Vestfirska fréttablaðið - 15.11.1984, Page 1
47. tbl. 10. árg.
vestfirska
15. nóv. 1984
FRETTABLASIÐ
15tegundir
af fallegum
ungbarna
skóm
Stærðir frá 17 til 27.
SinarQuðjjiymszon
£ími 1200 - lfl$ fiol untja’iOílz
Úlfur Gunnarsson læknir
heiðursborgari ísafjarðar
Úlfur Gunnarsson, fyrrver-
andi yfirlæknir á ísafirði var
gerður heiðursborgari ísafjarð-
ar á mánudaginn en hann átti 65
ára afmæli þennan dag. Einnig
eru um þessar mundir 30 ár frá
því að hann hóf störf við
Sjúkrahúsið á ísafirði.
Sjúkrahúsið hélt afmælis-
barninu og konu hans Bene-
dictu, hóf síðdegis á mánudag-
inn þar sem Fylkir Ágústsson
formaður sjúkrahússstjórnar
afhenti honum ljósmynd að gjöf
og Guðmundur Sveinsson, for-
seti bæjarstjórnar afhenti hon-
um heiðarsborgarabréfið.
Fleiri fluttu ávörp við þetta
tækifæri og luku þeir allir miklu
lofsorði á Úlf fyrir störf hans í
þágu læknislistarinnar á und-
angengnum 30 árum. Það var
öllum ljóst sem viðstaddir voru
þessa athöfn að gleði þeirra
hjóna var mikil yfir þessum
þakklætisvotti Isfirðinga þeim
til handa og sagði Úlfur við
blaðamann," Ég hélt að þetta
ætti bara að vera svona venju-
Unglinga-
meistaramót
íslands í skák:
ísfirðingar í
2. — 3. sæti
Um síðustu helgi fór fram í
Reykjavík Unglingameist-
aramót Islands í skák og voru
keppendur á aldrinum 20 ára
og yngri. Tveir ísfirðingar,
þeir Guðmundur Gíslason og
Arinbjörn Gunnarsson komu
þar mjög á óvart og hrepptu
2. — 3. sæti í mótinu með 5É2
vinning hvor.
I efsta sæti varð Davíð
Ólafsson frá Taflfélagi
Reykjavíkur með 6 vinninga.
Eins og áður segir kom þessi
góði árangur ísfirðinganna
mjög á óvart á meðan skák-
snillingar eins og Halldór G.
Einarsson frá Bolungarvík,
Pálmi Pétursson frá Akur-
eyri sem er í 10. sæti af ís-
lendingum á alþjóðlega
ELO listanum og Lárus Jó-
hannesson fengu aðeins 4
vinninga hver.
legt afmæli.“ Úlfur er 3. mað-
urinn sem er gerður heiðurs-
borgari ísafjarðar, áður hafa
þeir Jónas Tómasson tónskáld
(eldri) og Ragnar H. Ragnar
hlotið þessa nafnbót.
Úlfur Gunnarsson hefur tekið við heiðursborgaraskjali úr hendi Guð-
mundar Sveinssonar forseta bæjarstjórnar, sem stendur lengst til
vinstri. Aðrir á myndinni eru bæjarfulltrúarnir Snorri Hermannsson,
Ingimar Halldórsson, Guðmundur Ingólfsson og Reynir Adólfsson.
Arnarfjörður
Rækjuveiðar hefjast eftir áramót
— eru á skeifiskveiðum þangað til
„Það var ákveðið að skipta
þessu þannig að við værum á
skel til áramóta og rækjuveiðum
eftir áramót,“ sagði Eyjólfur
Þorkelsson framkvæmdastjóri
Rækjuvers á Bíldudal í samtali
við Vestfirska fréttablaðið, þeg-
ar hann var inntur eftir því hve-
nær rækjuveiðar myndu hefjast
á Arnarfirði.
Það var ákveðið að haga
þessu svona til þess að komast
hjá öllu þvargi um rækjuverð,
allavega í bili, og sjá svo hvort
að markaðsstaðan og þar með
rækjuverðið lagast ekki eitthvað
um áramótin. Allir þeir bátar
sem verið hafa á rækjuveiðum
undanfarin ár eru nú á skel-
fiskveiðum og gengur þokka-
lega, að sögn Eyjólfs.
Isfirskir at-
hafnamenn
kaupa meiri-
hluta í fisk-
eldisfyrirtæki
í Grindavík
Þrír aðilar á ísafirði, þeir
Tryggvi Tryggvason, Gunnar
Þórðarson og Gunnvör hf.
hafa gengið inn í fiskeldis-
fyrirtæki í Grindavík og eiga
ásamt hollenskum aðila
samanlagt 70% hlutafjár.
Fyrirtækið sem um er að
ræða er í Húsatóftum í|
Grindavík og hefur eftir því
sem Vf. kemst næst verið
byggt upp af Sigurði St.
Helgasyni lífeðlisfræðingi,
en þarna fer fram svokallað
kvíaeldi á laxi.
Vestfirska fréttablaðið
hafði samband við Gunnar
Þórðarson sem er stjórnar-
formaður hlutafélagsins og
spurði hann m.a. um ástæð-
ur þess að þeir ísfirðingarnir
leituðu suður á land til að
standa í þessum rekstri,
hvort ekki væru sömu
möguleikar hér fyrir vestan?
„Okkur finnst þetta nú
heppilegri staðsetning, þetta
er nálægt flugvelli og þar
sem markaðurinn er bestur
fyrir fiskinn ferskan þá má
segja að það útiloki þann
möguleika ef þú ert vestur á
fjörðum. í öðru lagi þá held
ég að ég geti sagt það að
þetta er mjög flókið fyrir-
bæri, þetta er ekki fyrir leik-
menn að standa í laxeldi,“
sagði Gunnar.
Ekki vildu þeir ísfirðingar
sem að þessu standa gefa
upp hversu mikla peninga
þeir legðu í þetta fyrirtæki en
Vf. hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir því að það séu
umtalsverðar fjárhæðir enda
standi til að fyrirtækið færi
út kvíarnar.
Lokafrágangur leikskólans við Eyrargötu
ísverk hf. með lægsta tilboðið
Búið er opna tilboð í lokafrá-
gang leikskólans við Eyrargötu,
en sem kunnugt er, á eftir að
vinna allmikið verk þar innan-
húss.
Kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á 5.211.889 kr. Alls bárust 8
tilboð og voru þau öll undir
kostnaðaráætlun. Það lægsta
var frá ísverki hf og var það um
71% af kostnaðaráætlun eða
3.697.966 kr. Aðrir verktakar
sem buðu í verkið voru: Jakob
Ólason, Eiríkur og Einar Valur
sf, Form sf, Flísin sf, Jón Frið-
geir Einarsson, Daníel Krist-
jánsson og Guðmundur
Ágústsson og Brynjólfur Sam-
úelsson og voru þeir síðasttöldu
með hæsta tilboð ið, en það var
upp á 91.7% af áætluðu kostn-
aðarverði.
Bæjarstjórn hefur samþykkt
að fela bæjarstjóra að gera
samning við ísverk sf og leggja
hann fyrir bæjarstjórn til end-
anlegrar afgreiðslu í þessari
viku.