilvaldir
til jólagjafa.
Keramikstofa Hönnu
Bakkavegi 27, sími 3929
Munið áskriftargjöldin
NÝIR OG SÓLAÐIR
VETRARHJÓLBARÐAR
FYBIR
bíla
SNJÓKEÐJUR
búum við til eftir óskum og máli, auk þess, sem við höfum á lager
eins og venjulega. Höfum að sjálfsögðu hlekki, króka og keðjutangir.
Ljósastilling
Hjólastilling
Vetrarskoðun
VÉLSMIÐJA BOLUNGAVÍKUR HF.
Hafnargötu 57 — 59, símar 7370 og 7380