Vestfirska fréttablaðið - 06.12.1984, Síða 1
50. tbl. 10. árg.
vestfirska
6. des. 1984
FRETTABLASID
Til Reykjavíkur.
Til Akureyrar.
FLUGLEIÐIR
I DAG
Ný sending af
PEYSUM
á dömur og herra
Verslunin
Févesk og Gunnvör hf. flytja út
ferskan fisk
ísafiröi sími 3103
Verður seldur í Grímsby eftir helgi
:.v' -- .. 1 .«3»,
• *■ -
• V •••■
Það var mikið líf við höfnina á
laugardaginn. Verið var að raða
í gáma og skipa út, um 160 til
170 tonnum af ferskum fiski sem
á að selja á uppboðsmarkaði í
Áhöfnin á Júliusi Geirmundssyni ísar fiskinn og raðar í gám
Grimsby á mánudaginn.
Þessi fiskur var úr Gylli,
Guðbjörgu, Júlíusi Geir-
mundssyni og línubátunum
sem landa í Norðurtanganum.
Gunnvör h.f. flytur út fiskinn úr
Júlíusi Geirmundssyni og er
þetta í þriðja sinn sem Gunnvör
flytur fiskinn út með þessum
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði
Rakaskemmdir í kjallara
— Óvíst hvenær endurhæfingadeild kemst í gagnið
hætti í haust. Kristján Jóhanns-
son hjá Gunnvöru hf sagði í
samtali við blaðamann að þessi
útflutningur hefði gefist vel og
að gott verð hefði fengist fyrir
þennan fisk.
Févesk flytur fiskinn út fyrir
hina aðilana sem sendu frá sér
fisk að þessu sinni og sagði Ól-
afur B. Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Févesk að þeir
væru að leita að mörkuðum í
Evrópu fyrir utan hina hefð-
bundnu uppboðsmarkaði og
sagðist hann hafa leitað fyrir sér
í Belgíu, Frakklandi og Holl-
andi. Þar sem sumir telja að
með þessu sé verið að færa at-
vinnu úr landi vildi Ólafur
koma því á framfæri að hann
liti svo á að með þessum út-
flutningi væri hægt að taka
toppa af vinnslunni og gera
henni þannig kleift að vinna
afganginn í hagstæðari pakkn-
ingar. „Með því að láta þetta
vinna saman er hægt að fá há-
marksarðsemi út úr útgerð og
fiskvinnslu,“ sagði Ólafur.
Bygging Fjórðungssjúkra-
hússins á ísafirði hefur verið
nokkuð í fréttum að undanförnu
og ber þar hæst deilur heilbrigð-
ismálaráðs Vestfjarða með Pét-
ur Pétursson í broddi fylkingar
og Framkvæmdadeildar Inn-
kaupastofnunar ríkisins. Einnig
er nú komið upp vandamál er
varðar frárennsli á skólpi frá
húsinu þar sem það liggur það
lágt að sjór leggst að grunni þess
á flóði og skólpið rennur ekki
burt.
Raki hefur valdið skemmd-
um á gólfi í kjallara hússins þar
sem endurhjæfingardeild húss-
ins er ætlaður staður. Sumir
telja að þessi vandi ætti að leys-
ast með tilkomu dælubrunns
sem staðið hefur til um nokkurt
skeið að taka í gagnið. Mjög
brýnt er talið að endurhæfinga-
deildin komist í gang og vantar
ekki mikið til þess að svo geti
orðið en þó þarf fleira til en áð-
urnefnda dælustöð.
Eftir er að setja upp loftræsti-
kerfi og eitthvað af tækjum en
þau eru væntanleg fljótlega, að
sögn Guðmundar Marinósson-
ar framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins. Dælustöð sú sem um er
rætt að þurfi að setja upp til
þess að dæla skólpi frá húsinu
var ekki sett upp fyrir sjúkra-
húsið heldur var hún til þess
ætluð að dæla skólpi út fyrir
eyrina til þess að það félli ekki í
Pollinn. Bjarni Jensson yfir-
maður tæknideildar bæjarins
sagðiu í samtali við blaðamann
að hann teldi það ólíklegt að
umrædd dæla gæti orðið til þess
að beina jarðvatni frá húsinu og
fyrirbyggja þannig skemmdir af
völdum þess. Húsið stendur það
lágt að það rennur að því sjór á
flæði og að sögn Bjarna þarf
miklu öflugri dælu til að ráða
við það. Hinsvegar myndi þessi
dæla líklega koma í veg fyrir að
sullaðist upp úr niðurföllum
eins og komið hefur fyrir þegar
j 18 dagar til jóla j
stórstreymt er. Bjarni sagðist
ekki geta sagt il um það að svo
stöddu hvenær þessi stöð yrði
sett í gang, en hugsanlegt væri
að hún yrði sett upp til bráða-
birgða þannig að hún dældi
skólpinu upp þannig að það
rynni út í Poll.
Mikiar fram-
kvæmdir hjá
Þingeyrar-
hreppi
Ýmsar opinberar fram-
kvæmdir hafa verið í gangi á
Þingeyri að undanförnu, á
vegum hreppsins. Þar má
nefna nýja hafnarvog, iýs-
ingu á hafnarsvæðinu og
byggingu verkamannabú-
staða og dagheimilis. Vf.
hafði samband við Jónas Ól-
afsson sveitarstjóra og
spurði hann nánari fregna af
þessum framkvæmdum.
Nýja hafnarvogin er
byggð fyrir allt að 50 tonna
þunga en sú sem nú er í
notkun tekur aðeins 15 tonn
í senn. Einnig er verið að
ljúka við að byggja nýjan
vigtarskúr og verður þetta
tekið í notkun á næstunni.
Jónas Ólafsson.
Fleiri framkvæmdir eru í
gangi á hafnarsvæðinu. Þar
hefur verið sett upp lýsing á
milli gömlu hafnarmann-
virkjanna og þeirra nýju.
í haust var byrjað að
byggja dagheimili á Þingeyri
og verður það staðsett í
miðju þorp inu. Dagheimilið
er ætlað fyrir 40 böm og er
áætlað að það taki ein 2 ár í
byggingu.
Fyrir jólin verða afhentar
4 verkamannaíbúðir í húsi
sem Hefill hf. á Flateyri hef-
ur verið að byggja fyrir
Þingeyringa.
Verður Húsmæðraskólinn Ósk
lagður niður?
Húsmæðraskólinn Ósk var til
umræðu á síðasta fundi bæjar-
stjórnar ísaf jarðar og brá þá svo
einkennilega við að formaður
bæjarráðs, Þuríður Pétursdóttir,
og oddviti minnihlutans, Guð-
mundur H. Ingólfsson, voru á
einu máli um það að leggja ætti
skólann niður sem sjálfstæða
stofnun, en færa þann rekstur
sem nú fer fram innan veggja
skólans í hendur annarra skóla í
bænum.
Þuríður, sem á sæti í skóla-
nefnd Húsmæðraskólans Ósk-
ar, lét bóka eftirfarandi á fundi
skólanefndarinnar þann 12.
nóvember síðastliðinn:
„Ég álít að hússtjórnar-
menntun sem tilheyrir grunn-
skólanum eigi að falla undir
grunnskólann, sú menntun sem
fellur undir framhaldsskólann
eigi að vera á vegum fram-
haldsskólans og þau kvöld-
námskeið sem rekin eru, falli
undir kvöldskólann, þau fimm
og níu mánaða hefðbundnu
námskeið sem rekin hafa verið í
húsmæðraskólanum eigi að
leggjast niður.
Að öðru leyti álít ég að hús-
næði húsmæðraskólans eigi að
endurskipuleggjast með tilliti til
nýtingar fyrir skólana í
bænum.“